Morgunblaðið - 19.07.2012, Síða 24

Morgunblaðið - 19.07.2012, Síða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2012 ✝ Björn Frið-finnsson fædd- ist á Akureyri 23. desember 1939. Hann lést 11. júlí sl. Foreldrar hans voru Friðfinnur Ólafsson forstjóri, f. 1917, d. 1980 og Halldóra Sig- urbjörnsdóttir, húsmóðir, f. 1916, d. 1995. Systkinin voru sex: Guðríður Friðfinnsdóttir (1942), Ólafur Friðfinnsson (1945), Stefán Friðfinnsson (1948), Sigrún Bára Friðfinns- dóttir (1950), Steingrímur Frið- finnsson (f. 1952, d. 2002) og Elín Þóra Friðfinnsdóttir (1956). Björn kvæntist þann 5. maí 1962 Iðunni Steinsdóttur, kenn- ara og rithöfundi, f. 5. janúar 1940. Börn þeirra eru: a. Leif- ur Björnsson (1961), rútubíl- stjóri og leiðsögumaður, sam- býliskona Ragnheiður Ármannsdóttir, fulltrúi hjá KÍ. Synir þeirra eru Ármann (2002) og Björn (2006). Fyrir átti Leifur Selmu (1983), og Heiðu Pálrúnu (1984), eig- inmaður Axel Sæland. Dætur Axels og Heiðu eru Lilja Björk og Adda Sóley. Bróðir þeirra samfeðra er Auðunn Torfi. b. Steinunn Arnþrúður Björns- aðarráðherra 1988-1989 og ráðuneytisstjóri í við- skiptaráðuneytinu 1989. Jafn- framt var hann settur ráðu- neytisstjóri í iðnaðar- ráðuneytinu 1990-1993. Hann átti þátt í samningagerðinni um Evrópska efnahagssvæðið EES, 1989-1992 og var einn af framkvæmdastjórum Eftirlits- stofnunar EFTA 1993-1996. Ráðgjafi ríkisstjórnarinnar um EES-mál var hann 1997-1998 en settur ráðuneytisstjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneyt- inu 1999-2003. ins vann Björn ýmis verkefni á vegum rík- isstjórnarinnar 2004-2006, var m.a. formaður nefndar um að- gerðir gegn peningaþvætti og vann á sviði almannavarna. jörn var stundakennari og prófdómari í opinberri stjórn- sýslu og Evrópurétti við laga- deild HÍ, og skrifaði kennslu- bók í opinberri stjórnsýslu. Hann hélt fjölda fyrirlestra um Evrópurétt og skrifaði greinar í blöð og tímarit. Hann gegndi margvíslegum trúnaðar- störfum, var m.a. í stjórn Rauða kross Íslands og formað- ur flóttamannaráðs RKÍ, var formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, í skipulagsstjórn ríkisins, stjórn Þróunarsam- vinnustofnunar, Norræna fjár- festingarbankans, formaður Landssambands sumarhúsaeig- enda og formaður Almanna- varnarráðs. Hann var einnig virkur í Lionshreyfingunni. Jarðarför Björns verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 19. júlí 2012 kl.13. dóttir (1963), prestur og verk- efnisstjóri á Bisk- upsstofu. Eig- inmaður hennar er Þórir Guðmunds- son, sviðsstjóri hjá Rauða krossinum. Synir þeirra eru Unnar Þór (1991) og Björn (1995.) c. Halldór Björnsson (1965), veðurfræð- ingur á Veðurstofu Íslands. Eiginkona hans er Helga Rut Guðmundsdóttir, lektor við Menntavísindasvið HÍ. Dætur þeirra eru Iðunn Ýr (1992), El- ín Sif (1998) og Embla Rún (2001). Björn lauk stúdentsprófi frá MA 1959, lögfræðiprófi frá HÍ 1965 og hdl. réttindum 1970. Hann var fulltrúi yfirborg- ardómara 1965-1966, bæj- arstjóri á Húsavík 1966-1972, framkvæmdastjóri Kísiliðj- unnar í Mývatnssveit 1973- 1976, fjármálastjóri Rafmagns- veitu Reykjavíkur 1977-1978, fjármálastjóri Reykjavík- urborgar 1978-1982, fram- kvæmdastjóri lögfræði- og stjórnsýsludeildar Reykjavík- urborgar 1983-1987. Björn var aðstoðarmaður