Morgunblaðið - 19.04.2012, Qupperneq 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2012
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Úrslitin að hefjast
Úrslit Íslandsmótsins í sveita-
keppni verða spiluð 19.-22. apríl.
Úrslitin verða spiluð í húsnæði
Karlakórs Reykjavíkur, Grensás-
vegi 13, 4. hæð. Þær 12 sveitir sem
verða í úrslitum eru:
Garðs Apótek, Reykjavík
Jón Ásbjörnsson, Reykjanes
Astro, Reykjanes
Sölufélag garðyrkjumanna, Reykjavík
Lögfræðistofa Íslands, Reykjanes
Grant Thornton, Reykjavík
Málning hf., Reykjavík
LÍFÍS/VÍS, Reykjavík
Sparisjóður Siglufjarðar, N-vestra
VÍS Reykjavík,
Sagaplast, N-eystra
Karl Sigurhjartarson, Reykjavík
Spilaðar verða 11 umferðir með 16
spilum. Í lokin spila 4 efstu sveitirn-
ar á sunnudeginum til úrslita um tit-
ilinn, 3 umferðir 16 spil. Mótslok og
verðlaunaafhending verða um kl.
17:45.
Soffía Daníelsdóttir
og Hermann Friðriksson
Íslandsmeistarar
Soffía Daníelsdóttir og Hermann
Friðriksson eru Íslandsmeistarar í
paratvímenningi 2012 en 25 pör tóku
þátt í mótinu sem fram fór um síð-
ustu helgi.
Soffía og Hermann enduðu
með 58,7 % skor. Í öðru sæti urðu
Anna Þóra Jónsdóttir og Guðmund-
ur Snorrason með 56,2 skor, í því
þriðja María Haraldsdóttir og
Sverrir Þórisson með 55,8 % skor og
Karl G. Karlsson og Svala Pálsdóttir
í fjórða sæti.
Ljóst er að stjórn-
völd ætla ekki að taka á
skuldavanda heim-
ilanna og leiðrétta og
afnema ólögmæta verð-
tryggingu á neyslu- og
húsnæðislánum. 110%
leiðin hefur aðeins
bjargað 650 heimilum
og gjörsamlega mis-
lukkast eins og aðrar
leiðir stjórnvalda til
þess að leysa skulda-
vanda heimilanna. Enn eru 21.000
heimili í greiðsluvanda, yfir 50 þús-
und landsmanna í hættu á félagslegri
einangrun og rúmlega helmingur ís-
lenskra heimila á í erfiðleikum með
að ná endum saman. Umræðan og
ábendingar um hag lántakenda um
afnám verðtryggingar og leiðrétt-
ingu verðtryggðra lána snýst oft upp
í það að vera kallað lýðskrum af
vinstri sinnuðum blaðamönnum og
bloggurum. Alloft fer umræðan út í
samanburð við eldri óreiðutíma þeg-
ar markaðsvextir voru lögbundnir og
fjármagn skammtað af ríkisbönkum
og stofnunum. Oft eru tekin dæmi
um nafngreinda menn sem hafi hagn-
ast óverðskuldað eða verið óverð-
skuldað óheppnir af einhverjum ör-
aðstæðum og kemur í raun markmið-
unum og prinsippunum ekkert við.
Hvort einhverjir einstaklingar reistu
sér hurðarás um öxl með verð-
tryggðu láni eða gengisláni á ekki að
ráða ferð um skipulag fjármálamark-
aðar.
Almenningur plataður
Staðreyndin er sú að verðtrygg-
ingarafleiðan er miklu stærra nei-
kvætt neytendaverndarmál til fram-
tíðar heldur en hvernig skilmálum
megi ljúga uppá mann við 12 mánaða
afborgunarkaup á hillu eða brauðrist
eða jafnvel við kaup á
líftryggingu. Ólögmæti
verðtryggingarinnar
gæti fallið í dómsmáli
eins og gengistrygg-
ingin. Líkurnar á því
hafa aukist eftir að bann
við sölu á afleiðum til
einstaklinga var lögfest.
Ef það gerist er ríkið
gjaldþrota. Viljum við
taka þá áhættu? Reynd-
ar er það ekki bara
spurningin um verð-
tryggingu sem gerir
venjulegt íslenskt neyt-
endalán svona fáránlegt. Sú aðferð
sem byggt hefur verið á að leggja
verðbólgu við höfuðstól og spólast upp
ár frá ári sem vaxtavextir er svo fá-
ránleg að sá sem kokkaði það upp ætti
að vera á bak við lás og slá. Það var oft
talað um það áður, að verðbólgan
hefði eyðilagt ákvarðanir í efnahags-
lífinu, gert rangar ákvarðanir að rétt-
um fyrir þann sem í hlut átti þótt sam-
félagið tapaði. Verðtryggðu
jafngreiðslulánin gegna nú svipuðu
hlutverki. Fólk er afsiðað varðandi
fjárhagslega ábyrgð, því það hefur
reynt á eigin skinni að höfuðstóll lána
hækkar og hækkar þótt það borgi lán-
in. Fólk getur verið fast í misgengi
vegna launa sem héldu ekki í við verð-
lagsþróun og skildi aldrei útreikn-
ingsaðferðina á lánum sínum sem
verður aldrei annað en endalaust rugl.
