Morgunblaðið - 05.07.2012, Blaðsíða 23
UMRÆÐAN 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2012
Ásmundur Stef-
ánsson sagði ýmislegt á
fundi um lífeyrismál 21.
maí, m.a. að fyrstu 73
þúsund krónurnar sem
ellilífeyrisþegar væru
með í tekjur úr lífeyr-
issjóði væru gerðar
upptækar í gegnum
skerðingar í almanna-
tryggingarkerfinu.
Skerðingin væri 100%.
Ásmundur sagði að það
væri því ekki óeðlilegt að fólk varpaði
fram þeirri spurningum, hvers vegna
það hefði verið að greiða í lífeyr-
issjóð. Hann hefði á sínum tíma hvatt
fólk til að greiða í lífeyrissjóð og sýna
þannig fyrirhyggju í fjármálum.
Hann sagðist hafa samviskubit gagn-
vart þessu fólki. Ásmundur kynnti á
fundinum útreikninga á því hvað
samfélagið væri að greiða mikið fyrir
þjónustu við aldraða og hvað aldraðir
væru að greiða mikið til þess með
sköttum sínum. Niðurstaða hans var
að aldraðir fjármögnuðu sjálfir út-
gjöld vegna lífeyris og hjúkr-
unarheimila. Samfélagið greiddi ekk-
ert til þessara verkefna. Ásmundur
gagnrýndi samtök aldraðra fyrir að
standa ekki upp í hárinu á stjórnvöld-
um í þessu máli.
Mitt komment er að „það er ósiður
sofa yfir sig – en gott að Ásmundur
Stefánsson er mættur til leiks“. En
nú er á ferðinni en ein þykjustunefnd,
sem í þykjustunni þykist vera að
vinna við að finna leiðir til skila eldri
borgurum þýfi sem ríkissjóður hefur
stolið frá þeim undanfarna áratugi.
Ásmundur ætti að skoða þetta með
gagnrýnum hug. En þar segir í
nefndaráliti að skerðingar vegna
tekjutenginga í bótakerfi ellilífeyr-
isþega verða minnkaðar í áföngum og
bótaflokkar sameinaðir í einn bóta-
flokk ellilífeyris, verði tillögur starfs-
hóps, sem unnið hefur að endur-
skoðun almannatryggingakerfisins,
lögfestar. Einróma samkomulag náð-
ist í hópnum í seinustu viku um til-
lögur sem sendar hafa verið til vel-
ferðarráðherra um breytingar á þeim
hluta sem varðar ellilífeyrisþega.
Þær eru nú til skoðunar í ráðuneyt-
inu en samkomulagið þykir marka
vatnaskil þar sem í starfshópnum,
sem er undir stjórn Árna Gunn-
arssonar, fv. alþingismanns, eiga m.a.
sæti fulltrúar stjórnmálaflokkanna,
ASÍ, Samtaka atvinnulífsins, BSRB,
BHM, KÍ, lífeyrissjóða, Lands-
samtaka eldri borgara o.fl. Lagt er til
að í fyrsta áfanga verði þrír bóta-
flokkar, ellilífeyrir, tekjutrygging og
heimilisuppbót, felldir inn í einn bóta-
flokk og ákveðin verði ein mán-
aðarleg fjárhæð ellilífeyris. Síðar
verði framfærsluuppbótin einnig
felld inn í bótaflokkinn. „Þetta er
stórt mál vegna þess að þarna er ver-
ið að tengja saman bótaflokka og
gera þetta skiljanlegra og auðveldara
í útreikningi,“ segir Árni. Nefndin
hefur einnig sameinast um tillögu um
að dregið verði úr umdeildum tekju-
tengingum í bótakerfinu.
Lagt er til að skerðing framfærslu-
uppbótarinnar vegna tekna verði í
fyrsta áfanga lækkuð úr 100% í 80%,
sem tæki þá gildi 1. janúar á næsta
ári. Skerðingarmörkin lækki svo
áfram í áföngum fram í janúar 2017,
þegar nýtt fyrirkomulag verður að
fullu komið í gagnið. Ekki hefur verið
upplýst hver áhrifin yrðu á útgjöld
ríkissjóðs en velferðarráðherra sagði
á ársfundi Tryggingastofnunar í lið-
inni viku að um töluverðan kostn-
aðarauka væri að ræða. Enn eru
menn að sofa yfir sig, Stjórnvöld eru
búin að leiðrétta allar kreppuskerð-
ingar launa fyrir löngu og atvinnu-
rekendur einnig. En leiðréttingar
bóta almennra trygginga á að leið-
rétta á fjórum árum. Þetta eru skítug
vinnubrögð og að því virðist eðlislæg
fyrir samviskubitna ráð-
gjafa í kjaramálum líf-
eyrislaunþega. Sam-
anber niðurstöður m.a.
Ásmundar og margra
annarra sem hafa álykt-
að um þetta mál. Árni
Gunnarsson, fyrrver-
andi alþingismaður, er
formaður starfshópsins
en í honum eiga sæti
fulltrúar allra flokka,
sem eiga kjörna fulltrúa
á Alþingi, heildar-
samtaka á vinnumark-
aði, Landssambands
eldri borgara, lífeyrissjóða, Þroska-
hjálpar og Öryrkjabandalagsins.
„Það er alveg augljóst hverjum manni
að fyrr eða síðar munu lífeyrissjóð-
irnir taka algjörlega við þessu ellilíf-
eyriskerfi og það er miklu eðlilegra að
menn afli síns eigin ellilífeyris með
því að greiða í lífeyrissjóði,“ segir
Árni. Mitt komment er að „það er
ósiður að sofa í vinnunni – og segja
ósatt“.
