Morgunblaðið - 19.03.2012, Síða 32
MÁNUDAGUR 19. MARS 79. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Systur létust eftir ákeyrslu
2. Muamba – alvarlegt ástand
3. Spáir 15 stiga frosti
4. Voru kaldir í rifnu tjaldi
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Nýverið kom út skáldsagan Haf-
golufólk eftir Önnu Dóru Antonsdótt-
ur. Í viðtali segir hún m.a. frá þessari
sjöttu bók sinni, frá sögunni á bak við
fyrstu bókina Voðaskotið og frá
barnabók sem hún vinnur að. »26
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Verkið er fyrst og
fremst saga fólks
Myndbandið við
evróvisjónlagið
Mundu eftir mér,
með þeim Gretu
Salóme og Jónsa,
verður frumsýnt
kl. 12 á hádegi á
vodafone.is. Lagið
hefur verið útsett
upp á nýtt, en
ekki hefur verið gefið upp hvort það
verður sungið á íslensku eða ensku.
Um tveir mánuðir eru þar til íslenski
hópurinn heldur til Aserbaídsjan.
Myndband við Mundu
eftir mér frumsýnt
Kvikmyndin Midnight Cowboy
verður sýnd í mánudagsbíói SÁÁ í
kvöld í Von, Efstaleiti 7. Allar mynd-
irnar sem sýndar eru á þess-
um kvöldum tengjast
áfengis- og vímuefna-
sýki. Sumar fjalla um
drykkjumenn, aðrar
um dópista og sýna
fæstar fólk í bata
heldur þá sem eru
að drepa sig og
tortíma sínum
nánustu.
Midnight Cowboy í
mánudagsbíói SÁÁ
Á þriðjudag Suðvestanátt með skúrum. Hiti 0 til 7 stig.
Á miðvikudag, fimmtudag og föstudag Sunnan 5-13 m/s og
rigning eða súld sunnan og vestan til. Hiti 3 til 8 stig að deginum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 13-18 m/s og slydduél en hægari
og rigning eða slydda NA-til framan af degi og léttir síðan til. Hiti
yfirleitt 0 til 5 stig.
VEÐUR
Óvíst er um þátttöku Rutar
Jónsdóttur og Hönnu G.
Stefánsdóttur í lands-
leiknum gegn Sviss í und-
ankeppni Evrópumótsins í
handknattleik á fimmtudag-
inn. Þá hefur Þorgerður
Anna Atladóttir þurft að
draga sig út úr hópnum
vegna meiðsla. Ágúst Þór
Jóhannsson landsliðsþjálf-
ari hefur af þessum sökum
kallað Karólínu B. Gunn-
arsdóttur inn í hópinn. 1
Meiðsli herja á
landsliðskonur
Fabrice Muamba, knattspyrnumaður
hjá Bolton Wanderers í Englandi, ligg-
ur á milli heims og helju á
sjúkrahúsi í London eftir
að hafa fengið hjarta-
áfall í leik gegn
Tottenham á
laugardag-
inn. »7
Liggur þungt haldinn á
sjúkrahúsi í London
Afturelding og KA fögnuðu sigri í
Asics-bikarkeppninni í blaki sem lauk
í Laugardalshöllinni í gær. Aftureld-
ing sigraði Þrótt Neskaupstað 3:0 í
kvennaflokki og tryggði sér þannig
sinn fyrsta bikarmeistaratitil. KA
vann Stjörnuna 3:1 og tryggði sér
þannig sinn þriðja bikarmeistaratitil í
röð. Alla þrjá úrslitaleikina hafa þeir
unnið á móti Stjörnunni. 4-5
Þriðji í röð hjá KA en
fyrsti hjá Aftureldingu
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Guðrún Sóley Gestsdóttir
gudrunsoley@mbl.is
„Þetta er í raun safngripur sem sýnir
vel handbragð og stíl Benedikts,“ seg-
ir Kristján B. Jónasson, útgefandi hjá
forlaginu Crymogea, sem gefur um
þessar mundir út sérstaka hátíðar-
útgáfu bókarinnar Íslenskir fuglar
eftir Benedikt Gröndal. Bókin er að-
eins framleidd í 100 tölusettum ein-
tökum.
