Morgunblaðið - 19.04.2012, Blaðsíða 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2012
HVERN ÆTLAR ÞÚ AÐ GLEÐJA Í DAG?
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ferð létt með að vinna ná-
kvæmnisvinnu í dag og að sitja við lengi í
einu. Vertu því ekki afundinn þótt aðrir
reyni að hjálpa þér til þess.
20. apríl - 20. maí
Naut Hugsanlegt er að þú lendir í útistöð-
um í dag enda finnst þér sumir bæði hroka-
fullir og einstrengingslegir í viðmóti. Sestu
nú niður og farðu í gegnum málin.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Fyrsta skref þitt í tilteknu verkefni
er ekkert annað en það, það er byrjun. Ein-
hverjir árekstrar við aðra valda þér leið-
indum og áhyggjum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú veist að þú ert á réttri leið og
gefur ekkert eftir. Jákvætt hugarfar þitt
laðar fólk til samstarfs við þig. Við getum
ekki breytt fólki, bara elskað það eins og
það er.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú munt sennilega eiga áhugaverðar
samræður við einhvern ókunnugan í dag. Ef
ekki vill annað til, skaltu fara frá þeim, sem
eru að reyna að hleypa þér upp.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Núna ertu að biðja um aðstoð eða
vernd, og þú færð hana. Hvað sem þú gerir
núna líkist rússíbanareið. Sýndu dirfsku og
mættu óundirbúin(n).
23. sept. - 22. okt.
Vog Þeir sem leita ráða hjá þér hafa stund-
um á orði að þú ættir að gerast launaður
ráðgjafi. Ef ekkert er að gert lognast sam-
bandið við vinina út af og þú getur engum
um kennt nema sjálfum/sjálfri þér.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ef þú ætlar að koma málum
þínum í örugga höfn þarftu að sætta þig við
tilslakanir. Mundu að uppörvun er vænlegri
til árangurs en skammir.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Enginn vill láta segja sér fyrir
verkum, sérstaklega ekki þú. Leggðu hart
að þér til þess að ná markmiðum þínum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er rangt að kætast við ófarir
annarra og aldrei að vita nema þú verðir
sjálf/sjálfur skotspónninn áður en þú veist
af. Ef þú átt enga hvetjandi vini, er núna
rétti tíminn til að eignast þá.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Reyndu að ná sjónar á einhverju
takmarki sem þú getur síðan stefnt hik-
laust að. Vertu ljúf(ur) og kát(ur).
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú færð óvænta athygli sem þú
kærir þig alls ekki um. Hertu upp hugann
og drífðu hlutina af. Kannski gerir þú áætl-
anir um að ferðast.
Í dag hefði Halldóra B. Björns-son, ein af systkinunum frá
Draghálsi, orðið 95 ára. Fjögur
af þeim voru fædd í aprílmánuði,
Pétur hinn 12., Guðný hinn 28. og
Sigríður á Hávarðsstöðum hinn
30. Jóhannes úr Kötlum velur
þetta erindi í Skáldu til þess að
minnast Halldóru:
Þögninni einni segjum okkar sorg.
Sungin var gleðin út í vind sem blés.
Spor lágu burt úr dalnum annan
dag,
dögg féll af greinum lítils reynitrés.
Þögninni einni segjum okkar sorg.
Halldóra var ekki aðeins skáld
heldur fljúgandi hagmælt eins og
hún átti kyn til.
Manna örlög margvísleg
myndað getur vindurinn:
annar fór á Vindi um veg,
vindur á setum bindur hinn.
Það er gaman að „Ferðapistl-
um úr Hvalfirði“. Þetta mælir
Halldóra fram um leið og hún fer
fram hjá Fossá:
Bóndinn er aleinn úti
og etur ljá við stein.
Konan er kannske í bænum,
kannske er hún ekki nein.
Þetta tungutak þekki ég ekki
„að etja ljá við stein“ en merkir
líklega að bóndi hafi setið við
hverfisteininn og lagt á, sbr. að
hvetja ljáinn.
„Vorið kemur“ er fyrsta ljóðið í
fyrstu ljóðabók Halldóru, „Ljóð“,
ort 1928. og byrjar svo:
Þegar örmum vetur vefur
visna björk í skógarþröng,
þrái ég vorsins þýðu óma,
þyt í laufi og fuglasöng.
Frjálsa, glaða, litla lóa,
ljóð þín eiga töframátt,
burt þú syngur sorgir mínar,
svífur glöð um loftið blátt.
Og ljóðinu lýkur með þessu er-
indi:
Ætti sál mín auðlegð þína,
yndi og fegurð, vorsins hljóm,
mætti ég alla ævi mína
yrkja ljóð um vor og blóm.
