Morgunblaðið - 19.07.2012, Síða 26

Morgunblaðið - 19.07.2012, Síða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2012 ✝ Kristjana MillaThorsteinsson, viðskiptafræð- ingur, fæddist í Reykjavík 26. maí 1926. Hún lést á Hrafnistu í Hafn- arfirði 12. júlí sl. Foreldrar Krist- jönu Millu voru Geir Thor- steinsson, f. 1890, d. 1967, útgerð- armaður í Reykjavík, og k.h. Sigríður Hafstein Thor- steinsson, f. 1896, d. 1983, hús- móðir. Systkini Kristjönu Millu eru Þorsteinn f. 1919, Hannes Þórður f. 1921, Ragnar f. 1925, Ragnheiður Guðrún f. 1932 og hálfbróðir samfeðra, var Viðar Þórir f. 1914. Þau eru öll látin. Eiginmaður Kristjönu Millu var Alfreð Elíasson, einn stofnenda Loftleiða og fyrrver- andi forstjóri Loftleiða og síð- ar Flugleiða. Hann lést árið 1988. Börn Kristjönu Millu og Alfreðs: Geir Alfreð f. 7.9. 1947, d. 11.1. 1950; Áslaug Sigríður f. 1950, eiginmaður Ólafur Örn Ólafsson f. 1953, börn þeirra eru: a. Geir Odd- ur, f. 1979, eiginkona Erla Sig- ríður Skarphéðinsdóttir, dætur þeirra eru Kristín Lilja og Margrét Helga. b. Gylfi f. 1983, sambýliskona Tinna Ólafsdóttir, c. Kristín f. 1986, sambýlismaður Arnar Pálma- son, sonur þeirra er Ólafur Ernir. Haukur f. 1951, eig- inkona Anna Lísa Björnsdóttir f. 1953, börn þeirra eru: a. Al- grímssonar a. Stefanía Ástrós f. 1992, sonur Geirþrúðar og Árna Jónssonar er b. Jökull Alfreð f. 2002. Elías Örn f. 1967. Kristjana Milla lauk verslunarprófi frá Versl- unarskóla Íslands árið 1943. Hún stundaði háskólanám í hagfræði við Minneapolis- háskóla í Minnesota og Naz- areth College í Rochester í Bandaríkjunum. Milla lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum við Hamrahlíð árið 1975 og útskrifaðist sem við- skiptafræðingur frá Háskóla Íslands árið 1979. Milla vann við skrif- stofustörf hjá Búnaðarbanka Íslands og Eimskipafélagi Ís- lands. Síðar var hún fram- kvæmdastjóri Hárgreiðslu- meistarafélags Íslands. Hún sat í varastjórn Versl- unarmannafélags Reykjavíkur, í stjórn Parkinsonsamtakanna á Íslandi. Hún var einn af stofnendum UNIFEM á Íslandi og síðar heiðursfélagi þess og fulltrúi félagsins hjá Mannrétt- indaskrifstofu Íslands í fjögur ár. Hún var fyrst kvenna til að taka sæti í stjórn Flugleiða og sat þar á árunum 1981-1993. Hún var varaþingmaður Sjálf- stæðisflokksins í Reykjanes- kjördæmi 1983-1987. Hún kom að stofnun Félags eldri borg- ara í Garðabæ og var fyrsti formaður þess. Hún stundaði sjálfboðaliðastörf hjá Rauða krossi Íslands á árunum 1989- 2010. Kristjana Milla var fyrsta fjallkona Íslands við lýðveld- isstofnunina á Þingvöllum árið 1944. Útför Kristjönu Millu verður gerð í dag, fimmtudag, 19. júlí 2012 frá Fossvogskirkju kl. 15. freð f. 1974, b. Björn Arnar f. 1977, sambýlis- kona Kristín Björg Viggósdóttir, dótt- ir þeirra er Góa, c. Jóhanna Hildur f. 1981, sambýlis- maður Kristján B. Sigurbjörnsson, börn þeirra eru Brynjar Björn og Klara Lísa, dóttir Kristjáns er Aníta Ósk. d. Hannes Páll f. 26.5. 1990, d. 30.5. 