Morgunblaðið - 19.04.2012, Page 14
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Hugmyndir um að taka marga millj-
arða eða milljarðatugi út úr sjávar-
útveginum í formi veiðigjalds eru í
besta falli mjög varhugaverðar og í
versta falli stórhættulegar,“ sagði
Steingrímur J. Sigfússon, þáverandi
þingmaður Aþýðubandalagsins og nú-
verandi sjávarútvegsráðherra, meðal
annars á ráðstefnu á Akureyri í byrj-
un maí 1997. Í Útveginum, fréttabréfi
LÍÚ, frá þessum tíma segir að ræða
Steingríms hafi vakið mikla athygli og
haft hafi verið á orði að menn hefðu
ekki í annan tíma heyrt hugmyndina
um veiðigjald skotna í kaf með jafn
rökvísum og skeleggum hætti.
„Velferð þjóðarinnar á fyrstu árum
og áratugum næstu aldar kemur til
með að ráðast mikið af því hversu vel
sjávarútveginum gengur að byggja
sig upp og þróast inn í framtíðina sem
matvælastóriðja, sem hátæknivædd
og þróuð grein þar sem allt er til stað-
ar: vöruþróun, gæðaeftirlit, markaðs-
þekking, vel þjálfað, vel menntað, vel
launað og þá væntanlega ánægt
starfsfólk. Ekkert eitt mál er afdrifa-
ríkara fyrir framtíð byggðakeðjunnar
hringinn í kringum landið,“ sagði
Steingrímur.
Röksemdir í tíu liðum
Hann færði rök fyrir afstöðu sinni í
tíu liðum sem stiklað er á hér á eftir:
1. Álagning veiðigjalds er einhvers
konar brúttóskattur eða veltuskattur.
Við höfum verið að hverfa frá því að
leggja á veltuskatta … Skattstofninn
í þessari hugmynd er óskynsamlegur
og vitlaus.
2. Skatturinn er óréttlátur m.t.t. til
byggðanna í landinu. Þar sem útgerð
vegur þungt kæmi þessi nýi skattur
harkalega niður, en í öðrum þéttbýlis-
kjörnum yrðu menn hans jafnvel ekki
varir. Þetta er óréttlátur skattur
nema hann renni beint til sveitarfé-
laganna aftur, þar sem hann var inn-
heimtur …
3. Í ljósi þess að fjölmargar atvinnu-
greinar nýta með einum eða öðrum
hætti sameignir þjóðarinnar, án þess
að því fylgi sérstök skattlagning, er
útilokað að leggja þennan skatt á
sjávarútveg eingöngu. Í því fælist
mikil mismunun milli atvinnugreina.
Það er ekki hægt að rökstyðja með
sanngirni að nýting af þessu tagi kalli
á skattheimtu í sjávarútvegi, einum
atvinnugreina.
4. Það virðast margir hafa gleymt því
að sjávarútvegurinn skuldar um 100
milljarða króna. Þessar skuldir hafa
lítið lækkað undanfarin ár þrátt fyrir
sæmilega afkomu í mörgum þáttum
greinarinnar. Ástæðan er sú að
sjávarútvegurinn hefur þurft að fjár-
festa, en á því sviði var hann orðinn
mjög sveltur og er nærtækast að líta
á aldur flotans í því samhengi. Einnig
hefur verið tap á mörgum þáttum
sjávarútvegs, s.s. í landvinnslunni.
Með veiðigjaldi myndu skuldir greið-
ast hægar niður en ella eða jafnvel
ekki neitt.
5. Sjávarútvegurinn keppir við ríkis-
styrkta grein í nálægum löndum.
Sjávarútvegur á Íslandi hefur algera
sérstöðu að þessu leyti í Norðurálfu,
ásamt e.t.v. Færeyjum. Hann verður
að standa algerlega undir sjálfum sér
og auk þess lífskjörum heillar þjóðar.
