Morgunblaðið - 19.04.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2012
KOLAPORTIÐ
Opið í dag
sumardaginn fyrsta
frá kl. 11-17
Verið velkomin
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Meirihluti stjórnar Orkubús Vest-
fjarða samþykkti á fundi sínum í
gær að leggja til á aðalfundi fyrir-
tækisins hinn 11. maí að greiða eig-
anda þess 46 milljónir króna í arð.
Ríkið á allt hlutafé í félaginu og
óskaði það eftir arðgreiðslunni.
Gert var ráð fyrir þessum tekjum
til ríkisins í fjárlögum þessa árs.
Dregur úr framkvæmdagetu
Að sögn Kristjáns Haraldssonar
orkubússtjóra er staða félagsins
það sterk að það ræður við arð-
greiðsluna og þessi upphæð sé til í
sjóðum þess. Félagið hafi skilað
hagnaði upp á 230 milljónir króna á
síðasta ári.
Að því komi hins vegar að félagið
þurfi að ná þessum tekjum til baka
og þær fáist aðeins annaðhvort frá
notendum eða með hagræðingu í
rekstrinum. Ekki standi þó til að
hækka verðið út af þessu.
„Ákvörðun um arðgreiðslu upp á
46 milljónir kallar ekki á sérstaka
ákvörðun um verðskrárhækkun en
þetta dregur náttúrlega úr fram-
kvæmdagetu og styrk félagsins,“
segir Kristján.
Hann segir þó að ekki standi til
að draga úr fyrirliggjandi fram-
kvæmdaáætlun Orkubúsins.
Arðgreiðsla kallar ekki
á verðhækkanir á orku
Orkubú Vestfjarða greiði ríkinu 46 milljónir króna í arð
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Fjárfest Framkvæmdir við Mjólkár-
virkjun Orkubús Vestfjarða.
Lítilli einkaflugvél hlekktist á í lendingu á
Reykjavíkurflugvelli um kvöldmatarleytið í gær.
Tveir menn voru um borð og sluppu þeir óslas-
aðir. Lögregla, sjúkrabílar og slökkvilið fóru
strax á staðinn. Skv. upplýsingum frá slökkvilið-
inu á Reykjavíkurflugvelli brotnaði annað hjólið
undan vélinni í lendingu. Sama flugvél lenti í
óhappi á Reykjavíkurflugvelli 6. ágúst 2011, en
þá hlekktist henni á í akstri á leið til flugtaks.
Lítilli einshreyfilsflugvél hlekktist á í lendingu
Morgunblaðið/Ómar
Sluppu ómeiddir frá brotlendingu
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Þingsályktunartillaga um breytta
skipan ráðuneyta samræmist ekki
15. grein stjórnarskrárinnar. Þetta
sagði Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra í umræðum um tillög-
una á Alþingi í gær.
„Þessi tillaga felur í sér það eitt
að Alþingi styðji fyrirhugaðar
breytingar á fjölda og heitum ráðu-
neyta og er í raun í andstöðu við það
ákvæði stjórnarskrárinnar sem seg-
ir að forseti ákveði tölu ráðherra og
skipti með þeim störfum,“ sagði Jó-
hanna.
Einar K. Guðfinnsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, spurði for-
sætisráðherra þá hvort hún hefði
vitandi vits stutt tillögu sem gengi
gegn stjórnarskránni. Hann lýsti
sig þó ósammála því mati ráð-
herrans. Svaraði Jóhanna því aðeins
til að engin þörf væri á að breyting-
arnar færu fyrir þingið.
Þá sagði Jóhanna að Gylfi Magn-
ússon, lektor við Háskóla Íslands og
fyrrverandi efnahags- og viðskipta-
ráðherra, hefði verið einn þeirra
sem unnu greiningu á hugsanlegum
breytingum á því ráðuneyti. Nið-
urstaða þeirrar greiningar hefði
verið að skipta verkefnum þess á
milli fjármála- og atvinnumálaráðu-
neyta.
Einar spurði þá hvort sú ákvörð-
un ríkisstjórnarinnar að stofna
efnahags- og viðskiptaráðuneytið á
sínum tíma hefði verið mistök. Svar-
aði Jóhanna að þegar það var stofn-
að hefði verið farið eftir tillögum
rannsóknarnefndar Alþingis um að
sameina og stækka ráðuneytin.
