Morgunblaðið - 19.04.2012, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2012
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Við hyggjumst gera það sem við
getum til að minnka umferðarhrað-
ann þarna,“ sagði Karl Sigurðsson,
borgarfulltrúi og formaður um-
hverfis- og samgönguráðs Reykja-
víkur, um Hringbrautina í Reykja-
vík. „Við erum öll með augun á
Hringbrautinni þar sem hún sker
Vesturbæinn.“
Herdís Storgaard, verkefnisstjóri
í slysavörnum barna og íbúi við
Hringbraut, sagði í Morgunblaðinu í
gær að íbúar við Hringbraut væru í
stórhættu vegna hraðaksturs á göt-
unni auk þess sem mikið ónæði og
mengun væri jafnt nótt sem dag
vegna mikils umferðarþunga og um-
ferðarhraða. Hún taldi að umferð,
ekki síst stórra bíla, um Hringbraut
hefði aukist eftir að þrengt var að
öðrum umferðaræðum sem þjóna
vesturhluta Reykjavíkur.
„Við viljum ekki að allur umferð-
arþunginn færist yfir á Hring-
braut,“ sagði Karl. Hann sagði að
rætt hefði verið um að lækka þyrfti
hámarkshraða, auka hraðaeftirlit og
svo gæti verið að fara þyrfti í fram-
kvæmdir eins og að lyfta Hring-
brautinni á kafla til að draga úr
hraðanum, líkt og gert var framan
við tónlistarhúsið Hörpu.
Vilja draga úr umferðarþunga
Karl vill ekki meina að vesturhluti
Reykjavíkur sé að einangrast í sam-
göngulegu tilliti t.d. á álagstímum.
„Ég bý sjálfur í Vesturbænum og ek
þarna um annað slagið, þótt ég sé
meira á ferðinni á hjóli,“ sagði Karl.
„Mér finnst ég ekki finna fyrir um-
ferðarþunga á morgnana eða síð-
degis fyrr en ég kem að mislægu
gatnamótunum við Hringbraut/-
Snorrabraut. Þetta mannvirki, sem
átti að leysa gríðarmikinn umferð-
arvanda, virðist ekki skila sínu. Ég
tel að það séu ekki síður íbúar í
Hlíðunum en Vesturbænum sem
lenda í vandræðum vegna umferð-
arþunga.“
Karl sagði rétt að mikill umferð-
arþungi væri bæði af Seltjarnarnesi
og hverfunum beggja vegna Hring-
brautar.
„Við viljum gera okkar til að
minnka umferðarþungann og draga
úr hraðanum. Hluti af því er að
bjóða upp á almenningssamgöngur
sem raunhæfan kost. Samningur
sem við erum að gera við ríkið mun
stuðla að því. Sömuleiðis erum við
með hjólreiðaáætlun en í henni felst
að leggja hjólreiðastíga sem verða
annar valkostur. Svo viljum við
beina því til fólks að vera ekki eitt í
bíl heldur fara fleiri saman. Með öllu
þessu má ætla að það létti aðeins á
umferðinni.“
Borgin leitar leiða til að
draga úr hraða á Hringbraut
Morgunblaðið/Ómar
Hringbraut Þung og hröð umferð hefur valdið íbúum ónæði. Unnið er að úrbótum á því, að sögn borgarfulltrúa.
Rætt er m.a. um lækkun hámarkshraða og aukið eftirlit með umferðinni
Jón Magnússon,
lögmaður Björns
Bjarnasonar,
fyrrverandi ráð-
herra, hefur beð-
ið Hæstarétt um
áfrýjunarleyfi
vegna dóms Hér-
aðsdóms Reykja-
víkur í máli Jóns
Ásgeirs Jóhann-
essonar, fyrrverandi forstjóra
Baugs, gegn Birni.
Er óskað eftir áfrýjunarleyfi sök-
um þess að upphæðin nær ekki til-
teknu lágmarki. Í byrjun mars sl.
dæmdi Héraðsdómur Reykjavíkur
Björn til að greiða Jóni Ásgeiri
200.000 kr. í miskabætur og 200.000
kr. til að birta forsendur dóms auk
þess sem tiltekin ummæli í Rosa-
baugi, bók Björns, voru ómerkt.
Í 2. prentun bókarinnar leiðrétti
Björn umrædd ummæli og bað Jón
Ásgeir afsökunar á heimasíðu sinni
og í Morgunblaðinu, en Jón Ásgeir
taldi það ekki nóg og fór m.a. fram á
eina milljón króna í miskabætur.
Jón Magnússon segir að Hæsti-
réttur hafi sent bréf til lögmanns
Jóns Ásgeirs og beðið hann um af-
stöðu til málsins, en ætla megi að
Hæstiréttur taki ákvörðun um fram-
haldið í fyrrihluta maí.
Björn biður um
áfrýjunarleyfi
Björn Bjarnason
Reykjavíkurborg er að vinna að því að efla umferðareft-
irlit í samvinnu við lögregluna. Búið er að ákveða kaup á
tveimur nýjum hraðamyndavélum. Önnur er á leiðinni
og hin kemur fljótlega.
