Morgunblaðið - 19.04.2012, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2012
ÚTRÁSIN
SEM TÓKST?
Íslenskar bókmenntir erlendis
Málþing í Norræna húsinu
föstudaginn 20. apríl kl. 16-18.
STUTTAR FRAMSÖGUR
Laure Leroy, hjá forlaginu Zulma í Frakklandi:
Viðtökur Afleggjara Auðar Övu Ólafsdóttur í Frakklandi.
Jón Kalman Stefánsson: Erum við ekki alveg örugglega frábær?
Coletta Bürling: Þjóðarsálin í þýskum búningi.
Jón Yngvi Jóhannsson: ,,Nýtt land í norrænum bókmenntum“
- útrás íslenskra bókmennta um aldamótin 1900.
PALLBORÐSUMRÆÐUR UM ÍSLENSKAR BÓKMENNTIR ERLENDIS
Einar Már Guðmundsson, Hólmfríður Matthíasdóttir,
Þorgerður Agla Magnúsdóttir og Pétur Már Ólafsson.
Að málþingi loknu verður boðið upp á léttar veitingar
Málþingið er haldið af
Sögueyjunni í samvinnu
við Rithöfundasamband
Íslands og Félag íslenskra
bókaútgefenda - með
stuðningi Landsbankans.
BAKSVIÐ
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Greenstone ehf. hefur hætt við
áform sín um byggingu gagnavers á
Íslandi. Félagið var stofnað af fyr-
irtækjunum TCN í Hollandi, GEO í
Bandaríkjunum og Amicus á Íslandi
og hefur frá árinu 2008 unnið að því
að reisa gagnaver hér á landi. Eftir
að hafa skoðað álitlega staði víða um
land varð Blönduós fyrir valinu, þar
sem gerð var viljayfirlýsing með
heimamönnum um uppbygginguna,
en hún hefur nú runnið út. Blöndu-
ósingar hafa skipulagt 128 hektrara
lóð undir gagnaver eða viðlíka at-
vinnustarfsemi. Voru áform uppi um
að gagnaverið gæti skapað um 120
varanleg störf og 720 störf á bygg-
ingartíma. Var undirbúningur kom-
inn það langt að rætt hafði verið við
Ístak um að verða aðalverktaki.
Ríkisstjórnin óviljug
Sveinn Óskar Sigurðsson, fv. tals-
maður Greenstone á Íslandi, stað-
festi í samtali við Morgunblaðið að
félagið væri hætt við áform sín á Ís-
landi en erlendir eigendur myndu
fylgjast áfram með íslenska mark-
aðnum. Viðskiptavinur Greenstone,
sá er áformaði uppbyggingu hér með
félaginu, vinnur nú að því að láta
reisa gagnaver í Bandaríkjunum.
Sveinn Óskar segir margt hafa
komið til að svona fór. Hann tekur
fram strax í upphafi að Blönduósing-
ar hafi staðið sig mjög vel í þeirri við-
leitni að fá gagnaver til landsins. Hið
sama sé hins vegar ekki hægt að
segja um ríkisstjórn Íslands.
„Hún var óviljug að vinna með fé-
laginu í að fá viðskiptavin þess til að
byggja gagnaver við Blönduós. Ís-
land hefur verið að heltast úr lestinni
þar sem hið opinbera hefur ekki
staðið eðlilega að því að bæta um-
hverfi fyrir þessa fjárfestingu. Ís-
landsstofa, áður Fjárfestingastofa,
hefur hins vegar staðið sig vel en það
er ekki nóg, kerfið þarf allt að smella
saman,“ segir hann og nefnir sem
dæmi tafir á breytingu laga og
reglna varðandi skattamál, vænting-
ar Landsvirkjunar um að hækka raf-
orkuverð umfram það sem viðskipta-
vinurinn gat fengið á eigin
heimamarkaði og of hátt verðlag á
gagnaflutningum til og frá landinu.
