Morgunblaðið - 19.04.2012, Blaðsíða 40
FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 110. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. ,,Jakahlaupabraut“ í lauginni
2. Æpandi eftirspurn eftir starfsfólki
3. Ljóst hvaða skólar keppa
4. Svekkt út í Söndru Bullock
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Felix Bergsson treður upp á Græna
hattinum á Akureyri í kvöld og flytur
lög af plötu sinni Þögul nóttin. Jón
Ólafsson og Stefán Már Magnússon
leika með en þeir félagar unnu plöt-
una að öllu leyti með Felix.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Felix Bergsson syng-
ur á Græna hattinum
Kórstjóri Fjalla-
bræðra, Halldór
Gunnar Pálsson,
hefur nú fengið
1.086 Íslendinga
til að ljá lokakafla
lagsins „Ísland“
raddir sínar en
lagið hefur hann
unnið að undan-
förnu fyrir kórinn. Halldór stefnir að
því að taka upp söng 10% þjóðar-
innar, blanda saman upptökunum og
mynda þannig risastóran kór.
1.086 raddir komnar
fyrir lagið „Ísland“
Myndband við lag bandaríska
plötusnúðsins Kaskades og tónlist-
armannsins Skrillex, „Lick It“, hefur
nú litið dagsins ljós en það
var tekið upp á Íslandi. Í
myndbandinu leikur
knattspyrnukonan
Aníta Lísa Svansdóttir
og er í örvæntingarfullri
leit að tónlist, að
því er segir í
frétt á vef
MTV.
Aníta Lísa Svans-
dóttir í „Lick It“
Á föstudag Norðaustan 5-10 m/s suðaustantil, annars 3-8 m/s.
Dálítil él norðan- og austantil en víða slydda eystra síðdegis, bjart-
viðri vestantil. Vægt frost norðaustantil, en hiti annars 1 til 7 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 5-13 m/s norðvestantil en ann-
ars hægari norðaustlæg eða breytileg átt. Dálítil él eystra og einnig
stöku él á Vestfjörðum, annars bjart með köflum. Hiti 0-10 stig.
VEÐUR
HK gerði sér lítið fyrir og
skellti deildarmeisturum
Hauka með sex marka mun,
30:24, í fyrsta leik liðanna í
undanúrslitum N1-deildar
karla í handknattleik á Ás-
völlum í Hafnarfirði í gær-
kvöldi. Þetta var jafnframt
fyrsti sigur HK á Haukum í
vetur. Liðin mætast næst á
föstudagskvöldið á heima-
velli Kópavogsliðsins.
Vinna þarf þrjá leiki til að
komast í úrslit. »2
HK skellti deildar-
meisturunum
Íslenska landsliðið í íshokkíi tapaði
fyrir Króötum, 5:1, í lokaleik sínum í
A-riðli 2. deildar heimsmeistaramóts-
ins í Skautahöllinni í Laugardal í gær-
kvöldi. Þar með hafnaði Ísland í
fjórða sæti í riðlinum sem er besti
árangur sem það
hefur náð á
heims-
meist-
aramóti
fram til
þessa. »2
Besti árangur Íslands
á HM í íshokkíi
Þór í Þórlákshöfn tryggði sér í gær-
kvöldi réttinn til þess að leika um Ís-
landsmeistaratitilinn í körfuknattleik
karla í fyrsta sinn. Þá vann liðið frá-
farandi Íslandsmeistara KR í þriðja
sinn í undanúrslitarimmu liðanna,
83:80, á heimavelli að viðstöddu
troðfullu íþróttahúsi af fólki. Þór
mætir annaðhvort Grindavík eða
Stjörnunni í úrslitum. »4
Þór Þorlákshöfn í
úrslitin í fyrsta sinn
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir
gunnhildur@mbl.is
Eins og svo oft áður iðar Iðnó af lífi
en þessa dagana ráða börnin þar
ríkjum.
Búið er að breyta gamla menn-
ingarsetrinu við Tjarnarbakkann í
barnamenningarhús þar sem boðið
er upp á fjölmargar lista- og menn-
ingarsmiðjur í tengslum við Barna-
menningarhátíðina í Reykjavík.
Menning barna, fyrir börn og
með börnum
„Markmiðið er að skapa vettvang
fyrir menningu barna, fyrir börn og
með börnum,“ segir Arnfríður S.
Valdimarsdóttir, verkefnastjóri
barnamenningar hjá Reykjavík-
urborg. Er þetta í annað sinn sem
komið er á fót svokölluðu barna-
menningarhúsi í tengslum við hátíð-
ina.
Gefst gestum og gangandi kostur
á að kynna sér hinar ýmsu list-
greinar, menningarsmiðjur og við-
burði en fjölmargt er í boði og að-
gangseyrir enginn. Á meðal þess
sem úr er að velja eru flugdreka- og
sirkussmiðjur, krakkajóga, brúðu-
gerð, tækni-legó- og origami-
námskeið, skrímslastundir og rat-
leikir. Er þá fátt eitt talið. Um 6.800
manns sóttu Ævintýrahöllina síðast
og er útlit fyrir að gestir verði síst
færri í ár. Þegar Morgunblaðið leit
inn að morgni annars dags höfðu
þegar um 900 manns komið í heim-
sókn.
Barnaball og Krakkarokk
Á meðal annarra viðburða sem
vert er að benda á er barnaballið
„Hnésokkar og lakkskór“ sem fram
fer á sumardaginn fyrsta en þar
munu Sigurður Guðmundsson og
hljómsveit spila fyrir dansi. Boðið
verður upp á danskennslu klukku-
stund áður en ballið hefst. Á morg-
un, föstudag, verða tvennir tón-
leikar í Ævintýrahöllinni, annars
vegar Morguntónar þar sem Hafdís
Huld flytur lög fyrir yngri börnin
og hins vegar Krakkarokk í eftir-
miðdaginn. Þar koma fram hljóm-
sveitirnar Epli í teygjustökki,
Rokksveit Íslands og Eldpipar en
allar eiga þær það sameiginlegt að
samanstanda af 10 og 11 ára tón-
listarmönnum.
Ævintýrahöllin er opin á
milli 10 og 18 daglega til
og með 21. apríl. Allar
nánari upplýsingar er að
finna á heimasíðu Barna-
menningarhátíðarinnar í
Reykjavík, www.barna-
menningarhatid.is.
Ævintýrahöllin iðar af lífi
Fjölmargir við-
burðir í boði í Iðnó á
Barnamenningarhá-
tíðinni í Reykjavík
Morgunblaðið/Kristinn
Listamenn framtíðarinnar Gestir Ævintýrahallarinnar í Iðnó einbeittir við listsköpun í einni smiðjunni.
Nokkrir krakkar úr þriðja bekk í Langholtsskóla voru niðursokknir í
flugdrekagerð undir öruggri leiðsögn Björns Finnssonar þegar blaða-
mann bar að garði. Að sögn kennara hópsins, Ingva
Sveinssonar, mæltist Ævintýrahöllin afar vel fyrir hjá
krökkunum.
„Hópurinn skipti sér í þrjár smiðjur; flug-
drekasmiðjuna, tækni-legó og álfadúkku-
húsið. Ratleikurinn kom einnig til greina en
því miður var ekki tími fyrir hann líka.
Krakkarnir virðast skemmta sér vel og
þetta er tilbreyting frá því sem verið er
að gera venjulega í skólanum.“
Brýtur upp hefðbundna daga
ÚR FLUGDREKASMIÐJUNNI
Líf og fjör í flug-
drekasmiðjunni.