Morgunblaðið - 12.04.2012, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012
✝ Ástrós EyjaKristinsdóttir
fæddist í Vest-
mannaeyjum 7.
nóvember 1922.
Hún lést á hjúkr-
unarheimilinu
Hlévangi 31. mars
síðastliðinn.
Foreldrar henn-
ar voru Gísli Krist-
inn Aðalsteinsson
verkamaður og
Guðbjörg Sigríður Einarsdóttir
húsmóðir, Norðurgarði í Vest-
mannaeyjum. Ástrós Eyja var
elst sjö, eftirtalin í aldursröð;
Sigurgeir, f. 1935, Guðbjartur
Kristinn, f. 1937, Sveinsína, f.
1938, Alfreð, f. 1939, d. 1974,
Árný, f. 1940 og Ásta, f. 1945.
Ástrós Eyja giftist Hjörleifi
Má Erlendssyni, f. 13. október
1927, d. 3. desember 1999. Þau
eignuðust sex börn:
1) Harpa, f. 1953.
Maki Þórður Har-
aldsson, þau eiga
einn son. 2) Þröstur
Elfar, f. 1954. Maki
Dýrborg Ragn-
arsdóttir, þau eiga
tvo syni. 3) Hrönn,
f. 1955. Maki Þor-
geir Kolbeinsson,
þau eiga fjögur
börn. 4) Hlíf, f.
1957, d. 2009. Maki Ómar Leifs-
son, þau eiga fjögur börn. 5) Sól-
ey Vaka, f. 1963. Maki Jóhann
Guðnason, þau eiga þrjá syni. 6)
Bylgja Dögg, f. 1970. Maki Guð-
jón Paul Erlendsson.
Langömmubörnin hennar
Ástrósar Eyju eru orðin 21.
Útför Ástrósar Eyju fer fram
frá Keflavíkurkirkju í dag, 12.
apríl 2012. kl. 13.
Það er erfitt að lýsa þeim til-
finningum sem fara um huga
minn. Hún mamma er farin. Ynd-
islega mamma og mín besta vin-
kona, og ég get engu breytt.
Svona er lífið, ekki spurt um ald-
ur. Mamma var ekki gömul kona,
tilbúin að kveðja. En heilsu
hennar hafði hrakað hratt síð-
ustu tvö ár. Þegar mamma fékk
hjartaáfallið, fyrir rúmum 13 ár-
um, var ekki hennar tími kominn.
Síðan þá hef ég þakkað fyrir
hvert ár sem ég hef átt með
henni yndislegu mömmu minni.
Mamma var svo mikil baráttu-
kona. Þótt erfiðleikar, heilsuleysi
og sorg hafi hrjáð hana og hún
varla getað gert ýmsa hluti, nú
seinni árin, þá reyndi hún eins og
hún gat og sagði svo oft: „Það
þýðir ekkert að gefast upp!“ Hún
vildi aldrei íþyngja neinum en
var svo alltaf tilbúin að aðstoða
alla eins og hún gat.
Öllum þeim sem kynntust
mömmu fannst hún svo hlý og
góð og með yndislega nærveru.
Þannig var hún mamma mín.
Hún elskaði að vera fínt
klædd, fín um hárið og koma í
snyrtingu til hennar Sóleyjar
sinnar og helst að vera öllum
stundum hjá henni. Öll hennar
heimili voru líka svo falleg,
snyrtileg og fín.
Sonum mínum reyndist hún
besta amma í heimi og komu þeir
alltaf með útbreiddan faðminn á
móti henni. Það þótti henni svo
vænt um. Langömmustelpurnar
elskaði hún líka svo mikið og vildi
vera sem mest í kringum þær.
Hún var líka Jóa mínum yndisleg
tengdamamma og elskaði allt
sprellið og fíflaganginn í honum.
Þau voru svo góðir vinir.
Það er dýrmætur sjóður af
minningum sem við yljum okkur
við, elsku mamma, á þessum erf-
iðu stundum og mikill söknuður.
