Morgunblaðið - 12.04.2012, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 12.04.2012, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012 ✝ Sigfríður BirnaSigurðardóttir fæddist í Reykjavík 14. nóvember 1941. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Kumbaravogi laug- ardaginn 31. mars 2012. Foreldrar Birnu voru Jóhanna Em- ilía Björnsdóttir, f. 29. október 1902 á Kappeyri í Fáskrúðsfjarð- arhreppi, d. 23. janúar 1982, og Sigurður Guðmundsson múr- ari, f. 13. júní 1905 í Stakkadal í Sléttuhreppi, N-Ís., d. 25. nóv- ember 1964. Systkini Birnu eru Sigurlaug Gerða, f. 28. nóvember 1931, Sigurður Erling, f. 17. nóv- ember 1934, og Jóhanna Guð- ríður, f. 26. ágúst 1944. Sigfríður Birna giftist 27. maí 1960 eftirlifandi eiginmanni sín- um, Sigurbirni Unnari Davíðs- syni frá Hamri í Borgarfirði, f. 22. maí 1934. Foreldrar hans Þóra Torfheiður, faðir þeirra er Sveinbjörn Jónsson, f. 12. janúar 1963. Sambýlismaður er Lárus Þór Guðmundsson, f. 5. nóv- ember 1965. 5) Jóhann Davíð f. 3. ágúst 1968, 6) Drengur Sig- fríðarson, f. 18. apríl 1970, d. 19. apríl 1970. 7) Sigríður Jóhanna, f. 6. ágúst 1983, sonur hennar Sigurbjörn Kári. Faðir Stefán Reynir Heimisson, f. 23. apríl 1980. Sambýlismaður er Sigþór Friðriksson, f. 6. apríl 1983. 8) Guðmundur, f. 5. febrúar 1986, unnusta Elín Kristín Ein- arsdóttir, f. 8. október 1989. Birna ólst upp í Reykjavík og stundaði nám í Austurbæj- arskóla og gagnfræðaskóla við Lindargötu, einnig sótti hún tíma í píanóleik. Um miðjan ald- ur stundaði hún nám á lista- braut í Fjölbrautaskóla Breið- holts og sótti námskeið í myndlist. Lengst af starfaði hún við umönnun og ýmis störf sem verkakona. Árin 1978 til 1983 rak hún mjólkurbúð á Kárastíg. Samhliða hússtörfum og uppeldi barna var hún iðin við hannyrðir og prjónaði mikið. Árið 2002 fluttu hún og eiginmaður henn- ar frá Reykjavík á Eyrarbakka. Útför Sigfríðar Birnu fer fram í Grafarvogskirkju í dag. 12. apríl 2012, kl. 13. voru Unnur Jó- hannsdóttir, f. 17. febrúar 1913 á Dönustöðum, Lax- árdal, d. 3. mars 1905, og Davíð Kristjánsson, f. 17. febrúar 1913 í Grísatungu, Staf- holtstungum, d. 17. desember 1939. Börn Sig- urbjörns og Sig- fríðar Birnu eru 1) Kristleifur, f. 9. ágúst 1959. 2) Björn Einar, f. 13. október 1960, dætur hans eru Hulda, f. 25. mars 1986, dóttir hennar er Snædís Eir Ingimarsdóttir, f. 18. maí 2008, og Birna f. 25. mars 1986, móðir Huldu og Birnu er Áslaug Kristinsdóttir f. 7. febrúar 1961. 3) Sigurður Stefán, f. 26. nóvember 1961. 4) Unnur, f. 8. júlí 1964, börn henn- ar eru Kristín Dögg, Grétar Már og Ómar Pétur, faðir þeirra er Kjartan Pétur Sigurðsson, f. 6. september 1962, Jón Þorberg og Í dag kveð ég móður mína og langar mig að minnast hennar með nokkrum orðum. Þegar ég hugsa til baka er mín fyrsta minning um mömmu þegar hún var á sængurkvennadeild nýbú- in að eiga Gumma bróður, þar tók hún mig í fangið með opn- um örmum þegar ég hljóp til hennar. Mamma var rólyndis kona, og það lýsti sér best einmitt þegar ég fæddi son minn Sig- urbjörn Kára. Ég hringd í mömmu 6 um morguninn og sagði henni að ég væri eflaust að fara eiga. Mamma sagðist ætla að gera sig til og fá sér einn kaffibolla. Um 9 leitið mætti mamma og átti eftir að vera hjá mér í 19 tíma eða þar til Sigurbjörn