Síðasttalda atriðið segir Sveinn vera
tilkomið vegna yfirveðsetningar
Farice og illa fjármagnaðs félags.
Eigendur Greenstone hafi rekið sig
á það að fjárhagslegt bolmagn Far-
ice var ekkert vegna offjárfestingar í
Danice-strengnum.
Verðhækkun freistar ekki
Sveinn bendir einnig á að virkjanir
í neðri hluta Þjórsár áttu að vera
ætlaðar uppbyggingu gagnavera og
hinum græna iðnaði. Það hafi a.m.k.
verið fullyrt í þeirra eyru af fyrri yf-
irstjórn Landsvirkjunar en þar á bæ
hafi verið breytt um stefnu.
„Bæði Landsvirkjun og Farice
verðlögðu sig út af þessum markaði á
þeim tíma og nú eru gagnaversfyrir-
tækin farin að leita annað með stærri
verkefni, eins og til Svíþjóðar og
Finnlands. Það kemur hvorki heim-
ilunum í landinu né þessum iðnaði til
góða að hækka raforkuverðið. Það
hefur aldrei freistað erlendra fjár-
festa að vita til þess að hækka eigi
verð á raforkunni,“ segir Sveinn
Óskar og telur eilífan samanburð við
aðstæður í Evrópu óraunhæfan þar
sem Ísland sé svo fjarri öllum mörk-
uðum.
Ekki vonlaus iðnaður
Hann ítrekar hins vegar að hann
telji gagnaversiðnað hér á landi ekki
vonlausan við núverandi aðstæður.
Hægt sé að byggja hann upp í
smærri einingum. Einnig standi
staður eins og Blönduós fjárfestum
áfram til boða og vonandi takist að
reisa þar gagnaver í náinni framtíð.
Greenstone gafst upp á Íslandi
Morgunblaðið/Kristinn
Gagnaver Forráðamenn Greenstone ræddu við fjölda aðila hér á landi um áform sín, m.a. gekk Henk Wiering,
stjórnarmaður í Greenstone, á fund Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, á Bessastöðum vorið 2008.
Hætt við áform um gagnaver á Íslandi í bili Stjórnvöld, Landsvirkjun og Farice gagnrýnd fyrir að
hafa verðlagt Ísland út úr samkeppninni Töldu Blönduós besta staðinn en viljayfirlýsing er útrunnin
Fegurðarsamkeppni
» Greenstone fór af stað með
nokkurs konar „fegurðar-
samkeppni“ árið 2008 þar sem
ritað var undir viljayfirlýsingar
við nokkur sveitarfélög um
byggingu gagnavers.
» Sveitarfélögin voru Ölfus,
Fljótsdalshérað, Fjallabyggð,
Borgarbyggð, Dalvíkurbyggð,
Skeiða- og Gnúpverjahreppur,
Hafnarfjörður og Blönduós.
Einnig var ritað undir vilja-
yfirlýsingu með Grundartanga-
höfn.
» Stöðunum var síðan fækkað
niður í fjóra; Borgarbyggð,
Hafnarfjörð, Fljótsdalshérað
og Blönduós.
» Á endanum var ákveðið að
stefna að uppbyggingu á
Blönduósi, eftir að við-
skiptavinur Greenstone taldi
þann stað álitlegastan.
Fulltrúar Eimskips og Vegagerðarinnar hittust á fundi
í gærmorgun til að ræða möguleika á að hefja viðræður
um gerð samnings um rekstur Vestmannaeyjaferj-
unnar Herjólfs næstu tvö árin. Fulltrúarnir bjuggust
við að skiptast á hugmyndum næstu daga.
Eimskip átti lægsta tilboð í síðara útboði um rekstur
skipsins þegar tilboð voru opnuð í síðustu viku. Það
flækir hins vegar málið að Eimskip kærði ákvörðun
Vegagerðarinnar að hafna öllum tilboðum í fyrra út-
boði á rekstri skipsins en þeim var hafnað vegna þess
að ekki fylgdu öll umbeðin gögn tilboðunum þegar
þeim var skilað. Fram hefur komið hjá Eimskip að fé-
lagið hafi bætt úr því fimm dögum áður en ákveðið var
að vísa tilboðunum frá.
