Morgunblaðið - 12.04.2012, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 12.04.2012, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012 ✝ Dagur Jóns-son fæddist á Sauðárkróki hinn 9. apríl 1953. Hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu hinn 31. mars 2012. Foreldrar hans voru Jón Dagsson Jóhannsson, f. 14.3. 1920, d. 3.12.1988, og Ingi- björg Óskarsdóttir, f. 26.10. 1924, d. 24.7. 2011. Systkini Dags eru: Óskar, f. 1943, Dagbjörg, f. 1947, d. 1951, Bjarni Dagur, f. 1950, og Rúnar, f. 1954. Hann kvæntist 22. nóv- ember 1975 Valdísi Þórð- ardóttur, f. 25. júlí 1950. For- eldrar Valdísar eru Þórður Heiðar Guðjónsson, f. 1922, d. 1976, og Elínborg Elísabet Magnúsdóttir, f. 1923. Sonur Dags og Valdísar er Jón, f. 1975, kvæntur Aðalheiði Konstantínsdóttur, f. 1980. Barn þeirra er María Rán, f. 2008. Dag- ur lærði rafvirkj- un í Iðnskólanum í Reykjavík og á Sauðárkróki. Hann vann hjá Rafsjá hf. og var einn af eigendum þar. Dagur lauk sveinsprófi árið 1980, meistari hans var (Bjarni) Páll Óskarsson (móðurbróðir). Dagur flutti til Hafnarfjarðar árið 1999 og vann hjá Rafrún ehf. Flutti aftur heim á Sauð- árkrók árið 2002 og vann hjá Rafsjá hf. og síðan Tengli ehf. til dánardags. Útför Dags fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 12. apríl 2012, kl. 13. Skyndilegt og ótímabært andlát Dags mágs míns kom eins og reiðarslag yfir fjöl- skylduna. Hann hafði ekki kennt sér meins svo vitað sé, var glaður og reifur í hópi vinnufélaga daginn áður og var að taka sig til fyrir ferð til Reykjavíkur þegar kallið kom. En eitt sinn verða allir menn að deyja og dauðinn gerir ekki alltaf boð á undan sér. Margs er að minnast er ég lít til baka yfir farinn veg þau rúmlega 40 ár sem Dagur til- heyrði fjölskyldunni. Fyrst og fremst standa upp úr góðar og skemmtilegar en þó alltof fáar samverustundir með fjölskyld- um okkar systkinanna og móð- ur, bæði fyrir sunnan og á Króknum. Þá var oft mikið hlegið enda Dagur spaugsamur og stríðinn. Hann sómdi sér því vel meðal spaugaranna í fjölskyldunni. Hann var fróður um menn og málefni og hafði gaman af því að segja sögur af fólki. Fyrir stuttu áttum við systkinin og makar slíka stund í Grjótasel- inu. Þá óraði engan fyrir því að hún yrði sú síðasta í þessu lífi. Fyrir þessa kvöldstund munum við að eilífu verða þakklát. Þegar Valdís missti heilsuna rúmlega tvítug að aldri kom í ljós hversu umhyggjusamur, traustur og nærgætinn eigin- maður og faðir Dagur var og þannig var hann alla tíð. Þeir Dagur og Jón voru miklir mát- ar og sjaldan hef ég séð nánara feðgasamband. Eftir að Jón og Heiða fluttu til Danmerkur voru þeir dag- lega í sambandi og þannig gat Dagur fylgst með vexti og þroska litlu afastelpunnar, Maríu Ránar, sem var hans yndi og gleðigjafi. Dagur var heimakær maður, undi sér best með sínu fólki heima fyrir. Sauðárkrókur var hans heimabær og þar leið hon- um best. Þau Valdís fluttu fljót- lega norður eftir giftingu og voru oftast á hraðferð er þau komu suður því Skagafjörður- inn með allri sinni fegurð tog- aði í. Hið smáa samfélag á Króknum, hinir traustu og góðu vinir Dags sem þar búa hafa sýnt fjölskyldunni ómet- anlega