Morgunblaðið - 05.07.2012, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 05.07.2012, Blaðsíða 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2012 bbbmn Gítarleikarinn Kristján Eld-járn hafði skipað sér í hópfremstu gítarleikara lands-ins þegar hann lést um ald- ur fram fyrir tíu árum, einungis þrí- tugur að aldri. Platan Gítarmaður sem nú kemur út inniheldur upp- tökur frá burtfar- artónleikum Krist- jáns. Fyrri tónleikarnir, djass- gítartónleikar FÍH frá árinu 1996, eru á fyrri hluta plötunnar en svo tek- ur við upptaka frá lokatónleikum Kristjáns frá Tónskóla Sigursveins frá árinu 1996 þar sem Kristján lék klassíska tónlist. Á FÍH-tónleikunum koma fábærir hljóðfæraleikarar fram ásamt Kristjáni en þeir eru Einar Scheving, Tómas R. Einarsson og Þórir Baldursson ásamt Agnari Má Magnússyni. Kristján var fjölhæfur gítarleikari sem heyrist vel á skífunni. Djassinn lék í höndunum á honum ekki síður en klassíkin þar sem aginn ræður ríkjum. En platan er ekki bara góð heimild um hljóðfæraleikarann, þar sem tvö frumsamin lög eftir Kristján er að finna á plötunni: Vélsög og va- selín og Naumhyggju. Í þeim heyrist vel næmi Kristjáns fyrir leikandi mel- ódíum og spilagleðin skilar sér vel á upptökunni. Þrátt fyrir að aldrei hafi líklega verið lagt upp með að gefa út upptökurnar er lítið yfir þeim að kvarta og hljómurinn á plötunni er ágætur en það var S. Husky Ho- skulds sem sá um að snúa tökkunum. Síðasta lag plötunnar er svo Stál og hnífur Bubba okkar Morthens í skemmtilegri klassískri útsetningu sem Kristján lék oft eins og fram kemur í kynningu hans á laginu. Gít- armaður er fín heimild um frábæran tónlistarmann. Fín heimild um gítarmanninn Geisladiskur Kristján Eldjárn - Gítarmaður HALLUR MÁR TÓNLIST Gítarmaður Kristján Eldjárn lék jafnt á klassískan gítar og rafgítar. Hljómsveitin Tilbury heldur út- gáfutónleika í Iðnó í kvöld vegna fyrstu breiðskífu sinnar Exorcise. Skífan sú mun hafa setið í toppsæti plötulista gogoyoko tónlistarveit- unnar í nokkrar vikur og hefur hljómsveitin því enn frekara tilefni til fögnuðar. Þá hefur lag af plöt- unni, „Tenderloin“, farið um öldur ljósvakans og setið ofarlega á vin- sældalistum. Hljómsveitina skipa þeir Þormóður Dagsson, Kristinn Evertsson, Örn Eldjárn, Guð- mundur Óskar og Magnús Trygva- son Eliassen. Á tónleikunum í kvöld verður öll platan flutt af hljómsveitinni og munu valinkunnir tónlistarmenn veita aðstoð við flutninginn, að því er fram kemur í tilkynningu. Ki- riyama Family mun sjá um að hita tónleikagesti upp og nýtt mynd- band Tilbury, við lagið „Drama“ verður auk þess frumsýnt en það unnu Helgi Jóhannsson og Atli við- ar Þorsteinsson. Gleðin hefst kl. 21. Útgáfutónleikar í Iðnó Tilberar Drengirnir í Tilbury baðaðir litríkum neonljósum. Tökum á Hollywood-myndinni