Þetta þarf hann að gera í samkeppni
við ríkisstyrki í nálægum löndum og
að ætla honum auk þess að standa
undir sérstöku veiðigjaldi býr grein-
inni fantaleg samkeppnisskilyrði,
vægast sagt.
6. Sjávarútvegurinn hefur mikla þörf
fyrir að geta fjárfest á komandi ár-
um … Veiðigjald yrði nánast hreinn
frádráttarliður í þessu samhengi,
peningarnir hyrfu úr greininni.
Eina von landsbyggðarinnar
7. Öflug sjávarútvegsfyrirtæki með
góða afkomu til fjárfestinga eru
helsta, það jaðrar því miður við að
maður verði að segja eina, von lands-
byggðarinnar. Þessi liður einn nægir
mér til að vera algjörlega andvígur
veiðigjaldi. Ég sé ekkert annað, sem
hugsanlega getur bjargað byggðinni
á fjölmörgum svæðum á landinu, en
þá von að sjávarútvegsfyrirtækin efl-
ist og geti boðið upp á vel launuð störf
og ráðið til sín háskólamenntað fólk
og keppt við þá möguleika sem ann-
ars staðar er boðið upp á í landinu.
Veiðigjald yrði áfall fyrir landsbyggð-
ina í margföldum skilningi.
8. Veiðigjald myndi líklega leiða til
samþjöppunar og fækkunar eininga;
möguleikar smáfyrirtækja og ein-
yrkja yrðu minni … Þótt mikilvægt sé
að eiga stór og öflug sjávarútvegsfyr-
irtæki verðum við líka að eiga smáfyr-
irtæki og halda í fjölbreytnina.
Þegar einu sinni er komið
á gjald þá vill það hækka
9. Sjávarútvegurinn yrði síðri fjárfest-
ingakostur með veiðigjaldi. Það yrðu
minni líkur á arði og það sem mestu
máli skiptir hér eru fælingaráhrifin.
Það vita það allir, sem eitthvað vita, að
sú hætta vakir í öllum málum af þessu
tagi að þegar einu sinni er komið á
gjald þá vill það hækka. Ég þekki eng-
an skattstofn á byggðu bóli, hvorki á
norður- né suðurhveli jarðar, sem
ekki hefur haft tilhneigingu til að
hækka þegar hann er einu sinni kom-
inn á. Auðvitað myndu fjárfestar sjá
þetta gjald sem áhættuþátt …
10. Það eru að mínu mati til margar
miklu betri leiðir til þess að leysa þau
vandamál sem stuðningsmenn veiði-
gjalds telja að eigi að leysa með veiði-
gjaldi. Því þá að fara út í þessi ósköp?
a) Sem dæmi má nefna að ef á að
leggja á veiðigjald til þess að ná hagn-
aði út úr sjávarútveginum, þá er hægt
að skattleggja hagnað fyrirtækjanna
með almennum aðferðum …
b) Ef menn vilja leggja veiðigjald á,
til að undirstrika sameign þjóðarinnar
á auðlindinni eða af réttlætisástæðum
eins og sagt er, eru til betri aðferðir til
þess. Í fyrsta lagi er gjaldtaka til stað-
ar og ef gjaldtakan sjálf er ástæðan þá
er búið að leysa það …
c) Það má gera margar lagfæringar
á núverandi kerfi til að mæta þeim
sjónarmiðum sem hér liggja að baki …
Það er hægt að velta fyrir sér ýmsum
hugmyndum um lagfæringar á núver-
andi kerfi á rökvísan hátt og án þess að
fara út í upphrópanir í trúarbragðastíl.
d) Sumir halda því fram að veiði-
gjald með uppboðsaðferð myndi gefa
nýjum aðilum kost á að koma inn í
greinina. Ég er ansi hræddur um að
það gæti verkað þveröfugt. Þegar
komið væri á veiðigjald í greininni
ættu nýir aðilar fyrst erfitt með að
komast að.
e) Þá hafa menn talað um að veiði-
gjald gæti nýst sem sveiflujöfnunar-
tæki í hagstjórn. Þetta er úreltur
hugsunarháttur … Eitt er alveg ljóst:
Það verða ekki til nein ný verðmæti
með því að leggja á veiðigjald.
