Morgunblaðið - 19.04.2012, Blaðsíða 21
AFP
ið yfir-
knara
Breivik sagði
í gær að ef
hann yrði
fundinn sek-
ur ætti að
taka hann af
lífi en viður-
kenndi að
ólíklegt væri
að til þess
kæmi þar
sem dauða-
refsingar eru ekki viðhafðar í
Noregi.
„Mér finnst 21 árs fangelsi
aumkunarverð refsing,“ sagði
Breivik og bætti því við að sér
þætti það synd að dómarinn sem
hefði kallað eftir dauðarefsingu í
máli hans hefði verið látinn víkja.
„Ég tek dauðanum opnum
örmum. Ég leit á aðgerðir mínar
22. júlí sem sjálfsmorðs-
aðgerðir,“ sagði Breivik við
dómshaldið. „Ég gerði ekki ráð
fyrir því að lifa af.“
Hann sagði að aðeins væri
hægt að komast að tveimur lög-
mætum niðurstöðum í málinu;
sýknu eða dauðarefsingu.
Refsingin
aumkunarverð
VILL FREKAR DEYJA
Anders Behring
Breivik
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2012
S t ó r h ö f ð a 3 1 | 1 1 0 R e y k j a v í k | S í m i 5 6 9 3 0 0 0 | F a x 5 6 9 3 0 0 1 | s t a f i r @ s t a f i r . i s | s t a f i r . i s
Stafir lífeyrissjóður starfaði í samtryggingardeild og séreignardeild á árinu 2011
og tók við iðgjöldum í samræmi við lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda.
Hrein eign til greiðslu lífeyris nam 91.461 millj. kr. og hafði aukist um 9,3% frá
árinu 2010 þegar hún var 83.663 millj. kr.
Nafnávöxtun allra eigna 2011 var 7,5% en hrein raunávöxtun var 2,1%.
Meðaltal hreinnar raunávöxtunar sjóðsins síðustu fimm árin var neikvæð um
5,5% en var jákvæð um 1,3% síðustu tíu árin.
Í lok árs 2011 áttu 54.687 einstaklingar réttindi í sjóðnum. Á árinu 2011 greiddu
8.819 einstaklingar iðgjald til samtryggingardeildar Stafa og 1.732 launagreiðendur.
Á árinu 2011 fengu 4.452 lífeyrisþegar greitt úr samtryggingardeild alls 2.283
millj. kr. sem er aukning um 2% frá fyrra ári. Lífeyrisþegum fjölgaði um 6% á
árinu eða um 257. Greiðslur úr séreignardeild námu um 443 millj. kr. sem er um
46% aukning frá fyrra ári.
Tryggingafræðileg úttekt á stöðu sjóðsins hefur farið fram miðað við árslok 2011.
Tryggingafræðileg staða sjóðsins er neikvæð um 8,6%.
Stafir lífeyrissjóður hefur undanfarin ár starfað við erfiðar aðstæður. Fjárfestingar-
kostir eru takmarkaðir og peningaleg eign ber lága vexti. Gjaldeyrishöft takmarka
mjög getu sjóðsins til að dreifa áhættu.
Þrátt fyrir mikið tap hjá sjóðnum í kjölfar hruns er ljóst að hann hefur einungis
bognað en ekki brotnað.
Verði lífeyrissjóðum landsins gert kleift að starfa við eðlilegar aðstæður má
horfa til bjartari tíma.
Starfsemi
Stafa
árið 2011
lífeyrissjóðs
2011 2010
Nafnávöxtun
7,5% 2,7%
Hrein raunávöxt
un 2,1%
0,1%
Hrein raunávöxt
un
(5 ára vegið meða
ltal) -5,5%
-4,2%
Hrein raunávöxt
un
(10 ára vegið með
altal) 1,3%
0,6%
Fjöldi sjóðfélaga
í samtryggingadei
ld 8.81
9 8.862
Fjöld lífeyrisþeg
a
í samtryggingadei
ld 4.45
2 4.195
Rekstrarkostnað
ur
í % af iðgjöldum
2,98% 2,77
%
Rekstrarkostnað
ur
í % af eignum
0,14% 0,13%
Lífeyrir
í % af iðgjöldum
57% 61%
Stöðugildi
12,8% 13
,3
KENNITÖLUR
Aðalfundur Stafa lífeyrissjóðs
verður á Grand Hóteli Reykjavík
þriðjudaginn 22. maí 2012 og
hefst kl. 17:00.
AÐALFUNDUR
Jóhann Karl
Spánarkonungur
baðst í gær af-
sökunar á því að
hafa farið á
kostnaðarsamar
fílaveiðar í
Botsvana á sama
tíma og milljónir
þegna hans líða
fyrir harkalegar
niðurskurð-
araðgerðir stjórnvalda.
„Mér þykir þetta afar leitt og
þetta mun ekki gerast aftur,“ sagði
konungurinn þegar hann yfirgaf
spítala í Madríd, þar sem hann
gekkst undir mjaðmaskiptaaðgerð
en hann slasaðist þegar hann datt í
tröppum í híbýlum sínum í Afríku-
ríkinu.
SPÁNN
Baðst afsökunar á
dýrum fílaveiðum
Jóhann Karl
Spánarkonungur
Baráttukonan og friðarverðlauna-
hafinn Aung San Suu Kyi mun í júní
heimsækja bæði Noreg og Bretland
en ferðin verður hennar fyrsta út
fyrir landsteina Búrma í 24 ár. Með-
an á dvöl hennar í Ósló stendur mun
hún flytja það erindi sem hún gat
ekki flutt árið 1991 þegar hún hlaut
friðarverðlaun Nóbels en þá var
henni haldið í stofufangelsi. Sonur
hennar, Alexander Aris, tók við
verðlaununum fyrir hennar hönd.
David Cameron, forsætisráðherra
Bretlands, átti fund með Suu Kyi í
síðustu viku þar sem hann bauð
henni að heimsækja Bretland. „Fyr-
ir tveimur árum hefði ég sagt:
„Þakka þér fyrir boðið en því mið-
ur.“ Nú get ég sagt: „Ja, kannski.“
Og það er mikil framför,“ svaraði
baráttukonan. Hún hefur sótt um
vegabréf en embættismaður í
Búrma staðfesti í gær að það hefði
enn ekki verið gefið út.
Suu Kyi var látin laus árið 2010
eftir að hafa verið haldið í stofufang-
elsi af yfirvöldum í Búrma í fjölda-
mörg ár og var nýlega kjörin á þing
í sögulegum kosningum í landinu.
Hún hefur hingað til óttast að ef hún
yfirgæfi Búrma yrði henni ekki
hleypt aftur inn í landið og hefur því
forðast ferðalög. Ákvörðun hennar
þykir því benda til þess að hún beri
traust til þeirra lýðræðisumbóta sem
ráðist hefur verið í.
Fyrsta utanlandsferðin í 24 ár Flytur nóbelsræðu í Ósló
Aung San Suu Kyi heimsækir
Noreg og Bretland í júní
Reuters
Þingkona Suu Kyi var kosin á þing
með miklum meirihluta atkvæða.