Obli- vion hér á landi lauk mánudaginn sl. og stjarna myndarinnar, Tom Cruise, er farin af landi brott. Frétt- ir af skilnaði Cruise og Katie Holmes hafa tröllriðið fjölmiðlum síðustu daga og litlar sem engar fréttir borist af kvikmyndinni sem leikstýrt er af Joseph Kosinski, leik- stjóranum sem gerði Tron: Legacy. Kvikmyndavefurinn Reelz greinir þó frá því að Kosinski hafi fengið frönsku rafhljómsveitina M83 til að semja tónlist við myndina. Tónlist- ina við Tron: Legacy samdi einnig frönsk rafhljómsveit, Daft Punk, með prýðilegum árangri en sú mynd var mikið sjónarspil. Oblivion er byggð á samnefndri teiknimyndasögu sem Kosinski samdi. Myndin segir af hermanni sem dæmdur er af herdómstóli og sendur til fjarlægrar plánetu þar sem hann á að útrýma geimverum. Myndin verður frumsýnd 26. apríl á næsta ári. Auk Cruise fara með helstu hlutverk í myndinni Olga Kurylenko, Morgan Freeman, Andrea Riseborough, Melissa Leo, Nikolaj Coster-Waldau og Zoe Bell. M83 semur fyrir Oblivion AFP Fjölmiðlafár Kvikmyndin Oblivion fellur í skuggann af skilnaði Tom Cruise og Katie Holmes. Hér sjást þau á góðri stundu árið 2010. Ástir, kynlíf og Rokk og Ról Tom Cruise er stórkostlegur sem rokkarinn Stacy Jaxx Spennuhrollur sem fær hárin til að rísa ! FráORIN PELI, höfundi Paranormal Activity - „Spooky as hell“ – S.B. - Dread Central  EGILSHÖLL 1010 10 10 12 16 VIP 12 12 12 12 12 L L L L ÁLFABAKKA 12 L L AKUREYRI 16 16 16 KEFLAVÍK 12 16 TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á AMAZINGSPIDER-MAN KL. 5 - 8 - 10:50 3D AMAZINGSPIDER-MANVIP KL. 5 - 8 - 10:50 2D AMAZINGSPIDER-MAN KL. 4 - 10:10 2D CHERNOBYLDIARIES KL. 8 - 10:50 2D ROCKOFAGES KL. 5:30 - 8 - 10:502D MADAGASCAR3M/ÍSL.TALI KL. 3:40 - 5:50 3D MADAGASCAR3M/ÍSL.TALI KL. 3:40 - 5:50 2D SNOWWHITE KL. 8 - 10:10 2D THEDICTATOR KL. 8 2D UNDRALAND IBBA ÍSL.TALI KL. 3:40 2D 10 12 12 L L L KRINGLUNNI 16 ROCKOFAGES KL. 5:20 - 8 2D CHERNOBYLDIARIES KL. 10:40 2D MADAGASCAR3M/ÍSL.TALI KL. 5:50 - 8 3D MADAGASCAR3M/ÍSL.TALI KL. 5:50 2D MADAGASCAR3M/ENSKU.TALI KL. 10:10 2D LOL KL. 8 2D THEAVENGERS KL. 10:10 2D AMAZINGSPIDER-MANKL. 5:10 - 8 - 9 - 10:50 3D AMAZINGSPIDER-MAN KL. 6 - 10 2D CHERNOBYLDIARIES KL. 8 - 10:40 2D ROCKOFAGES KL. 5:20 - 8 2D MADAGASCAR3 ÍSLTAL KL. 6 3D MADAGASCAR3 ÍSLTAL KL. 6 3D ROCKOFAGES KL. 8 2D CHERNOBYLDIARIES KL. 10:20 2D UNDRALAND IBBA ÍSLTAL KL. 6 2D LOL KL. 8 2D SAFE KL. 10:20 2D THEAMAZINGSPIDERMAN KL. 8 - 10:50 3D LOL KL. 8 2D SAFE KL. 10 2D VINSÆLASTA SÖGUPERSÓNA VERALDAR SNÝR AFTUR Á HVÍTA TJALDIÐ Í SUMARSTÓRMYND ÁRSINS! MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI! SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI - SÝND Í 2D OG 3D – T.V. - KVIKMYNDIR.IS – V.J.V - SVARTHÖFÐI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.