Því við sem nú erum við ævikvöldið
höfum greitt í tvo lífeyrissjóði, i það
minnsta, frá 16 ára aldri og lengst af
starfævinni höfum við greitt skatta af
iðgjöldum til sjóðanna, enn erum nú
arðrændir með annarsvegar með
skerðingum almenna kerfisins og
hinsvegar með tvísköttun frjálsa kerf-
isins. Ásmundur sagðist hafa sam-
viskubit gagnvart þessu fólki, greind-
ur maður Ásmundur, að geta greint
allt það miskunnarleysi sem hér er á
ferð, heildstætt, líka vel vaknaður…!
Vonandi þarf starfshópurinn og
ráðherrann ekki að missa svefn af
samviskubiti, þótt það örli á sam-
viskubitnum nefndarmönnum vegna
hagsmuna unga fólksins er rétt að
vísa, enn og aftur, á niðurstöðu Ás-
mundar, að eldri borgarar eiga inni-
stæður hjá ríkissjóði vegna skítugra
handa hirðanna á Alþingi. Þessa pen-
inga krefjumst við, án aulafyndni al-
þingismanna.
Samviskubitnir ráð-
gjafar í kjaramálum
lífeyrislaunþega
Eftir Erling Garðar
Jónasson
» ... að eldri borgarar
eiga innistæður hjá
ríkissjóði vegna skít-
ugra handa hirðanna á
Alþingi. Þessa peninga
krefjumst við, án aula-
fyndni alþingismanna.
Erling Garðar
Jónasson
Höfundur er formaður
Samtaka aldraðra.
Vegna athugasemda
Óskars Magnússonar,
lögmanns og eiganda
Kersins, í Morgun-
blaðinu 3. júlí sl. um
vilja ferðaþjónustufyr-
irtækja til að greiða
aðgangsgjöld að
ferðamannastöðum er
rétt að taka fram
hvað leiddi til þess að
fyrirtækin vildu al-
mennt ekki greiða að-
gang að Kerinu, sem virðist ástæða
fyrir geðvonsku hans í garð ferða-
þjónustunnar. Lögmaðurinn virðist
hafa hrasað í fræðunum þegar
hann ákvað að rukka aðeins þá
ferðamenn sem ferðast í hóp-
bifreiðum en hafa frítt fyrir hina,
sem jafnvel eru á vegum ferða-
skrifstofa. Slík mis-
munun er einfaldlega
óheimil. Umhverf-
isstofnun sá ástæðu til
að senda frá sér frétta-
tilkynningu í maí sl. til
að minna á reglur um
almannarétt. Þar segir
m.a. „Umhverfisstofnun
telur ekki heimilt að
takmarka umferð til-
tekinna hópa eða ein-
staklinga umfram
aðra“.
Kerfélaginu er heim-
ilt að girða landið af og
loka því fyrir öllum. Ef það kýs að
innheimta aðgangseyri, þá þarf að
rukka alla. Ennfremur töldu fyr-
irtækin, sem höfðu í áratugi stöðv-
að við Kerið, kúnstugt að eiga
skyndilega að greiða fyrir að
leggja í bílastæði og nota göngu-
stíga sem Vegagerðin og Ferða-
málaráð höfðu lagt. Eigendur
Kersins lýstu því yfir við fyr-
irtækin árið 2008, þegar innheimta
átti að hefjast fyrirvaralaust, að
þeir vildu fá arð af eign sinni en
ekkert var minnst á náttúruvernd.
Þeir ætluðu sem sagt að fá arð af
svæði sem skattgreiðendur höfðu
byggt upp.
Innheimta Óskars Magnússonar
Eftir Ernu
Hauksdóttur
Erna
Hauksdóttir
» Lögmaðurinn virðist
hafa hrasað í fræð-
unum þegar hann ákvað
að rukka aðeins þá
ferðamenn sem ferðast í
hópbifreiðum en hafa
frítt fyrir hina...
Höfundur er framkvæmdastjóri Sam-
taka ferðaþjónustunnar.
Nóg járn á meðgöngu
Hvernig er best að viðhalda járnþörf
líkamans eðlilegri?
Ef þú þjáist af járnskorti á meðgöngu þá þarftu að
borða mikið af járnríkum mat til að leiðrétta það.
Mörgum ófrískum konum finnst erfitt að borða það
magn sem þarf til að hækka og viðhalda járnbirgð-
um líkamans. Þá þurfa þær önnur ráð, Floradix
hágæða járnbætandi blanda getur hjálpað til
að ná upp járnbirgðum líkamans hratt.
Floradix inniheldur járn sem frásogast
auðveldlega í líkamanum ásamt C-vítamíni,
ávaxta- og jurtaþykkni til að bæta enná upptökuna. Þessar sérstöku blöndur innihalda mýkjandi jurtir sem
hjálpa til að halda meltingunni góðri og koma í veg fyrir harðlífi sem járntöflur geta valdið.
Mikilvægt er að nýbakaðar mæður haldi áfram að
taka Floradix eftir fæðingu til að viðhalda góðum
járnbúskap og byggja upp orku og kraft. Því litla
barnið þarfnast þess að eiga mömmu sem er full af
orku og áhuga.
Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum.
Auðbrekku 3 ~ 200 Kópavogur ~ Sími: 564 1660 ~ oreind.is
Þar sem að gervihnattabúnaðurinn fæst
NÁÐU ÓLYMPÍULEIKUNUM
Í HÁSKERPU MEÐ GERVIHNATTABÚNAÐI
FRÁ OKKUR
VERÐ Á BÚNAÐI FRÁ 44.300,-