Morgunblaðið - 19.03.2012, Qupperneq 23
isóperunni í Kassel 1968-72, söng
við óperuna í Graz í Austurríki og
við Volksóperuna í Vín 1972-75, þá
ráðinn að Ríkisóperunni í München
og kom heim í ársbyrjun 1977 eftir
tuttugu ára nám og störf erlendis.
Eftir heimkomuna varð Sigurður
framkvæmdastjóri Sinfón-
iuhljómsveitar Íslands og gegndi
því starfi til ársloka 1990. Þá ann-
aðist hann listkynningu í skólum á
vegum Skólaskrifstofu Reykjavíkur
á árunum 1991-2000.
Tónleikaferðir víða um heim
Meðan Sigurður dvaldi erlendis
söng hann oft sem gestur við ýmis
óperuhús og kom fram á tón-
leikum, ýmist einn eða með öðrum.
Þá söng hann einnig í útvarp og
sjónvarp.
Hér á landi hefur Sigurður kom-
ið fram á óperusýningum í Þjóð-
leikhúsinu og í Íslensku óperunni,
komið fram á tónleikum og við ým-
is tækifæri, auk þess sem hann
hefur sungið í útvarp og sjónvarp.
Hann hefur farið víða og verið ein-
söngvari, m.a. með Karlakór
Reykjavíkur í Bandaríkjunum,
Mið-Evrópu, Ísrael, Egyptalandi,
Kína og víðar. Árið 1990 var hann
ásamt eiginkonu sinni einsöngvari
með austurrískri hljómsveit í fjög-
urra vikna tónleikaferð um Japan,
Taívan og Hong Kong.
Trúnaðarstörf og
vegtyllur
Sigurður var varabæjarfulltrúi
Garðabæjar kjörtímabilið 1988-92,
sat í stjórn Listahátíðar í Reykja-
vík 1988-90 og 1992-96 og var for-
maður þar frá 1994.
Sigurður hefur verið sæmdur
þremur heiðursmerkjum: Aust-
urríki 1988: Das Österreichische
Ehrenkreuz für Wissenschaft und
Kunst; riddarakrossi hinnar ís-
lensku fálkaorðu; Þýskaland: Das
Verdienstkreuz 1. Klasse.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 21.4. 1966
Sieglinde Kahmann, f. 28.11. 1931,
óperusöngkonu. Hún er dóttir Alf-
reds Kahmann, múrarameistara í
Stendal í Þýskalandi, og k.h., Gert-
rud húsmóður en þau eru bæði lát-
in. Um þessar mundir eru um sex-
tíu ár frá því þau hjón fyrst komu
fram sem einsöngvarar.
Kjörsonur Sigurðar er Daníel, f.
6.7. 1962, arkitekt sem býr og
starfar í Berlín en kona hans er
Christjane Sigurðsson hótelstýra
og er sonur þeirra Jan, f. 14.10.
2004.
Dóttir Sigurðar er Guðfinna, f.
25.2. 1967, þrekþjálfari, búsett í
Dubai en maður hennar er Michael
Hansen flugstjóri og eru synir
þeirra Davíð, f. 2.3. 2002, og Ísak,
f. 12.10. 2004.
Systur Sigurðar: Guðlaug, f.
28.12. 1925, fyrrv. skrifstofumaður,
var gift Birni Sveinbjörnssyni
verkfræðingi sem er látinn; Sig-
urlaug, f. 3.7. 1930,
fyrrv. skrifstofumaður, gift Birni
Pálssyni Ijósmyndara og eiga þau
tvö börn.
Foreldrar Sigurðar voru Björn
Árnason, f. 2.5. 1889, d. 14.7. 1979,
bifreiðarstjóri í Hafnarfirði, og
k.h., Guðfinna Sigurðardóttir, f.
2.11. 1892, d. 28.1. 1978, húsfrú.
