Morgunblaðið - 24.04.2012, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 24.04.2012, Blaðsíða 27
ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2012 arformaður Viggo hf 1994-97 og Vöruflutningamiðstöðvarinnar hf 1996-97, sat í stjórnum fjölda innlendra og erlendra dótturfyr- irtækja Eimskips 1986-2000. Þórður er nú stjórnarformaður margra dótturfyrirtækja Nýherja hf og hefur setið í háskólaráði Há- skóla Íslands frá árinu 2008. Starfið, fjöllin og spilamennska „Ferðalög, útivist og spila- mennska“ svarar Þóður þegar hann er spurður um áhugamál, en segist einnig vera í þeim forrétt- indahópi sem hafi mikinn áhuga á starfi sínu: „Ég á það sameig- inlegt með Nýherja að eiga stór- afmæli í þessum mánuði en Ný- herji varð einmitt tuttugu ára nú í apríl. Samt er fyrirtækið með þeim eldri í upplýsingatækni hér á landi. Við störfum á vettvangi þar sem tækniþróun er hvað hröðust og hugmyndaauðgin gífurleg. Við slíkar aðstæður verða menn að fylgjast vel með og það gera menn tæplega nema að hafa áhuga á starfinu.“ Hann er auk þess áhugamaður um fjallgöngur og hefur á liðnum sumrum gengið með vinahópi sín- um á flest fjöll í nágrenni höf- uðborgarsvæðisins, allt frá Hlöðu- felli og Botnsúlum og suður á Reykjanes: „Þetta er nú enginn Himalaya-hópur en við reynum að fara einu sinni í viku í þessar ferðir á sumrin og einbeittum okkur að Reykjanesinu sl. sumar. Aðalatriðið er að komast út úr bænum, reyna svolítið á sig og njóta náttúrunnar og útsýnisins. Það þarf ekkert að fara langt til þess. Á veturna sný ég mér hins veg- ar að spilamennskunni og spila bridge vikulega með vinum mín- um.“ Fjölskylda Eiginkona Þórðar er Lilja Héð- insdóttir, f. 26.5. 1952, BA og kennari. Hún er dóttir Héðins Finnbogasonar, f. 10.5. 1923, d. 23.2. 1985, lögfræðings, og Jónínu Auðar Böðvarsdóttur, f. 19.8. 1922, d. 9.5. 1982, húsmóður og bókavarðar. Börn Þórðar og Lilju eru Vil- borg, f. 19.6. 1976, viðskiptafræð- ingur hjá Íslandsbanka, búsett í Reykjavík en maður hennar er Rúnar Pálmason, blaðamaður við Morgunblaðið; Héðinn, f. 15.1. 1982, viðskiptafræðingur hjá Arc- tica finance, búsettur í Reykjavík en kona hans er Sólrún Dröfn Björnsdóttir kerfisfræðingur hjá Landsbankanum, og Bryndís Þóra, f. 26.2. 1988, á lokaári í iðn- aðarverkfræði við Háskóla Ís- lands. Systkini Þórðar: Guðmundur Ingvi Sverrisson, f. 26.2. 1950, læknir, búsettur á Álftanesi; Valdimar Örn Sverrisson, f. 27.3. 1951, prentmyndasmiður, búsettur í Kópavogi; Lára Björg Sverr- isdóttir Borthne, f. 28.1. 1954, hjúkrunarkona, búsett í Noregi; Vilborg Sverrisdóttir, f. 19.6. 1957, kerfisfræðingur og kennari, búsett í Hafnarfirði; Aðalsteinn, f. 20.6. 1960, búsettur í Hafnarfirði. Foreldrar Þórðar voru Sverrir Örn Valdimarsson, f. 16.12. 1923, d. 21.11. 2004, prentari og eigandi prentsmiðjunnar Litmynda hf, og k.h. Málfríður Lára Jóhanns- dóttir, f. 17.5. 1923, d 8.8. 