Síðasta ljóð bókarinnar er ort
1949. Þá yrkir Halldóra „Órímað
ljóð“ og lýkur því með þessu er-
indi:
Í köldu myrkri jarðarinnar
endar ferð vor
og vér vitum ekki lengur
að þessi ferð var farin.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Og etur ljá
við stein
S
m
áf
ól
k
G
re
tt
ir
H
ró
lfu
r
hr
æ
ði
le
gi
G
æ
sa
m
am
m
a
o
g
G
rí
m
ur
F
er
di
n
an
d
MÉR
FINNST BARA
EINS OG LÍF
MITT FARI BARA
Í HRINGI...
FYRIRGEFÐU
AÐ ÉG ER SEINN
ÞAÐ ER
ALLT Í LAGI
EN ÉG ER
MEÐ MJÖG GÓÐA
AFSÖKUN
ÉG FÓR Í
BUXURNAR
MÍNAR ÖFUGAR
HANN GEKK
500 METRA Í
VITLAUSA ÁTT
ÁÐUR EN HANN
ÁTTAÐI SIG Á
ÞESSU
ME,
ME, ME!
PSST! KINDUR...
„EN Í SÖMU BYGGÐ VORU
HIRÐAR ÚTI Í HAGA OG
GÆTTU UM NÓTTINA
HJARÐAR SINNAR”
ÞVOÐIRÐU
Á ÞÉR
HENDURNAR?
JÁ LEYFÐU
MÉR AÐ
SJÁ!
ÞÆR LÍTA KANNSKI EKKI ÚT FYRIR AÐ
VERA HREINAR EN ÞAÐ ER BARA VEGNA
ÞESS AÐ ÉG FANN EKKI SÁPUNA.
ÉG ÞVOÐI ÞÆR SAMT VEL OG
VANDLEGA MEÐ VATNI
Víkverji er kominn í sumarskap. Sólskín í heiði og útsýnið út um
gluggann í Hádegismóum eins og á
póstkorti. Reyndar setur gul sinan og
nýfallinn snjór á hvítum tindum
fjallahringsins handan Rauðavatns
og Heiðmerkur eilítið vetrarlegan
blæ á þennan sumarbrag. Þá er
kvikasilfrið í hitamælinum ekki bein-
línis hallt undir áróður um að komið
sé sumar og í það minnsta ekki tilbúið
að taka suðræna sveiflu upp í tveggja
stafa tölu. Gróðurinn er hins vegar
öllu ginnkeyptari, græn strá farin að
stingast upp úr jörðu og brum komið
á greinar. Víkverji sá meira að segja
feita randaflugu – svona landnáms-
randaflugu, ekki seinni tíma vespu,
sem villtist hingað til lands um árið
þegar ætlunin var að panta bifhjól –
fljúga letilega hjá í fyrradag, greini-
lega farin að undirbúa sumardaginn
fyrsta.
x x x
Nú hafa nagladekk verið bönnuð íReykjavík frá 15. apríl þannig að
það er eins gott að sumarið standi
undir merkjum. Á heimasíðu borg-
arinnar sagði að talning, sem gerð
var í gær, hefði sýnt að hlutfall bíla
með nagladekk hefði verið 22,8%. Í
talningu, sem gerð var á sama degi
fyrir ári, var hlutfallið 20,3%. Ekki
veit Víkverji hver skekkjumörkin
eru, en grunar að munurinn sé innan
þeirra. Í frétt borgarinnar segir einn-
ig að styrkur svifryks í lofti hafi að-
eins einu sinni farið yfir heilsuvernd-
armörk, sem eru 50 míkrógrömm á
rúmmetra. Í fyrra hafði styrkurinn
farið átta sinnum yfir mörkin á sama
tíma. Ástæðan er sögð meiri úrkoma í
borginni nú en í fyrra.
x x x
Víkverji áttar sig á því að víða álandinu getur verið háskalegt að
aka ekki á nagladekkjum að vetr-
arlagi, en hann hefur nú um árabil
verið naglalaus á götum höfuðborg-
arinnar og aldrei lent í vandræðum.
Þó er hann ekki á jeppa, heldur
venjulegum fólksbíl, sem meira að
segja getur verið óttalegur sleði þeg-
ar snjór og klaki er á götum. En þá er
bara að aka rólega og í samræmi við
færð. Þessi lestur er hins vegar full-
komlega ótímabær og hefði átt að
geymast fram á haust.
Víkverji
Orð dagsins: Verðið heldur sjálf heilög
í allri hegðun, eins og sá er heilagur,
sem yður hefur kallað. (1Pt. 1, 15)