Monitor - 29.03.2012, Blaðsíða 23
23 FIMMTUDAGUR 29. MARS 2012 MONITOR
Skrifstofa: Next Models.
Dæmi um verkefni: Alexander Wang, Marc Jacobs, Topshop
Unique, Fendi, Moschino, Marni og Prada.
Hvernig er týpískur dagur í lífi þínu? Það er eiginlega enginn
dagur eins. Oftast fer ég í nokkur „casting“ og svo stundum eru
myndatökur sem taka allan daginn.
Áttu þér fyrirmynd í tískubransanum? Nei, ég get ekki sagt það.
Hver er þinn uppáhaldshönnuður? Alexander Wang og Christop-
her Kane.
Hvað er svo framundan hjá þér? Það er ýmislegt sem kemur bara í
ljós.
Fyrstu sex: 150494.
Skrifstofa: Next Models.
Dæmi um verkefni: Ilmvatnsherferð, rússneska Elle,
Nylon og ítalska Vogue.
Hvar varst þú uppgötvuð? Þegar ég var 14 ára
fundu þau í Eskimo gamlar myndir af mér í tölvunni
hjá sér og höfðu samband við mig í kjölfarið.
Hvað er skemmtilegasta verkefnið til þessa?
Þau eru svo mörg að það er mjög erfitt að segja
til um það. En stuttmynd sem ég gerði fyrir Munda
stendur upp úr.
Hvert er þitt uppáhaldstrend fyrir
sumarið? Ég verð að viðurkenna að ég
hef ekkert fylgst með komandi
sumartísku. Mér finnst samt
allt litríkt og sumarlegt
alltaf fínt.
Átt þú þér uppáhaldshönnuð?
Já. Sonia Rykiel, Chanel og
Gucci.
Íslenskar fyrirsætur hafa sjaldan verið jafnáberandi í heimi tískunnar
eins og nú. Þær sjást ganga pallana hjá fremstu hönnuðum heims og eru
myndaðar fyrir stærstu tískutímaritin. Stíllinn talaði
við fimm íslenskar fyrirsætur sem starfa erlendis.
á hraðri uppleið erlendis
Íslenskar fyrirsætur
Fyrstu sex: 210893.
Skrifstofa: Select.
Dæmi um verkefni: Miss Selfridge og myndaþættir
fyrir Financial Times.
Hvar varst þú uppgötvuð? Fyrir ári síðan þegar ég
var í Eymundsson að kaupa mér skóladagbók.
Hvert væri draumaverkefnið? Úff, þau eru
ótrúlega mörg. En ég myndi vilja vera á forsíðu
Vogue og i-D. Svo væri draumur að gera einhverja
stóra auglýsingaherferð, t.d. fyrir Calvin Klein eða
Prada.
Skemmtilegasta verkefnið til þessa? Þegar ég fór
í vikuferð til Afríku að mynda fyrir Financial Times.
Þar var allt öðruvísi og framandi og ég held ég hafi
aldrei skemmt mér jafn vel á ævinni. Fólkið sem ég var
að vinna með var frábært og yndislegt að komast í burtu
frá raunveruleikanum, enginn sími og ekkert netsamband.
Fyrstu sex: 250191
Skrifstofa: Wilhelmina Models
Dæmi um verkefni: H&M, Nordstrom, Macy’s, Cosmopolit-
an, Quik Silver.
Hvar varst þú uppgötvuð? Ég var í fríi í New York með
fjölskyldunni. Það kom kona upp að mér í H&M og
spurði hvort ég gæti hugsað mér að vera fyrirsæta
og að ég ætti að hringja í hana ef ég hefði áhuga á
að koma á fund daginn eftir. Mér fannst þetta allt
mjög furðulegt, en ákvað samt að hringja.
Hvernig er týpískur dagur í lífi þínu? Ef ég er ekki
að vinna í einhverju sérstöku verkefni eru yfirleitt
nokkur „casting“ á dag. Svo reyni ég bara að hreyfa
mig og njóta lífsins.
Lumar þú á góðum fegurðarráðum? Hugsa vel um
sjálfan sig, hvíla sig vel, hreyfa sig reglulega, drekka nóg
vatn og sem sjaldnast áfengi.
Fyrstu sex: 210989.
Skrifstofa: Nevs.
Dæmi um verkefni: Kalda, Nikita, Kronkron, Emami.
Ýmis blöð og tímarit.
Skemmtilegasta verkefnið til þessa? Öll verkefnin
sem ég hef unnið með Sögu Sig ljósmyndara.
Átt þú þér uppáhaldshönnuð? Ég er rosalega hrifin af
Isabel Marant og Olivier Rousteing fyrir Balmain. Heima á
Íslandi eru það Kalda-systurnar.
Lumar þú á góðum fegurðarráðum? Alltaf að þvo á sér andlitið
fyrir svefninn og nota
húðvörur án aukaefna.
Hvað er þitt uppáhalds-
trend fyrir sumarið?
Ég ætla að fjárfesta í
einhverju pastel-
lituðu þar sem
fataskápur-
inn minn
inniheldur
nánast
aðeins
svartar
flíkur.
EDDA
LONDON SIGRÚN EVA
NEW YORK
BRYNJA
PARÍS
SVALA LIND
LONDON
KOLFINNA
PARÍS
Tískuhátíðin Reykjavík
Fashion Festival fer fram í
þriðja sinn um helgina. Mikil
eftirvænting ríkir fyrir við-
burðinum, en rjóminn af ís-
lenskum fatahönnuðum sýnir
hönnun sína í Hörpu á föstudags- og laugardagskvöld.
Þeirra á meðal eru Kron by KronKron, Ýr, Kalda, Mundi
og Kormákur & Skjöldur. Hátíðin snýst þó ekki aðeins
um tískusýningarnar, en gestum RFF gefst kostur á að
sækja fyrirlestra hjá þekktum einstaklingum í brans-
anum, t.d. Rúnari Ómarssyni
stofnanda Nikita og Bernhard
Wilhelm fatahönnuði. Einnig
verður Pop-Up markaður og
fyrsta íslenska Fashion’s Night
Out. Allar helstu fyrirsætur
landsins munu taka þátt í sýningunum og tískutímarit
á borð við þýska og ítalska Vogue hafa boðað komu
sína. Það er því spennandi helgi framundan í íslenska
tískuheiminum.
Miðasala á RFF fer fram á midi.is. Nánari upplýsingar á rff.is
Stíllinn er spenntur fyrir...
Reykjavík Fashion Festival 2012
;-)