1990, e. Jenný Hrund f. 1991. Ragnheiður f. 1955, börn hennar og Snorra G. Bogason- ar eru: a. Kristjana Milla f. 1978, sambýlismaður Guð- mundur Gunnarsson, dóttir þeirra er Lóa Katrín, sonur Guðmundar er Gunnar Sölvi, b. Bergsveinn f. 1980, sam- býliskona Herborg Eiríks- dóttir, börn þeirra eru Ragn- heiður Milla og Magnús, dóttir Ragnheiðar og Felix Valssonar er c. Áslaug f. 1988, sambýlis- maður Snævar Gestsson. Katr- ín Guðný f. 1957, sonur hennar og Þorvarðar H. Jónssonar er a. Dagfinnur Helgi f. 1980, sambýliskona Kristrún Marta Jónsdóttir, dóttir þeirra er Angela Ýr, seinni maður Katr- ínar Guðnýjar er Árni Snæ- björnsson f. 1955, börn þeirra eru: b. Áslaug Kristjana f. 1989, sambýlismaður Borgar Jónsson, dóttir Borgars er Laufey Líf og c. Magnús Snær f. 1993. Geirþrúður f. 1959, dóttir hennar og Benónýs Ás- Elskuleg mamma mín er fall- in frá, hún hefur háð sína loka- baráttu í þessu lífi. Síðustu ár hafa verið henni erfið þó sér- staklega síðasta árið á Hrafn- istu í Hafnarfirði þar sem hún lést á fallegasta degi sumarsins. Þrátt fyrir lélega heilsu og van- líðan þá hélt hún reisn sinni og glæsimennsku til æviloka. Mamma var mikil baráttu- kona og barðist fyrir mönnum og málefnum og ekkert var henni óviðkomandi. Hún barðist fyrir Loftleiðum, ævistarfi þeirra pabba og mömmu. Hún studdi pabba alla tíð og sinnti honum af einstakri alúð í veik- indum hans. Hún helgaði líf sitt því að halda nafni hans á lofti og vekja athygli á afrekum hans. Aldrei talaði hún um af- rek sín eða sinn þátt í þessu merkilega Lofleiðaævintýri eða þeim verkefnum sem hún var að sinna hverju sinni. Mamma var mikil fjölskyldu- kona og bar ávallt hag fjöl- skyldunnar fyrir brjósti og allt- af var hægt að leita til hennar með bæði stór og smá mál sem hún leysti af kostgæfni. Hún kom að stofnun margra félaga- samtaka og lagði krafta sína í þau öll. Mamma var heiðarleg, hún var mikill frumkvöðull, mannréttinda- og kvenréttinda- kona og hafði ríka réttlætis- kennd sem engum duldist. Mamma var félagsvera en að sama skapi mikill einfari. Hún framkvæmdi það sem hún ætl- aði sér, lét ekkert aftra sér og hún var engum háð. Hún tók stúdentspróf og háskólapróf á fullorðinsárum. Hún ferðaðist innanlands og um allan heim og kynnti sér sögu ólíkra þjóða með lestri fræðirita og ferðalög- um sínum. Hún hugsaði alltaf vel um heilsuna og stundaði íþróttir alla tíð. Hún var óþreyt- andi við að fara með okkur börnin og síðar barnabörnin í sund og á skíði og kynna fyrir okkur öllum heilsusamlegt líf- erni. Mamma hefur verið mér mik- il fyrirmynd í lífinu, hún kenndi mér að framkvæma það sem mig langaði til að gera. Með verkum sínum hefur hún kennt mér að það er flest hægt ef maður ætlar sér það og viljinn er fyrir hendi. Alltaf studdi hún mig í því sem ég tók mér fyrir hendur og lagði áherslu á að ég gerði það sem mér þótti skemmtilegt hverju sinni. Und- antekning var þó á því þegar hún sá til þess að ég kláraði stúdentsprófið eftir mikil harmakvein, en hún vissi að það myndi koma sér vel síðar sem auðvitað reyndist rétt. Annars var hún mamma ekki að blanda sér of mikið í mín mál, en ég vissi að hún var alltaf til staðar fyrir mig og mína þegar á þurfti að halda. Einhverjum hefði þótt þetta afskiptaleysi en þetta var hennar aðferð og mér þótti hún notaleg og góð og við áttum gott og traust mæðgnasam- band. Ég segi eins og Milla frænka mín, nafna hennar, ef ég hefði bara brotabrot af hug- rekki mömmu og dugnaði þá væri ég í góðum málum. Farðu í friði elsku mamma mín. Hafðu þökk fyrir allt og allt, þú varst yndisleg mamma, tengdamamma, amma og langamma. Þín dóttir, Katrín. Elsku mamma er búin að kveðja okkur og jafnvel þó að við vissum hvert stefndi þá var þetta samt svo óvænt og svo erfitt. Mamma hefur verið mér mik- il fyrirmynd í lífinu. Hún var á margan hátt frumkvöðull en umfram allt þá var hún kjark- mikill, dugleg og hlý kona. Hún ólst upp í Reykjavík og stund- aði nám við Verslunarskóla Ís- lands en fór síðan til Bandaríkj- anna þar sem að hún lagði stund á hagfræði. Eftir að hún og pabbi giftust þá helgaði hún sig heimilinu en stóð samt ávallt við hlið pabba og studdi hann með ráðum og dáðum við uppbyggingu Loft- leiða. Það var svo seinna að hún fór í menntaskóla og útskrif- aðist með þeim fyrstu sem stúd- ent úr öldungadeild MH. Það var ekki algengt á þeim tíma að fólk færi í nám á miðjum aldri, en mamma kláraði stúdents- prófið á þremur árum samhliða því að reka stórt heimili. Síðan fór hún í HÍ og kláraði við- skiptafræði. Hún las mjög mikið tímarit og blöð, s.s. Times, Newsweek, National Geograp- hic o.fl. enda var hún eins og al- fræðiorðabók, hreinn hafsjór af fróðleik. Það kom sér oft vel fyrir okkur krakkana þegar átti að gera ritgerð í skólanum. Við höfðum ekkert internet til að fletta í, en þá var alltaf hægt að spyrja mömmu og ef hún vissi ekki svarið þá vissi hún hvar átti að leita að því. Svo skipti engu máli hvort að ritgerðin átti að vera á íslensku, ensku, dönsku eða frönsku, mamma gat alltaf lesið yfir og leiðrétt. Mamma var mjög fróðleiks- fús, enda mjög vel gefin. Hún ferðaðist mikið, til að skoða og fræðast um sérhvert land og þjóð. Mamma hugsaði alltaf mjög vel um heilsuna, stundaði sund og fór í líkamsrækt frá því að ég man eftir mér. Það voru eng- ar líkamsræktarstöðvar á þeim tíma, en mamma fór í Júdódeild Ármanns í leikfimi. Hún gætti einnig vel að mataræðinu og lagði okkur krökkunum línurn- ar með hollustu og heilbrigt líf- erni. Svo prjónaði hún, saumaði, tók slátur og ræktaði eigið grænmeti. Hún var náttúruvæn, vildi endurvinna allt sem hægt var og helst velja bara íslenskt. Mamma var fordómalaus, heiðarleg og mikil jafnréttis- kona. Hún var hjartahlý og vildi alltaf hjálpa þar sem þörf var á. Þetta lýsti sér vel í mörgum fé- lagsstörfum sem að hún tók þátt í, s.s. UNIFEM, Rauða krossinum og Parkinson sam- tökunum. En þótt mamma væri virk í félagsstörfum þá vildi hún fá að vera út af fyrir sig og hleypti fólki ekki svo auðveld- lega að sér. Hún missti ung fyrsta barnið sitt og eins og sagt er þá bar hún harm sinn í hljóði. Hún elskaði fjölskylduna sína og barnabörnin voru henni sem sólargeislar sem fengu óspart að njóta hlýju hennar og umhyggju. Mamma var sterk og einbeitt kona, sat í fjölda stjórna fé- lagasamtaka og hlutafélaga. Hún vissi hvað hún vildi, vann ötullega að markmiði sínu og þó að hún virtist eiga við ofurefli að etja, þá hélt hún óttalaus áfram. Það sýndi hún á æviferli sínum og einnig í veikindum sínum þar til yfir lauk. Ég kveð mömmu með sökn- uði, þegar ég lít yfir farinn veg þá held ég bara að hún hafi ver- ið ofurkona, sem ég er mjög stolt af, en jafnframt var hún yndislegasta mamma í heimi. Geirþrúður Alfreðsdóttir. Elsku amma Milla okkar, nú hefur þú kvatt þennan heim og ert komin til afa og Geirs Al- freðs. Þú varst yndisleg amma og veittir okkur mikla ást og hlýju og kenndir okkur að allt sé hægt ef viljinn er fyrir hendi, enda varst þú mikil baráttu- kona. Þú sinntir alltaf þínum áhugamálum og lést ekkert stöðva þig, þú ferðaðist um heiminn, stundaðir líkamsrækt og sinntir sjálfboðaliðastörfum. Síðustu árin voru þér erfið þegar veikindin dundu yfir enda hafðir þú alltaf verið svo hraust og heilbrigð. Þrátt fyrir veik- indin hélstu þínu striki og glæsileikinn skein af þér fram á þinn síðasta dag. Þegar einhver nákominn kveður er ómetanlegt að eiga góðar minningar og það hefur þú svo sannarlega skilið eftir þig fyrir okkur. Þú ert okkar helsta fyrirmynd og kenndir okkur svo margt fallegt um lífið. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Hvíldu í friði elsku amma. Þín barnabörn, Dagfinnur Helgi, Áslaug Kristjana og Magnús Snær. Fallin er frá kona sem kom nokkuð við sögu á miklum um- brotatímum í íslensku samfélagi sem stjórnarmaður hjá Flug- leiðum, varaþingmaður og bar- áttukona fyrir bættum kjörum kvenna. Amma Milla þurfti að berjast fyrir hverri tommu í heimi þar sem skoðanir hennar voru oft óvelkomnar innan um ríkjandi valdablokkir og karla- veldi. Með góðan skammt af þrjósku, umbúðalausar skoðanir og mikla málafylgju fékk hún miklu áorkað, bæði í samfélag- inu en einnig í einkalífinu, þar sem hún reyndist vel þeim sem til hennar leituðu. Það verður þó seint sagt að hún hafi verið þessi hefðbundna pönnukökuamma sem snérist í kringum gesti með því að skella í pönnukökur, hita kaffi og af- saka samtíninginn. En í staðinn fyrir umstangið fengum við gestirnir að njóta óskiptrar at- hygli hennar. Þar fór skemmti- leg kona sem var vel lesin í sögu og málefnum líðandi stundar jafnt innan lands sem utan. Þó fjölskyldan öll hafi leitað mikið til hennar naut Geir Odd- ur þó mestrar samfylgdar við ömmu. Í rúm sex ár, meðan á námi í framhaldsskóla stóð og framan af háskólanámi, bjó hann í Haukanesinu við góðan aðbúnað. Þar lifðu fulltrúar tvennra tíma hlið við hlið í sátt og samlyndi, og sama hvað gekk á var alltaf hægt að stóla á kvöldmat á slaginu sjö. Við kveðjum því með sökn- uði, bæði í senn, ljúfa ömmu og mikinn kvenskörung. Geir Oddur, Gylfi og Kristín. Ég var kominn á fullorðinsár þegar ég áttaði mig á því hvað ég átti merkilega ömmu, því að áræðni hennar og elja var sannarlega ekki allra. Eftir að hafa alið upp sex börn greip hún langþráð tækifæri til að menntast og lauk ekki aðeins stúdentsprófi heldur líka há- skólaprófi í viðskiptafræði. Það var óvenjulegt um konur af hennar kynslóð. Með árunum áttaði ég mig líka á því hvað hún hafði sterkar og yfirveg- aðar skoðanir á flestu því sem varðar mannlífið og einlæga hvöt til að standa með hverjum þeim málstað sem hún trúði á. Þannig varð hún mér fyrir- mynd sem ég fæ seint fullþakk- að. Seint gleymi ég kvöldstund hjá Millu ömmu í janúar 1999, stund sem átti eftir að móta líf mitt til framtíðar. Ég stundaði nám við Háskóla Íslands, hreyfing samkynhneigðra var þá óðum að eflast og þar kom að dálítill hópur ákvað að stofna Félag samkynhneigðra stúdenta, FSS, sem nú heitir Q, félag hinsegin stúdenta. For- eldrar mínir höfðu sínar efa- semdir um ágæti þess að ég skyldi fallast á að taka að mér hlutverk formanns í félaginu og eins og svo oft ákváðum við að heimsækja Millu ömmu og leita ráða hjá henni. Báðir aðilar vonuðust eftir stuðningi við sinn málstað. Þetta kvöld varð mér opinberun. Vissulega skildi hún sjónarmið beggja aðila, en samt þótti mér hún stöðugt tala mínu máli, og nú sá ég best hve veraldarvön og lífsreynd hún var. Hún gaf foreldrum mínum góðlátlega í skyn að þau væru of íhaldssöm í hugsun og skyldu hugsa sinn gang. Um leið sá ég það sem að baki lá, mannréttindabarátta kvenna var eitt af hennar hjartans mál- um og af innsæi sínu tengdi hún strax þetta tvennt saman. Þennan vetur varð mannrétt- indabarátta samkynhneigðra hluti af lífi mínu og hefur aldrei yfirgefið mig síðan, og eftir kvöldið góða í Haukanesinu hafði amma alla tíð brennandi áhuga á að fræðast af mér um baráttuna sem ég blandaði mér í, svo keimlík sem henni þótti hún vera baráttu kvenna. Mörg hin síðustu ár bjó amma mín ein í stóru húsi eftir lát afa míns. Árið 2008 bjugg- um við þar saman í eitt ár og þá kynntist ég henni betur en áður. Alltaf eldaði amma heitar máltíðir á kvöldin þótt hún sæti ein til borðs. Við áttum margar góðar kvöldstundir saman fyrir framan arininn og sjónvarpið þar sem við ræddum allt milli himins og jarðar og eins og fyrr var gott að leita ráða hjá henni, svo skynsamleg sem hún var. Eitt af áhugamálum ömmu, við- skiptafræðingsins, var að safna blaðaúrklippum og fréttum um stærstu viðskiptablokkir at- hafnalífsins. Fátt gott hafði hún að segja um yfirtökur fyrir- tækja og uppgang auðjöfra á árunum fyrir efnahagshrunið. Var hún harðorð í garð þeirra sem höfðu sig þar mest í frammi og áttu síðar eftir að leiða fyrirtæki í þrot. Ég man að hún kallaði þá suma spjátr- unga sem kynnu það eitt að plata fólk upp úr skónum. Ég maldaði í móinn, reyndi að rétt- læta gjörðir manna í viðskipta- lífinu, en svo kom á daginn að Milla hafði rétt fyrir sér eins og svo oft áður. Hugrökk, forvitin, fordóma- laus og ráðholl, þannig lifir hún í huga mér, og slíkrar konu er gott að minnast. Alfreð Hauksson. Nokkrar konur í æsku minni eru mér ógleymanlegar og hef- ur mér alltaf þótt ákaflega vænt um. Ein er Milla. Milla og Alfreð, ásamt for- eldrum mínum og fleira góðu fólki, voru frumbyggjar á