Morgunblaðið - 19.03.2012, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Sögur úr ferðalagi Kristjana, Ólafur, Vala og Kristján hlusta á Ásu segja
frá ferðalögum fjölskyldunnar út frá myndum þaðan.
gestunum var fólk úr listalífinu, fólk
sem vant er að vinna með allskyns
efnivið, þekktan og óþekktan og gera
úr honum verk fyrir aðra að njóta.
Gestir og gestgjafar urðu því í þessu
framandverki bæði gerendur og
þiggjendur. Og kaffiboðið leið hratt,
eins og skemmtilegra kaffiboða er
siður, þó gestirnir hafi minnst vitað
hve tímanum leið, því hann hafði ver-
ið tekinn úr sambandi. Gestgjafar
máttu hafa sig alla við að fylgjast með
tímanum í klukkuleysinu, því tíminn í
verkinu varð að standast. Erfiðast
var að aka með gesti aftur upp á hótel
í þögn, maður vildi svo gjarnan
spjalla meira, en eftir situr ein-
staklega skemmtileg upplifun og
þakklæti yfir því að hafa fengið að
taka þátt.
Stimpilklukkan hefur
tekið völdin
En hverju vildi framandverka-
flokkurinn ná fram með því að af-
tengja þátttakendur við tímann?
„Við vildum skoða viðhorf okkar
í hinum vestræna heimi til tímans.
Við erum að kanna hvað við höfum
komið okkur saman um í sambandi
við tímann, hvort það sé eðlilegt og
hvort við séum e.t.v. á villigötum með
þessar stundarskrár okkar þar sem
allt verður að ganga upp og varla er
pláss fyrir neitt nema planið. Lífið má
eiginlega ekki eiga sér stað nema það
passi inn í planið,“ sagði Vilborg í
samtali við blaðamann. Hún sagði
þær alltaf vera að vinna með raun-
veruleikann sjálfan sem efni, búa til
einhverskonar skapalón sem fólk get-
ur farið inní og mátað sig við. „Verkið
Hótel Keflavík fjallar sem sagt um
þann veruleika sem margir kannast
við sem vakna snemma á morgnana,
drífa börnin í leikskóla jafnvel þótt
sólin sé klukkutíma „á eftir áætlun“ á
veturna, allt sé niðdimmt og allir
dauðþreyttir og gætu alveg sofið
lengur. Fólk mætir samt á réttum
tíma í vinnuna af ótta við stimp-
ilklukkuna. Hún hefur einhvern veg-
inn öðlast meira vægi í hugum okkar
heldur en okkar eigin hjartsláttur og
líðan. Og skiljanlega, ef enginn færi
eftir stimpilklukkunni þá riðlaðist allt
skipulag í samfélaginu.“
Vilborg sagði hótel kjörinn stað
fyrir framandverk sem þetta, þar
sem hótel eru í eðli sínu staður milli
staða. „Hótel er staður þar sem ekk-
ert á að eiga sér stað nema bið á með-
an farið er frá einum stað til annars.
Hvað gerist í biðinni? Hvað gerist í
tómarúminu sem myndast þegar ekk-
ert stendur til að framkvæma nokk-
urn skapaðan hlut?“ Vilborg sagði
þær hafa lesið sér til um allt mögu-
legt og ómögulegt tengt tímanum og
viðhorf okkar til hans og notað þann
efnivið til að skapa verkið og þannig
hafi þær viljað fá þátttakendur til að
velta fyrir sér hlutum sem væru þeim
hugleiknir.
„Við vildum skoða við-
horf okkar í hinum vest-
ræna heimi til tímans.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2012
Náttúruhamfaranna í Japan hinn 11. mars í
fyrra var minnst á Háskólatorgi í Háskóla Ís-
lands í síðustu viku. Japanskir skiptinemar í
skólanum skipulögðu viðburðinn og í hádeginu
á mánudaginn voru haldnir tónleikar með Sól-
eyju og þá var þar myndasýning tengd hamför-
unum. Skiptinemarnir sögðu frá því hvernig
staðan væri núna í Japan, hvar þeir voru þegar
stór jarðskjálfti varð úti á hafi með þeim afleið-
ingum að mikil flóðbylgja skall á landinu og
hvaða áhrif þetta hafði á þá. Alls létust um 19
þúsund manns og þurftu tæplega 100 þúsund
íbúar í nágrenni kjarnorkuversins í Fukushima
að yfirgefa heimili sín.