Að sjá þig ekki, heyra ekki í þér,
finna ekki lyktina þína og hafa
þig ekki hjá okkur. Þú ert búin
að vera partur af mínu daglega
lífi alla tíð. Ég er svo stolt að
vera dóttir þín. Þú ert mín fyr-
irmynd. Takk fyrir alla hjálpina,
yndislegu stundirnar, öll fallegu
orðin, alla ástina sem þú gafst
okkur. Ég veit þér líður vel, þú
finnur ekki lengur til.
Ég veit að elsku pabbi, afi,
amma og Hlíf systir taka á móti
þér. Passaðu Bryndísi Evu fyrir
okkur. Við styrkjum hvert annað
í þessari miklu sorg og umvefjum
hvert annað ást og hlýju, eins og
þú umvafðir okkur ást og hlýju.
Og eins og ég sagði alltaf við þig:
„Ég elska þig af öllu mínu
hjarta.“
Þín dóttir,
Sóley Vaka Hjörleifsdóttir.
Það er erfitt að hugsa til þess,
elsku amma, að þú skulir ekki
lengur vera hér með okkur. Í
hjartanu geymi ég allar minning-
arnar sem við áttum saman. Ég
man þegar ég kom og náði í þig
heim á Suðurgötuna fyrir nokkr-
um árum og við tókum smárúnt
áður en við keyrðum út í Garð.
Þú baðst mig að stoppa í búðinni
til að kaupa fyrir þig blómvönd
handa mömmu, já blómin voru
þér mikils virði. Þegar ég var
yngri man ég eftir að hafa verið
hjá þér og ég fór að skoða öll
blómin sem þú áttir og þú sagðir
mér að þú talaðir alltaf reglulega
við blómin svona á meðan þú
gæfir þeim vatn svo að vöxtur
þeirra yrði góður. Þú varst alltaf
svo fín og alltaf með svo fallega
klúta um hálsinn. Mér fannst svo
gaman að fá þig til okkar og ég
átti með þér svo marga góða
daga heima í Garði. Það er mér
svo minnisstætt þegar við Björn
sögðum þér frá því að við ættum
von á barni. Þú varst svo glöð og
þú varst alveg með það á hreinu
að lítil Hrönn væri á leiðinni. Það
var okkur svo mikils virði að þú
skyldir vera með okkur daginn
sem Emilía Hrönn var skírð. Þú
ætlaðir þér að komast upp stig-
ana til okkar og þú komst. Nær-
vera þín þennan dag gaf mér svo
mikið. Þú varst svo hlý og ynd-
islega góð amma og þú talaðir
svo oft við mig um spékoppinn
sem ykkur afa fannst svo falleg-
ur. Ég er svo þakklát fyrir að
hafa notið síðasta dagsins með
þér sem þú komst út í Garð og
það var svo gaman hjá okkur
þennan dag. Þegar við mæðgur
komum svo til þín á Hlévang
ljómaðir þú öll þegar þú sást litlu
prinsessuna okkar. Ég hélt í
höndina þína og við töluðum um
íbúðina og þú varst svo spennt
fyrir okkar hönd og sagðir við
mig að það yrði sko alveg „trufl-
að“ þegar við yrðum flutt.
Elsku amma, ég þakka þér
fyrir allan þann tíma sem ég átti
með þér. Núna ertu komin til afa
og ég trúi því að þér líði vel. Megi
guð vera með þér, elsku amma
mín.
Þín dótturdóttir,
Ingunn Björk Þorgeirsdóttir.
