Morgunblaðið - 19.03.2012, Qupperneq 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2012
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Súkkulaðibrúnir labradorhvolpar
til sölu. Tilbúnir til afhendingar.
Elín, s. 690-2602.
Rafvirkjun
Raflagnir, dyrasímar - S. 6630746
Bjóðum hagstætt verð í töfluskipti.
Úttekt á raflögnum í eldra húsnæði,
án endurgjalds.
Straumblik ehf.
löggilltur rafverktaki
straumblik@gmail.com
Verslun
Fjarstýrðar flugvélar og m.fl.
Frábært verð á Cessnu 185 með
fjarstýringu eða aðeins kr. 44.900.
Hjólabúnaður fylgir einnig.
Vefsíða Tactical.is. Netlagerinn slf.
Dugguvogi 17-19. S. 517-8878.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu.
Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata,
Kópavogi, s. 551-6488
fannar@fannar.is -
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Bókhald
N.P. þjónusta. Annast bókhalds-,
eftirlits- og gæslustörf.
Hafið samband í síma 893 7733.
Bókhaldsstofa með áratuga-
reynslu
Bókhald, ársreikningar og öll
skattþjónusta. Sanngjarnt verð.
Trúnaður og gagnkvæmt traust.
Fyrirtæki og samningar ehf.,
Suðurlandsbraut 46,
108 Reykjavík. S. 552 6688.
Skattframtöl
Skattframtal 2012
Framtalsþjónusta fyrir einstaklinga
og rekstraraðila. Mikil reynsla -
hagstætt verð.
Uppl. í síma 517-3977.
www.fob.is. netf. info@fob.is.
Þjónusta
Sandblásturfilmur
í öllum stærðum og gerðum fyrir
heimili og fyrirtæki sendið fyrir-
spurn á audmerkt@audmerkt.is
eða skoðið heimasíðu okkar
www.audmerkt.is
Malbikun og malbiks-
viðgerðir
S 551 4000 & 690 8000
www.verktak.is
Málarar
Alhliða málningarþjónusta
Aðeins löggiltir málarar, hagstætt
verð í boði. Upplýsingar í síma:
696 2748, 692 2290.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Vélsleðar
Skidoo-Summit 2008 ´154
Gullmoli
Mjög vel með farinn sleði. Svartur.
Ekinn rúma 5 þús. km, er á annarri
reim frá upphafi. Nýtt belti og margt
fleira. Umsemjanlegt verð.
Uppl. í síma 772-7557.
✝ Jónína KristínJóhann-
esdóttir fæddist á
Hnúki í Klofn-
ingshreppi 11.
júlí 1923. Hún
lést 28. febrúar
2012.
Foreldrar
hennar voru Elín
Elimundardóttir,
f. 25. nóv. 1898,
d. 27. des. 1987,
og Jóhannes Þórður Jónsson,
f. 21. nóv. 1899, d. 13. sept.
1992. Bróðir hennar er Berg-
ur, f. 10. maí 1929.
Jónína giftist 5. desember
1942 Ragnari Hannessyni, f. 5.
júlí 1915, d. 13 maí 1980. Börn
þeirra eru 1) Anna
Birna, f. 19. júlí
1944. Börn hennar
Lárus Ragnar, f.
6.1. 1975, Svanur
Már, f. 3.9. 1978,
Ragnheiður Krist-
ín, f. 1.4. 1983. 2)
Kristján Guð-
mundur, f. 15.
mars 1950. Börn
hans Júlíana Krist-
ín, f. 26.3. 1970,
Hjörleifur Bjarki, f. 9.5. 1975,
Ragnar Þór, f. 9.7. 1980,
Kristján Tjörvi, f. 23.8. 1991,
Jóhann Elí, f. 2.4. 1992. 3)
Sveinbjörn Ólafur, f. 15. okt.
1958. Börn hans Hákon Ingi, f.
30.10. 1979, Íris Ösp, f. 29.6.
1981, Davíð Hannes, f. 28.3.
1990, Sveinbjörn Lucas Pledel,
f. 23.4. 2008. 4) Jóhannes Ey-
berg, f. 15. júní 1962. Barn
hans Kristín Rós, f. 20.1. 1983.
Jónína ólst upp hjá for-
eldrum sínum í Langeyjarnesi.
18 ára réðst hún til starfa á
Hótel Þórsnesi í Stykkishólmi,
þar kynntist hún manni sínum
Ragnari. Árið 1943 réðu þau
sig til Ólafíu og Einars í Garð-
húsum í Grindavík. Þaðan lá
leiðin í Dagvarðarnessel í
Klofningshreppi. 1950 til 1952
voru þau við vitavörslu í
Höskuldsey. 1964 eru fest
kaup á jörðinni Hraunhálsi í
Helgafellssveit og bjó hún þar
allar götur síðan. Jónína bjó
nær allan sinn aldur í sveit
enda hafði hún mikið yndi af
dýrum og blómarækt.
Útför Jónínu fer fram frá
Fossvogskirkju í Reykjavík í
dag, 19. mars 2012, klukkan
15.