dóms- og kirkjumálaráðherra auk við- skiptaráðherra 1987-1988, að- stoðarmaður viðskipta- og iðn- Með Birni Friðfinnssyni höf- um við misst vandaðan embættis- mann og sannan mannvin. Og ég hef misst góðan tengdapabba. Ég segi stundum að hann hafi lagt fyrir mig þrjú Herkúlesarverk- efni áður en ég fengi hönd dóttur hans. Ég þurfti að mynda haf- tyrðla á norðurhluta Grímseyjar, þar sem hann hélt fram að þá væri að finna, klifra með honum niður skarð í þverhníptum hamr- inum og lifa af ættarmót í eynni sem einhverjir töldu ekki minnstu raunina. Allt fór vel og ég fékk bæði dótturina og að njóta samvista við þennan merka mann í aldarfjórðung. Björn var embættismaður í besta skilningi þess orðs. Hann vann að framfaramálum með eld- móði og elju. Þegar hann sem bæjarstjóri Húsavíkur taldi að rétt væri að leggja hitaveitu í bæ- inn þá heimsótti hann hvern ein- asta bónda á lagnaleiðinni þar til hann hafði sannfært þá alla um mikilvægi málsins. Síðar, þegar hann stóð með öðrum fyrir hing- aðkomu víetnamskra flótta- manna, lét hann sér ekki nægja að ná í þá til Malasíu heldur að- stoðaði þá hvernig sem hann gat við aðlögun að nýju samfélagi og varð vinur margra þeirra og vel- gjörðarmaður til æviloka. Björn lagði sig fram um að skilja embættismennsku sem fræðigrein og bókahillurnar hjá honum voru fullar af bókum um opinbera stjórnsýslu. Eina þeirra skrifaði hann sjálfur. Hann gat samt alveg gert góðlátlegt gaman að öllu saman og uppi á vegg í sumarbústað þeirra Iðunnar er platti sem á stendur, á þýsku: „Hvað hefurðu á móti embættis- mönnum? Þeir gera jú ekki neitt.“ Við tengdapabbi sameinuð- umst í nýjungagirninni; áhuga á tækjum og tólum. Einhverjar bestu samverustundir okkar voru þegar við sátum saman við nýjustu tölvuna hans, myndavél- ina eða símann og reyndum að fá græjuna til að virka almennilega, báðir dálitlir ratar en mátulega áhugasamir til að verja í þetta löngum stundum. Þær voru held- ur ekkert leiðinlegar. Allir sem kynntust Birni kann- ast við glettnina, svipinn sem kom á hann þegar honum datt eitthvað skemmtilegt í hug – ein- hverja tengingu sem hann fann við umræðuefni dagsins – og bjartur glampi kom í augun. Kímnigáfa hans var hnitmiðuð en græskulaus og hitti alltaf beint í mark. Jafnaðarmenn gerast ekki sannari en þeir sem einlæglega vinna að betra þjóðfélagi fyrir alla og fara sjálfir ekki í manngrein- arálit. Þannig var Björn. Hann hafði ánægju af samneyti við fólk, ekki síst ef hægt var að brydda upp á umræðuefni sem mátti teygja og toga í ýmsar áttir og helst ískra af hlátri í lokin. Á ferðalögum erlendis gerði hann sér far um að kynnast landi og þjóð – og helst að læra tungu- málið. Hann var forvitinn á for- dómalausan hátt, lagði sig fram um að kynnast fólki og aðstæðum þess á þeirra eigin forsendum. Fordómaleysið, áhugi hans á öllu milli himins og jarðar og gott minni gerðu hann að fjölfróðum manni sem unun var að umgang- ast. Eftir Björn standa lagabálkar, framkvæmdir og fólk sem hann snerti. Tengdasyni hans verður hann ógleymanlegur fyrir mann- kosti sína og vináttu. Þórir Guðmundsson. Björn tengdafaðir minn var einstakur maður. Það munu allir taka undir sem kynntust honum. Ég kynntist Birni fyrst þegar ég fór að venja komur mínar á Sund- laugaveginn. Hann