Elsku amma. Það er rosalega
skrítið að hugsa til þess að þú
sért farin. Þú hefur verið svo stór
partur af okkar lífi alla tíð. Pass-
aðir okkur bræðurna svo oft þeg-
ar við vorum litlir. Svo hefur
sambandið alltaf verið svo mikið
og gott. Eftir að afi dó fórstu svo
að vera enn meira hjá okkur og
það verður t.d. skrítið að halda
upp á næstu jól og áramót …
Amma Eyja, eða Eyja amma,
það kölluðu flest barnabörnin
þig. En hjá okkur bræðrunum
varstu bara amma. Við áttum
alltaf bara eina ömmu, en það var
sko alveg nóg, við áttum nefni-
lega bestu ömmu í heimi! Ég
man að ég sagði oft við vini mína
þegar ég var yngri að ég ætti
„ömmu“legustu ömmu í heimi …
Þú keyrðir ekki bíl, kunnir ekk-
ert á sjónvarp eða önnur raftæki,
smakkaðir ekki áfengi og reyktir
ekki. Þú blótaðir aldrei, talaðir
ekki illa um fólk og varst alltaf í
svo góðu skapi. Svo passaðirðu
auðvitað upp á að eiga alltaf ný-
bakað bakkelsi inni í skáp og
mjólk í ísskápnum! Ef þetta er
ekki uppskriftin að hinni full-
komnu ömmu þá veit ég ekki
hvað!
Ég sakna þín sárt amma mín
og hugsa til þín á hverjum degi.
Mér þykir leiðinlegt að hafa ekki
verið á landinu þegar þú kvaddir
þennan heim en ég er ánægður
að hafa séð þig á hverjum degi
vikuna áður en ég fór út og ég
veit líka að þú komst og kysstir
mig bless áður en þú fórst til afa,
Hlífar, Bryndísar Evu og allra
hinna sem tóku á móti þér.
Elska þig amma mín, passaðu
upp á litlu skvísuna mína!
Saknaðarkveðja,
Hjörleifur Már.
Mikið sem það var erfitt að
vakna við þær fréttir að Eyja
amma væri farin frá okkur. Al-
veg sama þó að maður vissi að nú
væri að koma að þessari stund,
kveðjustund.
Það er ekki auðvelt að kveðja
einhvern sem er manni svona
kær. Hvernig á maður að kveðja
einhvern sem hefur alltaf verið
til staðar allt mitt líf? Ég trúi því
að þessi kveðja sé bara tíma-
bundin, þangað til næst. Amma
er komin aðeins á undan. Komin
til afa.
Þær eru ófáar minningarnar
sem streyma um hugann þegar
ég hugsa um Eyju ömmu. Hún
var alltaf svo dugleg að koma og
heimsækja okkur, hvort sem það
var upp á Akranes eða til Horna-
fjarðar og núna síðast í Garð. Já,
það var alveg sama hvar við
bjuggum á landinu, alltaf var hún
dugleg að koma og það var alltaf
jafn æðislegt að fá hana í heim-
sókn. Ég man að alltaf þegar
amma var hjá okkur voru vin-
konuheimsóknir og aðrir hitting-
ar yfirleitt vinsamlegast afþakk-
aðir því ég gat ekki hugsað mér
að eyða þessum dýrmæta tíma í
eitthvað annað en að vera með
henni. Þessi tími fór mikið bara í
ömmukúr, það var svo gott að
sitja og kúra í ömmu – það var
alltaf þessi sérstaka Eyju ömmu-
lykt, það er ekkert betra en þessi
lykt. Og þegar maður kom heim
til ömmu og afa þá var alltaf það
fyrsta sem ég gerði að þefa og
segja ummhh Eyju ömmu-lykt.
Minningarnar eru margar
amma.
Yndislega amma mín, þegar
ég sé þig fyrir mér sé ég þig allt-
af brosandi og hlæjandi. Það er
nefnilega eitt sem ég gleymi
aldrei og er til þess að ég hugsa
um þig í hvert skipti sem ég hlæ.
Það er sko ekki leiðinlegt að
hugsa um þig í hvert skipti sem
ég hlæ og þetta er alveg satt, þú
kemur alltaf upp í hugann þegar
ég er að hlæja og ég heyri það
sem þú sagðir alltaf þegar mér
fannst eitthvað hlægilegt; „… og
þá hlær Guðbjörg“ og fórst að
hlæja með mér með þessum líka
skemmtilega hlátri sem ein-
kenndi þig. Ég hef mikið talað
um þetta við hann Magnús minn
og hann er meira að segja farinn
að segja oft „… og þá hlær Guð-
björg“.