Elsku amma mín. Ég kveð
þig með miklum söknuði, en
allar ljúfu minningarnar um
þig lifa enn. Þú hefur alltaf
verið svo stór partur af mínu
lífi, að ég veit ekki hvar ég á
að byrja.
Það var alltaf svo gott að
hlaupa yfir til ömmu. Þá gátum
við setið tímunum saman og
spjallað um heima og geima.
Þá sagðirðu mér oft sögur frá
því þú varst ung, þú sagðir svo
skemmtilega frá öllum dýrun-
um og fólkinu að ég sá þau fyr-
ir mér. Þó sérstaklega hana
langalangömmu sem þú sast
hjá sem barn eins og ég sat hjá
þér. Þú kenndir mér svo
margt, allskonar vísur og gát-
ur sem ég hafði svo gaman af.
Síðan kenndir þú mér fjöldann
allan af köplum og spilum sem
við spiluðum saman.
Ég man þegar ég var lítil,
þegar mamma og pabbi fóru á
þorrablót en ég var svo lítil að
ég mátti ekki fara. Þá héldum
við okkar eigið þorrablót, þá
varst þú búin að kaupa þorra-
mat og allt tilheyrandi. Þessi
kvöld eru ein af uppáhalds-
minningunum mínum um þig.
Eitt sinn var ég búin að semja
skemmtiatriði sem ég tók upp
á kassettutækið mitt, því höfð-
um við báðar gaman af. Síðan
sagðir þú mér allavegana
skemmtilegar sögur og brand-
ara.
Síðan horfðum við oft saman
á Eurovision-söngvakeppnina,
einu sinni man ég eftir að mér
fannst endilega að við gætum
ekki bara verið tvær. Þannig
að ég náði í öll tuskudýrin mín
og dúkkurnar mínar og setti í
sófann þinn inni í stofu. Síðan
horfðum við á keppnina saman
með öllum dýrunum.
Ekki er hægt annað en að
minnast á saumaskapinn þinn
amma mín, þú varst svo flink í
höndunum. Engir sokkar eða
vettlingar jafnast á við þá sem
þú prjónaðir. Þú passaðir alltaf
að manni yrði ekki kalt. Eins
og þegar ég flutti til Bretlands
í hittifyrra. Þá sendir þú mig
með fullt af hlýjum fötum og
prjónaðir meira að segja sér-
staka vettlinga fyrir mig sem
ég gat notað þegar ég var að
læra, ég gat skrifað og pikkað
inn í tölvu þótt ég væri með
þá.
Þegar ég kíkti til þín þegar
þú varst í Reykjavík og þurfti
síðan að keyra heim, þá baðstu
mig alltaf að hringja og láta
þig vita að ég hefði komist heil
heim. Síðasta svona símtal var
síðasta skipti sem við heyrð-
umst. Þú varst svo glöð að
heyra að ég væri komin heim,
því það var svo vont veður.
Elsku amma mín, ég þakka
þér fyrir allar góðu stundirnar.
Ég mun aldrei gleyma þér.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem)
Þín
Kristín Rós.
Jónína Kristín
Jóhannesdóttir
Ár er liðið frá því mín elsku-
lega frænka kvaddi þennan
heim eftir baráttu við illvígan
sjúkdóm sem tók hana með sér
á staðinn þar sem við endum
víst öll. Lella eins og við
krakkarnir vorum vön að kalla
hana er sjötta systkinið sem
fellur frá úr stórum systkina-
hópi, þau voru í upphafi 13
systkini. Hinn 18. mars 2011
fékk ég þær fréttir norður á
heimaslóðir hennar þegar ég
var í háskólanum þar að Lella
frænka mín væri öll. Ég vissi
innst inni að sá dagur kæmi en
vildi trúa því að ég fengi að
hafa hana Lellu mína aðeins
lengur, því þessi kjarnakona
sem geymdi með sér dugnað,
hlýju, húmor og glettni myndi
vera aðeins lengur hjá okkur.
Hún Lella frænka á sér engan
líkan, hún getur verið mjög
Jóhanna Alfa
Víglundsdóttir
✝ Jóhanna AlfaVíglundsdóttir
fæddist á Hólum í
Fljótum í Skaga-
firði 17. júlí 1943.
Hún lést á Sjúkra-
húsi Vest-
mannaeyja 18. mars
2011.
Útför Jóhönnu
fór fram frá Landa-
kirkju í Vest-
mannaeyjum 26.
mars 2011.
glettin og
skemmtilega orð-
heppin og á sama
tíma ákveðin og
beinskeytt sem
gerði hana svo
einstaka á sinn
hátt. Ég á margar
ljúfar minningar
með Lellu við eld-
húsborðið á Skóla-
veginum í Vest-
mannaeyjum þar
sem hún hafði búið til fallegt
heimili ásamt Gústa mannin-
um sínum ásamt börnum
þeirra Ástu og Lása frænda. Í
minningu minni með Lellu
frænku var alltaf spennandi og
skemmtilegt, ég fékk að fara
upp á loft á Skólaveginum að
leika mér með dótið, fékk að
prufa rafmagnsfjórhjól sem
þótti mjög nýstárlegt á þeim
tíma. Fara út í garð og leika
mér í garðstaurunum eða út á
Stakkó að róla eða hanga í
styttunni fyrir framan bæjar-
skrifstofurnar, okkur krökk-
unum leiddist aldrei á Skóla-
veginum. Lella bjó til besta
heimabakað brauð og frægan
heitan rétt sem mér þykir
ennþá í dag einstaklega gott
og mun ég lofa þér Lella mín
að læra hjá Diddu, mömmu
minni að búa til heimabakaða
brauðið þitt og heiti rétturinn
þinn verður áfram á boðstólum
í afmælum og öðrum boðum.
