Morgunblaðið - 12.04.2012, Page 32

Morgunblaðið - 12.04.2012, Page 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012 ✝ Margrét AuðurAgnes Krist- insdóttir fæddist í Reykjavík 8. nóv- ember 1926. Hún lést á Landspít- alanum við Hring- braut 29. mars 2012. Foreldrar henn- ar voru Kristinn Friðfinnsson mál- arameistari, f. í Kví- arholti í Holtum 2.9. 1897, d. 18.6. 1968, og Agnes Margrét Eggertsdóttir, f. á Papósi 15.7. 1891, d. 30.9. 1963. Bræður Mar- grétar voru Eggert, f. 1915, d. 1998. Gunnar, f. 1917, d. 2004. Finnur, f. 1919, d. 2009. Margrét ólst upp í Reykjavík og bjó þar alla tíð. Foreldrar hennar bjuggu á Skólavörðustíg 29, hún var í Miðbæjarskóla og síðan í Kvennaskólanum. Eiginmaður Margrétar var Jón Ólafur Nikulásson skipstjóri, f. 21.5. 1925 d. 19.5. 1975. For- eldrar hans voru Nikulás Kr. Jónsson skipstjóri, f. 10.11. 1895, 21.1. 1956, dóttir Margrét Þóra, maki Kristinn Tómasson, synir hennar eru a) Nikulás Val b) Tómas. 3) Guðlaug f, 31.7. 1957, maki Hallgrímur Hallgrímsson, f. 14.10. 1949, börn þeirra eru a) Kristinn, maki Rakel Eggerts- dóttir, og b) Tatíana Ósk. 4) Nikulás Kristinn, f. 3.3. 1963, maki Pálína S. Eggertsdóttir, f. 12.2. 1969, dætur þeirra eru a) Tinna Rut, maki Kristleifur, börn hennar eru a) Birta Líf, b) Krist- leifur Bjarni; b) Sonja, c) Ingunn Dögg. Margrét flutti á Öldugötu 24 eftir að hún giftist og bjó þar í 17 ár. Árið 1963 flutti fjölskyldan í Ljósheima 20 og hefur búið þar síðan. Margrét vann í Ásmund- arsafni í Sigtúni og í mörg ár vann hún sjálfboðastörf fyrir kvennadeild Rauðakrossins, fyrst í hljóðbókum og síðan við basar- og föndurstörf. Hún var heiðruð af Rauða krossi Íslands í fyrra. Útför Margrétar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 12. apríl 2012, og hefst athöfnin kl. 15. d. 4.10. 1971, og Gróa Pétursdóttir, formaður kvenna- deildar Slysavarna- félags Íslands og bæjarfulltrúi, f. 9.8. 1891, d. 23.6. 1973. Margrét og Jón Ólafur gengu í hjónaband 10.8. 1946. Börn þeirra eru: 1) Agnes Mar- grét, f. 8.12. 1946, d. 11.7. 2007, maki Bergþór Berg- þórsson, f. 23.7. 1940, d. 11.8. 2001, börn þeirra eru a) Bergþór, maki Ágústa Óskarsdóttir, þeirra dætur eru a) Guðrún Ósk, hennar dóttir er Agnes Ósk, b) Auður, c) Halla; b) Jón Ólafur, maki Guðný Laxdal Helgadóttir, börn hans eru a) Guðmunda Birta b) Aron Ingi, c) Hrannar Ingi; c) Örnólfur, maki Stella Sverrisdóttir, hans börn eru a) Katla Líf, b) Bergþór Snær, c) Karen Elfa, d) Hekla Sif, d) Agnes Björg, maki Hrefna Jóns- dóttir. 2) Gróa Björg, f. 19.11. 1949, maki Jón Harðarson, f. Elsku fallega mamma mín sem var svo sjálfstæð og hún var svo mikil heimsdama, las mikið og hlustaði á góða tónlist, hafði gaman af mönnum og málefnum, gat rætt um alla hluti við full- orðna og ekki síður börn, gerði allt sem hún ætlaði sér. Þú hefur alltaf verið til staðar fyrir mig, vildir allt fyrir mig gera, tókst þátt í flestu sem ég gerði eða fylgdist með mér. Ég gat alltaf leitað til þín, sama hvort það var eitthvert rugl, eða gaman, við þurftum alltaf að heyrast og hittast helst á hverj- um degi. Þú gast líka leitað til mín ef þér datt eitthvað í hug, skreppa í Fjarðarkaup eða IKEA og bókamarkaðinn eða bara skoða nýju íbúðahverfin og fá okkur einn gamlan ís. Þú ólst Maggý mína upp með mér fyrstu árin og er ég þér þakklát fyrir það og hafið þið alla tíð verið mjög