Morgunblaðið - 19.07.2012, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Húsið nánast sprakk,“ sagði Ásmundur Frið-
riksson sem stóð fyrir Skötumessu 2012 í Garð-
inum í gærkvöldi. Ekki færri en 400 manns nutu
skötunnar og fjölbreyttrar skemmtidagskrár.
Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, var
veislustjóri og Jóhannes Kristjánsson eftirherma
á meðal skemmtikrafta. Rætt var um hvor yrði
líkari Guðna. „Ég verð að segja að Jóhannes
malaði Guðna alveg,“ sagði Ásmundur.
Húsið nánast sprakk vegna fjölmennis á Skötumessu 2012 í Garðinum í gærkvöldi
Ljósmynd/Víkurfréttir
Ekki færri en 400 manns nutu þjóðlegra kræsinga
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Við skiljum ekkert í því hvers vegna ráð-
herra vill ekki að við komum með gjaldeyr-
istekjur inn í þjóðarbúið,“
segir Guðmundur Krist-
jánsson, útgerðarmaður í
Brimi ehf.
Skip á vegum Brims eru
á tilraunaveiðum í Græn-
landslögsögu. Síðastliðinn
mánudag gekk í gildi reglu-
gerð frá sjávarútvegsráðu-
neytinu sem segir til um að
veiðar á grálúðu, kol-
munna, loðnu, makríl,
norsk-íslenskri síld og út-
hafskarfa í lögsögum annarra ríkja séu óheim-
ilar án sérstaks leyfis Fiskistofu. Jafnframt
segir hún til um að leyfisveitingar séu háðar
því „að fyrir hendi séu samningar um nýtingu
á viðkomandi stofni með tilheyrandi aðgangi
að lögsögu þess ríkis sem um ræðir“.
Að sögn Guðmundar eru ekki til skip í
Grænlandi sem hentug eru til makrílveiða.
Brim ehf. hefur eitt íslenskra fyrirtækja gert
út skip til makrílveiða í fiskveiðilögsögu
Grænlands. Nú eru þar tvö skip hjá fyrir-
tækinu sem mega klára veiðiferðina. Önnur
ferð er háð leyfisveitingu frá Fiskistofu.
Makríll í DNA-greiningu
Guðmundur Kristjánsson telur að sá makr-
ílstofn sem er í Grænlandi og fyrir vestan Ís-
land sé ekki af hinum sameiginlega makríl-
stofni sem Íslendingar deila nú með
Norðmönnum, Færeyingum og Evrópusam-
bandinu. Þar af leiðandi eigi reglugerðin ekki
við um makrílveiðar á Grænlandsmiðum. Eins
telur hann að sá makríll sem sé vestur af Ís-
landi sé af öðrum stofni en sá sem er fyrir
austan landið. Sá sem er fyrir austan landið er
af sameiginlegum stofni Evrópusambandsins,
Noregs, Færeyinga og Íslands. Ekki liggur
fyrir nýtingarsamningur á milli þessara þjóða.
Um þennan makrílstofn snýst makríldeilan.
„Við ætlum að senda makrílinn sem við veið-
um á Grænlandi í DNA-greiningu. Við teljum
að sá makríll sem við veiðum vestur af landinu
sé af allt annarri tegund en sá makríll sem
veiðist fyrir austan. Að sögn fiskifræðinga
Evrópusambandsins og Noregs er enginn
makríll í grænlenskri lögsögu. Við höldum að
makríllinn þar og fyrir vestan Ísland komi
sunnan og vestan að, frá Ameríku og Kanada.
Þar eru miklar makrílslóðir. Það passar alveg
ef Golfstraumurinn er skoðaður. Makríllinn
fylgir honum og kemur hingað í ætisleit. Við
höfum þetta ekki staðfest en ætlum að taka
DNA-sýni af makrílnum fyrir vestan og fyrir
austan til þess að staðfesta grun okkar,“ segir
Guðmundur.