Ég kemst ekki hjá því að
nefna alla væntumþykjuna
sem Lella átti, hún vildi sem
minnst láta bera á því en hún
var einstaklega góð við fólkið
sitt og vildi öllum vel og mátti
ekkert aumt sjá. Einstök
tengsl mynduðust hjá þeim
Daníel Smára frænda og Lellu
sem þau skildu bara tvö, það
átti bara einn Lellu frænku og
það var hann, það var ynd-
islegt að fylgjast með vinskap
þeirra. Mér finnst mjög erfitt
að kveðja Lellu frænku þar
sem ég áttaði mig á því að í
minningu minni sem barn var
Lella og Gurra heitin þær
frænkur sem ég umgekkst
mjög mikið og sóttum við Daði
bróðir mikið til þeirra systra í
heimsókn, pössun, um hátíðar
og að leika við frændsystkinin
okkar. Þær eru báðar farnar.
Það er mér ljúfsárt að fá ekki
að heyra í röddinni, hlátrinum,
sitja á móti þér á Skólaveg-
inum, í þögninni og fá húsráð
frá þér, kæra frænka, hafðu
þökk fyrir allt sem þú hefur
veitt mér og mínum og minn-
ingin þín lifir í hjarta mínu um
ókomna tíð.
Hver minning dýrmæt perla að
liðnum lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug
þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Þín frænka,
Laufey Garðarsdóttir.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
GUÐRÍÐUR G. BENEDIKTSDÓTTIR,
Holtastíg 18,
Bolungarvík,
lést á Landspítalanum að kvöldi
föstudagsins 16. mars.
Útförin fer fram frá Hólskirkju í Bolungarvík
laugardaginn 24. mars kl. 14.00.
Einar Hálfdánsson,
Hálfdán Einarsson,
Benedikt Einarsson, Berglind Brynjarsdóttir,
Halldór Grétar Einarsson, Anna Sigríður Brynjarsdóttir,
Anna Einarsdóttir, Árni J. Bjarnason,
Baldur Smári Einarsson, Harpa Arnórsdóttir,
og barnabörn.
Pabbi sagði að
það hefði alltaf verið gott að
vinna með Gunnlaugi í þeim
verkefnum sem þeir voru að bar-
dúsa í saman. Hann hefði kynnt
sér málin ofan í kjölinn áður en
ákvörðun var tekin en þegar bú-
ið var að marka stefnu var fram-
kvæmdin hiklaus.
Gunnlaugur Briem
Pálsson
✝ GunnlaugurBriem Pálsson
vélaverkfræðingur
fæddist í Reykjavík
19. júní 1932. Hann
andaðist á heimili
sínu 2. mars 2012.
Útför Gunnlaugs
fór fram frá Dóm-
kirkjunni í Reykja-
vík 9. mars 2012.
Í Goðdal var af
nógu að taka og
verkefnin mörg í
gegnum árin og þar
hefur verið ákaflega
gott að vinna með
honum. Drifið í
hlutunum en líka
tekinn tími til að
slaka á eftir gott
dagsverk.
Hann var hlýr og
skemmtilegur mað-
ur sem gaman var að umgangast
og þægilegt að ræða við enda
með góðan húmor og átti auðvelt
með að sjá spaugilegu hliðina á
hlutunum.
Við systkinin áttum greiðan
aðgang í Bröttubrekkunni og var
alltaf tekið vel á móti okkur. Það
var alltaf óskaplega gott að
koma þangað og mjög notalegt.
Inga og Gulli voru rausnarleg og
höfðingjar heim að sækja. Það
sama á við um börn þeirra og
hafa samskipti okkar frænd-
systkinanna verið góð.
Eitt var það sem frændi átti
sem okkur bræðrum þótti
merkilegra en allt annað en það
var Bronco. Pabbi átti Scout en
hann þótti okkur ekki hálfdrætt-
ingur á við Broncoinn og sáum
við það alltaf í hillingum að eign-
ast slíkan kjörgrip einhvern dag-
inn.
Það sem eftir stendur er
minning um heiðursmann sem
gaman var að umgangast. Hann
var frumkvöðull, duglegur og
vinnusamur án þess að gleyma
því sem skiptir máli í lífinu og
fannst okkur hann gæta þess að
njóta lífsins með Ingu sinni og
börnum og barnabörnum.
Magnús Gústafsson, Björn
Magnússon, Einar Gúst-
afsson, Jórunn Magnúsdóttir.