Morgunblaðið - 19.07.2012, Side 12

Morgunblaðið - 19.07.2012, Side 12
FRÉTTASKÝRING Skúli Hansen skulih@mbl.is Sigurður Líndal, prófessor em- eritus, efast um að nokkur ein- staklingur geti átt aðild að máli varðandi ógildingu á þjóð- aratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs sökum skorts á lög- vörðum hagsmunum. Eins og Morgunblaðið greindi frá í gær lítur innanríkisráðuneytið svo á að 20. október sé kjördagur þjóð- aratkvæðagreiðslunnar þangað til að ráðuneytið heyrir annað frá Al- þingi. Áður hafði innanríkisráðu- neytið sjálft óskað eftir því að Al- þingi staðfesti endanlegan kjördag þjóðaratkvæðagreiðslunnar en í ályktun Alþingis um atkvæða- greiðsluna segir að hún skuli fara fram eigi síðar en 20. október. Í viðtali sem birtist í Morg- unblaðinu síðastliðinn laugardag greindi síðan Sigurður frá því að Al- þingi þyrfti að ákveða kjördag í síð- asta lagi 20. júlí ef það ætlaði sér að halda atkvæðagreiðsluna 20. októ- ber næstkomandi og að hann gæti ekki betur séð en að þjóðarat- kvæðagreiðslan yrði markleysa ef þingið virti lögbundna fresti að vett- ugi. „Ég held að Alþingi eitt geti þá gert eitthvað í málinu. Það er að segja ákveðið að hætta við þetta eða taka nýja ákvörðun um kjördag á grundvelli laganna,“ segir Sigurður aðspurður hver gæti mögulega átt aðild að ógildingarmáli tengdu at- kvæðagreiðslunni. Ósammála lagatúlkun Sigurðar Björg Thorarensen lagaprófessor segist vera ósammála túlkun Sig- urðar Líndal á ákvæðum laga um framkvæmd þjóðaratkvæða- greiðslna. „Ég tel að lögin gefi svig- rúm til þess að ákveða með þings- ályktun að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram og að það líði þrír mánuðir frá þeim tíma. Síðan segir í öðru ákvæði laganna að Alþingi ákveði kjördaginn en í skýringum með frumvarpinu segir að ákvörðun um dagsetningu þurfi ekki nauðsynlega að vera tekin í sömu ályktun og ákvörðun um að atkvæðagreiðslan fari fram,“ segir Björg. Að sögn Bjargar lítur hún svo á að þriggja mánaða fresturinn sem kveðið er á um í lögunum byrji því að líða þegar upphaflega er tekin ákvörðun um að halda þjóð- aratkvæðagreiðslu en ekki þegar tekin er síðar ákvörðun um kjördag hennar. Aðspurð hvort hún telji Alþingi hafa nú þegar ákveðið endanlegan kjördag atkvæðagreiðslunnar með ályktun sinni segir Björg: „Þetta er frekar óvenjulegt en komið hefur fram að ef Alþingi ákveður ekki annað þá sé miðað við þennan dag og ég held að Alþingi hafi svigrúm til þess að ákveða þetta með þessum hætti, enda sé náð þeim tilgangi ákvæðis um þriggja mánaða tíma- frest að nægileg kynning fari fram.“ Að sögn Bjargar segir í 1. mgr. 13. gr. laga um framkvæmd þjóð- aratkvæðagreiðslna að kærur um ólögmæti atkvæðagreiðslu, aðrar en refsikærur, skuli sendar landskjör- stjórn til úrlausnar. „Þannig að það liggur þá ljóst fyrir að þeir sem vilja kvarta undan atkvæðagreiðslunni, þegar hún fer fram, hafa þann kost að senda kæru um ólögmæti at- kvæðagreiðslunnar til landskjör- stjórnar,“ segir Björg og bætir við: „Eins og málið er vaxið á raunveru- lega enginn lögvarinna hagsmuna að gæta enda er þetta óbindandi niðurstaða. Þannig að ég myndi við fyrstu skoðun telja að þetta væri þá frekar almenn heimild til að kæra.“ „Það virðist liggja í augum uppi að þingmeirihlutinn þarf að vanda sig mjög vel því að hann má ekki við meira klúðri í sambandi við þetta mál,“ segir Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur og bætir við að hún telji að meirihlutinn hljóti að skoða málið betur og gæti þess að það standist lagalega séð. Hefur engin áhrif á störf hóps Að sögn Páls Þórhallssonar, skrifstofustjóra löggjafarmála hjá forsætisráðuneytinu, hefur málið engin áhrif á störf sérfræðingahóps, sem hann tilheyrir, og vinnur nú að því að fara yfir tillögur stjórnlag- aráðs en að hans sögn var vinna hópsins sett af stað óháð því hvað kæmi út úr þjóðaratkvæðagreiðsl- unni. „Við erum aðeins að undirbúa frumvarp á grundvelli tillagna stjórnlagaráðs og síðan ákveður nefndin, eða meirihluti hennar, hvað hún gerir við okkar afurð,“ segir Páll og bætir við: „Alþingi hlýtur svo að meta niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar og nota þær til að meta hvort frumvarpinu verður eitthvað breytt og þá erum við búin að vinna þessa grunn- vinnu.