Kári fæddist. Alltaf hélt hún ró sinni og minntist hún oft á fæðingu Sig- urbjörns Kára þegar við kom- um í heimsókn. Einnig má ég til með að nefna atvik þegar ég var á leið heim seint um kvöld, það var verið að klæða blokkina í Unu- felli sem við bjuggum í. Ég kem hlaupandi inn og rek fótinn í járnbút sem lá í jörðinni, og mín fyrstu viðbrögð voru að kippa bútnum út . Ég hljóp upp til hennar á 3. hæð og sagði við mömmu að ég héldi að hún þyrfti að keyra mig upp á slysa- deild. Mamma leit á mig og sagðist ætla að fá sér einn kaffi- bolla. Á meðan ég batt fyrir sárið drakk mamma sinn kaffi- bolla í rólegheitunum og keyrði mig upp á slysadeild. Þetta lýs- ir mömmu mjög vel, hversu ró- leg hún var. Gerði það að verk- um að ég náði að halda ró minni á þessari stundu. Þegar ég var að alast upp fórum við á hverju sumri hring- inn í kringum landið. Það var hápunktur sumarsins. Pabbi var tilbúinn klukkan 9 en mamma klukkan 12. Mamma var afar minnug og sagði alltaf svo skemmtilega frá. Á meðan á ferðalaginu stóð sagði mamma þjóðsögur sem tengdust stöðum sem við keyrðum framhjá hverju sinni. Við mamma vorum góðar vin- konur og gat ég alltaf leitað til hennar ef það var eitthvað. Betri móður hefði ég ekki getað hugsað mér, né ömmu fyrir son minn. Ekkert verkefni var of stórt fyrir hana, ef eitthvað virtist of mikið eða ekki viðráð- anlegt gat hún alltaf séð já- kvæðu hliðarnar. Síðustu dagar með mömmu voru yndislegir. Fjölskyldan var saman komin og áttum við góð- ar stundir hjá henni mömmu. Það var hlegið, grátið og hlust- að á gítarspil frá Grétari. Mamma kenndi mér að leita í trúna, fórum við oft með kvöld- bænir og alltaf þegar hún kvaddi mig kom hún með mér í dyragættina og kvaddi mig með orðunum „Guð blessi þig“. Með þessum orðum langar mig að kveðja þig elsku mamma mín. Guð blessi þig og varðveiti. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgrímur Pétursson.) Þín dóttir Sigríður Jóhanna. Sigfríður Birna Sigurðardóttir✝ Páll Indriðason fæddist áBotni í Eyjafirði 26. júlí 1923. Hann lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Höfða á Akranesi 31. mars 2012. Foreldrar hans voru hjónin Indriði Helgason frá Klúkum í Hrafnagilshreppi, f. 1869, d. 1939, og Helga Hannesdóttir frá Syðri-Ey á Skagaströnd, f. 1892, d. 1976. Systkini Páls eru María f. 1915, d. 2008, Þorbjörn f. 1917, d. 1979, Hallgrímur f. 1919, d. 1998, Jóhann f. 1926, d. 1998, Sigurlaug f. 1928. Móðir Páls átti einn son, Ara Leo Foss- dal Björnsson, f. 1907, d. 1965. Páll kvæntist eiginkonu sinni Sigurlaugu 20. desember 1954 en hún lést 3. janúar 2002. Páll og Sigurlaug eignuðust tvo syni en fyrir átti Sigurlaug soninn Jón Má Jónsson sem Páll gekk í föðurstað. 1) Jón Már Jónsson, f. 1949, kvæntist 1973 Guðnýju Steinunni Guðjónsdóttur, f. 1950, þau slitu samvistir. Börn hans eru Sigurlaug María, f. 1975, og Guðrún Sigríður, f. 1975. 2) Páll Indriði, f. 1956, kvæntist Sigríði Guðmunds- dóttir, f. 1958, þau slitu sam- vistir. Börn hans eru Guð- mundur Þór, f. 1977, Páll Ind- riði, f. 1985, Maríanna, f. 1986. Seinni kona hans er Jódís Run- ólfsdóttir, f. 1957. 