umhyggju, hjálpsemi og stuðning á þessum erfiðu tím- um. Nú er skarð fyrir skildi. Sorgin og söknuðurinn tekin við af gleðinni. Elsku Valdís, Jón, Heiða og María Rán, bræður og kæru vinir Dags. Leyfum gleðinni yfir fallegum minningum um góðan dreng að verða sorginni yfirsterkari í framtíðinni. Myndina af Degi geymum við í hjörtum okkar um alla tíð. Við, Þórarinn og fjölskylda, kveðjum kæran mág og góðan vin með söknuði og þakklæti. Anna Kristín Þórðardóttir. Við keyrum yfir Öxnadals- heiðina, yfir Héraðsvötn, ökum löturhægt um miðbæinn. Hringjum í Dag sem lóðsar okkur upp í efri byggðir, framhjá fjölbrautaskólanum, upp hæðina. Leitum að Greni- hlíð. Áttum okkur þegar við sjáum hann veifa fyrir utan raðhúsið. Að sjálfsögðu kemur Dagur Jónsson út til að taka á móti gestum. Valdís frænka stendur í gættinni. Fylgir okk- ur upp þar sem kaffibrauð bíð- ur á borðinu. Dagur er ræðinn. Við spjöllum um helstu tíðindi vikunnar, pólitíkina, heimsmál- in, fjölskylduna. Styttuna af ferjumanninum við Héraðsvötn. Skagfirska bjórinn. Uppbygg- inguna á Hólum. Héðinsfjarð- argöngin. Tengsl Sauðárkróks og Akureyrar. Stundum sam- mála, stundum ósammála en ævinlega gaman. Sjónvarpið er í gangi í stofunni, erlend stöð, oftast sú danska. Kannski fót- bolti. Göngum út á pallinn fyrir aftan húsið, krakkarnir sjá róló og stinga af. Tölum um Maríu Rán, barnabarnið í Danmörku sem þau hitta á skæpinu og hlakka til að heimsækja næsta sumar. Við skruppum stundum í kaffi til Valdísar og Dags eftir að við gerðumst Akureyringar. Þegar við hjónin minnumst Dags koma þessar heimsóknir strax upp í hugann. Það var gaman að hitta Dag á heima- velli. Á Króknum tók á móti okkur stoltur Skagfirðingur, ábyrgur og gegnheill maður sem fylgd- ist afskaplega vel með því sem var að gerast, hvort sem það var heima í héraði eða úti í hin- um stóra heimi. Hann hafði sterkar skoðanir, gat skellt fram hnyttnum athugasemdum og beittum skotum vegna hita- mála í samfélaginu en lét aldrei orð falla um eigin stöðu eða hlutskipti. Við fundum hvað hann var æðrulaus og rótfast- ur, hvernig hann tók öllu sem að höndum bar. Hann var hæg- látur, yfirvegaður og jarðbund- inn, traustur og umhyggjusam- ur gagnvart fjölskyldu sinni og alltof ungur þegar hann lést. Andlát hans var óvænt og mik- ið áfall. Við vissum það vel, en áttum okkur þó enn betur á því núna hvað Valdís var vel gift. Við minnumst Dags með hlýju og virðingu og sendum Valdísi, Jóni, Heiðu og Maríu Rán dýpstu samúðarkveðjur. Brynhildur Þórarinsdóttir og Þóroddur Bjarnason. Dagur Jónsson Á fögrum sumar- degi árið 1959 kom Helga Þórð- ardóttir í Auðsholt. Það var mikill gleðidagur, því hér var komin verðandi húsfreyja í Auðsholti, eiginkona Tómasar bónda Tóm- assonar. Hún hafði með sér son sinn, Þórð Hjartarson, sem við fylgjum til grafar í dag. Þórður var ljóshærður strákhnokki, glað- klakkalegur og nokkuð fyrirferð- armikill. Undirritaðri var fengið það hlutverk að gæta piltsins. Með okkur tókst góð vinátta, sem hefur varað fram á þennan dag. Árin liðu og í ljós kom að kröf- ur heimsins og hæfileikar Þórðar rímuðu ekki sem best saman. Á sambúð þeirra urðu ýmsir agnú- ar. Stundum minnti hann mig á glæsilegt skip, sem af einhverjum óskiljanlegum ástæðum megnaði ekki að leggja úr höfn og sigla sinn sjó. Í fallegu kvæði um bernsku sína segir skáldið Örn Arnarson: „Suma skortir verjur og vopn að hæfi, þótt veganestið móðurhjartað gæfi.