Morgunblaðið - 12.04.2012, Page 38

Morgunblaðið - 12.04.2012, Page 38
38 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012 „Ég fer kannski út að borða bara,“ segir Bryndís Samúelsdóttir, BA-nemi í ensku við Háskóla Íslands, aðspurð hvort eitthvað standi til í tilefni afmælisins, en hún er 22 ára í dag. Bryndís segist alls ekki viss um hvað hún geri, en það geti farið svo að hún bjóði upp á kökur í tilefni dagsins. Bryndís segist yfirleitt halda upp á afmæli sín. „Já, svona oftast, eitthvað aðeins allavega.“ Hún kveðst vera mikið afmælisbarn. Talið barst að eftirminnilegum afmælum og segir Bryndís að 19 ára afmælið hafi verið sérstaklega eftirminnilegt. „Við vorum á Ísa- firði á Aldrei fór ég suður. Það var voða gaman og ég fékk afmæl- issönginn. Daginn eftir fór ég á skíði, svo fengum við góðan mat og vinir mínir héldu óvænt afmælispartí,“ segir Bryndís. Hún er eins og fyrr segir í enskunámi við Háskóla Íslands á 1. ári. Bryndís vonast til að hún geti farið sem skiptinemi til Bandaríkj- anna í janúar á næsta ári, en það sé þó alveg óákveðið hvert innan Bandaríkjanna hún fari. „Mig langar mest til San Diego.“ Framtíðin er ekki alveg ráðin hjá henni og hún er ekki viss um hvort hún haldi áfram í enskunámi eftir BA-gráðuna. „Mig langar svolítið í alþjóðleg samskipti, en það er ekki alveg komið á hreint. Ég er ekki alveg komin með svo langt plan,“ segir Bryndís að lok- um. ipg@mbl.is Bryndís Samúelsdóttir enskunemi 22 ára Ljósmynd/Bryndís Samúelsdóttir Háskólastúdent Bryndís Samúelsdóttir ætlar út að borða í tilefni 22 ára afmælisins og segist jafnvel ætla að bjóða upp á kökur. Langar vestur um haf sem skiptinemi S igurrós Lilja fæddist á Selfossi en ólst upp á Minni-Borg í Grímsnesi til tveggja ára aldurs og síðan í Stóra-Dal undir Vestur-Eyfjöllum er foreldrar hennar festu kaup á þeirri jörð ár- ið 1984. Þar stunduðu þau bland- aðan búskap en þó einkum kúabú- skap og var Lilja því alin upp við öll hefðbundin sveitastörf. Lærði viðskiptalögfræði við háskólann á Bifröst Lilja var í Seljalandsskóla undir Eyjafjöllum upp í 7. bekk en í Grunnskólanum í Skógum í 8.-10. bekk. Hún stundaði nám við Fjöl- brautaskólann í Ármúla og lauk þaðan stúdentsprófi árið 2001, stundaði síðan nám við Við- skiptaháskólann á Bifröst frá 2002 og útskrifaðist þaðan sem við- skiptalögfræðingur árið 2006. Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir 30 ára Systkinin í Stóra-Dal Sigurrós Lilja ásamt bræðrum sínum Ragnari Bjarka og Vali Gauta. Syngjandi viðskiptalög- fræðingur á fáki fráum Riðið á vaðið Á leið yfir Steinsholtsá í Þórsmörk 2006. Lilja, Mánadís, Dáð, Hátíð, Drottning, Kara Björk Bessadóttir, Ás, Dóra Ingvarsdóttir og Snert- ing. Öll hrossin eru frá Stóra-Dal nema Drottning sem er frá Dalsseli. Hafnarfjörður Hanna Þórdís fæddist 17. janúar kl. 13.28. Hún vó 3.395 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Ágústa Guðrún Ólafsdóttir og Jón Ingi Örlygsson. Nýir borgarar Akranesi Katla fæddist 23. sept- ember. Hún vó 3.845 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Ívar Ein- arsson og Lilja Jónsdóttir. Nýir borgarar Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Er þitt fyrirtæki að borga of mikið í símkostnað á mánuði? Nú býður Svar tækni tvær leiðir til sparnaðar með IP símkerfum. Annarsvegar                                  ! "  !! #     $ %&  '    #        #    þinn. Við erum í síma 510-6000. Lækkaðu símreikninginn Öflugt IP símkerfi frá Snom 3 stk Snom 300 símtæki, 1 Snom 320 símtæki Snom hugbúnaðarleyfi fyrir allt að 10 notendur Snom IP símkerfi – 4 SÍMTÆKI 8.500 m/vsk Öflugt IP símkerfi frá Snom 5 stk Snom 300 símtæki, 1 stk Snom 320 símtæki Snom hugbúnaðarleyfi fyrir allt að 10 notendur Snom IP símkerfi - 6 SÍMTÆKI Stofngjald 39.900 m/vsk Mánaðargjald 10.500 m/vsk Stofngjald 39.900 m/vsk Mánaðargjald SÍÐUMÚLA 35 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS Mikið úrval þráðlausra höfuðtóla Mikið úrval þráðlausra höfuðtóla „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar verður einnig sagt frá öðrum merkum við- burðum í lífi fólks, svo sem hjónaböndum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta á netfangið islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.