Morgunblaðið - 19.03.2012, Side 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2012
Ég er eiginlega ekki mikil afmæliskona og finnst afmæli frek-ar leiðinlegt fyrirbæri,“ segir Sigrún Stefánsdóttir, dag-skrárstjóri RÚV, sem í dag er 65 ára gömul. Eftir smá um-
hugsun segir hún það sennilega vera öll athyglin sem afmælum fylgi
sem hafi gert hana fráhverfa afmælisstandi en að vera í sviðsljósinu
sé ekki eitthvað sem hún sækist eftir. Það eru hins vegar ekki allir á
því að láta afmælisdaginn líða veislulaust hjá og verður honum
fagnað þrefalt.
„Já, karlinn minn er búinn að pína mig til þess, honum finnst
ómögulegt að ég geri ekki neitt,“ segir Sigrún. „Þannig að ég ætla
að bjóða fjölskyldunni sunnanlands og nánustu vinum í danskan
brunch og maðurinn minn er búinn að bjóða mér út að borða eftir
vinnu. Svo ætla ég að bjóða restinni af fjölskyldunni minni út að
borða þegar ég fer norður á miðvikudag,“ segir hún, en Sigrún og
maður hennar, Yngvar Bjørshol, halda heimili bæði í Reykjavík og á
Akureyri.
Tómstundunum eyða Sigrún og Yngvar helst með barnabörn-
unum en fjöldi þeirra fer eftir því hvernig maður telur, segir Sigrún
og útskýrir: „Synir mínir hafa getið fjögur börn og fengu hvor eitt í
kaupbæti. Svo á maðurinn minn tvö barnabörn þannig að allt í allt
eigum við átta,“ segir hún. Þá segist hún einnig dugleg að viðhalda
garðinum sínum á Akureyri, sem hún gerir af miklum eldmóð, svo
miklum í raun að í fyrra tókst henni að brjóta demant í látunum.
Sigrún Stefánsdóttir er 65 ára í dag
Morgunblaðið/G.Rúnar
Þakklát Sigrún segir að þótt sér leiðist afmælisstand hafi hún lært
að vera þakklát fyrir hvert ár sem hún fær að lifa.
Leiðist afmælishald
en fagnar samt þrefalt
S
igurður Björnsson óp-
erusöngvari fæddist í
Hafnarfirði og ólst þar
upp. Hann hóf nám í
fiðluleik hjá Birni Ólafs-
syni við Tónlistarskólann í Reykja-
vík en sneri sér síðan að söng og
lauk fyrstur söngnema burtfar-
arprófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík vorið 1956. Kennari
hans þar var Kristinn Hallsson en
áður hafði hann lært hjá Pétri
Jónssyni og Guðmundi Jónssyni.
Haustið 1956 fór Sigurður til söng-
náms við Tónlistarháskólann í
München og var aðalkennari hans
Gerhard Hüsch.
Sigurður var fastráðinn óp-
erusöngvari við Ríkisóperuna í
Stuttgart 1962-68, ráðinn að Rík-
Sigurður Björnsson 80 ára
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Óperusöngvarinn Eins og flest annað tónlistarfólk hafði Sigurður beðið lengi eftir tónlistarhúsi í Reykjavík.
Á óperusviðum
Evrópu í fimmtán ár
Fjölskyldan Sigurður ásamt eiginkonu sinni Sieglinde Kahmann sem einnig
er óperusöngvari og börnunum, Daníel og Guðfinnu.
Húsavík Jóhann Aron Júlíusson
fæddist 9. júní kl. 12.49. Hann vó 3705
g og var 53 sm langur. Foreldrar hans
eru Sigrún Karlsdóttir og Júlíus Stef-
ánsson.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
FLOTTAR FERMINGARGJAFIR
HJÁ JÓNI OG ÓSKARI
Stálúr frá Skagen
15.900 kr.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
Úr með leðuról frá Skagen
15.900 kr.
www.jonogoskar.is Laugavegi 61 / Smáralind / Kringlan
Úr með leðuról frá Skagen
18.900 kr.
Selfoss Maris Óskar Leonovs fæddist
á Selfossi 6. september kl. 4.53. Hann
vó 4.580 g og var 55 sm langur. For-
eldrar hans eru Ásdís Helga Agnars-
dóttir og Janis Leonovs.
Nýir borgarar
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur
hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar
verður einnig sagt frá öðrum merkum við-
burðum í lífi fólks, svo sem hjónaböndum,
barnsfæðingum eða öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af
nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum
fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn
mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta á net-
fangið islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón