Morgunblaðið - 19.07.2012, Síða 25

Morgunblaðið - 19.07.2012, Síða 25
sögumaður minn um Mývatn og nágrenni með hópi sovéskra skriffinna úr verkalýðshreyfing- unni. Hann var í því hlutverki allt í senn fyndinn, frjór og frumleg- ur. Eitt af hugðarefnum Björns var ættfræði og var honum um- hugað um að þeirri fræðigrein yrði sniðinn lagalegur búningur við hæfi og lagði sitt af mörkum til þess. Hittumst við nokkrum sinnum nú hin síðustu ár á vinnu- stað mínum hjá Oddi F. Helga- syni ættfræðingi, þar sem ég var einmitt að vinna að Djúpmanna- tali, þar sem áar okkar og skyld- menni koma talsvert við sögu en það verk var reyndar hafið að frumkvæði Friðfinns föður hans sem lengi var í forsvari fyrir Fé- lagi Djúpmanna hér á Reykjavík- ursvæðinu. Björn var líka ættrækinn mað- ur og þegar Sólveig dóttir mín var honum samtíða um tíma við störf úti í Brüssel opnaði hann henni heimili sitt og fjölskyldunnar ná- lega eins og hún væri ein af þeim. Ég veit að Sólveig er þakklát fyrir þau kynni og geymir í hjarta sínu ljúfar minningar um góðan dreng og dyggan frænda og að leiðar- lokum færum við Guðrún líka fjöl- skyldu Björns okkar innilegustu samúðarkveðjur. Ólafur Hannibalsson. Undanfarna daga hafa leitað á mig þær fjölmörgu og jákvæðu minningar sem ég á um Björn Friðfinnsson. Rétt eins og systk- ini mín á ég allar barnsminning- arnar um hinn glaðlynda eigin- mann móðursystur okkar, sem dreif okkur með sér að skoða ap- ana í Blómavali þegar við komum til Reykjavíkur, var fastagestur á heimili okkar á Akranesi og átti með okkur góðar stundir í sum- arleyfum. Iðunn, Björn og börn þeirra hafa alla tíð skipað slíkan sess í lífi okkar að minningunum verða ekki gerð skil í nokkrum línum sem þessum. Ólíkt öðrum í fjölskyldunni á ég hins vegar líka minningar um kollegann Björn, sem mig langar að fara nokkrum orðum um og þakka fyrir. Þegar ég ákvað að hefja nám í lögfræði árið 1997 vissi ég ekkert hvað ég var að fara út í. Ég bjó hins vegar svo vel að þekkja einn lögfræðing. Sá reyndist mér sannarlega betri en enginn. Björn lánaði mér bækur, veitti innsýn í lífið við lagadeild og fylgdist með. Gott ef fyrstu lögfræðiglósur mínar voru ekki ritaðar á tölvu sem þau hjón áttu. Í kjölfar þess að ég fór að botna eitthvað í fag- inu hófst síðan sá kafli að við Björn gætum farið að ræða sam- an um lögfræðina. Hann þekkti ekki aðeins vel til alls þess sem liðið var og sagði skemmtilega frá, heldur var hann að jafnaði vel inni í því sem efst var á baugi og hafði auk þess sterkar skoðanir á flestu. Því var feikilega gaman að ræða við hann. Eftir að ég hóf störf sem lög- maður var raunar afar gagnlegt að eiga Björn að, enda svaraði hann fljótt og vel þeim Evrópu- réttarlegu álitaefnum sem ég fékkst við og bar undir hann. Fyrir fimm árum ákvað ég að hætta lögmennsku og sækja um lektorsstöðu við Háskóla Íslands. Ákvörðunin var sumpart á skjön við tíðarandann, á því herrans ári 2007, og óhætt er að segja að sumum hafi litist illa á. Ekki Birni. Hann var hinn kátasti og nánast fyrsta vinnudaginn minn í Lögbergi var hann mættur til að færa mér bækur að gjöf og benda mér á efni sem hann teldi