Stjórnvöld hafa allt of lengi lokað aug-
unum fyrir því að núverandi kerfi fel-
ur í sér óásættanlega áhættu fyrir al-
menning af atburðum sem hann hefur
ekkert yfir að segja. Almenningur
hefur verið plataður út í skuldafen
sem hann ræður ekkert við.
Bankar ánetjast verðbólgu
Verðtryggingin slævir forsvars-
menn lífeyrissjóða og aðra fjármagns-
eigendur þegar þeir eru áskrifendur
að verðtryggingu og sama má segja
um bankana sem hafa ánetjast eins
og lífeyrissjóðirnir af verðtryggðum
pappírum. Bankar græða á verð-
bólgu vegna verðtryggingarmisvæg-
is eigna þeirra og skulda. Eins og
málum er háttað græða þeir 1,6 millj-
arða á hvert verðbólguprósent. Verð-
tryggingarmisvægi stóru viðskipta-
bankanna var um áramótin samtals
163 milljarðar. Landsbankinn var
með bróðurpartinn af þessu, 129
milljarða eða sem nemur 65% af eigin
fé bankans. Misvægi bankans hefur
tvöfaldast frá hruni. Landsbankinn
var með verbólguhagnað upp á 8,3
milljarða á ársgrundvelli sem er um
helmingur af hagnaði bankans 2011.
Að öðru óbreyttu hefur bankinn því
talsverðan hag af því að verðbólga
aukist. Er þetta eðlilegt? Eru bank-
arnir ánetjaðir af verðbólgu eins og
eiturlyfjaneytandi af heróíni? Er
virkilega svo illa komið fyrir okkur,
að stjórnvöld í landinu gefa erlendum
vogunarsjóðum bessaleyfi til að blóð-
mjólka heimili landsmanna? Ég held
að svo sé raunin.
Langþráð fjármálaöryggi
Við megum ekki gleyma því að
fólkið í landinu horfir til okkar sem
bjóðum okkur fram til stjórnmála-
starfa – með von um betri framtíð.
Okkar skylda er að rísa undir þeim
væntingum, stuðla að betri framtíð,
betri lífskjörum og hugsa í lausnum.
En ekki leggja stein í götu alls sem til
framfara horfir. Efnahagslífið er einn
vefur og starfsskilyrði atvinnulífs og
lífskjör fólksins eru samofin. Hern-
aður stjórnvalda gegn heimilum og
atvinnulífi landsins er hernaður gegn
lífskjörum þjóðarinnar. Íslenskar
fjölskyldur verða að fá sem þeim ber
með afnámi verðtryggingar á neyt-
endalánum og er það skylda ís-
lenskra stjórnmálamanna að koma
þessum málum í örugga höfn ekki
seinna en strax.
Þráhyggjuboxið
Eftir Guðmund F.
Jónsson
» 110% leiðin hefur að-
eins bjargað 650
heimilum og gjör-
samlega mislukkast eins
og aðrar leiðir stjórn-
valda til þess að leysa
skuldavanda heim-
ilanna.
Guðmundur F.
Jónsson
Höfundur er viðskiptafræðingur
og formaður Hægri grænna, flokks
fólksins.
Bridsfélag Reykjavíkur
Að loknum 2 kvöldum af 4 í vortví-
menningnum er staðan þessi.
Guðjón Sigurjónsson - Vignir Hauksson
963,2
Rúnar Einarsson - Skúli Skúlason 919,3
Kjartan Ásmundsson - Stefán Jóhannsson
892,4
Eldri borgarar, Hafnarfirði
Þriðjudaginn 13. apríl var spilað á
20 borðum hjá FEBH með eftirfar-
andi úrslitum í N/S:
Ragnar Björnsson – Örn Einarsson 406
Óskar Ólafsson – Magnús Jónsson 369
Friðrik Hermannsson – Helgi Sigurðss. 365
A/V.
Birgir Sigurðss. – Jón Svan Sigurðss. 397
Guðm. Péturs. – Auðunn Guðmunds. 384
Tómás Sigurjóns. – Björn Svavarss. 360
Þriðjudaginn 10. apríl var spilað á
18 borðum með eftirfarandi úrslitum
í N/S.
Júlíus Guðmss. – Óskar Karlsson 385
Ragnar Björnsson – Örn Einarss. 378
Oliver Kristóferss – Magnús Oddss. 362
A/V.
Axel Láruss. – Bergur Ingimundars. 404
Ágúst Vilhelmss – Kári Jónsson 385
Tómás Sigurjóns – Björn Svavarss. 372
Ársalir fasteignamiðlun og fyrirtækjasala
Ef þú vilt selja, leigja eða kaupa fasteign eða selja
eða kaupa fyrirtæki í rekstri, hafðu samband.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5, 105 Rvk
533 4200
Ársalir ehf fasteignamiðlun
533 4200 og 892 0667
arsalir@arsalir.is
Engjateigi 5, 105 Rvk
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
Þarabakki 3 ~ 109 Reykjavík ~ sími 566 6161 ~ curves.is
Það eru
alltaf
þjálfarar
þér til
aðstoðar
… Heilsurækt fyrir konur
Sumarkortin
komin í sölu
11.900 kr.
Gilda til 10. ágúst
Æfingin hjá okkur
tekur aðeins 30 mínútur
Hringdu og f
áðu
frían prufutím
a
Opið 9-18 alla daga nema sunnudaga • Sími 553 1099