kom mér fyrir sjónir sem afar greindur og vinnusamur maður sem fylgdist vel með og var ákaflega vel að sér um flest. Björn var önnum kafinn á þessum tíma sem aðstoðarmað- ur ráðherra og oft undir miklu álagi. Samt var hann alltaf skap- góður og vingjarnlegur í um- gengni á heimilinu. Hann hafði gaman af að segja sögur og einnig hafði hann dálæti á fimmaurabröndurum og orða- leikjum. Mér er ógleymanlegt þegar ég í fyrsta skipti fékk að njóta þessa sérstaka skopskyns Björns. Ég hafði tyllt mér inn í stofu til að glugga í fréttirnar í sjónvarpinu og þar sat hann í sóf- anum með skjalatöskuna í kjölt- unni og marga pappíra sem hann las yfir á meðan hann fylgdist með fréttunum. Eitthvað var minnst á Helmút Kohl kanslara V-Þýskalands en samhengið man ég ekki. Björn hafði ekki oft talað við þessa ungu vinkonu sonar síns sem sat þarna í stofunni en segir svo kersknislega: „Já Helga mín, það var veturinn sem hann Hel- mút kól“. Brandarinn varð ekki lengri og samræðurnar ekki held- ur að þessu sinni. Samræður okkar urðu þó eðli- lega fleiri á þeim aldarfjórðungi sem fór í hönd. Óvenjulega sterk réttlætiskennd og réttsýni ein- kenndi Björn. Hann var hins veg- ar lítið fyrir deilur eða rökræður. Ég held hann hafi litið á slíkt sem óþarfa tímaeyðslu, en þó bar hann fulla virðingu fyrir skoðunum og sannfæringu annarra. Björn gegndi mörgum trúnað- arstörfum um ævina og naut trausts hvar sem hann lét til sín taka. Hann var gegnheill og prin- sippfastur og lét aldrei nokkurn hlaupa með sig í gönur. Það hefur eflaust ekki hentað öllu hans sam- starfsfólki enda var hann óhagg- anlegur ef brjóta átti í bága við það sem hann taldi rétt. Ég lærði fljótt að bera virðingu fyrir ríkri dómgreind Björns og það átti við um flest hans samferðafólk. Björn var fæddur foringi en tranaði sér þó aldrei fram. Hann var einn af þeim sem hugsaði, skipulagði og framkvæmdi í þágu rétts málstaðar án þess að huga að því hver launin væru. Honum var slétt sama hvort einhver gæti slegið hann til riddara á því sem hann átti heiðurinn af. Björn var ættarhöfðingi í eðli sínu og naut virðingar sem slíkur innan sinnar eigin stórfjölskyldu og meðal víetnömsku flóttafjölskyldnanna sem hann af ósérhlífni aðstoðaði við að fóta sig í nýju landi. Höfð- ingjaeðlið kom einstaklega vel í ljós árin sem hann og Iðunn bjuggu í Brussel og tóku á móti Íslendingum og öðrum gestum háum sem lágum af óviðjafnan- legri gestrisni. Það er erfitt að kveðja einstak- an mann með aðeins fáum orðum. Það mætti segja frá svo mörgum þáttum í fari hans eins og hvernig hann gekk til verks án þess að tví- nóna við hlutina. Símtöl við Björn voru alltaf í símskeytastíl, engin óþarfa orð, bara nákvæmlega það sem þurfti að komast til skila. Þannig var orðagjálfur og sýnd- armennska Birni framandi enda kom hann alltaf til dyranna eins og hann var klæddur. Þannig man ég hann. Helga Rut Guðmundsdóttir. Elsku afi okkar. Maður í svörtum buxum með axlaböndum, blárri skyrtu og nokkra penna í skyrtuvasanum. Breitt glott, blik í augum bak við stóra gyllta gleraugnaumgjörð, fæðingarblettur á kinninni og risastór eyru. Og að sjálfsögðu húfan góða. Svona munum við eft- ir Birni afa okkar. Hann var alltaf mjög rólegur, sat lengi og hlustaði á útvarps- fréttir eða