Úr frændgarði Sigurðar Björnssonar óperusöngvara
Jónas Þorleifsson
b. í Hóli
Árni Björnsson
b. á Móum, Kjalarnesi
Sigríður Jónsdóttir
húsfr. á Móum
Björn Runólfsson
b. í Jórvík í Álftaveri
Þórdís Guðmundsdóttir
húsfr. í Jórvík
Sigurður
Björnsson
Björn Árnason
bifreiðastj. í Hafnarf.
Guðfinna Sigurðardóttir
húsfr. Hafnarf.
Guðrún Árnadóttir
húsfr. í Ási
Sigurður Jónasson
sjómaður í Ási
Guðlaug Björnsdóttir
húsfr. Hólakoti
Árni Bjarnason
tómthúsm. Hólakoti, Álftanesi
ÓlafurWalter
í dómsmálar.
Jónas Sigurðsson
skólastj. Stýrimannskólans
Jón
Árnason
Framkvæmdastjórinn Sigurður á
þeim árum sem hann var fram-
kvæmdastjóri Sinfóníunnar.
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2012
85
Gerður Pétursdóttir
Margrét S. Jóhannesdóttir
80
Guðrún Guðmundsdóttir
María Guðrún
Guðjónsdóttir
Sigurður Björnsson
75
Guðrún Ó. Eggertsdóttir
Jóhannes F. Vestdal
Magnús Tómasson
Reynir Eyjólfsson
Vilný Reynkvist
Bjarnadóttir
Þórdís Jakobsdóttir
70
Elínborg Lárusdóttir
Halldóra Hálfdánardóttir
Helga Stefánsdóttir
Hilmar Pétur Þormóðsson
Sigurður K. Leósson
Sæmundur Þóroddsson
Uni Þórir Pétursson
60
Áslaug Rósa Ólafsdóttir
Bryndís Konráðsdóttir
Jóhann Guðmundsson
Margrét Harðardóttir
Páll Ingi Hauksson
Sigríður H. Kristinsdóttir
Sigurborg Sigurjónsdóttir
Þórólfur Gíslason
50
Arnar Sverrisson
Dagbjartur Helgi
Guðmundsson
Elín Elísabet
Magnúsdóttir
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir
Haukur Tryggvason
Inga Rósa Loftsdóttir
Jóhannes K. Hauksson
Kári Helgfell Jónasson
Ólafur Hilmarsson
Sigrún Halldórsdóttir
Stefán Stefánsson
40
Arnar Helgi Kristjánsson
Bjarki Unnar Kristjánsson
Elín Hallgrímsdóttir
Valgerður Sveinsdóttir
Þórarinn Ingi Ólafsson
Þór Hauksson
Ægir Guðbjarni
Sigmundsson
30
Andri Tómas Gunnarsson
Árni Baldur Möller
Barbara Inga Albertsdóttir
Birgir Már Vigfússon
Freydís Gunnarsdóttir
Guðjón Már Sveinsson
Guðrún Margrét Jónsdóttir
Gyða Dröfn Hannesdóttir
Haukur Þór Leósson
Josephine E. Hákonarson
Guðmundsson
Þór Gunnarsson
Til hamingju með daginn
50 ára Ólöf Ragnheiður
fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hún var í
Réttarholtsskólanum og
lauk prófum frá Leið-
sögumannaskólanum og
er nú framkvæmdastjóri
Mountain Eers of Ice-
land.
Maður Herbert Hauks-
son, f. 1957, fjármála-
stjóri en börn hennar
eru Eiður Smári Guð-
johnsen, f. 1978;Viktoría
Hlíf Theódórsdóttir, f.
1997.
Foreldrar hennar eru
Einar Einarsson, f. 1925,
og Ólöf Stefánsdóttir, f.
1927, húsmóðir.
Ólöf Ragnheiður
Einarsdóttir
30 ára Grétar fæddist í
Njarðvík og ólst þar upp.
Hann lauk prófum í við-
skiptafræði frá HR 2006
og er nú verkefnastjóri á
viðskiptaþróunasviði hjá
ISAVIA á Keflavík-
urflugvelli.