vert að skrifa um. Slíkar heimsóknir áttu eftir að verða mun fleiri og raunar er nú svo komið að heilu bókahill- urnar á skrifstofu minni í Lög- bergi eru frá Birni komnar. Það var alltaf gaman þegar Björn leit við á skrifstofunni og þar sátum við stundum lengur en góðu hófi gegndi í umræðum um lögfræði og þjóðfélagsmál. Björn fylgdist líka vel með öllu sem ég gerði og lét vita ef honum líkaði. Það var mér dýrmætt að hafa einhvern í fjölskyldunni sem skildi til fullnustu það sem ég fékkst við í starfi. Því þótt áhug- ann skorti sannarlega ekki hjá hinum, þá skildu þeir ekki með sama hætti og Björn gerði, ekki frekar en ég skil allt það sem raunvísindafólkið í fjölskyldunni fæst við. Ég er afar þakklátur fyrir þá hjálpsemi og áhuga sem hann sýndi mér og okkar ánægjulegu stundir á sviði sam- eiginlegra áhugamála. Þá þakka ég ekki síður allt hitt, síðustu 35 árin, sem engin færi eru á að gera fullnægjandi skil hér. Elsku Iðunn og frændfólkið allt. Við Bryndís og dæturnar sendum okkar innilegustu sam- úðarkveðjur frá Stokkhólmi. Hugurinn er hjá ykkur. Eiríkur Jónsson. Starfs- og æviferill Björns Friðfinnssonar sýnir glöggt hversu mikils trausts hann naut og hversu víða hann lét gott af sér leiða. Honum voru falin mik- ilvæg störf í æðstu stjórn ríkis- ins, þar sem hann var m.a. ráðu- neytisstjóri þriggja ráðuneyta. Hann starfaði að sveitarstjórnar- málum sem bæjarstjóri á lands- byggðinni og í yfirstjórn höfuð- borgarinnar og hann vann á vettvangi Evrópusamstarfsins í Brussel sem einn af þremur framkvæmdastjórum Eftirlits- stofnunar EFTA. Samstarfs- menn hans fólu honum trúnaðar- störf, m.a. var hann formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga um árabil og í Rauða krossinum lét hann gott af sér leiða sem stjórnarmaður og formaður flóttamannaráðs m.a. þegar tekið var á móti stórum hópum flóttamanna frá Víetnam. Björn vann líka á fyrirtækjavett- vangi sem framkvæmdastjóri og fjármálastjóri, hann var kennari á háskólastigi og samdi kennslu- bækur. Þessi upptalning sýnir glöggt að Björn var enginn meðalmaður, hann var alltaf tilbúinn til að tak- ast á við ný og ögrandi verkefni. En hann var líka óvenjulega skemmtilegur maður, kunni frá mörgu að segja og gerði það vel. Ég minnist margra stunda með Birni þar sem hann sagði sögur af mönnum og málefnum þannig að eftirminnilegt er. Ekki síst óborganlegar sögur af Mývetn- ingum og Grímseyingum. Fyrir stundirnar með Birni er ég þakk- látur. Að leiðarlokum vil ég færa Birni Friðfinnssyni þakkir fyrir óeigingjörn störf í þágu íslensks samfélags og sérstakar þakkir samstarfsmanna í þeim ráðu- neytum sem hann starfaði í. Ið- unni eiginkonu hans, börnum, tengdabörnum og öllum öðrum ættingjum og vinum sem nú eiga um sárt að binda votta ég samúð mína. Steingrímur J. Sigfússon. Í dag er til borinn til moldar Björn Friðfinnsson. Að honum er mikill sjónar- sviptir þegar hann er nú burt kallaður á 73ja aldursári. Að hon- um stóðu sterkir stofnar úr Grímsey og Ísafjarðardjúpi. Hann var alla tíð víkingur til verka og kom ótrúlega mörgu í verk á ævinni. Ég var svo lán- samur að eiga hann sem náinn samstarfsmann árin sex sem ég gegndi ráðherrastörfum, 1987 til 1993; fyrst sem aðstoðarmann ráðherra og síðan sem ráðuneyt- isstjóra í viðskiptaráðuneyti og iðnaðarráðuneyti. Í þessum störfum naut Björn í senn óvenjulega fjölbreyttrar starf- reynslu sinnar og góðrar mennt- unar. Björn varð bæjarstjóri á Húsavík 1966 og gegndi því starfi í sex ár við góðan orðstír. Hann var síðan næstu fjögur ár fram- kvæmdastjóri Kísiliðjunnar í Mývatnssveit. Þá tók við hjá Birni tíu ára starf fyrir Reykjavíkurborg og stofnanir hennar, fyrst sem fjármálastjóri Rafmagnsveitu Reykjavíkur, þá sem fjármálastjóri borgarinnar og loks sem framkvæmdastjóri lögfræði- og stjórnsýsludeildar borgarinnar. Þessi störf á vett- vangi sveitarstjórna og atvinnu- lífs glæddu áhuga hans á góðum stjórnarháttum, og tók hann m.a. þátt í norrænu samstarfi um þau málefni. Hann var um skeið stundakennari í opinberri stjórn- sýslu við lagadeild Háskóla Ís- lands og skrifaði kennslubók í þeim fræðum. Árin sem við Björn störfuðum saman í viðskipta-, dómsmála- og iðnaðarráðuneytunum voru við- burðarík og annasöm. Ég get ekki hugsað mér betri eða ósér- hlífnari samstarfsmann. Hann var bæði skjótvirkur og vandvirk- ur í hverju verki. Björn tók þátt í samningagerðinni um Evrópska efnahagssvæðið, EES, 1989-1992. Hann skildi vel að virk þátttaka í því samstarfi var Íslandi til hags- bóta. Björn var vel að sér í Evr- ópurétti og kenndi þau fræði við Háskóla Íslands. Björn varð síðar einn af framkvæmdastjórum Eft- irlitsstofnunar EFTA í Brussel 1993-1996. Á sviði dómsmála ber einna hæst frá ráðherratíma mín- um að þá var gerð að því gang- skör að ljúka til fulls aðskilnaði dómsvalds og framkvæmdavalds sem dregist hafði úr hömlu. Á því máli hafði Björn mikinn áhuga og vann að því dyggilega. Það er til marks um mannkosti Björns og mannúðarhugsjón að hann vílaði ekki fyrir sér að bæta umfangsmiklum störfum fyrir Rauða krossinn ofan á erilsöm embættisstörf. Hann lét sér sér- staklega annt um málefni flótta- manna frá Póllandi og Víetnam sem Íslendingar tóku á móti á átt- unda áratug liðinnar aldar. Flóttamennirnir frá Víetnam sem komust til Íslands eftir mikla hrakninga áttu hauk í horni þar sem Björn var. Hann lagði mikið á sig til þess að greiða götu þeirra hér á landi. Ég verð Birni ævinlega þakk- látur fyrir samstarfið í ráðuneyt- um árin 1987 til 1993. Okkar góðu kynni hófust reyndar miklu fyrr þegar við vorum samtíða í Menntaskólanum á Akureyri á sjötta áratugnum. Björn var góð- ur félagi, glaðvær, orðvís og skemmtinn á mannamótum eins og hann átti kyn til. Þau hjónin, Björn og Iðunn, voru samvalin í þessum efnum, sem við árgangs- systkin Iðunnar fengum að njóta í ríkum mæli. Björns verður sárt saknað. Til Iðunnar og fjölskyldunnar allrar leitar nú hugurinn. Þessum orð- um fylgja innilegar samúðar- kveðjur til hennar frá okkur Laufeyju. Við minnumst Björns með þakklæti og virðingu. Bless- uð sé minning hans. Jón Sigurðsson. Gamall vinur og félagi er allur, langri og harðri baráttu við illvíg- an sjúkdóm er lokið. Söknuður fyllir huga okkar gömlu félag- anna úr MA þegar hugurinn reik- ar nær 57 ár aftur í tímann. Á haustdögum 1955 settist hópur ungs fólks á skólabekk á Akureyri. Skólinn hófst þó ekki fyrr en um miðjan október, því vegna óþurrkasumars vestan og sunnanlands hafði ríkisstjórnin ákveðið að ekki veitti af aðstoð unglinga í sveitum við síðbúin heyskaparverk. Daginn sem við sunnanfólkið komum norður, var þar vetrarríki og snjókoma. Þetta var í fyrsta skipti sem þrjár bekkjardeildir voru í árgangi. Ein þeirra var strákabekkur 3. bekk- ur B og þar lágu leiðir okkar Björns fyrst saman þetta haust. Í þessari bekkjardeild voru miklir dugnaðarmenn og sterkir karakt- erar sem allir bjuggu saman í heimavistinni og þar mótaðist hin sterka samkennd og samheldni, sem haldist hefur alla tíð síðan í MA-hópnum okkar. Bekkjarfélagarnir, sem voru á nokkuð mismunandi aldri, komu víða að af landinu og Björn var með þeim yngri í hópnum. Dvölin í heimavist MA næstu fjóra vet- urna hafði þroskandi og mennta- ndi áhrif og samvistirnar við góða og trausta félaga voru ómetanleg- ar fyrir þroska okkar ungling- anna. Við ólum hver annan upp og hver og einn lagði fram þann manngildissjóð sem honum fylgdi úr heimahúsum. Við Björn urðum síðan sam- ferða næstu þrjá vetur í stærð- fræðideildinni, allt til stúdents- prófs og við vorum í hópi „stórhríðarstúdentanna“ 66, sem útskrifuðust í illviðrinu 17. júní 1959. Hefðbundin hópmyndataka var ómöguleg utan dyra sökum snjókomu, kulda og hvassviðris. Þannig lauk MA-skólaárunum líkt og þau hófust, með hríð og vetrarveðri, en hlýjan til skólans okkar og gömlu skólafélaganna úr MA er sterkust í minningunni. Eftir að myndin var tekin í leik- fimihúsinu gamla, skildust leiðir um sinn en traust vinaböndin voru tengd áfram. Björn var eftirminnilegur, vel gerður og glaðsinna félagi og hann var með hressilegu og kátu viðmóti sínu hrókur alls fagnaðar í samskiptum okkar bekkjar- félaganna. Hann var einn af for- göngumönnum að stofnun FÁLMA – Félags áhugaljós- myndara MA. Margar myndir hans frá þessum tíma minna á eft- irminnilega og skemmtilega daga sem við áttum í MA. Iðunn Steinsdóttir, kennari og rithöfundur, var í næsta árgangi á eftir okkur félögunum. Þau Björn felldu hugi saman í MA og hafa átt saman langt og hamingjuríkt líf. MA-hópurinn okkar hefur alla tíð haldið vel saman og allir sem vettlingi geta valdið, bekkjar- félagar og makar hafa hist, fagn- að og ferðast saman á hverju ári. Þar hafa þau Björn og Iðunn ekki látið sig vanta og verður nú skarð fyrir skildi. Siðast heimsótti ég Björn þar sem hann lá dauðveikur á sjúkra- beði. Ekki var margt sagt en hlý- legt bros og augnaráð minnti á gömlu dagana. Um leið og ég bið góðan Guð að blessa minningu þessa horfna vinar okkar og félaga, vottum við Iðunni skólasystur okkar og vin- konu, svo og fjölskyldunni inni- lega samúð okkar á sorgar- stundu. Skúli Jón Sigurðarson. Kær vinur, Björn Friðfinns- son, er fallinn frá. Leiðir okkar lágu fyrst saman í Menntaskólanum á Akureyri og síðan í lagadeild Háskóla Íslands. Við störfuðum saman um árabil hjá Reykjavíkurborg þar sem Björn stýrði fjármálum borgar- innar í borgarstjóratíð Egils Skúla Ingibergssonar og Davíðs Oddssonar. Á þessum tíma gegndi Björn formennsku hjá