nánar. Ég er þakklát fyrir að þú fórst með reisn, varðst aldrei ósjálfbjarga, það hefðir þú ekki viljað. Ég er þakklát fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum, þegar þú varst kannski að lesa svaka skruddu á ensku, þú hafðir alveg einstaka frásagnar- gáfu og sagðir skemmtilega frá, mér fannst ég hafa lesið bókina á eftir, ég sagði oft ég vildi að ég væri svona hláturmild eins og þú. Mamma var svo vönduð í orði, talaði fallega um alla og við héldum alltaf að hún kynni ekki að blóta. Eitt sinn heyrði hún mig vera að hreyta einhverju í einhvern og varð ég skíthrædd að hitta hana á eftir, en hún skammaði okkur aldrei eða hækkaði röddina. Það var oft erfitt fyrst eftir að pabbi dó 1975 en okkur tókst í sameiningu að vinna okkur út úr því og aldrei kvartaðir þú. Þú fékkst mikinn stuðning frá Bóbó, tengdasyninum, og saknaðir hans sárt þegar hann dó 2001 og ekki var minni söknuður þegar Agga systir dó 2007. Þú sagðir: „Maður á ekki að þurfa að horfa á eftir börnunum sínum.“ En elsku mamma lærði að lifa með því og halda áfram, hún á ynd- islega fjölskyldu sem alltaf vildi hafa hana með ef eitthvað var að gerast og hafði hún gaman af að vera innan um fjölskylduna. Þú sagðir á gamlárskvöld þegar við, skotglaða fjölskyldan, höfðum áhyggjur af að þú sæir ekki nógu vel, að þú værir búin að sjá nóg af flugeldum um ævina. Elsku mamma, takk fyrir allt, sakna þín. Þín dóttir, Gróa Björg. Elsku mamma, fyrst af öllu vil ég þakka þér fyrir að vera mamma mín, því ef það væri hægt að taka próf í að vera mamma þá fengir þú 12 af 10 mögulegum og ég veit, að það var ekki alltaf auðvelt að vera mamma mín. Þú varst alveg stórkostleg manneskja og það vita auðvitað allir sem þekktu þig. Það skipti engu máli hvort þú varst að tala við fullorðið fólk, unglinga eða börn, þú gast talað um allt og fylgdist með í öllu. Ég get allavega þakkað fyrir að hafa átt þig allan þennan tíma en það er samt risastórt gat í hjartanu mínu núna. En ég er al- veg sannfærð um að það er búin að vera stórveisla á himnum núna og þú ert þar umkringd ástvinum sem tóku á móti þér þegar skipið kom að landi. Ég á alltaf eftir að sakna þín og ég ætla að kveðja þig með bæninni sem afi kenndi okkur: Komin er ég í kúru mína, krenki mig þar engin pína. Ó, Guð settu engla þína allt í kringum hvílu mína. (Höf. ók.) Elsku Gróa, Nikki og við hin: Samúðarkveðjur. Guðlaug Jónsdóttir (Laulau.) Mikið er það óraunverulegt að sitja hér og skrifa minningar- grein um þig, elsku amma mín. Það er ómetanlegt að hafa fengið að alast upp hjá ömmu í Ljós, hvort sem það var eftir skóla eða þegar við mamma fluttum til þín. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig hvort sem það var til að spjalla um daginn og veginn eða til að leita ráða hjá. Það var allt- af svo gott að geta leitað til ömmu í Ljós. Minningarnar streyma fram í hugann og þær fyrstu eru frá þeim tíma þegar ég var barn og dvaldi hjá ömmu, þótt ung væri þá man ég þann tíma vel, amma kenndi mér margar góðar reglurnar og þær gleymast aldrei. Á kvöldin fórum við ávallt með bænirnar og meira að segja stundum líka með morgunbæn: Nú er ég klæddur og komin á ról, Kristur Jesús veri mitt skjól, í guðsóttanum gefðu mér, að ganga í dag, svo líki þér. (Höf. ók.) Elsku amma, þetta er nokkuð sem ég mun halda áfram að gera með mínum börnum og barna- börnum og er að reyna að