Ekki væri verið að bregða út af
þeirri stefnu þó að verkefni ráðu-
neytanna væru flutt til og enn væri
verið að sameina þau og stækka.
Segir tillögu ekki
standast stjórnarskrá
Gylfi Magnússon kom að greiningu á sínu gamla ráðuneyti
Morgunblaðið/Eggert
Ræða Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra í ræðustól Alþingis.
Búast má við töf-
um á umferð í
næsta nágrenni
Þjóðmenning-
arhússins um
tíma síðdegis á
morgun, föstu-
dag. Þetta fékkst
staðfest í forsæt-
isráðuneytinu.
Tafirnar má
rekja til öryggisráðstafana í
tengslum við opinbera heimsókn
Wens Jiabaos, forsætisráðherra
Kína, sem kemur hingað til lands
fyrri hluta föstudagsins. Boð til for-
sætisráðherra Kína um að heim-
sækja Ísland hefur legið fyrir allt
frá 2006.
Kínverski forsætisráðherrann
Wen Jiabao mun eiga fund með Jó-
hönnu Sigurðardóttur forsætisráð-
herra og fleiri ráðherrum. Hann
mun einnig eiga fund með Ólafi
Ragnari Grímssyni, forseta Íslands.
gudni@mbl.is
Umferðar-
tafir vegna
heimsóknar
Wen Jiabao
Sérstakur saksóknari hefur gefið út
ákæru á hendur Aroni Karlssyni en
hann er grunaður um fjársvik vegna
sölu á fasteign við Skúlagötu 51 til
kínverska sendiráðsins. Faðir hans,
Karl Steingrímsson, gjarnan kennd-
ur við Pelsinn, er ekki ákærður í
málinu og verða ekki fleiri ákærðir.
Í janúar 2010 tilkynnti kínverska
sendiráðið kaup á húsnæðinu, sem
áður hýsti Sjóklæðagerðina. Það var
í eigu félagsins Vindasúlna en Aron
var í forsvari fyrir því ásamt föður
sínum. Fasteignin var veðsett fyrir
rúman milljarð króna vegna lána í
Arionbanka, Íslandsbanka og Glitni.
Um miðjan desember 2010 var
gengið að tilboði frá indversku fyr-
irtæki í fasteignina fyrir 575 millj-
ónir króna. Bankarnir féllust á þessa
sölu. Skömmu síðar var hins vegar
samþykkt tilboð frá kínverska sendi-
ráðinu upp á 875 milljónir. Í millitíð-
inni var búið að færa fasteignina í
nýtt félag, 2007 ehf., í eigu sömu að-
ila, en það félag hét AK fasteignir.
Lögmaður bankanna þriggja
kærði málið til ríkislögreglustjóra
en bankarnir höfðu enga vitneskju
um tilboð Kínverjanna eða flutning
eignarinnar milli félaga. Bankarnir
telja að þeir hafi verið hlunnfarnir
um 300 miljónir króna. Við húsleit
fundust 92 milljónir króna en þær
voru á bankabók í eigu félagsins
2007 ehf. sem feðgarnir eiga. Var féð
rakið og hald lagt á það af embætti
ríkislögreglustjóra. guna@mbl.is
Ákærður
vegna
fjársvika
Rúmar 90 milljónir
fundust við húsleit
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur sak-
sóknari, segir ómögulegt að segja til
um hvenær starfsmenn embættisins
fái í hendur gögn sem aflað var með
húsleit í Landsbankanum í Lúx-
emborg og á tveimur öðrum stöðum í
tengslum við rannsókn sem tengist
Landsbankanum og hófst í fyrra.
Sex starfsmenn sérstaks saksókn-
ara tóku þátt í húsleitunum ásamt 24
lögreglumönnum í Lúxemborg. Mjög
rík bankaleynd ríkir í Lúxemborg og
þegar lögregla hefur lokið við að fara
yfir gögnin eru þau send til rann-
sóknardómara sem kannar hvort rétt
sé staðið að rannsókninni.
Bíða eftir að fá
gögn í hendur í
Lúxemborg