Morgunblaðið - 19.07.2012, Side 34

Morgunblaðið - 19.07.2012, Side 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2012 Listhús og gull- smiðja Ófeigs Bjarnasonar heldur upp á 20 ára afmæli sitt með sýningu á verkum Mar- grétar Magn- úsdóttur en hennar fyrsta einkasýning var einnig fyrir 20 ár- um jafnframt því sem það var fyrsta sýning listhúss Ófeigs- .Verkin á sýningunni eru tileinkuð börnum Margrétar og eru unnin úr gömlum vaxlitum úr barnæsku þeirra. Margrét lauk listanámi við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, Myndlista- og handíðaskóla Ís- lands og Hochscule der Kunste í Berlín. Ófeigur starfar ásamt konu sinni Hildi Bolladóttur kjóla- meistara sem selur hönnunarvörur sínar í listhúsinu og Bolla Ófeigs- syni sem er gullsmíðameistari. Sýningin verður opnuð á laug- ardaginn, 21. júlí, kl. 17 og er opin á sama tíma og listhúsið til 15. ágúst eftir það. Listir og gull í 20 ár Skálholtshátíð hefst í dag, að- fangakvöld Þor- láksmessu, 19. júlí, og stendur til 22. júlí. Í Skál- holtskirkju fara einnig fram ýmsir sumartónleikar í byrjun ágúst. Há- tíðin ber yfir- skriftina „Saltarinn og fjölradda söngur á 17. öld í Skálholti“. Meðal atriða á dagskrá eru morgun- og kvöldsálmar frá 16. og 17. öld, trúar- legir tvísöngvar, hádegismessa, aft- ansöngur og fleira. Íslenski söng- hópurinn Voces Thules kemur fram á hátíðinni en hann er leiðandi tón- listarhópur á sviði rannsókna og flutnings á íslenskri tónlistarhefð miðalda. Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar má nálgast á sumartonleikar.is. Hátíð í Skálholti Voces Thules Guðrún Sóley Gestsdóttir gudrunsoley@mbl.is „Ég er mjög einfaldlega hrikalega ánægður,“ segir Arnar Ingi Við- arsson sem er nýútskrifaður úr list- rænni stjórnun við skólann IED í Barcelona, en borgaryfirvöld festu nýlega kaup á útskriftarverkefni Arnars. „Útskriftarverkefnin ganga út á að hanna vörumerki, einkenni og ímynd, prent, sjónvarps og umhverf- isauglýsingar, vefsíður, innan- húshönnun, útlit, merkingar og svo framvegis. Auk þess er gerð fjár- hags- og samskiptaáætlun til langs tíma. Allt þetta er gert eftir mikla rannsóknarvinnu og skapandi hönn- unarstarf,“ segir Atli, en hann hann- aði í samstarfi við tvo samnemendur sína alhliða kynningu fyrir menning- arhús sem borgaryfirvöld í Barcelona keyptu fyrir skömmu. „Húsið sem er í Gracia-hverfinu er frá árinu 1893 og var það endurgert til að undirbúa það fyrir sitt nýja hlutverk sem menning- armiðstöð. Hlutverk hússins verður meðal annars að hýsa þá sem skipu- leggja götuhátíðir sem fara fram í borginni þrisvar á ári,“ segir Arnar. Hefðunum til bjargar Mikil hefð er fyrir götuhátíðunum, og eru þær stór hluti menningarlífs í borginni. ,,Hátíðirnar eiga sér djúpar rætur í þjóðlífinu, þær byggjast á katalónskum hefðum og mótuðust upp úr aldamótunum 1600,“ segir Arnar. „Almenningsvitund og áhugi á hátíðunum fer hins vegar örlítið dvín- andi og þess vegna var ákvörðun tek- in um að opna sérstakt menningarhús til að fríska upp á ímynd hátíðanna og standa betur að skipulagi þeirra,“ segir Arnar. „Þetta er ofsalega skemmtilegt við- fangsefni. Menning er í raun svo magnað fyrirbæri og sérstaklega þegar þú ert utanaðkomandi. Maður kom að verkefninu með opinn huga og vissi í raun lítið um það en svo eyðir maður næstu mánuðum í að sökkva sér ofan í viðfangsefnið og draga til sín allar fáanlegar upplýs- ingar um þennan hluta menningar Katalóníubúa,“ segir Arnar Ingi. „Menning er vandmeðfarin, það verð- ur að sýna henni tilhlýðilega virðingu því hún á sinn sess í hjarta fólks. Taka verður tillit til margra sjón- armiða og þess að selja hana ekki í of „poppuðum“ umbúðum eða nálgast hana af yfirlæti,“ segir hann. Arnar Ingi segir að hópnum hafi tekist vel til, en það hafi kostað mikla undirbúningsvinnu. „Fyrstu mán- uðunum eyddum við á bókasöfnum í að lesa okkur til, ljósrita gömul plaköt og annað efni allt frá árinu 1700,“ seg- ir Arnar. Verkefnið var líka ærið. „Að miðla gamalli og hefðbundinni menn- ingu til samtímans án þess að slíta hana frá rótum sínum,“ segir hann. Alls tók vinnsla verkefnisins sex mán- uði. „Við hófum undirbúning í janúar, Brillerar í Barcelona  Borgaryfirvöld í Barcelona keyptu lokaverk- efni Arnars Inga Viðarssonar Fjölbreytt Verkefnið fólst í alhliða kynningu fyrir menningarhús í Barcelona. Þar á meðal var hönnun á litríkum götufánum sem innan skamms munu prýða Gracia-hverfið í borginni. Arnar hefur dvalið í Barcelona í tvö ár og að hans sögn er borgin suðupottur fjölbreyttrar menningar. „Hér er fjöldinn allur af ungu fólki sem kemur alls staðar að, stoppar stutt en er gríðarleg menningarinnspýting fyrir borgina á meðan það dvelur hér,“ segir Arnar Ingi. „Hér er samankominn kokkteill af fjölbreyttri og lifandi menningu,“ bætir hann við. „Maður finnur kraftinn í andrúmsloftinu, hér er mikið af sköpunarglöðu og forvitnu fólki,“ segir Arnar. Í borg- inni má finna mikla blöndu þjóðerna. „Í skólanum mín- um voru til dæmis fæstir frá öðrum Evrópulöndum. Flestir voru frá Suð- ur-Ameríku og mjög margir frá Asíu,“ segir Arnar. „Allir eru opnir og hafa mikið fram að færa svo að það verður til mikil og skapandi orka í þessum kringumstæðum,“ segir Arnar. Hann segir strembið að ákveða hvort hann dvelji lengur í borginni eða komi heim til Íslands. „Maður hefur betri tengingu við hin Evrópulöndin þegar maður er búsettur í Barcelona, héð- an er auðveldara að ferðast og ef til vill fleiri tækifæri í augnablikinu. En svo veit maður aldrei,“ segir Arnar. Fjölbreyttur menningarkokkteill MARGAR ÞJÓÐIR MÆTAST Í BARCELONA Arnar Ingi Viðarsson Hljómsveitin For a Minor Reflection heldur kveðjutónleika á Faktorý föstudaginn, 20 júlí. „Við erum ekki að hætta heldur taka pásu frá tónleikahaldi því Kjart- an gítarleikari spilar með Sigur Rós víða um heim alla vega fram að ára- mótum. Við fjórir ætlum að halda áfram að semja og stefnum á að koma með nýja plötu eftir áramót. Við ætl- um að vera starfandi um ókomna tíð. Planið var alltaf að fara ekkert er- lendis á þessu ári, heldur einbeita okkur að því að semja nýtt efni en fórum þó út til Frakklands á þessu ári því við gátum ekki neitað því. Þó Kjartan bregði sér frá að spila með Sigur Rós þá hefur það engin áhrif á okkur. Við fögnum því að Kjartan hafi fengið þetta tækifæri og vonumst að okkar hljómsveit eigi eftir að njóta góðs af því,“ segir Elvar Jón Guð- mundsson, bassaleikari sveitarinnar. Fyrir þá sem komast ekki á föstu- daginn mun hljómsveitin koma fram á Airwaves í lok október. Hljómsveitarmeðlimir For a Minor Reflection. Tónleikahlé vegna Sigur Rósar Morgunblaðið/Kristinn Þönglabakka 1 (inní Nettó búðinni) » 109 Reykjavík » Sími 587 4900 Allt fyrir farsíma, smartsíma og fistölvur Allar GSM rafhlöður 2.990.- SanDisk minniskort og minnislyklar í miklu úrvali - Micro-SD - SDHC - Compact Flash - Memory Stick Gerið verðsamanburð! iPad borðstandur - Festing fyrir sætisbak fylgir 5.990.- Landsins mesta úrval af GSM aukahlutum! Nettir en öflugir ferðahátalarar fyrir iPod/iPhone/iPad og aðra spilara eða síma. Innbyggð rafhlaða. 4.990 Allt fyrir IPod og Ipad Ipad bílhleðslutæki 1.490.- Öll GSM bílhleðslutæki 990.- 12V tvídeilir 1490.- Flott úrval 12V fjöltengja í bílinn, húsbílinn eða fellihýsið. 12V þrídeilir með Micro-USB útgangi og viðvörunarljósi ef raf- geymirinn í bílnum er að tæmast 2.990.-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.