gera í dag. Svo er mér það svo minn- isstætt að alltaf þegar ég vakn- aði á morgnana til að fara í skól- ann varst þú tilbúin með morgunmatinn minn, fjölvítam- íntöfluna og lýsið og þegar ég var búin að borða og taka vítam- ínin mín burstuðum við saman hárið og töldum upp að hundrað og þegar ég var búin að bursta hárið hundrað sinnum var ég klár í skólann. Stundum höfðum við kósíkvöld, poppuðum, horfð- um á söngvamyndir og sungum saman hástöfum með lögunum sem við kunnum, þú reyndar kunnir þau öll og söngst mun hærra en ég. Líka þegar þig langaði svo að sjá Indiana Jones og við fórum tvær í bíó, ég var þá sjö ára, við fórum í Regnbog- ann að sjá myndina og ég hélt fyrir augun og eyrun allan tím- ann og var með martröð næstu daga á eftir, en í seinni tíð höfum við svo oft hlegið að því. Og þeg- ar ég fékk stundum að sofa í vatnsrúminu hans Nikka, vááá það var ekkert smá sport, og þegar ég var búin að vera úti að leika í snjónum varstu vön að búa til heitt kakó handa mér og leyfa mér að fara í fótabað og ef þú áttir ekki til kakó gerðir þú bara heitt kaffi með fullt fullt af mjólk og sykri. Þú reddaðir allt- af öllu. Síðustu ár áttum við margar góðar stundir saman, það leið varla sá dagur að ég kæmi ekki til þín í kaffi eða við kíktum í Fjarðarkaup eða IKEA, því þér fannst svo gaman að fara og versla þar, þar var allt til alls. Elsku amma, ég sakna þín svo mikið, ég er hálfeirðarlaus án þín og veit varla hvað ég á af mér að gera, mín fasta rútína er að koma til þín í Ljósheimana, hitta mömmu og Laulau og sitja þar og spjalla um heima og geima. Þú varst alltaf svo góð við mig og kenndir mér svo margt, einn- ig stóðstu upp fyrir mér þegar ég þarfnaðist þess. Það er svo erfitt að sjá á eftir þér. Þú munt alltaf eiga stað í hjarta mínu og ég mun minnast þín að eilífu. Ég vona að þú eigir eftir að fylgjast með okkur af himnum ofan og ég lofa þér því að gera þig stolta, elsku amma mín. Þín Margrét Þóra (Maggý). Ég vildi að ég hefði fengið að kveðja þig betur, elsku amma í Ljós. Þegar ég heimsótti þig á spítalann daginn sem þú fórst þangað grunaði mig ekki að þú ættir svona stutt eftir. Ég man þegar við horfðum saman á gamlar James Bond-myndir þeg- ar ég var í pössun hjá þér og svo montaði ég mig við vini mína hvað ég ætti nú flotta ömmu. Og þegar ég var lasinn komst þú stundum heim og gafst mér sítrónute með hunangi og eitt- hvert nammi til að láta mér líða betur. Þú varst alltaf hress og skemmtileg og mjög góð við mig og þannig mun ég alltaf minnast þín. Kristinn. Elsku amma mín. Ekki grun- aði mig þegar ég kvaddi þig í símann hinn 29. febrúar að ég væri að kveðja þig í hinsta sinn. Þú varst á leiðinni í aðgerðina og ég ætlaði að heyra í þér aftur eftir tvo daga. Þú varst svo ein- staklega hress miðað við aldur að það var ekki til í mínum huga að eitthvað gæti farið öðruvísi en svo að þú færir létt með þessa svæfingu. Sporin voru þung þeg- ar ég kom í Ljósheimana vitandi að þú værir ekki þar að taka á móti mér en mikið var samt gott að koma þangað, eins og alltaf. Ég á svo mikið af fallegum og góðum minningum um þig, þú varst svo einstaklega góð kona og alltaf var stutt í hláturinn. Ég hugga mig við það að þú ert á góðum stað og ég veit að afi, mamma og pabbi standa fremst í fríðum flokki fólks og taka á móti þér. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Hvíl í friði elsku amma „í ljós“. Agnes Björg. Að kveðja hana ömmu mína eða ömmu „í Ljós“ eins og við barnabörnin og barnabarnabörn- in höfum alltaf kallað hana er nokkuð sem ég sá ekki fyrir mér núna. En því miður er er sú stund komin og hafa margar minningar rúllað í gegnum hug- ann síðustu vikur á meðan þú varst á spítalanum. Þótt flestar séu þær góðar þá er dagurinn sem við jarðsettum mömmu minnisstæður (Öggu Möggu). Við vorum í kirkjugarðinum og þú sagðir við mig að það væri svo rangt að þú skyldir lifa hana og skil ég það vel enda er það nokkuð sem enginn ætti að ganga í gegnum. Ein af mínum fyrstu minning- um er úr Ljósheimunum. Ég var að læra að labba og labbaði á milli stólanna sem þið mamma sátuð í, ég er ekki frá því að ég hafi átt mín fyrstu skref þar. Þú varst alltaf svo góð saumakona og gat pabbi endalaust haldið þér við efnið þar sem buxurnar hans voru alltaf að hlaupa í þvotti eða hreinsun eins og pabbi hélt alltaf fram, alveg merkilegt hvað þú gast endalaust verið að koma með buxur fyrir þann gamla og aldrei heyrði ég þig kvarta yfir því, ég held hreinlega að þér hafi bara fundist það skemmtilegt. Það eru nú ekki nema þrjú ár síðan þú varst heima í áramótapartíinu í svak- astuði og varst sko aldeilis ekki á leiðinni heim þegar Laulau ætl- aði að láta keyra þig. Ég vona að ég verði jafnhress og þú þegar ég verð orðinn afi og mér boðið í nýárspartíin hjá barnabörnun- um. Eftir að mamma dó vantaði stundum pössun og þótt þú vær- ir komin á níræðisaldur var það nú ekkert vandamál og voru þau Bergþór og Karen nokkrum sinnum hjá þér. Svo er Køben- ferðin okkar ofarlega í minning- unni, mamma var sextug og þú áttræð; afmælisboðið á Det lille apotek, tívolíið og Kakadu svo eitthvað sé nefnt. Að maður eigi ekki eftir að rúlla við í Ljósheim- unum né hafa þig á jólum og ára- mótum verður skrítið en lífið hefur sinn gang og treysti ég á það að nú séu miklir fagnaðar- fundir hinum megin við hæðina þar sem mamma, pabbi, Lauga, Tóta og afi eru mætt til að taka á móti þér. Mikið er ég þakklátur fyrir að eiga þessar minningar um þig amma og vil ég þakka þér allar góðu stundirnar. Þinn dóttursonur, Örnólfur Kr. Bergþórsson. Fallin er frá kær félagskona okkar í kvennadeild Rauðakross- ins, Margrét Kristinsdóttir, eða Maggý eins og hún var kölluð meðal okkar félaga, en kvenna- deildin kom saman á miðviku- dögum í „föndri“ til fjáröflunar. Maggý var þar traustur starfskraftur og er hennar sárt saknað úr hópi okkar. Maggý sótti fundi okkar iðu- lega og var alltaf boðin og búin að veita aukahjálp við öll störf sem upp komu hjá okkur innan deildarinnar. Við söknum hennar og send- um ástvinum hennar öllum sam- úðarkveðjur og þökkum fyrir frábærar samverustundir í ára- raðir. Dóra Bergþórsdóttir. Margrét Auður Agnes Kristinsdóttir Elskulega tengdamóðir mín, nú hefur kvatt þennan heim.Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast henni Jónínu dóttur þinni fyrir 25 árum, sem síðar varð eiginkona mín. Þú varst amma þriggja barna okkar. Ég varð svo heppin að kynnast þér betur eftir að þú fluttir á Vallar- götuna og síðan á Kirkjuveginn. Þar leit ég oft við hjá þér til þess að athuga hvort ekki væri allt í lagi meira af skyldurækni fyrst um sinn. Það breyttist fljótt í Annie Sigurðardóttir ✝ Annie Sigurð-ardóttir fædd- ist á Hellissandi 20. janúar 1944. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Garðvangi 31. mars 2012. Annie var jarð- sungin frá Kefla- víkurkirkju 11. apríl 2012. gagnkvæman vin- skap og væntum- þykju. Þannig hefur það verið alla tíð síð- an. Ég á eftir að sakna þess að þú hringir í mig og biðj- ir mig um að aðstoða þig við einhver er- indi sem geta engan veginn beðið. Eins og þegar sjónvarpið fór úr sambandi eða þurfti að stilla það. Þú dvaldir síð- ustu mánuði á Garðvangi við frá- bæra umönnun starfsfólks þar. Lífshlaupið var ekki alltaf dans á rósum en nú síðustu mánuðina náðir þú virkilega að njóta lífsins. Fjölskyldan þín var þér allt og við munum sakna þín. Ég veit að þú ert á friðsælum stað núna. Hafðu þökk fyrir alla vináttuna og kærleikann sem þú gafst mér. Skarphéðinn Skarphéðinn Njálsson Hann Atli minn er farinn inn í Sumarlandið, þar er tíminn af- stæður og engar þjáningar. Hann ólst upp við mikið frjáls- ræði við Elliðárnar í Reykjavík. Húsið þeirra, Heimahvammur, var á árbakkanum, þar var því fljótlegt að baða sig í ánni, veiða og ærslast. Hann var fimmti í röð níu systkina og voru þau samrýnd og á líkum aldri. Atli var uppátækjasamur, kátur strákur og hafði mikið hugmyndaflug. Hann var mjög fallegt barn með ljósa lokka sem móðir hans tímdi ekki að klippa. Í Heimahvammi voru ræktaðar kartöflur og græn- meti og einnig voru hafðar þar dúfur og hænsn og ekki má gleyma hvítu músunum sem Atli og Pétur bróðir hans áttu, frænku sinni til mikillar skelf- ingar. Þegar Atli var um fermingu lést faðir hans og þá tók alvara lífsins við, móðir hans hafði eignast yngsta barnið um það leyti og hafði komið hart niður við fæðingu. Þröngt var í búi. Eldri börnin fóru í vinnu og reyndu að hjálpa til við heimilið og Atli hætti í skóla og fékk vinnu sem sendill og lét móður sína fá öll launin sín en hélt þó eftir fyrir fargjöldum í strætó. Atli Hraunfjörð ✝ Atli Hraun-fjörð fæddist í Reykjavík 5. júlí 1941. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Sunnuhlíð 28. mars 2012. Jarðarför Atla fór fram frá Digra- neskirkju 4. apríl 2012. Hann fór seinna í Iðnskólann og lærði málaraiðn og þótti vandvirkur og var vinsæll meðal fólks. Atli kynntist Siggu þegar hún var 17 ára og giftu þau sig ári seinna. Þau eignuðust þrjú börn og bjuggu nokkur ár í Kefla- vík, þar gekk hann í leikfélagið og vann við sýningar í bíóhús- inu og var í stjórn málara- félagsins í mörg ár, einnig voru þau hjónin saman í guðspeki- félaginu. Hann var einnig nýa- listi. Málaði hann einnig mynd- ir í frístundum sínum. Hann var hagmæltur og átti gott með að skrifa texta, mikill fjölskyldumaður og alltaf tilbú- inn til að rétta hjálparhönd fyr- ir hvern sem þurfti á því að halda. Hann greindist með parkinsonsveiki fyrir nærri því tuttugu árum og stundaði vinnu eins lengi og hann gat og tók þátt í daglegu amstri. Fyrir fimm árum fékk hann blóðtappa og eftir það var hann stöðugt að flakka inn og út af sjúkrastofnunum. Fyrir tveim- ur árum fékk hann pláss í Sunnuhlíð, þar fékk hann frá- bæra hjúkrun og umönnun og honum fór að líða betur. Sigga var samt ávallt hans hjálpar- hella og sinnti honum af alúð og ástríki. Börnin hans voru honum einnig góð og voru tengdabörn og barnabörnin hans ekkert síðri. Innilegar þakkir til starfs- fólks Sunnuhlíðar fyrir frábæra umönum. Guðlaug Pétursdóttir Hraunfjörð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.