Morgunblaðið - 19.03.2012, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2012
Fylgstu með í MBL sjónvarpi
alla mánudaga
Marta María ræðir við
einstaklinga sem glímt hafa við
offitu og haft betur í baráttunni.
Sævar Már Gústavsson
saevar@mbl.is
Um tíuleytið síðastliðið laugardags-
kvöld barst merki frá neyðarsendi
uppi á Vatnajökli. Í kjölfar þess var
óskað eftir aðstoð frá þyrlu Landhelg-
isgæslunnar og einnig voru fjórir
menn á vélsleðum ásamt tveimur bíl-
um frá Björgunarsveitinni á Horna-
firði sendir af stað.
Neyðarmerkið barst frá tveimur
belgískum fjallgöngumönnum en tjald-
ið sem þeir sváfu í hafði rifnað og sáu
þeir ekki annan kost í stöðunni en að
óska eftir hjálp. Mennirnir eru báðir
vanir fjallgöngumenn og voru búnir
öllum tækjum og fatnaði sem þarf í
svona ferðir. Þegar þeir fundust voru
þeir ekki illa á sig komnir en voru þó
orðnir frekar kaldir.
Um 20 stiga frost var á þessum tíma
og vindur 10-15 metrar á sekúndu að
sögn Jónasar Friðrikssonar, formanns
Björgunarfélags Hornafjarðar. Upp-
lýsingar á vefsvæði Veðurstofunnar
gefa til kynna að með vindkælingu hafi
verið um 35 stiga frost þar sem göngu-
mennirnir fundust en þess má geta að
það sást til Hafnar í Hornafirði frá
staðnum þar sem þeir fundust.
Eitthvað var að
Jónas tók þátt í leitinni að mönn-
unum. „Þetta gekk alveg lyginni líkast
fyrir sig. Milli hálfellefu og ellefu er
haft samband við okkur og við fórum
eitthvað aðeins að kanna málið. Við
töldum þó að mikil hætta væri ekki á
ferðum til að byrja með,“ sagði Jónas.
Hann sagði að þegar menn hefðu velt
því fyrir sér hvað gæti hafa komið upp
á hafi þeim fundist ljóst að eitthvað
hefði gerst og því var ákveðið að
bregðast strax við.
„Við höfðum strax grun um að það
væru þessir Belgar sem lent hefðu í
vandræðum en þar sem þeir voru ekki
komnir á neitt sprungusvæði þá var
dálítið erfitt að átta sig á þessu,“ sagði
Jónas.
Björguðu mannslífum
Tjald mannanna fannst þegar ljós
frá þyrlunni og ljós frá björgunar-
mönnunum mættust. Í ljósunum
miðjum sást rautt tjald Belganna.
„Annar maðurinn kemur strax út úr
tjaldinu og er þá dreginn strax upp en
hinn lá enn í tjaldinu hálf-meðvitund-
arlaus og rankaði eiginlega ekki við sér
fyrr en hann var kominn upp í þyrluna.
Það var ekki möguleiki að stoppa
þarna eða taka saman dótið. Ég held
að ég hafi aldrei áður verið í jafnköldu
veðri,“ sagði Jónas. Þeir sem fóru á
sleða upp á jökulinn fengu allir kalsár í
andlit eftir ferðina þrátt fyrir að hafa
verið búnir þykkum hjálmum.
Þegar mennirnir fundust kom í ljós
að tjald þeirra var rifið og því hafði
snjóað þar inn. „Það var hreinlega ekk-
ert annað í stöðunni fyrir þá en að kalla
eftir aðstoð,“ sagði Jónas. Það var
samdóma álit þeirra sem tóku þátt í
aðgerðinni að mennirnir hefðu ekki lif-
að af hefðu þeir verið á jöklinum yfir
nótt og því hefði í raun verið bjargað
tveimur mannslífum í þessum leið-
angri.
Hefðu dáið úr kulda án aðstoðar
Jökullinn Þegar björgunarsveitarmenn komu að mönnunum var kuldinn svo mikill að þeir gátu ekki tekið saman
búnaðinn þeirra. Þeir náðu í hann í gær og vegna þess hve mikið hafði snjóað þurftu þeir að moka tjaldið upp.
Tveir belgískir göngumenn voru sóttir upp á Vatnajökul Hefðu ekki þraukað nóttina af Björg-
unarmenn fengu kalsár í andlit „Þetta gekk alveg lyginni líkast fyrir sig,“ segir björgunarmaður
Aðgerðin
» Boð frá neyðarsendi barst
um tíuleytið á laugardagskvöld-
inu.
» Um 20 stiga frost var á
þessu svæði og vindur um 10-
15 metrar á sekúndu. Með vind-
kælingu var um 35 stiga frost.
» Ferðamennirnir voru heilir á
húfi og ómeiddir en orðnir frek-
ar kaldir. Þeir hefðu eflaust ekki
lifað nóttina af í tjaldinu.
» Björgunarmenn fengu kalsár
í andliti eftir leiðangurinn.
Ljósmynd/Sigurjón Pétursson
Veðurbarnir Geert De Smecdt og
Wim Venneman jöfnuðu sig eftir
volk næturinnar á Hornafirði í gær.