Arn- arnesi. Við Geia, yngsta dóttir Millu og Alfreðs, sórumst í fóstbræðralag þegar við vorum 5 ára gamlar og nærri má geta að við vorum heimagangar hvor hjá annarri. Það var yndislegt að koma á heimili Millu og Alfreðs því þar ríkti glaðværð, gjafmildi og veglyndi. Heimilið var stórt og með glæsibrag þar sem Milla stjórnaði með jafnaðargeði, já- kvæðni og góðu skipulagi. Milla var glæsileg og tíguleg kona sem geislaði af dugnaði og góðum gáfum. Hún var mikill jafnréttissinni, umburðarlynd og heiðarleg en mikið og óeig- ingjarnt starf liggur eftir hana í hinum ýmsum félaga- og góð- gerðasamtökum. Milla var ekki allra því hún hleypti ekki öllum nálægt sér en ég varð þess þó aðnjótandi og fékk ég að kynnast um- hyggju hennar og hlýju. Minningarnar eru margar; sundferðir, sumarbústaðarferð- ir norður í Hóla í Staðardal, skutl í fimleika en ekki síst samtöl þar sem Milla hlustaði á barnið og unglinginn af virð- ingu og góðvilja. Ég kveð Millu með hlýju. Takk fyrir allt. Petrína Sæunn Úlfarsdóttir. Milla var stór kona í öllum merkingum þess orðs. Hún var stórglæsileg, svo mjög að átján ára var hún valin til að vera fjallkonan við lýðveldisstofn- unina 1944, en sökum rigningar kom hún aldrei fram sem slík. Hún hafði líka stórt hjarta, hugsaði vel um börn sín og barnabörn og rak alla tíð stórt heimili. Hana munaði ekkert um að hafa mörg barnabörn í pössun á sama tíma auk eins eða tveggja hunda. Ég kynntist henni um það leyti sem hún var að útskrifast úr öldungadeild MH og veikindi Alfreðs voru farin að ágerast. Það var þó gaman að sjá hvern- ig hún skipulagði annasaman hversdaginn; tók frá tíma til að fara í sund, læra, kaupa inn fyrir heimilið og elda og fara síðan á málfreyjufund eða hlusta á Jón Bö þylja upp úr Njálu. Á þessum tíma var alltaf sunnudagskaffi hjá Sigríði móð- ur hennar, drekkhlaðið af kræsingum. Þar hittust fjöl- skyldur systkina Millu. Oft var þröng á þingi og geysilega gaman að ræða um pólitík, Sjálfstæðisflokkinn (þar voru bæði Geirsmenn og Gunnars- menn) svo ekki sé minnst á dönsku blöðin og alla „slankek- úrana“ sem þau innihéldu. Milla var geysilega fróð og vel lesin um málefni líðandi stundar, hún var talandi og skrifandi á mörg tungumál, og var gaman að leita til hennar og ræða um heima og geima. Hún hafði unun af ferðalögum og þá helst til framandi og fjar- lægra staða í heiminum. Milla hafði ríka réttlætis- kennd og þoldi illa órétt. Það kom vel fram í skiptum í sam- einingum Loftleiða og Flug- félags Íslands. Þá var knúið fram mat á eignum félaganna á forsendum sem Millu og fleir- um þóttu óréttlátar. Milla barð- ist hart fyrir því að fá hlut Loftleiða réttan í þeim viðskipt- um, þó afraksturinn hafi ekki verið henni að skapi. Þá tók hún því afar illa hvernig ekkju- lífeyrir hennar og annarra þurrkaðist út í viðskiptafléttum FL Group. Milla var mikil hetja og er söknuðurinn mikill. Samúðarkveðjur til allra. Ólafur Örn. Kristjana Milla Thorsteinsson  Fleiri minningargreinar um Kristjönu Millu Thor- steinsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.