las blöðin. En það var alltaf gaman að hlusta þegar hann talaði, því hann hafði alltaf eitt- hvað skemmtilegt að segja. Það var líkt honum að sitja einbeittur yfir sjónvarpsfréttum en líta snöggvast upp til að gera orða- grín eða segja fyndna sögu um það sem verið var að fjalla um. Hann var lífsreyndur maður og ef maður var að læra eitthvað í skólanum gat hann iðulega sagt manni meira en kennslubækurn- ar og látið hnyttnar sögur fylgja með. Hann hafði gaman af því að stríða fólki í kringum sig. Þegar við vorum lítil tók hann af sér puttana og rændi okkur nefjun- um. Hann hræddi okkur barna- börnin með sögum af tásuljónum í sumarbústaðnum. Það voru skelfileg dýr sem átu tærnar af börnum sem fóru of langt frá bú- staðnum eða gengu ekki í sokk- um. Hann teiknaði myndir af okk- ur og ljónunum til að koma boðskapnum á framfæri. Hann var mikið náttúrubarn. Það fengum við að upplifa í kring- um sumarbústaðinn. Þar ræktaði hann tré og nefndi sum þeirra í höfuðið á barnabörnunum. Hann sagði okkur frá þeim draumi að einhvern tímann yrði þéttur skógur í kringum bústaðinn. Hann átti bækur um fugla og plöntur og fór oft með okkur að skoða blóm og fugla og hafði ætíð margt um þau að segja. Hann sýndi okkur minkabú nálægt bú- staðnum og veiddi minkana síðan til að bjarga fuglavarpinu. Það var alltaf gaman að fara í göngu- ferðir með honum eða í leit að nýj- um plöntum til að planta nálægt bústaðnum. Hann afi var alltaf til staðar fyrir okkur, hann var okkur góð fyrirmynd og skemmtilegur fé- lagi. Það er mikill missir að sjá hann fara en hann mun alltaf vera í hjörtum okkar. Við þökkum fyrir ógleymanlegar stundir. Björn Þórisson og Iðunn Ýr Halldórsdóttir. Björn mágur minn er látinn. Hann hóf baráttu við illvígan sjúkdóm á síðasta ári. Lengi vel leit út fyrir að hann mundi hafa sigur en í vetur tók að halla undan fæti. Því stríði lauk eitt sólríkt síðdegi á hásumri er náttúran skartaði sínu fegursta. Björn unni íslenskri náttúru og naut sín hvað best í skógrækt við Álftavatnið fagurblátt. Þegar ég var drengur átti ég stóra systur. Stóra systir var mér undurgóð, passaði mig og söng í svefn á kvöldin. Seinna fór hún í MA eins og við systkinin flest. Þegar leið að stúdentsprófi frétti ég að hún ætti kærasta. Mér leist illa á það. Eitt sumarið kom hann í heimsókn, ungur myndarmaður, hét Björn. Mér fannst hann reyndar gamall enda kominn yfir tvítugt. Birni fylgdu ýmsar nýjungar. Hann átti forláta ljósmyndavél. Þvílík flottheit höfðu ekki sést á Seyðisfirði. Þegar Björn og Iðunn voru gefin saman í kirkjunni heima, vorið 1962, trúði hann mér fyrir vélinni. Ég var 11 ára og var eins og grár köttur í kringum alt- arið að taka myndir. Minnisstæð- ara verkefni hef ég varla fengið. Björn átti vin þar eystra sem lánaði honum bíl. Í ljósgrænum Phobeta vorum við út um allan fjörð. Ýtur voru að ryðja fyrir Hafsíld og ýmsum síldarplönum. Það var spennandi að fylgjast með atinu og Björn svaraði öllum spurningum mínum. Ég fékk á tilfinninguna að maðurinn vissi allt. Faðir hans hafði enda verið einn af „vitringunum“, í vinsælum þáttum Sveins Ásgeirssonar sem ég hafði heyrt í útvarpinu. Föð- urinn hitti ég síðar. Þá var hann forstjóri Háskólabíós og stóð með vindil fyrir utan það mikla hús. Ég fékk frítt í bíó