Já þetta eru sko dýrmætar
minningar amma mín og eins og
segir í ljóðinu fallega „Rósin“
… og eitt er það sem aldrei
gleymist, það er minning þín. Þín
verður sárt saknað.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Hvíldu í friði elsku amma
Eyja.
Þín dótturdóttir,
Guðbjörg Valdís
Þorgeirsdóttir.
Það er sárt að kveðja þig í
hinsta sinn, elsku amma Eyja
eða amma Ástrós eins og börnin
mín, barnabarnabörnin þín, hafa
viljað kalla þig og vita til þess að
maður getur aldrei hitt þig á ný
og fengið ömmuknús frá þér.
Amma Eyja var yndisleg og
ljúf kona sem var ætíð svo gott
að hitta. Hennar bros og gleði
umvafði okkur barnabörnin eins
og hlýtt teppi. Hjá ömmu vorum
við barnabörnin og barnabarna-
börnin gullin hennar, yndislegu
og fallegu börnin sem hún var
svo stolt af.
Amma var alltaf svo dugleg að
heimsækja okkur fjölskylduna
þegar ég var yngri. Svo mikil var
gleðin að hafa ömmu að enginn
tímdi að leika við vini sína því
amma var í heimsókn. Sem barn
þótti mér alltaf mjög merkilegt
að ég ætti mömmu sem hafði
upplifað Vestmannaeyjagosið
fræga ásamt fjölskyldu sinni. Úr
þessari lífsreynslu þeirra varð til
svokölluð Vestmannaeyjasaga
sem við systkinin vorum alltaf
hugfangin af að heyra sagða af
henni ömmu Eyju.
Að koma í Keflavíkina til
ömmu og afa var mér einnig allt-
af svo minnisstætt. Þau áttu svo
fallegt heimili sem var fullt af fal-
legum styttum, blómum (silki-
blómum og lifandi plöntum), mál-
verkum sem afi hafði málað og
alls konar dúlleríi eftir hana
ömmu. Amma fegraði umhverfið
sitt hvert sem hún kom. Það var
líka alltaf svo sérstaklega góður
ilmur heima hjá ömmu og afa
sem veitti manni enn meiri sælu-
tilfinningu að vera þarna í heim-
sókn.
Að verða langamma fannst
ömmu Eyju mikill heiður og hvað
þá þegar hennar fyrsta barna-
barnabarn var stúlka og var gef-
ið nafnið Ástrós. Amma var
þakklát fyrir það. Amma tók öll-
um langömmubörnum sínum
opnum örmum og elskaði þau.
Amma var mikil kjarnakona
og er mér mikil fyrirmynd. Þótt
lífið reyndist henni erfitt á köfl-
um þá mátti amma eiga það að
alltaf stóð hún aftur upp og hélt
áfram sinni göngu í gegnum lífið.
Margs er minnast á þessari
stundu og margar minningar
sem ég mun geyma í hjarta mínu,
elsku amma. Enginn dagur er
eins án þín og mun ég sakna þín
sárt sem og barnabarnabörnin
þín. Ég verð dugleg að minnast
með þeim góðra stunda og halda
áfram að ganga lífsins veg svo þú
verðir áfram stolt af mér með afa
og Hlíf þér við hlið. Ég er svo
þakklát að hafa fengið þig sem
ömmu og ég er glöð að önnur
dóttir mín ber þitt nafn. Ég
sakna þín, elsku amma. Guð veri
með þér. Hvíldu í friði.
Ég læt hér fylgja með ljóð sem
ég samdi um hana ömmu mína:
Minningar um hugann minn streyma
hvaða persónu amma hafði að geyma.
Yndisleg persóna sem var mér svo
kær.
Elskuleg amma sem guð nú fær
Amma mín var sem engill á jörð.
Elskaði án skilyrða, hélt um mig vörð.
Hennar hlýja og gleði umvafði alla.
Til hennar var alltaf gott að kalla.
Heimilið svo fagurt og amma svo fín
alltaf tilbúin að hitta börnin sín.