1999, húsmóðir. Úr frændgarði Þórðar Sverrissonar Lárus Lárusson skólastjóri á Hellissandi Jóhanna Kr. Mool Jóhannsd. úr Bjarnareyjum. Jón Jónsson hreppst. á Munaðarhóli Þórður Ólafsson pr. á Söndum í Dýraf. Guðmundur Ólafsson b. á Brennist. , Eiðaþinghá Stefanía Benjamínsdóttir frá Ásgrímsst. Þórður Sverrisson Sverrir Ö. Valdimarsson prentari og framkvamdastj. Málfríður Jóhannsdóttir húsfr. í Hafnarf. Jóhann Kr. Jónsson útvegsb. á Hellissandi Lára Lárusdóttir húsfr. á Hellissandi Valdimar Guðmundsson setjari hjá Eddu Vilborg B. Þórðardóttir húsfr. Hjörtur Jónsson hreppstj. á Munaðarhóli Hreinn Hjartarson sóknarpr. Jón Hjartarson leikari Lúðvík skipamiðlari afi Helgu Thors viðskiptafr. og Björns Thors leikara Anna Guðmundsdóttir leikkona Óskar Þórðarson læknir Sigurður Þórðarson söngstj. Karlakórs R.víkur María Ísaksdóttir húsfr. á Söndum Björg Ísaksdóttir húsfr. á Seltjarnarn. Vilmundur Vilhjálmsson bílstj. í Rvík Björgvin Vilmundarson bankastj. Landsbankans 90 ára Hulda Ólafsdóttir 85 ára Valgarð Runólfsson Þrúðmar Sigurðsson 80 ára Anna Erla Magnúsdóttir Elísabet Þórðardóttir Guðný Erla Guðjónsdóttir Jón Kristvin Margeirsson 75 ára Allan Sveinbjörnsson Birna K Björnsdóttir Magnús Steindórsson 70 ára Albert B. Ágústsson Halldóra Ingjaldsdóttir Hlöðver Haraldsson Hólmfríður Jónsdóttir Kári Þórisson Láretta Bjarnadóttir Stefanía Guðmundsdóttir 60 ára Eiríkur Brynjólfur Baldursson Geir Jón Þórisson Guðjón Ágústsson Jóna Kristín Jónsdóttir Kristinn Snævar Jónsson Margrét Guðný Magnúsdóttir Ólafur Kristinn Borgarsson Sigríður Þorláksdóttir Sæbjörg Ólafsdóttir Þórður Sverrisson 50 ára Helgi Jón Jóhannesson Kristín Rut Haraldsdóttir Kristjana Brynja Sigurðardóttir Lára Bryndís Björnsdóttir Ríkharður Þór Ingólfsson Sigríður Soffía Jónsdóttir Sævar Þór Óskarsson 40 ára Anna Bergrós Arnarsdóttir Ágúst Þór Ásmundsson Eiríkur Vigfússon Erla Sigríður Gestsdóttir Guðfinna Björk Hallgrímsdóttir Katrín M. Sigþórsdóttir Faulkes Kristín Björnsdóttir María Sjöfn Árnadóttir Ragnheiður Hulda Þórðardóttir Sigmar Helgi Björgúlfsson Þröstur Líndal Eggertsson 30 ára Bjarnheiður Kristinsdóttir Bjarni Rafn Hilmarsson Emilia Hamerska Guðmundur Már Einarsson Heiðrún Villa Ingudóttir Kristjana Marin Ásbjörnsdóttir Salóme Huld Gunnarsdóttir Sandra Rut Bjarnadóttir Þóra Jónsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Kristjana fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hún lauk prófum sem sjúkraliði frá BF og er nú sjúkraliði við Skjól. Kærasti Björgvin Stein- arsson, f. 1980, starfs- maður hjá Toyota. Sonur Kristjönu er Hall- grímur Elís, f. 2004. Foreldrar Sigurlína Rósa Kristmundsdóttir, f. 1964, húsmóðir, og Ás- björn Már Jónsson, f. 1959, sjómaður. Faðir Kristjönu er Kristján Marinó Árnason, f. 1959, smiður. Kristjana Marin Ásbjörnsdóttir 30 ára Heiðrún fæddist á Dalvík, ólst þar upp, hefur lokið prófum í hunda- atferlisfræði og starfar sjálfstætt við það og stundar nám í fjölmiðla- fræði