“ Þórður Hjartarson var ljós- hærður og bjarteygur maður, glæsilegur að vallarsýn. Hann var ævinlega hress í máli og kunni vel að segja sögu á góðri stund. Hann var náttúruunnandi og mikil veiðikló. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund og frá skólaárunum átti hann trygga vini. Hann var í sambúð við Sif Konráðsdóttur og áttu þau saman dótturina Helgu Österby Þórðar- dóttur. Það kom í hlut Þórðar að annast um Helgu litlu og gerði hann það af stakri natni og um- hyggju. Ef öll börn hlytu eins góða umönnun og hún Helga litla Þórðardóttir, þá væru ekki vand- ræði í heiminum. Helga var auga- steinn föður síns og ákaflega lík honum í sjón, stór og myndarleg og fagurlega hærð. Það var Þórði þung raun að skiljast við hana, en hann bar sig vel. Þórður var vel máli farinn og talaði ákaflega fallega íslensku. Þegar hann ökklabrotnaði fyrir nokkrum árum dvaldi hann hjá Þórður Hjartarson ✝ Þórður Hjart-arson fæddist í Reykjavík 26. júlí 1956. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 28. mars 2012. Þórður var til moldar borinn frá Neskirkju 11. apríl 2012. mér í Þýskalandi um mánaðartíma til að jafna sig. Morgun- verðurinn teygði sig jafnan fram yfir há- degi og margt var skrafað í eldhúsinu í Rheinstr. 79. Andi skáldskapar sveif yfir vötnunum – eða öllu heldur yfir kaffibollunum. Eitt kvöldið fórum við á karnevalsskemmtun og af því til- efni setti Þórður upp glæsilegan hatt. Það kvöld var ruglast á hon- um og John Wayne. Þórður fékkst við ritstörf og gaf fyrir nokkrum árum út frum- raun sína, skáldsöguna Konungur fjalls og heiða. Mér er til efs að lýrískari prósi hafi verið skrifaður á íslensku í seinni tíð. Ekki entist honum aldur til að ljúka við seinna bindið. Hann er nú kominn yfir móðuna miklu og inn í víðar lendur eilífðarinnar, þar sem hann er sjálfur konungur fjalls og heiða. Kannski er hver maður sendi- bréf frá Guði. Það er ekki öllum hent að skilja öll sendibréf Guðs. Þeir, sem skildu skilaboð Þórðar Hjartarsonar, skynjuðu að þar fór hjartahlýr og góður drengur. Hann er vinum sínum harmdauði og móðir hans og dóttir trega hann ákaflega. Að leiðarlokum vil ég þakka honum samfylgdina. Ég sendi fjölskyldu hans og vinum innileg- ar samúðarkveðjur. Móður hans og dóttur bið ég allrar blessunar. Drottinn minn gef dánum ró, en hinum líkn sem lifa. Vilborg Auður Ísleifsdóttir. „Vötn til fjalla og menn á fjöll- um, hvað viltu hafa það betra?“ Með þessum orðum áritaði Þórð- ur Hjartarson bók sína Konungur fjalla og heiða, frumraun í útgáfu skáldverka. Við áttum saman notalega stund í stofunni í Garða- bæ þegar hann færði mér þessa bók rétt fyrir jólin 2010, spjölluð- um um heima og geima, aðallega um veiði á fjöllum og einnig fram- haldð af bókinni góðu sem hann væri með í vinnslu. Þórður var mikið náttúrubarn, sagnamaður og veiðimaður. Hann hefur verið hluti af hópi veiði- manna sem árlega hefur farið