Morgunblaðið - 12.04.2012, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.04.2012, Blaðsíða 16
FRÉTTASKÝRING Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Tannlæknar þurfa að vega og meta, í hverju tilfelli fyrir sig, hversu oft sé nauðsynlegt að taka röntgenmyndir af sjúklingum, segir formaður Tann- læknafélags Íslands. Niðurstöður nýrrar bandarískrar rannsóknar benda til þess að þeir sem gangast reglulega undir tannröntgenrann- sóknir séu líklegri en aðrir til að fá heilahimnuæxli, en forstjóri Geisla- varna ríkisins segir geislaálagið sem myndatökurnar valdi þó afar lítið. Niðurstöður rannsóknarinnar voru birtar í tímaritinu Cancer en í frétt AFP-fréttaveitunnar um málið kem- ur fram að þátttakendur rannsókn- arinnar sem gengust árlega undir tannröntegnmyndatöku þar sem bitið er á filmuna (bitewing exam) voru 1,4 - 1,9 sinnum líklegri til að hafa fengið slíkt æxli en heilbrigður viðmið- unarhópur. Þá voru þeir sem gengust árlega undir víðmyndaröntgenrann- sókn (panorex exam) 2,7 - 3,0 líklegri til að hafa greinst með heilahimnu- æxli. Rannsóknin byggðist á gögnum um 1.433 bandaríska einstaklinga sem voru greindir með heilahimnu- æxli á aldrinum 20-79 ára en viðmið- unarhópurinn samanstóð af 1.350 heilbrigðum einstaklingum. Náttúruleg geislun 50% „Það er grundvallaratriði í geisla- vörnum að geislanotkun sé réttlæt- anleg; að gagnsemin af geisluninni sé meiri en skaðsemi hennar. Það er al- menna viðmiðið,“ segir Sigurður M. Magnússon, forstjóri Geislavarna rík- isins. Hann segir mikilvægt að aðeins séu framkvæmdar þær röntgen- rannsóknir sem talist geti nauðsyn- legar og aðeins tekinn sá fjöldi mynda sem þörf krefur. Þá þurfi að gæta þess að framkvæmdin sé eins örugg fyrir sjúklinginn og mögulegt er. „Ef við horfum á heildargeislaálag þjóðarinnar, þá er um helmingur þess náttúruleg geislun sem við getum ekkert gert við, t.d. geislun sem kem- ur utan úr himingeimnum. Hinn helmingurinn er síðan fyrst og fremst vegna notkunar geislunar í læknis- fræði en tannröntgenrannsóknir vega mjög lítið í því,“ segir Sigurður. Þá sé geislaálagið sem sjúklingur verður fyrir á tannlæknastofunni afar lítið. Í viðmiðunarreglum Bandarísku tannlæknasamtakanna, ADA, er mælst til þess að börn gangist undir tannröntgenmyndatöku á eins til tveggja ára fresti, unglingar á eins og hálfs árs til þriggja ára fresti og full- orðnir á tveggja til þriggja ára fresti. Þá ályktuðu samtökin árið 2006 að rannsóknir hefðu ekki sýnt fram á gagnsemi reglubundinnar víð- röntgenmyndatöku hjá ein- kennalausum sjúklingum. Slíkar viðmiðunarreglur hafa ekki verið gefnar út af Tannlæknafélagi Íslands, sem hefur þó fjallað um málið í sambandi við áhættumat sjúklinga. Sigurður Benediktsson, formaður félagsins, segir menn mun meðvitaðri nú um mögulega skað- semi geislunar en áður fyrr. Læknarnir í mestri hættu „Það er mjög einstaklingsbundið hversu oft myndir eru teknar. Þegar maður fær fólk í eftirlit er maður í raun alltaf að áhættuflokka það. Stundum er nóg að hreinsa tennur án þess að taka myndir, hjá sumum tekur maður myndir á þriggja til fjögurra ára fresti, en hjá öðrum þarf að taka myndir oftar vegna tannskemmdatíðni og það er þá yf- irleitt þannig að fólk er í áhættuhópi yfir eitthvert ákveðið tímabil. Þá er þörf á tíðari myndatökum hjá þeim í þann tíma,“ útskýrir Sigurður. Hann, líkt og nafni hans, segir geislaskammta í slíkum myndatök- um mjög litla þrátt fyrir allt en menn lesi sér til um þróun mála og fylgist með og séu almennt afar meðvitaðir um að vera ekki að taka myndir að óþörfu. „Það þarf að umgangast alla röntgengeisla á réttan hátt en það vill kannski gleym- ast að í sjálfu sér eru það tannlækn- arnir sem eru í hvað mestri hættu og fara alltaf afsíðis. Það eru í raun þeir sem vinna við þetta sem eru í mestri áhættu,“ segir Sig- urður. Engar óþarfar myndatökur  Bandarísk rannsókn sýnir fram á tengsl tannröntgenrannsókna og heilahimnuæxla  Tannlæknar ákvarða myndatökur út frá áhættumati  Grundvallaratriði að hægt sé að réttlæta geislanotkunina AFP Geislar Rannsakendurnir segja að tannlæknar ættu að endurskoða afstöðu sína til röntgenmyndatöku. 