við HA. Unnusti Sigurður Hjörtur Þrastarson, f. 1984, nemi í lögfræði við HA. Börn þeirra Sóley Inga, f. 2009, og Þröstur Leó, f. 2011. Foreldrar Inga Sigrún Matthíasdóttir, f. 1957, kennari á Akureyri, og Friðrik Gígja, f. 1961, sjó- maður í Reykjavík. Heiðrún Villa Davíð Ólafsson seðlabankastjórifæddist í Bakkagerði 25. apríl1916. Hann var sonur Björns Ólafs Gíslasonar, framkvæmdastjóra útgerðarfélagsins Kára í Viðey, og Jakobínu Davíðsdóttur húsmóður. Bróðir Davíðs var Gísli ritstjóri, faðir Ólafs Gíslasonar listmálara. Björn Ólafur var bróðir Magnúsar, föður Gísla píanóleikara. Björn Ólafur var sonur Gísla, b. á Búðum í Fá- skrúðsfirði, bróður Önnu, ömmu Mar- grétar Þorsteinsdóttur kjólameistara. Gísli var sonur Högna, járnsmiðs á Skriðu í Breiðdal, bróður Kristínar, langömmu Sigurðar Þórarinssonar, jarðfræðings og textahöfundar. Högni var sonur Gunnlaugs, pr. á Hallorms- stað Þórðarsonar, pr. í Kirkjubæ í Tungu Högnasonar, ættföður Presta- Högna-ættar, prófasts á Breiðaból- stað í Fljótshlíð Sigurðssonar. Jakobína var dóttir Davíðs, fram- kvæmdastjóra Pöntunarfélags Ey- firðinga Ketilssonar, bróður Kristins, föður Hallgríms, fyrsta forstjóra SÍS, og Sigurðar, ráðherra og forstjóra SÍS. Davíð var einnig bróðir Sigurðar, afa Jónasar heitins Haralz banka- stjóra. Börn Davíðs og k.h., Ágústu Þur- íðar Gísladóttur, eru Ólafur, fyrrv. ráðuneytisstjóri forsætisráðuneyt- isins, og Sigrún, cand. mag. og frétta- ritari RÚV í London. Davíð lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1935 og Bac.sc.oec.-prófi frá háskólanum í Kiel 1939. Hann var forseti Fiski- félags Íslands og fiskimálastjóri í rúman aldarfjórðung, 1940-67, bankastjóri Seðlabanka Íslands á ár- unum 1967-86, og landskjörinn alþm. fyrir Sjálfstæðisflokkinn á tímum Viðreisnarstjórnarinnar, 1963-67. Hann var m.a. lengi fastafulltrúi Ís- lands í Alþjóðahafrannsóknaráðinu, var stjórnarformaður Fiski- málasjóðs, sat í Bjargráðasjóði Ís- lands, bankaráði Framkvæmdabanka Íslands, stjórn Framkvæmdasjóðs Íslands, Hafrannsóknastofnunar og Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, var forseti Ferðafélags Íslands og sat i Vísindaráði Krabbameinsfélags Ís- lands um skeið. Davíð lést 21. júní 1995. Merkir Íslendingar Davíð Ólafsson 40 ára Guðfinna fæddist í Reykjavík en ólst upp á Akranesi til tíu ára aldurs og síðan í Reykjavík. Hún lauk B.Ed.-prófi frá Kenn- araháskóla Íslands árið 2000 og er deildarstjóri við leikskólann Blásali í Árbænum í Reykjavík. Unnusti Brynjólfur Hrafn Úlfarsson, f. 1968, raf- virki. Foreldrar Ingibjörg Sig- urðardóttir, f. 1944, d. 2004, var bókbindari, og Hallgrímur Þór Hall- grímsson, f. 1944, mat- reiðslumaður. Guðfinna Björk Hallgrímsdóttir www.mbl.is/islendingar Ful l búð af fal legum fatnaði á alla fjölskylduna! F Y R I R Þ I G O G Þ Á S E M Þ É R Þ Y K I R V Æ N S T U M ! KRINGLUNNISími: 5513200

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.