til Veiðivatna í tugi ára. Í upphafi tóku nokkrir skólafélagar frá Menntaskólanum að Laugarvatni sig saman um þessar veiðiferðir og var Þórður frá upphafi hluti af hópnum, bæði tengdur hluta hópsins fjölskyldu- og vinabönd- um. Þessar Veiðivatnaferðir hafa verið tilhlökkunarefni allan vet- urinn hjá félögunum og tilhlökk- un Þórðar að komast til Veiði- vatna var alltaf mikil. Stundum hittumst við að vetrinum og sögð- um veiðisögur, borðuðum saman fornan íslenskan mat og undir- bjuggum okkur andlega fyrir sumarferðirnar, t.d. kenndi Þórð- ur okkur að hnýta flugur en hann var meistari í fluguhnýtingum. Ég hef engan mann séð annan en Þórð sem getur hnýtt hinar und- arlegustu flugur fríhendis nánast í myrkri á síðkvöldum í veiðikof- um í Veiðivötnum. Sérstaklega er eftirminnilegt að þegar hann vantaði hár í tilteknum lit, sem hann var viss um að myndi virka, sleit hann hár úr hundinum sín- um, sem reyndar brást hinn versti við, en flugan virkaði vel. Þórður kunni sérstaklega vel við sig í Veiðivötnum og hampaði því að hann væri afkomandi Ampa, sem ásamt konu sinni reyndi að setjast að í Veiðivötnum um miðja 19. öld og lifa af gæðum landsins, ekki síst Veiðivatnasil- ungi. Þórður naut þess að vera við vötnin og prófa flugurnar sínar og kynnast nýjum fallegum vötnum. Hann veiddi einungis á flugu og þótti frekar lítið til þeirra koma sem veiddu með maðki eða mak- ríl, en slík veiði er mjög algeng í Veiðivötnum, svokölluð letingja- veiði. Hann vildi alltaf veiða þar sem gróður var við vötnin og vera einn með náttúrunni í baráttu við fiskinn. Á kvöldin og í hvíldartím- um í Veiðivatnaferðum hafði hann yndi af því að segja sögur, oft tengdar veiðum og einnig sögur af eftirminnilegu fólki en í þeim efnum var hann hafsjór fróðleiks. Hann var góður sagnamaður, hafði gott vald á íslenskri tungu og dró fram skemmtilegar per- sónu- og samfélagslýsingar, með svipuðum hætti og hann gerði í bókinni sinni. Nokkrir veiði- og skólafélagar héldu bílskúrspartí í mars síðast- liðnum og vitaskuld var Þórði boðið. Hann hlakkaði mikið til þess að hitta félagana, en þegar til kom sagðist hann vera svo mik- ill ræfill að hann treysti sér ekki, kæmi bara næst. Við vissum að hann hafði átt við veikindi að stríða en það voru mikil og óvænt sorgartíðindi að heyra að meinið hefði náð að sigra hann. Þórðar verður sárt saknað úr veiðifélaga- og vinahópnum. Fjölskyldu hans og aðstandendum sendum við okkar bestu samúðarkveðjur. F.h. Veiðivatnafélaga, Guðni Olgeirsson. Við Þórður kynntumst strax á fyrsta misseri í Menntaskólanum við Tjörnina þótt við hefðum valið ólíkar námsbrautir. Sameiginlegt áhugamál var fyrst og fremst langar setur á kaffihúsum og um- ræður um allt milli himins og jarðar. Þar var Þórður gjarnan manna fróðastur og sagna- glaðastur. Hann var iðulega kall- aður Þórður bóndi af okkur menntaskólafélögunum, einkum vegna þess að oft var farið í Auðs- holt og gist í gamla íbúðarhúsinu, stundum vel á annan tug gesta. Þessi góða vinátta milli okkar hélst alla tíð þótt oft væri langt á milli. Eitt sinn kom Þórður í heim- sókn til mín í Seattle en tilgangur ferðarinnar var einkum sá að hitta indíánahöfðingja