Skemmtileg, falleg, vinaleg vil ég
segja
svo margt var hún mér, hún amma
Eyja.
Einstök amma sem guð mér gaf.
Mikið var gott að eiga hana að.
Minningar um hana munu veita mér
yl.
Ég er svo þakklát að hún var til.
(K.R.Þ.́12)
Kveðja. Þín dótturdóttir,
Katrín Ruth
Þorgeirsdóttir.
Elsku Ástrós. Ég er svo þakk-
lát fyrir allar góðu stundirnar
sem við áttum saman. Þú varst
alltaf svo fín, með lakkaðar negl-
ur, fínt hár og góða lykt. Það var
alltaf svo gott að fá knús frá þér,
alltaf svo hlý og góð.
Ingibjörg Sara og Karítas eiga
eftir að sakna ömmu löngu mikið.
Það verður langt þangað til Kar-
ítas hættir að biðja um að kíkja
til ömmu löngu þegar við keyrum
fram hjá Hlévangi. Við verðum
dugleg að halda minningu þinni
lifandi í huga Inky Vinky og Búb-
bulínu!
Elsku Ástrós, þín verður sárt
saknað, en ég veit að þér líður
betur núna. Ég mun halda áfram
að hugsa vel um hann Hjörleif
þinn og hana yndislegu dóttur
þína.
Saknaðarkveðja,
Linda.
Ástrós Eyja
Kristinsdóttir
✝
Elskulegur sonur, faðir okkar, tengdafaðir,
bróðir og afi,
HAUKUR SIGURBJÖRNSSON,
Smáraflöt 1,
Akranesi,
lést fimmtudaginn 5. apríl.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðju-
daginn 17. apríl kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast hans er bent á reikning fjölskyldu hans,
kt. 020578-4839, 0552-14-401556.
Lilja Guðmundsdóttir,
Jón Þór Hauksson, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir,
Sigurbjörn Hauksson,
Valentínus Hauksson,
Inga Birna Ölludóttir, Gunnar Þór Jóhannesson,
systkini og afabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
KLEMENS BALDVIN SIGTRYGGSSON
rafvirkjameistari,
Árbakka 5,
Seyðisfirði,
sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu Neskaup-
stað mánudaginn 2. apríl, verður jarðsunginn
frá Seyðisfjarðarkirkju laugardaginn 14. apríl og hefst athöfnin
kl. 14.00.
Sigríður Björgvinsdóttir,
Kristín Guðný Klemensdóttir,
María Björg Klemensdóttir,
Selma Ragnheiður Klemensdóttir, Björn Hallgrímsson,
Ólöf Birna Klemensdóttir, Sigurður Bjarni Richardsson,
Arnar Ágúst Klemensson, Bryndís Guðjónsdóttir
og barnabörn.
✝
Okkar ástkæri
ÁSMUNDUR GUÐMUNDSSON
fv. skipstjóri,
Árskógum 6,
Reykjavík,
er látinn.
Útförin fer fram frá Seljakirkju miðvikudaginn
18. apríl kl. 13.00.
Sigríður Einarsdóttir,
Einar Eysteinn Jónsson.
✝
Ástkær eiginkona mín,
VALDÍS MAGNÚSDÓTTIR,
Munaðarhóli 10,
Hellissandi,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn 3. apríl.
Útförin fer fram frá Ingjaldshólskirkju Hellis-
sandi laugardaginn 14. apríl kl. 11.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigurður Kristjónsson.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir,
tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi,
EINAR ÞÓRIR SIGURÐSSON,
Frostafold 14,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn
9. apríl.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánu-
daginn 16. apríl kl. 15.00.
Hulda Ingimundardóttir,
Vera Björk Einarsdóttir, Hjalti Kristjánsson,
Íris Huld Einarsdóttir, Kári G. Schram,
Guðmundur Bjarnason, Ásta Jóhanna Einarsdóttir,
Brynja Bjarnadóttir, Steindór Rafn Theódórsson
og fjölskyldur.