Kona Sonja Kjartans-
dóttir, f. 1985, atvinnu-
flugmaður og flugkennari
hjá Keili en sonur þeirra
er Kristófer Orri Grét-
arsson, f. 2009.
Foreldrar Garðar Tyrf-
ingsson, f. 1953, starfar
hjá Hitaveitu Suðurnesja,
og Kristín Erla Jónsdóttir,
f. 1951, starfsmaður á
leikskólanum Akri.
Grétar Már
Garðarsson
Þorsteinn Hannesson óperusöngvari
fæddist á Siglufirði 19. mars 1917.
Hann var sonur Hannesar Jón-
assonar bóksala og Kristínar Bjarg-
ar Þorsteinsdóttur húsmóður.
Þorsteinn lauk Samvinnuskóla-
prófi árið 1935, stundaði söngnám
hjá Sigurði Birkis á árunum 1939-43,
nám við Royal College of Music í
London 1943-47, við óperudeild
sama skóla og var í einkatímum hjá
Joseph Hislop og Irving Dennis.
Þorsteinn var aðaltenór hjá einu
frægasta óperuhúsi í heimi, The Co-
vent Garden Opera Company, 1947-
54, og söng sem gestur hjá The Ro-
yal Carl Rosa Opera Company, The
Sadler’s Wells Opera Company og
óperunum í Cork á Írlandi og í
Amsterdam í Hollandi. Þá hélt hann
fjölda tónleika víðsvegar á Bret-
landseyjum.
Þorsteinn kom heim til Íslands ár-
ið 1954 og komst þá brátt í hóp
áhrifamestu einstaklinga um sönglíf
og söngmennt hér á landi. Hann
söng og lék fjölda hlutverka hjá
Þjóðleikhúsinu um skeið, var yf-
irkennari söngdeildar Tónlistarskól-
ans í Reykjavík á árunum 1955-66,
var aðstoðartónlistarstjóri Rík-
isútvarpsins og síðan tónlistarstjóri
þess á árunum 1975-81. Þá stjórnaði
hann fjölda tónlistarþátta og vann
mikið starf og þarft verk við flokkun
á sögulegu hljóðritasafni Rík-
isútvarpsins. Hann kenndi auk þess
við Söngskólann í Reykjavík, sat í
stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands
um skeið og sat í Útvarpsráði, í
stjórn Tónlistarskóla Kópavogs og í
stjórn Bandalags íslenskra lista-
manna.
Ævistarf Þorsteins var ekki síst í
því fólgið að kynna, með tónlist-
arþáttum sínum, fyrir íslenskum al-
menningi, það besta sem klassísk
sönglist hafði upp á að bjóða. Til
þess var hann vel fallinn, enda vel
máli farinn, skemmtilegur útvarps-
maður og alþýðlegur í framsetningu.
Þorsteinn lést 3. febrúar 1999.
Merkir Íslendingar
Þorsteinn
Hannesson
30 ára Jóhann fæddist á
Akranesi og ólst þar upp
en hefur átt heima í
Reykjavík 2009. Hann
lauk prófum frá frum-
greinadeild HR, og er nú
rafvirki hjá GT Tækni á
Grundartanga.
Kona Álfheiður Ágústs-
dóttir, f. 1981, sérfræð-
ingur á fjármálasviði EL-
KEM Ísland.
Börn þeirra eru Guð-
mundur Már, f. 2003, og
Elísabet María, f. 2005.
Foreldrar Jóhanna Karls-
dóttir, f. 1952, lektor við
HÍ, og Guðmundur Jó-
hannsson, f. 1952, blikk-
smiður.
Jóhann Steinar
Guðmunsson
Frönsk húsgögn og búsáhöld
fyrir bústaðinn og heimilið
Opið: mán-fös 12:30 - 18:00
Dalvegi 16a - Rauðu múrsteinshúsunum, 201 Kópavogi - S. 517 7727 - nora.is
Eikarborð kr. 180.000, Eikarstólar kr. 24.900 stk.
Matar og kaffistell
Kúluseríur - 25 litir
Hnífapör