Morgunblaðið - 19.07.2012, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 19.07.2012, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2012 Bonito ehf. | Friendtex | Faxafen 10 | 108 Reykjavík | sími 568 2870 | www.friendtex.is OPNUNARTÍMI mánudag - föstudag 11:00-18:00 LOKAÐ á laugardögum ÚTSALA 40% 50% 60% 70% AUKIÐ DAGSKRÁREFNI FYRIR BÖRNIN ENGINN DANSLEIKUR STYTTRI OPNUNARTÍMI ÞJÓNUSTU OGVEITINGAAÐILA Á NÓTTUNNI. SENDUM EKKI ÓLÖGRÁÐA UNGMENNI EIN Á BÆJARHÁTÍÐIR. ÞAÐ AÐ 18 ÁRA OGYNGRI MEGA EKKITJALDA NEMA Í FYLGD MEÐ FORELDRUM EÐA FOR- RÁÐAMÖNNUM ERU EKKI VIÐMIÐ HELDUR LÖG. Fiskidagsboðorðin 2012 Við höfum sett saman 10 einföld Fiskidags- boðorð og það má segja að það að fylgja boðorðunum sé eina gjaldið sem þarf að greiða til Fiskidagsins mikla og íbúa. Við göngum vel um Við virðum hvíldartímann Við virðum náungann og umhverfið Við verjum Fiskdeginum mikla saman Við virðum hvert annað og eigur annara Við virðum útivistarreglur unglinga og barna Við erum dugleg að knúsa hvert annað Við beygjum okkur 2 sinnum á dag eftir rusli Við förum hóflega með áfengi og virðum landslög. Við hjálpumst að við að halda Fiskidagsboðorðin. Hugleiðingar frá skipuleggjendum Síðastliðin tvö ár hefur verið starfandi forvarnarnefnd á vegum Fiskidagsins mikla og Dalvíkurbyggðar. Nefndin hefur m.a. átt samvinnu með þjónustu og veitingaaðilum um styttri opnunartíma á nóttunni, sendir foreldrum á Eyjafjarðarsvæðinu bréf þar sem þeir eru m.a. hvattir til að virða útivistarreglur og að senda ekki börn undir 18 ára aldri ein á útihátíðir. Hvatning til fjölskyldunnar að koma SAMAN og skemmta sér saman. Unnið að aukinni gæslu á tjaldstæðunum, átt samvinnu með SAMAN hópnum, skipuleggjendum og fleirum. Viljum bregðast við áður en þetta verður að vandamáli Dagskrá flestra hátíða gengur vel yfir daginn en vandamálin snúa flest að næturlífinu og umgengni, við viljum reyna að fyrirbyggja að það verði aukning þeirra sem mæta á bæjar- hátíðir til þess eins að taka þátt í eða búa til næturlíf sem er ekki í anda hátíðanna. Það er sammerkt með þeim sem tilheyra þessum hópi að þeir taka ekki nokkurn þátt í dagskrá sem er yfir daginn og er skipulögð fyrir alla fjölskylduna - saman. Fjölskylduhátíðin Fiskidagurinn mikli 2012 Fjölskyldan SAMAN á bæjarhátíðum - söfnum góðum minningum Nú standa yfir framkvæmdir víða á vegum, þar sem verið er að mal- bika, leggja nýtt slitlag eða gera aðrar endurbætur á umferðarmann- virkjum. Umferðarstofa vill að gefnu til- efni vekja athygli á mikilvægi ör- yggis undir slíkum kringumstæð- um, segir í tilkynningu frá ráðinu. Allar reglur um merkingar á og við framkvæmdasvæði hafa verið end- urskoðaðar og gerðar eru töluverð- ar kröfur til verktaka og verkkaupa um að þeim sé framfylgt. Ef rétt er að málum staðið eru settar upp hraðatakmarkanir sem mikilvægt er að ökumenn fari eftir og þá ekki síst bifhjólamenn, segir í tilkynn- ingunni. Umferðarstofa beinir því sérstak- lega til bifhjólafólks, að það fylgist vel með og sýni mikla aðgæslu á ný- lögðu slitlagi, vegna mikillar slysa- hættu. Þetta á bæði við þar sem möl er á vegi og einnig á nýlögðu mal- biki sem getur reynst mjög hált, sérstaklega í rigningu. Jafnframt eru framkvæmdaaðilar hvattir til að hreinsa yfirborð gatna og gera aðr- ar ráðstafanir til að tryggja öryggi allra vegfarendahópa sem best, þ.m.t. hjólandi og gangandi. „Ör- yggi á vegavinnusvæðum er mik- ilvægt fyrir alla aðila, vegfarendur og ekki síður þá sem eru að störfum á þeim stöðum,“ segir í tilkynningu Umferðarráðs. Ef ekið er of hratt á nýlögðu slit- lagi þar sem möl er borin ofan í veginn skapast mikil hætta á fram- rúðu- og lakkskemmdum vegna grjótkasts ef ekið er of hratt. Auk þess eykst hættan á því að ökutæk- ið missi veggrip. Skora á bifhjólafólk að fara varlega Morgunblaðið/hag  Hættur geta leynst í nýju slitlagi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.