Morgunblaðið - 19.07.2012, Side 13

Morgunblaðið - 19.07.2012, Side 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2012 Hátíðin Kátt í Kjósinni verður hald- in laugardaginn 21. júlí. Meðal annars verður boðið upp á viðburði, leiðsagnir um sögustaði og lífríki fjörunnar, markað með matvöru og handverki, sýningar og margt fleira. Heimsmeistaramót í heyrúlluskreytingum verður haldið á túninu við Eyrarkot, teymt undir börnum og boðið frítt í veiði í Meðalfellsvatni svo fátt eitt sé nefnt. Viðburðir verða frá kl. 12-20 og má sjá dagskrána á vef Kjós- arstofu, www.kjosarstofa. Einn af sölubásunum í Fé- lagsgarði þetta árið verður tileink- aður Unicef barnahjálpinni. Eru börn hvött til að taka til í leik- fangasafninu sínu og gefa til styrkt- ar barnastarfinu. Tekið er við leik- föngum í Félagsgarði frá kl. 11. Kjósin Hátíðin er vel sótt ár hvert. Kátt í Kjósinni Knattspyrnumótið Vodafone Rey Cup verður 10 ára í ár. Af því tilefni mun Vodafone í samstarfi við af- mælisnefnd Vodafone Rey Cup blása til heljarinnar útitónleika- veislu í Laugardalnum föstudaginn 27. júlí. Fyrstur á svið klukkan 18 verður DJ Logi Pedro. Klukkan 19 stígur fyrrum Þróttarinn Jón Jónsson fram á sviðið. Botninn í tónleikana slær hljómsveitin Retro Stefson en sveitin hefur leik klukkan 20. Aðgangur er ókeypis. Fjör í Laugardalnum Dylan-guðsþjón- usta verður haldin í Þor- geirskirkju í Ljósavatns- skarði sunnu- daginn 22. júlí kl. 20:30. Sr. Bolli Pét- ur Bollason pré- dikar og fjallar um texta hins heimsþekkta tón- listarmanns Bob Dylan og flytur ritningartexta sem hafa orðið honum innblástur við textasmíð. Snorri Guðvarðsson og Kross- bandið flytja lög og texta eftir Dylan og hefst flutningur þeirra 20 mínútum fyrir upphaf guðs- þjónustunnar. Allir eru velkomnir í guðsþjón- ustuna. Dylan-guðsþjónusta í Þorgeirskirkju Bob Dylan STUTT Erlendur karlmaður um þrítugt var handtekinn af lögreglu á Akureyri fimmtudaginn 12. júlí síðastliðinn, grunaður um að hafa komið fyrir afritunarbúnaði fyrir greiðslukort á hraðbanka í miðborg Reykjavíkur. Búnaðurinn fannst 7. júlí og hef- ur fjármunabrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu haft málið til rannsóknar en ekki er talið að tek- ist hafi að koma afrituðum greiðslu- kortaupplýsingum í umferð, sam- kvæmt tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þetta mun vera annað málið af þessu tagi sem kemur upp á árinu en mál af þessum toga kom fyrst upp árið 2006. Ekki er vitað til þess að neinn hafi komist upp með afrit- un greiðslukorta hérlendis án þess að lögreglu hafi tekist að hafa hendur í hári hinna brotlegu en það ber helst að þakka „góðri samvinnu milli lögreglu, banka og greiðslu- kortafyrirtækja við rannsókn þeirra,“ segir í tilkynningunni. Þá hafi lausn þessara mála oftar en ekki byggst á öflugri löggæslu á Keflavíkurflugvelli. Fundu afritunar- búnað á hraðbanka  Sá grunaði handtekinn á Akureyri Afritun Hér má líta búnaðinn sem notaður er til að afrita kortin en örin bendir á myndavélaopið sem er varla sjáanlegt. Örsmátt Minna en blýantsoddur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.