Morgunblaðið - 05.07.2012, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.07.2012, Blaðsíða 17
ngri umferð Vinnuvél Smágrafa notuð til að losa grjót úr gönguleiðinni og laga hana til. Rjúpnabrekkur Algeng sjón á sunnudag; vatnið grefur sér sífellt dýpri farvegi í göngustígana. Krókur Þessi göngumaður ákvað að krækja fyrir drullusvaðið á göngu- leiðinni í Reykjadal á sunnudag. FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2012 þeirri forsendu að mistök hefðu ver- ið gerð í rannsókninni. Tveir lög- reglumenn sem rannsökuðu málið unnu á sama tíma fyrir þrotabú Milestone. Verjendurnir telja að þetta valdi því að vísa eigi málinu frá dómi. Embætti sérstaks sak- sóknara lét taka saman greinargerð um rannsóknina þar sem gagnrýni verjendanna er svarað. Verjendur vildu að dómari úrskurðaði að ekki mætti leggja fram þessa grein- argerð. Dómarinn féllst hins vegar á rök saksóknara í málinu og heim- ilaði að greinargerðin yrði lögð fram sem málsskjal. „Í greinargerðinni er framvindu rannsóknarinnar lýst og þá sér- staklega þætti fyrrgreindra tveggja starfsmanna sóknaraðila sem höfðu þar hlutverki að gegna. Jafnframt er lagt mat á hvort merkja megi ein- hvern mun í áherslum eða fram- göngu þessara starfsmanna eftir að þeir tóku í september 2011 að sér verk fyrir þrotabú B ehf. [Milestone] Er um þetta fjallað án þess að nokk- uð sé vikið að sakargiftum á hendur varnaraðilum. Án þess að afstaða verði tekin til sönnunargildis grein- argerðarinnar, sem tekin var saman að tilhlutan sóknaraðila, þjónar hún þeim tilgangi einum að varpa ljósi á rannsóknina og tiltekna þætti henn- ar. Á það verður því ekki fallist með varnaraðilum að gagnið sé tilgangs- laust við úrlausn um formhlið máls- ins. Hinn kærði úrskurður verður því staðfestur,“ segir í úrskurði Hæstaréttar. fram greinargerð Morgunblaðið/Ómar Úrskurður Sérstakur saksóknari má leggja fram greinargerð um rannsókn Vafningsmálsins. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Framkvæmdir eru hafnar við úrbætur á göngustígum í Reykjadal. Dalurinn er í eigu ríkisins og er í sveitarfé- laginu Ölfusi sem fer þar með skipulagsvald. Reykjadal- ur er við bæjardyr Hveragerðis og eitt vinsælasta úti- vistarsvæði Hvergerðinga. Reykjadalur nýtur sívaxandi vinsælda á meðal ferða- manna. Samkvæmt könnun sem unnin var í fyrra koma þar um 14.000 ferðamenn á ári. Þeim fjölgar mjög hratt, að sögn Aldísar Hafsteinsdóttur, bæjarstjóra í Hvera- gerði. Hún sagði að sveitarfélagið Ölfus, Hveragerð- isbær, Landbúnaðarháskólinn og Eldhestar, sem nýta dalinn hvað mest til ferðaþjónustu, hafi stofnað starfs- hóp um dalinn. Hópurinn sótti um styrk til Fram- kvæmdasjóðs ferðamannastaða til að gera þar úrbætur. Sjóðurinn veitti þrjár milljónir í verkefnið og Hvera- gerðisbær, Ölfus og Eldhestar sína milljónina hvert á móti svo í sumar verða sex milljónir til ráðstöfunar. Landbúnaðarháskólinn leggur lið með öðrum hætti. Framkvæmdir eru hafnar en peningarnir duga ekki til að ljúka þeim öllum í sumar, að sögn Aldísar. Búið er að færa göngustíginn á kafla þar sem hann lá áður hættu- lega nærri hver. Gönguleiðin verður stikuð og gerðar göngubrýr á tveimur stöðum á ánni. Aldís sagði að slys á fólki í dalnum hefðu ekki síst orðið þar sem fólk hafi ver- ið að reyna að stökkva yfir ána. „Það á að reyna að stýra umferðinni meira og betur um dalinn en gert hefur verið hingað til,“ sagði Aldís. Hestagerði við Klambragil og deiliskipulag Verið er að útbúa gerði fyrir hesta í grjóturð í Reykja- dal strax þegar komið er niður úr Klambragili. Búið er að setja lag af möl þar sem gerðið mun standa til þess að þar myndist ekki svað. Staurar verða umhverfis gerðið og keðja sett á staurana þegar hestar verða í því. Þar getur hestafólk geymt hesta sína á meðan það áir eða fer í heita lækinn, án þess að hestarnir traðki niður landið. Sigurður Jónsson, skipulags- og byggingarfulltrúi sveit- arfélagsins Ölfuss, segir að fyrirtæki í hestaferðum fari mikið um Reykjadal og hafi sett niður laus gerði í leyf- isleysi á grasbala nálægt heita læknum sem ferðamenn sækja mikið í. Gerðið á að bæta úr því. Sigurður sagði lagða áherslu á aukið öryggi ferða- manna í dalnum með lagfæringum á göngustígunum. Verktaki sem vinnur að endurbótunum hefur ekki heim- ild til að fara út fyrir stígana, en hann mun m.a. fjarlægja grjót og bæta fínna efni í stígana. Reyna á að tryggja að stígakantar við hverina brotni ekki undan fólki. „Við sjáum að fólk er að ganga út af stígnum og niður að hverunum. Meiningin er að setja upp fleiri skilti til fræðslu og leiðbeiningar um hættuna,“ sagði Sigurður. Þá er verið að vinna deiliskipulag fyrir dalinn ef til annarra framkvæmda kemur, t.d. til að koma til móts við gesti heita lækjarins, hestamenn og fleiri. Deiliskipulag- ið mun einnig ná til Ölfusdals ofan við Hveragerði. Þar þarf að vera einhver þjónusta og bílaplan. Eins þarf að skipuleggja bílastæði og göngustíg á Ölkelduhálsi frá línuveginum að Klambragili. Sigurður sagði koma til greina að bæta snyrtiaðstöðu í dalnum og verður m.a. spurt um það við gerð deiliskipulagsins. Hann sagði ljóst af umgengninni að þörf væri fyrir bætta snyrtiaðstöðu. Endurbætur göngu- stíga hafnar í Reykjadal  Framkvæmdir við göngustíga fyrir sex milljónir í sumar  Unnið er að gerð hestagerðis neðan við Klambragil Morgunblaðið/Rúnar Pálmason Hestagerðið Búið er að gera malarpúða svo hestarnir í gerðinu traðki ekki niður jarðveginn og myndi svað. Hádegisverðartilboð Tvíréttað í hádegi frá 1.890,- Fljót og góð þjónusta Veitingastaður / verslun Nethylur 2 • 110 Reykjavík • Sími: 587 2882 • galleryfiskur.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.