„Þær verða notaðar þar sem okkur finnst hraðinn
vera fram úr hófi,“ sagði Karl Sigurðsson, formaður
umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar. „Gott
dæmi er t.d. Miklabraut þar sem ekið er á 70-80 km
hraða í gegnum íbúðarhverfi.“
Karl sagði kassa fyrir hraðamyndavélar vera víða við
umferðaræðar og a.m.k. önnur nýja vélin yrði á flakki á
milli kassanna.
Tvær nýjar hraðamyndavélar
REYKJAVÍKURBORG EFLIR UMFERÐAREFTIRLIT
Karl
Sigurðsson
Í dag kl. 14 fara fram tónleikar í safnaðarheimili Oddasóknar á Hellu. All-
ur ágóði af tónleikunum rennur til styrktar menningarsal sóknarinnar, en
hann er í húsinu og var tekinn í notkun í fyrra eftir umtalsverða sjálfboða-
vinnu við standsetningu hans. Fjölmörg menningarfélög hafa aðstöðu í
húsinu og halda þau á hverju vori tónleika þar sem allur ágóði rennur til
hússins. Á tónleikunum koma fram Samkór Rangæinga, Leikfélag Rang-
æinga, Harmonikufélag Rangæinga, Kvennakórinn Ljósbrá, Kirkjukór
Odda- og Þykkvabæjarkirkna, Karlakór Rangæinga og Karlakórinn Þrest-
ir úr Hafnarfirði. Miðaverð á tónleikana er 2.000 kr. og er innifalið í miða-
verði kaffi og meðlæti að hætti Kvenfélagsins Unnar, sem einnig hefur að-
stöðu í húsinu auk félags eldri borgara í Rangárvallasýslu. ipg@mbl.is
Tónleikar til styrktar menningarsal á Hellu
www.golfkortid.is
Einstaklingskort 9.000 kr.
Fjölskyldukort 14.000 kr.
golfvöllur - eitt kort31Kastalar, rómantík og fjallafegurð eru lýsandi í þessari sumarferð til Tékklands og Austurríkis.
Eftir flug til München er haldið til Ceský Krumlov í Tékklandi þar sem farið verður í
skoðunarferð um bæinn og höllin skoðuð. Eftir það verður haldið til gullborgarinnar Prag en
á leiðinni þangað verður hin glæsilega Hluboká höll skoðuð og siglt á Zvikova vatni. Förum
jafnframt í skoðunarferð um Prag og heimsækjum Hradcany-kastala. Frá Prag höldum við
til Trebíc en þar er áhugaverðasta gyðingahverfi landsins sem skráð er á heimsminjaskrá
UNESCO. Þaðan er haldið áfram til smábæjarins Luhacovice í Morova þar sem stærstu og
elstu heilsulindir Morava eru. Frá Luhacovice verður farið aftur í aldir til bæjarins Modrá þar
sem er mjög áhugavert byggðar- og fornminjasafn. Skoðum fallega miðaldabæi, förum í
vínsmökkun og sláum upp grillveislu. Kveðjum Tékkland og förum til Kitzbühel í Tíról, eins
þekktasta vetraríþróttabæjar Austurríkis. Á leiðinni þangað verður stoppað í Dürnstein í
Wachau vínhéraðinu, sem er með fallegustu landsvæðum við Dóná árfarveginn í Austurríki.
Mikil upplifun er að taka kláf upp á Kitzbüheler Horn sem er í 1998 m hæð.
Fararstjóri: Pavel Manásek
Verð: 259.400 kr. á mann í tvíbýli
Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting, allar skoðunarferðir með rútu, hálft fæði - þar
af sérstök grillveisla á hótelinu í Luhacovice og íslensk fararstjórn.
www.baendaferdir.is
Sp
ör
eh
f.
s: 570 2790
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
SUMAR 10
4. - 16. ágúst
Kastalar & kling jandi
Hálftfæðiogallarskoðunarferðirinnifaldar
Travel Agency
Authorised by
Icelandic Tourist Board
kristall
Kínverski fjár-
festirinn Huang
Nubo mun taka
jörðina Gríms-
staði á Fjöllum á
leigu til langs
tíma gangi áform
hans eftir en
hann á nú í við-
ræðum við ís-
lensk stjórnvöld
um þessa breyttu skilmála. Þetta
kom fram í viðskiptatímaritinu For-
bes í gær.
Huang vildi kaupa jörðina en fyr-
ir þeim kaupum þurfti undanþágu
sem innanríkisráðuneytið veitti
ekki. Í grein Forbes er haft eftir
Þórði H. Hilmarssyni hjá Fjárfest-
ingarstofu að málin séu að skýrast
og ættu að vera komin á hreint inn-
an tveggja mánaða.
Fjárfestingarfélag Huangs,
Zhongkun Investment Group, hefur
hug á að leigja land á Grímsstöðum
á Fjöllum og ætlar sér að byggja
þar upp ferðaþjónustu.
Í viðtali við kínversku sjónvarps-
stöðina CNTV er Huang bjartsýnn
á að samningar náist. „Þrátt fyrir
hindranir höfnuðu íslensk stjórn-
völd tilboði okkar ekki alfarið,“
segir Huang. „Við munum líklega
ganga frá fjárfestingunni innan
tveggja mánaða.“
Huang Nubo að
semja um leigu á
Grímsstöðum
Huang Nubo