Engar upplýsingar eða svör fengust í sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu í gær
um málið þegar eftir því var leitað.
Undrast bann við veiðunum
Ný reglugerð hamlar veiðum á Grænlandsmiðum Markmiðið að vernda sameiginlega stofna Út-
gerðarmaður telur makríl ekki af samevrópskum stofni Ekki sami makríll fyrir austan og fyrir vestan
Guðmundur
Kristjánsson Makríll DNA-sýni verða greind.
Hæstarétti hafa borist tvær kærur
vegna nýafstaðinna forsetakosninga
en í þeim er farið fram á að kosning-
arnar verði ógiltar. Önnur kæran var
lögð fram af Ástþóri Magnússyni en
hann átelur vinnubrögð yfirkjör-
stjórnar varðandi meðmælendalista
og telur ákvörðun innanríkisráðu-
neytisins um að framboð hans væri
ógilt enga stoð hafa átt í lögum.
Hina kæruna lögðu fram Guð-
mundur Magnússon, formaður Ör-
yrkjabandalags Íslands, Ásdís Jenna
Ástráðsdóttir og Rúnar Björn Her-
rera, en þau telja að kjörstjórnir hafi
brotið gegn stjórnarskránni og meg-
inreglum um frjálsar, óþvingaðar og
leynilegar kosningar, með því að
meina fötluðum að njóta aðstoðar að-
stoðarmanns að eigin vali í kjörklef-
anum.
Frestur innanríkisráðuneytis, yfir-
kjörstjórnar Norðvesturkjördæmis
og frambjóðendanna sex sem voru í
kjöri til að gera athugasemdir við
kæru Ástþórs rennur út í dag. Hann
mun í kjölfarið fá stuttan frest til að
tjá sig um athugsemdirnar og mun
Hæstiréttur að því loknu taka ákvörð-
un, segir Markús Sigurbjörnsson,
forseti Hæstaréttar. Hann segir að
hliðstætt ferli muni eiga sér stað
varðandi hina kæruna.
„Líklega verður þetta sent þá til yf-
irkjörstjórna í öllum kjördæmum og
síðan til allra frambjóðendanna en
ekki til ráðuneytisins. Og stuttur
frestur gefinn til að koma fram at-
hugasemdum,“ segir Markús. Hann
segir að málin verði að klárast áður en
kemur að auglýstum fundi um útgáfu
kjörbréfs, þ.e. föstudaginn 27. júlí.
Tvær kærur borist Hæsta-
rétti vegna kosninganna
Klára verður
málin fyrir 27. júlí
Morgunblaðið/Sverrir
Skógareldarnir á Tenerife héldu
áfram að breiðast út í Guia de
Isora-sveitarfélaginu í gær en útlit
var fyrir að tekist hefði að tak-
marka útbreiðslu eldanna við bæ-
inn Vilaflor. Mikil hætta er þó enn
talin á ferðum og verður brott-
fluttum íbúum ekki leyft að snúa
aftur að sinni.
Guðrún Þorsteinsdóttir, far-
arstjóri hjá Heimsferðum, sagði í
gærkvöldi að veðurspáin gerði ráð
fyrir að kólna myndi með kvöldinu
og vonir stæðu þá til að ef eldurinn
breiddi ekki mikið úr sér yfir nótt-
ina, yrði hægt að ná betur utan um
ástandið í dag. Framhaldið réðist
þó af vindáttum en yfirvöld telja að
það muni taka a.m.k. eina til tvær
vikur að ráða að niðurlögum elds-
ins.
Skógareldarnir á
eyjunni Tenerife
breiða enn úr sér
AFP
Eldar Um 3-400 Íslendingar eru á
Tenerife en þeir eru ekki í hættu.
eftir
Þorstein Mar
„Manni leiddist aldrei á
meðan lestrinum stóð.“
JKG, Nörd Norðursins
„Hin fínasta lesning,
frjó hugmyndagleði
einkennir hana.“
BHÓ, Skorningar