á ólympíu- skaganum sem hann hafði skrif- ast á við um hvalveiðar. Þórður var mikill stuðningsmaður hval- veiða og vann við hvalatalningar nokkur sumur. Indíánarnir voru að endurvekja gamla hvalveiði- hefð og Þórður hafði einhvern veginn komist í samband við þá. Honum var tekið þarna sem þjóð- hetju. Þórður kom til okkar Helgu á gamlárskvöld síðastliðið, rétt eins og hann hafði gert mörg undan- farin ár, og var hrókur alls fagn- aðar. Hann gaf nokkrum gestun- um nýútkomna bók sína og talaði um að önnur væri á leiðinni. Ekki grunaði mig þá að hann ætti svo stutt eftir ólifað. Minningin um einstakan mann og margar góðar samverustundir lifir áfram. Að- standendum votta ég samúð mína, einkum Helgunum hans – móður og dóttur. Hannes Jónsson. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGA BJARNADÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum á Selfossi sunnudaginn 1. apríl. Útförin fer fram frá Selfosskirkju laugar- daginn 14. apríl kl. 14.00. Þórdís Skarphéðinsdóttir, Bjarni Guðmundsson, Inga Karólína Guðmundsdóttir, Anna Guðmundsdóttir, Erlendur Ragnar Kristjánsson, Elís Kjartansson, Ragnheiður Kr. Björnsdóttir, Bára Guðnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, UNNUR RUNÓLFSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn 5. apríl. Útför fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 17. apríl kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Blindrafélagið. Runólfur Grétar Þórðarson, Sigríður Lúðvíksdóttir, Kristján Þórðarson, Dóra Kristín Halldórsdóttir, Kristín Þórðardóttir, Kristinn Már Kristinsson, Margrét Þórðardóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Elskuleg amma mín. Ég man að frá fyrstu stundu leið mér eins og þú værir alvöruamma mín, þú hafðir þannig nærveru að manni leið alltaf vel nálægt þér og þú tókst mér strax svo vel, enda ekki von á öðru því þannig varst þú. Þær voru ófáar stundirnar sem ég kom til þín í hestinn og alltaf tókstu jafn vel á móti mér, og þrátt fyrir að þú værir jafnan að drukkna í vinnu var það samt þannig að alltaf áttirðu nógan tíma fyrir okkur, ekki síst þegar við Magnús komum saman. Hon- um fannst alltaf svo spennandi að koma til þín, því alltaf leyfðirðu honum að skoða og prófa allt, að ég tali nú ekki um hvað honum þótti gaman þegar hann fór á Kristjana Þórdís Anna Jónsdóttir ✝ Kristjana Þór-dís Anna Jóns- dóttir, Dísa, fædd- ist í Axlarhaga 23. ágúst 1947. Hún lést á Sjúkrahúsi Sauðárkróks 30. mars 2012. Útför Dísu fór fram frá Sauð- árkrókskirkju 7. apríl 2012. „hestinn“ þinn. Þú varst alltaf jafn þol- inmóð við hann og alltaf vorum við jafnvelkomin. Þú varst alltaf svo glöð og ánægð þegar við hittumst, jafnvel þegar þér leið ekki vel reyndir þú samt að hafa stutt í gamanið og alltaf hugsaðir þú um hvernig öðrum liði. Það er mikill missir að þér, en þín verður ávallt minnst sem hinnar góðu manneskju sem þú varst og aldr- ei verður þér gleymt. Þér elskaðir, elskum hver annan, því að kærleikurinn er frá Guði kominn, og hver sem elskar er af Guði fæddur og þekkir Guð. (1. Jóh. 4:7) Þín Helga. Lengd | Hámarkslengd minn- ingargreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.