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
„Við erum í viðræðum við fjárfesta sem ætla að byggja
hótel sem verður Marriott,“ segir Pétur J. Eiríksson,
stjórnarformaður Situs, félags um lóðarréttindi Hörpu,
en félagið á um þessar mundir í viðræðum við svissneska
fjárfestingarfélagið World Leisure Investment um
byggingu lúxushótels við hlið Hörpu. „Þær eru nú ansi
langt á veg komnar og ég reikna með að þær klárist núna
um miðjan apríl, þá verður komin endanleg niðurstaða í
þetta mál,“ segir Pétur spurður út í það á hvaða stigi við-
ræðurnar séu.
Stefnt er að því að hótelið, sem mun bera vörumerki
hinnar víðfrægu Marriott-hótelkeðju, verði eitt af
stærstu hótelum landsins en að sögn Péturs er gert ráð
fyrir 270 herbergjum á hótelinu. „Þetta verður fjögurra
til fimm stjörnu hótel. Það á að höfða til efri enda mark-
aðarins,“ segir Pétur aðspurður um eðli hótelsins og
bætir við: „Það verður hægt að ganga þarna á milli [hót-
elsins og Hörpu] neðanjarðar en ofanjarðar verður þetta
alveg sjálfstæð bygging. Það verður göngubraut í gegn-
um bílakjallarann en þetta á að gera lífið auðveldara fyr-
ir ráðstefnugesti.
Reiknað með að framkvæmdir hefjist árið 2013
Ef allt gengur upp er stefnt að því að skrifa undir
kaupsamning á lóðinni um miðjan apríl og þá er reiknað
með að framkvæmdir geti hafist svona í kringum ára-
mótin, þá sé búið að ganga frá öllum teikningum og fá
þær samþykktar,“ segir Pétur og bendir á að hótelið
verði að öllum líkindum opnað vorið 2015.
Ljóst er að bygging hótelsins verður mikil og mann-
frek byggingarframkvæmd. „Jú, þetta verða einhver
hundruð,“ segir Pétur aðspurður hvort ekki muni skap-
ast einhver fjöldi starfa í tengslum við framkvæmdina.
Spurður hvers vegna stefnt sé að því að opna hótelið ekki
fyrr en árið 2015 segir Pétur að teikninga- og samþykkt-
arferlið taki allt að níu mánuði en að því loknu megi gera
ráð fyrir að framkvæmdirnar sjálfar taki um tvö ár.
Marriott-hótel opnað við
Reykjavíkurhöfn árið 2015
Hótelið verður 4-5 stjörnu og mun innihalda 270 herbergi
Framkvæmdir við hótelið hefjast vonandi árið 2013
Morgunblaðið/Júlíus
Harpa Stefnt er að því að byggja 4-5 stjörnu Marriott-
hótel við hlið tónlistarhússins Hörpu.
Það sem af er árinu hafa
sex hópar erlendra göngu-
manna, sem hafa gengið á
Vatnajökul, kallað eftir að-
stoð frá björgunarsveitum.
Jónas Friðriksson, for-
maður björgunarsveit-
arinnar á Hornafirði, segir
að þetta megi að hluta
rekja til þess að fleiri fari
af stað þegar dag fer að
lengja en margir gleymi að reikna
með því að veður getur enn verið
slæmt uppi á hálendinu á þessum
árstíma.
Jónas Guðmundsson,
verkefnastjóri hjá Slysa-
varnafélaginu Landsbjörg,
segir að á þessu ári hafi
fjöldi útkalla vegna er-
lendra ferðamanna í vand-
ræðum víðsvegar um land
aukist gífurlega.
„Þetta er mörg hundruð
prósent aukning ef ekki
þúsund prósent aukning.
Ég held að við séum til að mynda
búnir að sækja flesta ef ekki alla
þá hópa sem hafa reynt að ganga á
Vatnajökul það sem af er árinu,“
sagði Jónas en nú þegar er búið að
aðstoða fleiri uppi á Vatnjökli en
gert var allt síðasta ár.
Hann telur að þessa aukningu
megi rekja til erfiðs veðurfars en
þessi vetur hefur verið óhemju
umhleypingasamur. Þrátt fyrir að
langflestir séu vel útbúnir og vel
undirbúnir þá hafi veðráttan séð
við þeim. „Flestir sem koma hing-
að eru með mjög góð tjöld sem
eiga að þola flest en rokið hefur
verið svo gífurlega mikið að þau
hreinlega þola þetta ekki,“ sagði
Jónas.
Útköll vegna ferðamanna í vandræðum aukist
VEÐUR GETUR VERIÐ SLÆMT ÞÓTT SÓL HÆKKI Á LOFTI
Jónas
Guðmundsson
Mikið var um útköll hjá lögreglunni
á höfuðborgarsvæðinu í fyrrinótt.
Flest málin voru vegna ölvunar og
hávaða frá heimilum og skemmti-
stöðum. Málin voru af ýmsum toga.
M.a. fékk lögregla tilkynningu
um mann sem var að brjóta rúðu í
Listasafninu við Tryggvagötu.
Annar ölvaður maður var hand-
tekinn á Vegamótastíg grunaður
um að hafa skemmt bifreið og
fleira.
Þá var bifreið stöðvuð við Álf-
heima en ökumaður er grunaður
um akstur undir áhrifum ávana- og
fíkniefna
Hávaði frá heimilum og skemmtistöðum