þann dag. Eftir giftinguna fór Björn með stóru systur suður til Reykjavík- ur. Ég var fljótari að fyrirgefa honum en ég hafði búist við. Enda varð mitt annað heimili hjá þeim á næstu árum. Árið 1966 var Björn ráðinn bæjarstjóri á Húsavík, 26 ára gamall. Ég tók landspróf þar vorið 6́7 og vann eitt sumar hjá honum í bæjarvinnunni. Mér fannst gaman í Garðarshólma, sérstaklega á matmálstímum. Það var góður matur og margar sögur og hláturinn ískraði í Birni því aldrei var húmorinn langt undan. Svo var hann rokinn í vinnuna en vinnusamari mann þekkti ég ekki. Starfsferill Björns varð glæsi- legur. Síðustu áratugina var alltaf mikið samband. Í bústaðnum við Álftavatn hef ég notið fleiri gæða- stunda en ég kann að telja. Björn var gjarnan úti við, að setja niður stilka, vökva eða færa til tré. Og vissi allt um skógrækt, þekkti all- ar tegundir. Hann var alltaf skrefi á undan, hafði skýringar á flestu en var fámáll um sjálfan sig. Og tilfinningum flíkaði hann ekki. Samt fann ég hvað það var hlý taug á milli okkar. Ekki þurfti að orðlengja það neitt, hún bara var. Það er sárt að horfa á eftir svo góðum og gjörvilegum manni fara svo fljótt, ekki eldri en þetta. Mig langar að þakka stundirnar og stuðninginn gegnum árin. Um það vildi ég hafa fleiri orð en rúm- ast í svo stuttri grein. Þau eru geymd en ekki gleymd. Stóru systur minni, börnum og öðrum aðstandendum sendi ég mínar bestu samúðarkveðjur. Ingólfur Steinsson. Það var sumarið 1959 sem Ið- unn systir sagði mér dálítið und- irleit að þetta væri kærastinn sinn. Svo rétti hún mér litla, svarthvíta mynd og til mín brosti grannleitur, smáfríður og örlítið sposkur Björn. Hann var frá Reykjavík og það var ekki verra. Strákarnir á Seyðisfirði bliknuðu í samanburði. Systir mín, allra kvenna vænst, hlaut að vera með sætasta stráknum í skólanum. Það var til einhvers að vinna að komast í Menntaskólann á Akur- eyri. Ég lá yfir skólaspjaldinu, víst voru þeir misfríðir, herrarnir, en margir huggulegir. Björn bar af þeim enda okkar maður. Haustið 1960 hitti ég hann í fyrsta sinn. Þá í Reykjavík. Við fórum þrjú saman í bíó og á Mokka á eftir. Hann var skemmtilegur og bauð upp á súkkulaði með rjóma. Sjálfsagt hef ég glápt á manninn eins og tröll á heiðríkju en þetta kvöld hófst vinátta sem stóð óslitið í rúm fimmtíu ár. Það er langur tími. Engin furða þótt skilnaðar- stundin sé erfið. Við sitjum uppi með tilfinninguna um að hafa misst eitthvað af okkur sjálfum. Týnumst í minningunum. Björn var mannkostamaður og lætur eftir sig mikið ævistarf. Hann kom víða við og vann af heilindum hvar sem hann fór. Aðrir verða til að gera störfum hans skil. Á mig leita ótal sam- verustundir: Á Húsavík, Sund- laugavegi, Sólvallagötu og Akra- nesi, í Mývatnssveit, Þýskalandi, Brüssel og Grímsnesinu. Lengst af bjuggum við ekki í sömu borg, stundum ekki einu sinni í sama landi en alltaf voru Björn, Iðunn og krakkarnir fjölskyldan okkar. Þar áttum við athvarf. Með þeim var gott að vera. Og gaman. Hitt- umst við ekki, þá var daglegt sím- tal, netpóstur, fax, nú eða bréf í þá daga. Oft var hlegið og var ekki alltaf sól? Störfum hlaðinn Björn var kletturinn sem bifaðist ekki þótt á bryti. Heiðarlegur og laus við að fara í manngreinarálit enda var hann vinmargur og ófáir