Hundrað fuglateikningar eftir
Benedikt prýða bókina ásamt skraut-
skrifuðum lýsingum. Bókin er eitt af
helstu verkum hans en hefur verið
nánast óþekkt jafnt meðal almennings
og fræðimanna þar til nú. Í henni er
birt heildaryfirlit yfir alla fugla sem
sést höfðu á Íslandi svo vitað væri
fram til ársins 1900 og teiknar Bene-
dikt myndir af þeim öllum, lýsir þeim
og segir frá því helsta sem um þá var
vitað. „Þetta er þykkt og mikið rit, og
er hugsað fyrir þá sem hafa á þessu
sérstakan áhuga,“ segir Kristján.
Teiknari og skrautskrifari
Hátíðarútgáfan inniheldur allt
handrit Benedikts eins og hann gekk
frá því. Hönnuðir bókarinnar eru
Snæfríður Þorsteinsdóttir og Hildi-
gunnur Gunnarsdóttir, sem hlutu nú
fyrir skemmstu Menningarverðlaun
DV fyrir hönnun sína á bókinni og
fleiri verkum.
Á afmælisdegi Benedikts, 6. októ-
ber á síðasta ári, kom út önnur útgáfa
bókarinnar sem ætluð er fyrir al-
mennan markað. Hátíðarútgáfan er
stærri bók og veglegri. „Það er að-
allega tvennt sem er bætt við í við-
hafnarútgáfunni. Annars vegar full
handritsstærð á teikningum og hins
vegar upprunalegur frágangur Bene-
dikts sjálfs. Þannig er allur texti
handritsins skrautskrifaður og við
birtum sýnishorn af því í bókinni, en
Benedikt var mikill teiknari og
skrautskrifari,“ segir Kristján.
Bókin er handbundin í íslenskt
sauðskinn frá Loðskinni á Sauðár-
króki og afhent í viðarkassa. Hér er
því um eigulegan grip að ræða, enda
er verðið í hærri kantinum, 230.000
krónur. „Verð bókarinnar er rétt
rúmlega eitt kýrverð, en eins og
kunnugt er var það til marks um hve
dýr Guðbrandsbiblía var á sínum
tíma að hún kostaði á við eina kú. Al-
mennt verð á kúm mun nú vera um
170.000 kr. fyrir skatt en fullt verð Ís-
lenskra fugla er kr. 230.000.“ En
hverjir skyldu hafa áhuga á að kaupa
bókina? „Mikill fjöldi fólks hefur nú
þegar sett sig í samband við okkur og
pantað sér eintak af bókinni. Um er
að ræða breiðan hóp fólks, bókasafn-
ara, fuglaáhugamenn og sérstaka
áhugamenn um Benedikt Gröndal,
19. öldina og listasögu.“
Kýrverð fyrir bók Benedikts
Hátíðarútgáfa
handrits Bene-
dikts Gröndal
Morgunblaðið/RAX
Listaverk Kristján B. Jónasson, útgefandi hjá Crymogeu, sést hér halda á próförk bókarinnar ásamt Díönu Sig-
urfinnsdóttur, prentara hjá Odda. Bókin verður handbundin í íslenskt sauðskinn og afhent í viðarkassa.
Íslenskum fuglum
er á titilblaði sagt
lokið í Reykjavík
árið 1900. Af dag-
bókarfærslum
Benedikts má þó
sjá að hann vann
að handritinu allt
til ársins 1906
þegar hann stóð á áttræðu. Allar
algengustu tegundir eru sýndar en
einnig flækingar sem Benedikt
teiknaði ýmist eftir eintökum nátt-
úrugripasafnsins eða eftir teikn-
ingum úr öðrum bókum. „Það var
nóg fyrir Benedikt að fugl hefði
sést hér einu sinni til að hann
teiknaði hann inn í bókina,“ segir
Kristján. Hverri teikningu fylgir
misítarleg lýsing á viðkomandi
fugli sem Benedikt skrautskrifaði
sjálfur auk þess að skrautskrifa
titilsíðu og formála. Eftir Benedikt
liggja handrit og myndir, teikn-
ingar af íslenskum dýrum, fiskum,
fuglum og gróðri.
Ástríða til náttúrunnar
ÓMETANLEGT FRAMLAG TIL ÍSLENSKRA NÁTTÚRUVÍSINDA
Benedikt Gröndal