Meðal krafna Eimskips fyrir kærunefnd útboðsmála
er að samningsferli í nýja útboðinu verði stöðvað.
Kærunefndin fjallar nú væntanlega um þann þátt máls-
ins og ekki taldar líkur á að niðurstaða fáist fyrr en í
næstu viku.
Samningar eru í tímaþröng vegna þess að Vegagerð-
in sagði upp núgildandi samningi við Eimskip um
rekstur Herjólfs og rennur hann út 1. maí. Á sama tíma
taka gildi uppsagnir áhafnar og annars starfsfólks
Herjólfs. Óvissa er því með siglingar til Eyja eftir mán-
aðamót.
Vegagerðin hefur lokið yfirferð tilboða og komist að
þeirri niðurstöðu að þau teljist gild. Að öðru jöfnu ætti
að ganga til viðræðna við lægstbjóðanda sem er Eim-
skip. Vegagerðin hefur hins vegar lýst því yfir við
kærunefnd útboðsmála að hún muni bíða með samn-
inga þangað til úrskurður hennar um heimild til samn-
inga liggur fyrir. Eimskip hefur aftur á móti lýst því yf-
ir að það sé tilbúið að ganga til samningaviðræðna við
Vegagerðina, þrátt fyrir kröfur sínar, en gerir fyrir-
vara um niðurstöðu kærunefndarinnar.
Þeim óformlegu viðræðum sem nú eru hafnar getur
ekki lokið með samningum nema með miklum fyrir-
vörum af hálfu beggja aðila. Er því jafnframt verið að
athuga með möguleika á bráðabirgðalausn svo ferjan
stöðvist ekki 1. maí.
Það tilboð Eimskips sem Vegagerðin er reiðubúin að
taka hljóðar upp á 681 milljón króna fyrir rekstur Herj-
ólfs í tvö ár. Er það um 200 milljónum kr. lægra en til-
boðið sem Eimskip gerði í fyrra útboði og vill standa á.
Niðurstaða kærunefndar skiptir því verulegu máli fyr-
ir ríkið og Eimskip. helgi@mbl.is
Reynt að hefja samn-
ingaviðræður um Herjólf
Eimskip og Vegagerðin skiptast á hugmyndum
Morgunblaðið/RAX
Herjólfur Vestmannaeyjaferjan Herjólfur sigldi fulla
áætlun til Landeyjahafnar í gær, fjórar ferðir.
„Við höfum ekkert gefist upp. Við
munum halda áfram að kynna okk-
ar svæði og kynna Ísland sem fjár-
festingarkost. Það skal rísa hérna
gagnaver, þetta er ekki spurning
um hvort heldur bara hvenær,“
segir Arnar Þór Sævarsson, bæj-
arstjóri á Blönduósi, um ákvörðun
Greenstone. Hann segir sveitarfé-
lagið hafa lagt mikla vinnu í verk-
efnið sem muni vonandi nýtast
áfram. Bendir hann á að sam-
starfsaðilar Greenstone hafi valið
Blönduós sérstaklega, eftir að
hafa kynnt sér fleiri staði á land-
inu. Starfsemi gagnavers og með-
fylgjandi fyr-
irtækja myndi
hafa gríðarlega
þýðingu fyrir
atvinnumál á
stóru svæði,
ekki eingöngu á
Blönduósi.
Arnar segir
Ísland í harðri
samkeppni við
önnur lönd um gagnaverin og
spurning hvort nóg hafi verið að
gert til að laða hingað erlenda fjár-
festa. Mörg ríki leggi mikið á sig til
að fá slíka fjárfestingu.
Við höfum ekki gefist upp
BÆJARSTJÓRI BLÖNDUÓSBÆJAR UM GREENSTONE
Arnar Þór
Sævarsson