„Þeir vildu einnig þakka Íslendingum fyrir
stuðninginn sem við sýndum þeim, vildu minn-
ast atburðanna og leggja áherslu á að þeir
gleymdust ekki. Þeir sögðust vona að söng-
urinn hjá Sóleyju myndi ná til hjarta þeirra sem
eiga um sárt að binda í Japan,“ segir Ólöf Eyj-
ólfsdóttir, fyrsta árs nemi í japönsku í HÍ, en
nemarnir áttu allir heima fjarri þeim svæðum
sem urðu verst úti. „Þeir töluðu um að þetta
hefði verið hryllilegt, að hafa fylgst með þessu í
fréttunum. Þeir upplifðu sig svo máttlausa.“
Um kvöldið var svo haldin kertavaka við Ráð-
húsið.
Minntust þess að eitt ár er liðið frá náttúruhamförunum í Japan
Morgunblaðið/Ómar
Sóley Skiptinemarnir sögðust vona að söngur Sóleyjar næði til Japans.
Þökkuðu Ís-
lendingum fyr-
ir stuðninginn
Minntust hamfaranna Arisa Onishi, Nökkvi Jarl Bjarnason, Jun
Shiota og Ólöf Eyjólfsdóttir hlýddu á Sóleyju spila og syngja.
Origami Þúsund origami-
fuglar voru til sýnis.
Á Háskólatorgi Japönskunemar á öðru ári mættu til að hlýða á
skiptinemana segja frá því hvernig þeir upplifðu hamfarirnar.
Eva Björk er með MA-próf í Performance Making frá Goldsmiths-háskóla í
London og Eva Rún og Vilborg með BA-próf í leiklist – fræðum og fram-
kvæmd frá Listaháskóla Íslands. Þær hafa ennig bakgrunn í myndlist,
tónlist og félags- og kynjafræði.
„Við viljum rýna í hvað liggur að baki merkingum sem við gefum hlut-
um, athöfnum og orðum. Í stað þess að skoða málin úr öruggri fjarlægð
viljum við fara inn í aðstæður sem okkur finnst forvitnilegar og rannsaka
þær innan frá.“ Úr stefnuyfirlýsingu K.b.b.
Af fyrri verkum Kviss búmm bang má nefna The Norm-Olympics, Di-
vorce Party, GET A LIFE!, Great Group og Eight, Safari og Persónur.
Forvitnilegar aðstæður
ÞÁTTTÖKUVERK
FÉLAG
ÍSLENSKRA
BIFREIÐAEIGENDA
80 ára
1932-2012
Félag íslenskra bifreiðaeigenda, Borgartún 33, 105 Reykjavík, s. 414 9999, fib@fib.is, fib.is
Afslættir
LögfræðiráðgjöfTækniráðgjöf
FÍB Aðstoð
Félagsmenn geta leitað til tækniráð-
gjafa varðandi bifreiðatæknileg atriði,
svo sem um viðgerðarkostnað, gæði
viðgerða og varahluta, galla í nýjum
bifreiðum o.fl.
Lögfræðiráðgjafi FÍB er sérfróður um
algengustu vandamál varðandi galla
eða svik í bifreiðaviðskiptum, ófull-
nægjandi viðgerðir og sakarskiptingu
við tjónauppgjör.
Opin allan sólarhringinn.
- Start aðstoð
- Dekkjaskipti
- Eldsneyti
- Dráttarbíll
Þétt afsláttarnet innanlands sem og
erlendis. 150.000 staðir í Evrópu,
Bandaríkjunum og víðar.
Viltu gerast FÍB félagi?
Allt þetta innfalið og meira til!
414 9999 - fib.is
19. og 20. mars næstkomandi. Efni-
viður sýningarinnar endurspeglar
fjölbreyttar hliðar okkar ástsæla
lands þar sem innblástur er sóttur í
stórbrotna náttúru, íslenskar þjóð-
sagnapersónur og ýmis óræð öfl.
Afmælishátíðin mun standa fram
í júní og er von á ýmsum spennandi
danstengdum uppákomum og veg-
legum tilboðum í líkamsræktinni.
„Það er ótrúlega gaman að sjá
hvað þetta óskabarn mitt hefur náð
að dafna vel. Ég er stolt og ánægð
og óska þess að sem flestir sjái sér
fært að fagna þessum áfanga með
okkur,“ segir Bára.
Dansarar Efniviður sýningarinnar endurspeglar margar hliðar Íslands.