“ Vafi um aðild að ógildingarmáli  Lagaprófessorar segja engan eiga lögvarinna hagsmuna að gæta í tengslum við þjóðaratkvæða- greiðslu um tillögur stjórnlagaráðs  Þá greinir á um hvort Alþingi hafi nú þegar ákveðið kjördag Morgunblaðið/Golli Ógilding Kosningarnar til stjórnlagaþingsins voru, eins og alkunna er, ógiltar af Hæstarétti vegna ýmissa ágalla á framkvæmd þeirra. 1. Vilt þú að tillögur stjórnlagaráðs verði l agðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá? Já, ég vil að tillögur stjórnlagaráðs verði lag ðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá . Nei, ég vil ekki að tillögur stjórnlagaráðs ve rði lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá . 2. Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði nátt úruauðlindir sem ekki eru í einkaeigu lýstar þjóðareign? Já. Nei. 3. Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæ ði um þjóðkirkju á Íslandi? Já. Nei. 4. Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði pers ónukjör í kosningum til Alþingis heimilað í meira mæli en nú er? Já. Nei. 5. Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæ ði um að atkvæði kjósenda alls staðar að af landinu vegi jafnt? Já. Nei. 6. Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæ ði um að tiltekið hlutfall kosningarbærra manna geti krafist þess að mál fari í þjóðarat- kvæðagreiðslu? Já. Nei. Stjórnarskrá er breytt þannig að frumvarp er lagt fram á Alþingi. Það er rætt við þrjár umræður og getur tekið breytingum í meðförum þing sins. Verði frumvarpið samþykkt skal rjúfa Alþingi og kjósa nýtt þing. Frumvarpið er þá lagt fr am að nýju og samþykki Alþingi það óbreyt t taka breytingarnar gildi að fenginni staðfestingu forseta. Stjórnlagaráð hefur skilað Alþingi t illögum að frumvarpi að nýrri stjórnarskrá. Verði þa ð lagt fram sem frumvarp á Alþingi fær það þá meðferð sem lýst hefur verið. Kjörseðill Merkið aðeins við eitt svar við hverri spurnin gu. Heimilt er að sleppa því að svara einstökum spurningum. Björg Thorarensen Páll Þórhallsson Sigurður Líndal Stefanía Óskarsdóttir Ekki alvörukjörseðill Reikna má með að kjörseðlar atkvæðagreiðslunnar muni líta nokkurn veginn svona út. Kjósendur verða spurðir sex spurninga. 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2012 Eitt þekktasta dæmið um að kröfu hafi verið hafnað af Hæsta- rétti Íslands vegna skorts á lög- vörðum hagsmunum er frægt dómsmál frá árinu 1994. Málavextir voru þeir að Björn S. Stefánsson stefndi utanrík- isráðherra fyrir hönd íslenska rík- isins og krafðist viðurkenningar á því að samningurinn um Evr- ópska efnahagssvæðið fæli í sér framsal á stjórnarskrárbundnu valdi og að líkt vald yrði einungis framselt með þeim hætti að hon- um, sem kjósanda til Alþingis, gæfist kostur á að koma að mál- inu. Í dómi Hæstaréttar segir svo um kröfu Björns: „Samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 verða dómstólar ekki krafðir álits um lögfræðileg efni nema að því leyti sem nauðsynlegt er til úr- lausnar um ákveðna kröfu í dómsmáli. Krafa sóknaraðila er ekki lögvarin í skilningi 2. mgr. þessa ákvæðis og felur því í raun í sér beiðni um álit dómstóla án tengsla við úrlausn ákveðins sak- arefnis. Með þessari athugasemd og skírskotun til forsendna hins kærða úrskurðar að öðru leyti ber að staðfesta hann.“ Kröfu um ógildingu EES- samningsins var hafnað ENGIR LÖGVARÐIR HAGSMUNIR TIL STAÐAR VARÐANDI EES EES Málinu var vísað frá dómi vegna skorts á lögvörðum hagsmunum. Í rafhlöðum eru efni sem eru skaðleg náttúrunni. Þær mega því alls ekki fara í almennt sorp að notkun lokinni. Efnamóttakan leggur heimilum og fyrirtækjum til ókeypis kassa til að auðvelda söfnun á ónýtum rafhlöðum. Einnig má setja í hann ónýt smáraftæki. Kassinn er margnota og hann má nálgast á söfnunarstöðvum sveitarfélaga. Gufunesi · 112 Reykjavík · Sími 559 2200 · efnamottakan.is Rafhlöðukassi Það má losa úr kassanum á söfnunarstöðvum sveitarfélaga (endurvinnslustöðvum). Einnig er víða tekið á móti rafhlöðunum í sérstakar rafhlöðutunnar á bensínstöðvum N1 og Skeljungs. Hvert á að skila?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.