sem leit- uðu til hans. Má þar nefna ný- búana sem hann liðsinnti af áhuga og elju. Stundum minnti heimilið mest á félagsmiðstöð. Öllum var heilsað með sömu hlýju og alúð. Svo var spjallað og lagt á ráðin. Iðunn stóð við bakið á honum með ráðum og dáð. En sami Björn var líka þungorður stæði hann fólk að ósannindum eða óheiðarleika. Mágur minn bar ekki tilfinn- ingar sínar á torg en hann lét verkin tala. Og þar gætti bæði hlýju og umhyggju. Þegar slíkir menn falla frá fyllast margir söknuði, því þeir skilja eftir sig stórt skarð. Síðasta ár var erfitt. Lengi var haldið í vonina en svo brást hún. Björn var á ýmsum sjúkrastofn- unum og hjá honum var gest- kvæmt, líka lokadagana í Sóltúni. Þótt hann mókti streymdu að ættingjar og vinir sem langaði að hlúa að honum. Kannski ber það væntumþykjunni ljósastan vott. Það er þungbært að kveðja en hjá því verður ekki komist. Að leiðarlokum þakkar fjölskylda mín samveru sem aldrei bar skugga á. Jón Hálfdanarson, svili Björns, bundinn við verkefni í Noregi, sendir kveðju yfir hafið. Iðunn, börn og frændgarður- inn allur. Megi allt gott umvefja fjölskylduna á erfiðum tíma. Hugurinn er hjá ykkur og við stöndum saman nú sem ævinlega. Kristín Steinsdóttir (Krilla). Leiðir okkar Björns Friðfinns- sonar frænda míns lágu nokkuð snemma saman á ættarslóðum okkar vestur í Djúpi. Hann var sennilega ekki eldri en tvævetur þegar hann kom með foreldrum sínum í heimsókn að Strandselj- um, þar sem ég var fyrir í sum- ardvöl hjá ömmu okkar, Guðríði Hafliðadóttur, og ég fékk það hlutverk að passa hann úti við, enda fjórum árum eldri. Óljós minning segir mér að mér hafi farist þetta heldur óhönduglega og færst undan þessu ábyrgðar- hlutverki eftir að Björn hafði lagt sér fósturjörðina til munns án þess ég fengi nokkrum vörnum við komið. Var orðið við þeirri ósk. Næst lágu leiðir okkar saman í Unaðsdal á Snæfjallaströnd hjá Guðrúnu, móður- og föðursystur okkar, þar sem Björn kom til dvalar ásamt Guðríði Sólveigu [Systu] systur sinni en hún hét í höfuðið á bæði ömmu og móður minni. Var það til marks um hversu hlý og náin tengsl voru milli Friðfinns og móður minnar þrátt fyrir 13 ára aldursmun þeirra enda mun hún hafa átt sinn þátt í því að Friðfinnur gekk menntaveginn. Það þóttu þá nokkur tíðindi enda sá vegur eng- an veginn talinn sjálfsagður veg- ur kotbændasonum við Djúp á upphafsárum Kreppunnar miklu. Síðustu árin sem amma Guð- ríður lifði bjó Friðfinnur henni at- hvarf á heimili sínu og varð það nokkurs konar félagsheimili stór- fjölskyldunnar þau árin og jafnan komið saman þar á stórhátíðum Strandseljafjölskyldunnar. Varð það enn til að efla kynnin, en eftir lát hennar fór að losna um þá hnúta sem binda frændgarðinn saman og við systkinabörnin héldum hvert í sína áttina, eins og gengur. Stórfjölskyldan leystist upp í frumeindir, þótt alltaf væri fylgst náið með hvernig ættingj- unum vegnaði í lífsbaráttunni. Björn átti að baki langan og farsælan feril sem stjórnandi, bæði í einkageiranum, opinberri stjórnsýslu á vegum ríkis og sveitarfélaga og í margvíslegum félagasamtökum. Stundum lágu leiðir okkar saman á þeim vett- vangi. Minnisstætt er mér þegar ég fékk hann til að gerast leið- Björn Friðfinnsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.