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012 HVERFISTEINAR Hágæða brýnsluvélar, 2 stærðir og mikið úrval aukahluta Opið virka daga frá 9-18 og lau frá 10-16 Lykilverslun við Laugaveg síðan 1919 Áratuga þekking og reynsla Laugavegi 29 - sími 552 4320 www.brynja.is - brynja@brynja.is Verð frá 63.990 kr. Michael Schulder, varastjórn- arformaður taugaskurðlækn- ingadeildar Cushings-taugavís- indastofnunarinnar, sagði í samtali við AFP að niðurstöður rannsóknarinnar kæmu ekki á óvart þar sem áður hefði verið sýnt fram á tengsl milli geislunar og heilahimnuæxla í öðru sam- hengi. Hann sagði að þrátt fyrir að rannsóknin hefði sýnt fram á aukna áhættu væri hún enn lítil en tannlæknar og sjúklingar þeirra ættu þó að íhuga að nota röntgenmyndatökur sjaldnar en árlega nema einkenni gæfu tilefni til annars. Í skýrslu Geislavarna ríkisins um geislaálag vegna röntgen- rannsókna við læknisfræðilega myndgreiningu fyrir árið 2008 kemur fram að það árið voru framkvæmdar alls 704.839 rönt- genrannsóknir á Íslandi en þar af var áætlað að um 450 þúsund, eða um 64%, væru tann- röntgenrannsóknir. Í sömu skýrslu kemur fram að a.m.k. 302 almenn röntgentæki hafi verið í notkun á 207 tannlæknastofum. Þá kemur einnig fram að áætlað með- algeislaálag við tannröntgen- rannsóknir hafi lækkað um 37% frá árinu 1994 og að hlutfall tann- röntgenrannsókna í hópgeisla- álagi röntgenrannsókna árið 2008 hafi verið 0,4%. Hópgeislaálag er skilgreint sem meðalgeislaálag ein- staklinga í tilteknum hópi, marg- faldað með heildarfjölda ein- staklinga. Lítið hlutfall geislunar TANNRÖNTGEN Skúli Hansen Egill Ólafsson Héraðsdómur Reykjavíkur veitti í gær Seðlabanka Íslands vikufrest til þess að skila greinargerð vegna kröfu Helga Jóhannessonar, lög- manns Samherja, þess efnis að ann- ars vegar verði bankanum gert að skila þeim gögnum sem lagt var hald á við húsleit hjá Samherja 27. mars sl. og hins vegar að öllum afritum af umræddum gögnum verði eytt. Í kröfugerð sem Helgi lagði fram í héraðsdómi í gær kemur fram að ljóst sé að aðgerðir Seðlabanka Ís- lands hafi nú þegar og komi til með að valda Samherja-samstæðunni gríðarlegu tjóni, fyrirtækið sjái sig því knúið til þess að leita réttar síns fyrir dómstólum. Að sögn Helga hef- ur Samherji ekki ennþá fengið nein- ar upplýsingar um þau gögn sem lágu til grundvallar húsleitarkröf- unni, sömuleiðis hafi fyrirtækið heldur ekki fengið að vita hvert hið meinta brot sé. Stefán Jóhann Stefánsson, rit- stjóri Seðlabankans, segir rannsókn- ina vera í fullum gangi en ekki sé hægt að segja til um hversu langan tíma hún muni taka. Að hans sögn er ástæða húsleitarinnar grunur um brot á gjaldeyrislögum. Ýmiss konar athugasemdir eru gerðar við húsleitina í kröfugerðinni, en m.a. er því þar haldið fram að húsleitarúrskurðurinn sé víðtækari en heimildir bankans séu samkvæmt lögum um gjaldeyrismál. Þar er einnig gagnrýnt að veitt hafi verið heimild til að leggja hald á gögn þriggja félaga í eigu erlendra aðila. Fær viku til að skila greinargerð  Samherji veit ekki enn hvert hið meinta brot er  Vilja fá gögn tilbaka Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Húsleit Tveir menn að störfum við húsleit hjá Samherja á Akureyri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.