3) Helgi Már, f. 1958, kvæntist Halldóru Guð- mundsdóttur, f. 1958, þau slitu samvistir. Börn hans eru Ingi- björg Þóra, f. 1978, Ása Mar- grét, f. 1987, Örvar Már, f. 1991, Elín María, f. 1996, Sigurlaug Birta, f. 2000, og Hugrún Eva, f. 2003. Seinni kona hans er Elín Þórdís Heiðarsdóttir. Páll lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Akureyrar 1943 og ári síðar var hann við nám við Iðnskólann á Akureyri og lauk prófi í ketil- og plötu- smíði frá Vélsmiðjunni Atla á Akureyri í lok árs 1947. Að loknu námi 1948 hélt Páll til Reykjavíkur og hóf vinnu hjá Vélsmiðjunni Héðni við upp- setningu Síldarverksmiðju rík- isins í Örfirisey. Árið 1951 hóf Páll nám við Vélskólann í Reykjavík. Á námsárunum vann hann einnig sem kyndari og síð- an vélstjóri á togurunum Kald- bak og seinna Harðbak sem voru skip Útgerðarfélags Ak- ureyringa. Veiðar voru ísfiskerí við heimamið og suðaust- urströnd Grænlands en afla var oftast landað á Akureyri. Um mitt sumar 1957 hóf Páll störf við uppsetningu véla fyrir Sem- entsverksmiðju ríkisins á Akra- nesi sem seinna var gangsett um mitt ár 1958. Þau hjónin festu kaup á einbýlishúsi á Vest- urgötu 142 við komu sína til Akraness og bjuggu þar allt til loka árs 1990 er þau fluttu í íbúð sína á Höfðagrund 20. Eftir lát eiginkonu sinnar Sig- urlaugar bjó Páll áfram á Höfðagrund 20 fram til ársins 2010 en þá fór heilsu hans að hraka og hann flutti á hjúkr- unar- og dvalarheimilið Höfða þar sem hann bjó til dauðadags. Útför Páls fór fram frá Akra- neskirkju miðvikudaginn 11. apríl 2012. Kveðja Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Eins og þú kvaddir okkur fjöl- skylduna í öllum þínum góðu bréfum segi ég: Í sjóði minning- anna geymast góðar stundir. Guð blessi minningu þína. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Guðný Steinunn Guðjónsdóttir. Páll Indriðason ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og bróðir, DAGUR JÓNSSON rafvirki, Grenihlíð 24, Sauðárkróki, varð bráðkvaddur á heimili sínu að morgni laugardagsins 31. mars. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, fimmtudaginn 12. apríl, kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki. Valdís Þórðardóttir, Jón Dagsson, Aðalheiður Konstantínsdóttir, María Rán Jónsdóttir, Óskar Jónsson, Bjarni Dagur Jónsson, Rúnar Jónsson, ættingjar, tengdafólk og vinir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir okkar, tengdafaðir og afi, VIKTOR SIGURBJÖRNSSON, Móvaði 49, Reykjavík, sem lést sunnudaginn 1. apríl, verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 14. apríl kl. 16.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Einstök börn. Júlíana Hilmisdóttir, Guðrún Lúðvíksdóttir, Sigurbjörn Viktorsson, Unnur Ögmundsdóttir, Hjalti Viktorsson, Anna Lind Friðriksdóttir, Hulda Viktorsdóttir, Jón Óskar Karlsson og barnabörn. Héðan eru enn verri fréttir, Helgi Árna er látinn. Einhvern veginn þannig komu fréttirnar til okkar um fráfall Helga Árna- sonar frá Neðri-Tungu í Örlygs- höfn. Okkur setti hljóð þetta var svo óvænt, svo sárt og svo ótímabært. Eftir standa minningar um góðan vin sem reynst hefur okkur svo vel. Við viljum með þessum fátæklegu línum minn- ast Helga og þakka fyrir þann heiður að fá að hafa kynnst slík- um mannkostamanni. Það má segja um Helga Árna og alla hans fjölskyldu að öll hafi þau tekið okkur með kostum og kynjum þegar við komum í Ör- lygshöfnina og hófum þar rekst- ur. Við erum ævarandi þakklát fyrir þær góðu móttökur og þann mikla stuðning og hlýhug sem Helgi sýndi okkur. Hann reyndist okkur betri en enginn þegar hann gaf sér tíma frá sín- um hefðbundnu störfum til að hjálpa okkur við að innrétta, smíða og lagfæra á upphafsár- unum. Það myndaðst strax góð vinátta og alltaf var gott að fá heimsókn Helga og Ásdísar í Helgi Árnason ✝ Helgi Árnasonfæddist á Hval- látrum í Rauða- sandshreppi 19. mars 1949. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 29. mars 2012. Útför Helga fór fram frá Patreks- fjarðarkirkju 7. apríl 2012. kaffispjall. Helgi hafði mjög góða nærveru, var rólegur og yfirveg- aður og kankvís. Helgi, faðir hans, Árni Helga, og sameiginlegur vin- ur, Ólafur Árnason, hafa nú allir fallið frá með skjótum hætti með stuttu millibili. Milli þeirra allra var náin vinátta og gagnkvæm virðing og mikil eft- irsjá að þeim öllum. Það hálf- partinn hvarflar að manni að Árni og Óli hafi viljað fá Helga til sín og ef svo er þá er fé- lagsskapurinnn góður. Íslenskt samfélag væri mun betra sam- félag ef til væru fleiri slíkir. Helgi naut mikils barnaláns og var sjálfur elstur í stórum systkinahópi. Stórt skarð hefur myndast við fráfall Helga og mikill er missir nánustu að- stendenda. Hugur okkar og samúð er hjá þeim, Ásdísi eft- irlifandi eiginkonu, Önnu móður hans, börnum, barnabörnum og systkinum. Guð veiti ykkur styrk í sorg ykkar. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Blessuð sé mining Helga. Karl Eggertsson, Sigríður Huld Garðarsdóttir. Valgerður Theodórsdóttir ✝ ValgerðurTheodórsdóttir fæddist í Reykjavík 19. desember 1930. Hún lést á Land- spítalanum 24. mars 2012. Útför Valgerðar fór fram frá Graf- arvogskirkju 3. apríl 2012. Ég tignarkonu trega sárt og tómleikinn færist yfir af mannkostum mætum stendur klárt að minning hennar lifir. (BB) Bergþóra Bergsdóttir. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) Að eignast traustan vin er mikil gæfa og forréttindi sem seint verða fullþökkuð. Ragn- hildur var gift móðurbróður mínum, Ásmundi. Voru þau hjón glæsileg, höfðu mikla mannkosti til að bera og voru höfðingjar heim að sækja. Ég minnist jóla- boðanna hjá þeim hjónum þegar Ragnhildur Pétursdóttir ✝ RagnhildurPétursdóttir fæddist á Hjalta- stað í Hjaltastað- arþinghá, Fljóts- dalshéraði, 6. september 1922. Hún lést á Sjúkra- húsi Seyðisfjarðar 24. mars 2012. Útför Ragnhild- ar var gerð frá Kópavogskirkju 4. apríl 2012. öll stórfjölskyldan kom saman, en það þótti í þá daga heil- mikið ferðalag frá Hafnarfirði til Reykjavíkur. Því fylgdi alltaf mikil tilhlökkun að koma á þeirra góða heim- ili. Þegar litið er yf- ir farinn veg þá streyma minning- arnar fram um margar góðar samverustundir. Ragnhildur flutti til Egilsstaða til dóttur og tengdasonar, en þegar alzheimersveikindin herj- uðu á hana þá flutti hún á sjúkrahúsið á Seyðisfirði. Þar var frábærlega vel hugsað um hana þau ár sem hún dvaldi þar. Steinunn dóttir hennar hefur, ásamt eiginmanni sínum og dætrum, staðið við hlið móður sinnar; þvílík umhyggja og ástúð sem þau hafa sýnt. Við biðjum Guð að styrkja Steinunni, Ástu og fjölskyldur þeirra og blessa Ragnhildi í hennar nýjum heim- kynnum. Steinunn og Gunnlaugur Fjólar. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.