Fantaleg samkeppnisskilyrði
Ljósmynd/Börkur Kjartansson
Tvennir tímar Börkur NK frá Neskaupstað var keyptur tólf ára frá Noregi í vetur, en Þorsteinn GK frá Raufarhöfn er eitt elsta skip flotans, smíðað 1946.
Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra talaði einarðlega gegn veiðigjaldi fyrir 15 árum
Varhugavert, jafnvel stórhættulegt Áfall fyrir landsbyggðina Því þá að fara út í þessi ósköp?
Ljósmynd/Erlingur Thoroddsen
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2012
Lyftarar og staflarar í yfir 600 útgáfum
Fáanlegir sérútbúnir fyrir íslenskan fiskiðnað
▪ Handlyftarar með eða án palls. Allt að 5.350 mm lyftihæð og 3.000 kg lyftigetu.
▪ Tínslu- og þrönggangalyftarar með allt að 14.250 mm lyftihæð.
▪ Rafmagns- og dísellyftarar með allt að 9.000 kg lyftigetu.
▪ Hillulyftarar með allt að 12.020 mm lyftihæð.
„Afrakstur fiskstofna í hafinu
umhverfis landið er háður
náttúrulegum takmörkunum eins
og við öll þekkjum og rétturinn
til að nýta þá takmörkuðu
náttúruauðlind er auðvitað hjá
þjóðinni. Stjórnvöldum er rétt og
skylt að stýra nýtingu þessara
auðlinda og grípa til nauðsyn-
legra ráðstafana, svo sem að-
gangsstýringar eða aðgangstak-
markana, leyfisveitingar gegn
gjaldi og skattheimtu,“ sagði
Steingrímur J. Sigfússon sjávar-
útvegsráðherra meðal annars
þegar hann mælti fyrir fiskveiði-
stjórnarfrumvörpunum í síðasta
mánuði.
„Með því er unnt að tryggja al-
menningi beina hlutdeild í þeim
arði sem auðlindin skilar á hverj-
um tíma. Í umgengni um náttúru-
auðlindir þjóðarinnar og nýtingu
á þeim þarf að gæta þess að þær
séu nýttar með sjálfbærum hætti.
Í raun er það mikilvægasta ein-
staka grundvallarregla þessara
mála, enda henni gert hátt undir
höfði í markmiðsgrein frumvarps
til laga um stjórn fiskveiða,“
sagði ráðherra.
Morgunblaðið náði ekki tali af
Steingrími við vinnslu þessarar
samantektar. Í fyrrakvöld var
hann spurður að því á Stöð 2
hvað hefði breyst á þeim 15 árum
síðan hann varaði sterklega við
veiðigjaldi, eins og rakið er hér
að ofan, og sagði þá:
„Við erum að tala um allt aðra
tegund skattlagningar, annað
andlag. Við erum að tala um um-
framarðinn sem rentu af auðlind-
inni við vissar aðstæður og við
erum að tala um sjávarútveginn á
öðrum tíma og í allt öðrum að-
stæðum tíma en þarna var. Hann
var þá að koma út úr löngu erf-
iðleikatímabili og það hafði þurft
að endurfjármagna fyrirtækin í
stórum stíl um 1990 og það var
alls ekki komin sú staða sem
núna er uppi, að mörg fyrirtækin
eru orðin mjög stór og breið. Þau
eru með veiðiheimildir í mörgum
tegundum og það er mikil velta
sem myndast við núverandi að-
stæður,“ sagði Steingrímur.
Almenningi tryggð
hlutdeild í arðinum
Ráðherra Steingrímur J. Sigfússon
hefur boðað hækkun veiðigjalda.