Morgunblaðið - 24.04.2012, Side 11
Á jökli Gönguskíðaferð þvert yfir Vatnajökul tekur frá viku og upp í 12 daga, lykilatriði er að vera ferðavanur.
hefur gengið hnjúkinn í góðu veðri en
í næstu ferð eru svo aðstæður ekki
jafn góðar og þá lenda menn í ves-
eni,“ segir Atli.
Tjaldið fauk í burtu
Atli og félagar hafa sjálfir próf-
að ýmislegt og þannig fauk til að
mynda ofan af þeim tjald í göngu-
skíðaferð yfir Vatnajökul nýverið.
Atli segir að með reynslunni verði
menn öruggari og þar með rólegri.
Því sé ekkert stórmál þó eitthvað
komi upp. Menn verði veikir og
þreyttir og ýmislegt geti komið upp á
en það sé ekki endilega ávísun á að
kalla þurfi til aðstoð.
„Við höfum séð að það sem skil-
ar fólki á áfangastað er að vera í góðu
formi, það er lykilatriði, með góðan
búnað og hafa gert eitthvað svipað
áður. Byrja smátt og rjúka ekki strax
í stóru verkefnin. Líkurnar á að
verkefnið takist aukast í réttu hlut-
falli við hvað fólk er búið að æfa sig
mikið og vera í för með fólki sem hef-
ur farið leiðina oft áður. Það er mjög
óalgengt að þeir sem leggja í þessar
stóru fjallgöngur með leiðsögumönn-
um nái ekki alla leið. Þetta er í raun á
allra færi ef fólk gerir þetta rétt. Það
er mikilvægt að taka pásur reglulega
og borða og drekka vel þannig að
manni líði vel allan daginn. Það er
stór hluti af því að láta hlutina ganga
upp að láta fólk stoppa til að fá sér að
drekka og ganga hægar,“ segir Atli.
Gönguskíði á jökli
Ferðir á gönguskíðum yfir
Vatnajökul eru í boði hjá Trek en
sjálfur gekk Atli yfir jökulinn rétt
fyrir páska. Nokkuð tíðar fréttir hafa
verið undanfarið af ferðalöngum sem
hefur þurft að aðstoða á þessari leið
enda segir Atli að slíka ferð verði að
undirbúa mjög vel. Jöklar séu ekki
hættulegri yfirferðar en þeir hafi
verið en séu alltaf varasamir. Slík
ferð tekur frá viku upp í 12 daga en í
þessu tilviki var farið frá vestri til
austurs og tók sú ferð sex daga og
gekk mjög vel.
„Það er lykilatriði í svona ferð
að vera ferðavanur og vera mikið úti.
Manni sýnist það helst hafa hrjáð
fólk sem hefur verið bjargað á þess-
ari leið að það hefur ekki verið í slík-
um aðstæðum áður. Tjaldið okkar
brotnaði t.d. í spað í kolvitlausu veðri
en þá var okkar fyrsta hugsun að
redda okkur, byggja snjóhús eða
eitthvað álíka. Frekar en að setja
aðra í að bjarga manni. Þó um leið
megi alls ekki gera lítið úr því að
stundum þarf bara aðstoð en stund-
um má komast hjá því með því að
safna reynslunni,“ segir Atli.
Námskeið og undirbúningur
Til að takast á við stærri fjöll
segir Atli fyrsta skrefið að ganga á
Esjuna fyrir þá sem búa í grennd við
Reykjavík. Næst að ganga á Snæ-
fells- eða Eyjafjallajökul sem séu
passlegir túrar fyrir þá sem eru vel á
sig komnir. Þaðan megi færa sig yfir
í að ganga á Hvannadalshnúk eða
Þverártindsegg og eftir það sé í raun
hægt að gera hvað sem er. Einnig sé
hægt að sækja námskeið í fjalla-
mennsku og að ganga á jöklum. Það
sé góður grunnur fyrir þá sem vilji
ferðast sjálfir.