Sambandi íslenskra sveitarfé- laga. Eftir langan starfsferil að sveitarstjórnarmálum gegndi hann störfum í þágu ríkisins, lengst af sem ráðuneytisstjóri. Síðasta verkefni sem við Björn unnum saman var ritun Borgar- fulltrúatals sem kom út árið 2010, en hann átti drjúgan þátt í al- menna hluta þeirrar bókar um svipmyndir úr sögu Reykjavíkur- borgar. Samskipti okkar urðu enn nán- ari á síðari árum og vorum við m.a. nágrannar í Grímsnesinu þar sem við áttum sumarbústað skammt hvort frá öðru. Genginn er góður drengur. Um leið og við minnumst ógleymanlegra stunda sem við áttum með Birni, Iðunni og fjöl- skyldunni, sendum við innilegar samúðarkveðjur. Ásgerður Ragnarsdóttir og Gunnar B. Eydal.  Fleiri minningargreinar um Björn Friðfinnsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2012 ✝ Ástkær eiginkona, mamma, tengdamamma, amma og langamma, ELSA HARALDSDÓTTIR, Hjallabrekku 24, Kópavogi, lést föstudaginn 6. júlí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 20. júlí kl. 13.00. Eggert Konráðsson, Erna Eggertsdóttir, Einar Þór Gíslason, Haraldur Eggertsson, Elsa Þóra Eggertsdóttir, Trausti Þór Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur faðir okkar og tengdafaðir, sambýlismaður minn, afi og langafi, HRAFN EIÐSSON frá Þúfnavöllum, er látinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Birgir Hrafnsson, Oddný Indíana Jónsdóttir, Lára Hrafnsdóttir, Eiður Örn Hrafnsson, Hrönn Sigurðardóttir, Sólveig Hrafnsdóttir, Kristján Jósteinsson, Hreiðar Þór Hrafnsson, Tatiana Kantorovich, Björgvin Ingvi Hrafnsson, Ann-Erry Hrafnsson, Bjarki Ásgeir Hrafnsson, Elisabeth Kløvtveit, Guðríður Ármannsdóttir, Hreinn Hrafnsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Yndisleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐNÝ SÆBJÖRG JÓNSDÓTTIR, Skerðingsstöðum, Reykhólasveit, lést fimmtudaginn 12. júlí. Útförin fer fram frá Reykhólakirkju laugardaginn 21. júlí kl. 13.00. Finnur Kristjánsson, Jón Árni Sigurðsson, Steinunn Rasmus, Kristján Finnsson, Margrét Ásdís Bjarnadóttir, Karlotta Jóna Finnsdóttir, Ásgeir Þór Árnason, Agnes Finnsdóttir, Pálmi Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JENS JÓNSSON málarameistari, Safamýri 95, Reykjavík, lést þriðjudaginn 10. júlí á Landspítalanum, Fossvogi. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Margrét Óskarsdóttir, Sigurgeir Már Jensson, Helga Þorbergsdóttir, Garðar Þór Jensson, Þórdís Lilja Jensdóttir, Gísli Gunnlaugsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langafi, SIGFÚS SIGURÐUR KRISTJÁNSSON, fyrrv. yfirtollvörður á Keflavíkurflugvelli, Garðavegi 12, Keflavík, lést mánudaginn 9. júlí. Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 20. júlí kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á samtök um alzheimer, bankanr. 0327-26-004302. Jónína Kristjánsdóttir, Hilmar Bragi Jónsson, Elín Káradóttir, Magnús Brimar Jóhannsson, Sigurlína Magnúsdóttir, Hanna Rannveig Sigfúsdóttir, Ágúst Pétursson, Drífa Jóna Sigfúsdóttir, Óskar Karlsson, Sjöfn Eydís Sigfúsdóttir, Jóhann Ólafur Hauksson, Snorri Már Sigfússon, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.