„Öræfin eru helst í uppáhaldi
hjá mér, Öræfajökullinn og fjöllin
þar í kring. Þverártindsegg er í
uppáhaldi hjá mér, formfagurt fjall
og eitt flottasta fjall landsins. Þar
gengur maður upp á hnífskarpa mjóa
egg og sér yfir allt svæðið í kring. Þó
það sé ekkert svo erfitt að komast
þangað upp fær maður á tilfinn-
inguna að maður sé kominn á Eve-
rest,“ segir Atli.
Þess má geta að á vefsíðunni
www.trek.is getur fólk nálgast ýmsar
upplýsingar um fjallaferðir, bún-
aðarlista og fleira.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2012
Hjólreiðafélagið Bjartur heldur
„CUBE prologue“ TT-keppni á götu-
hjólum í kvöld, þriðjudagskvöldið
24. apríl klukkan 19. Keppnin fer
fram á Krísuvíkurvegi og er sú
fyrsta af fjórum í CUBE Prologue-
mótaröðinni.
Flest stig úr þremur keppnum
ráða úrslitum en keppt verður í
tveimur flokkum: racer-flokki (TT-
stýri ekki leyfð) og opnum flokki
(TT). Aldursskipting er 16 til 39 ára
í karla- og kvennaflokki og 40+ í
karla og kvennaflokki. Verður notast
við stigakerfi Hjólreiðanefndar ÍSÍ.
Skráningu er nú lokið en vert er
að vita af viðburðinum fyrir þá sem
vilja fylgjast með og eins er hægt
að fylgjast með komandi keppnum á
vefsíðunni www.bjartur.com
Keppnisröð í götuhjólum
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Met Gunnlaugur Jónasson hjólaði 20 km leið á Krýsuvíkurvegi á mettíma 2010.
Þeyst um Krísuvíkurveg
Margir íslenskir hlauparar fara utan til
að taka þátt í hinum ýmsu keppnum og
mótum og er þá allur gangur á hvort
fólk er að keppa við sjálft sig í tíma eða
einhverja aðra.
ÍR-skokkarinn frækni, Sigurjón Sig-
urbjörnsson, lauk síðastliðinn sunnu-
dag 100 km hlaupi í heimsmeistara-
keppni IAU (International Association
of Ultrarunners).
Keppnin fór fram í Seregno á Norður
Ítalíu.
Samkvæmt heimildum á heimasíðu
Félags 100 km hlaupara á Íslandi, þá
var lokatími Sigurjóns 8:07, sem er
annar besti tími Íslendings í 100 km
hlaupi, en besta tímann á Sigurjón
reyndar sjálfur, eða 7:59:01 sem er Ís-
landsmet.
Óhætt er að óska Sigurjóni til ham-
ingju með áfangann.
International Association of Ultrarunners
Hlaupari Sigurjón er mikill hlaupari.
Lauk 100 km hlaupi í
heimsmeistarakeppni IAU
Heildarlausnir í hreinlætisvörum
Sjáum um að birgðarstaða
hreinlætis- og ræstingarvara sé
rétt í þínu fyrirtæki. Hagræðing og
þægindi fyrir stór og lítil fyrirtæki.
Við sjáum um þig!
Stangarhyl 4, 110 Reykjavík, Sími: 520 7700
Hafðu samband og fáðu tilboð
sími 520 7700 eða sendu línu á
raestivorur@raestivorur.is
raestivorur.is
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Vorverkin!
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Akureyri
Húsavík
Vestmannaeyjum
Túngirðinganet 3mm 69cm x 50 m.
5.490,-
Gaddavír 14x14x10 300 m.
5.900,-
Hjólbörur 100 lítra
11.900,- 1.290,-
Malarhrífa
1.390,-
Einnig til 89 cm
1.290,-
GALVANISERUÐ
GÆÐAVARA! GALVANISERUÐGÆÐAVARA!
Mikið úrval
af skóflum og
hjólbörum!
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is