Morgunblaðið - 19.07.2012, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 19.07.2012, Qupperneq 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2012 Lára Hilmarsdóttir larah@mbl.is Hljómsveitin Sometime, sem Daní- el Þorsteinsson, the Danni og Rósa Birgitta Ísfeld Sigríð- ardóttir, eða Diva de la Rosa skipa ásamt tónlistarmönnunum DJ Mo- onshine, Noem og Modion, gefur frá sér nýju plötuna „Music from the Motion Picture Acid Make- Out“. Glíma að ljúka við plötuna „Vinkona mín sem býr hérna úti heitir Shira Kela, og einn daginn datt mér í hug að nafnið hennar gæti þýtt „acid makeout“ á ís- lensku,“ segir Danni en hann er búsettur í Barcelona þar sem hann stundar nám í grafískri hönnun. „Mér fannst þetta passa svo vel við plötuna því það var þvílík glíma að klára plötuna og ég var farinn að spá í að hætta við þetta allt saman. En þegar við vorum að nálgast það að leggja lokahönd á plötuna vorum við orðin ótrúlega ánægð með útkomuna. Það fólst ákveðið jafnvægi í ferlinu, slæmt og gott. „Acid“ eða sýra er eitt- hvað slæmt fyrir mér en „make- out“ eða að kela og sættast er gott,“ segir Danni. Stuttmynd í bígerð Tónlistin á hljómplötunni er samin í tengslum við stuttmynd sem Danni hefur unnið að seinasta eina og hálfa árið, en fjöldi fólks hefur komið að gerð myndarinnar. Þá stuttmynd segir Danni vera væntanlega í vor. Ekki var auðvelt að koma orðum að söguþræði myndarinnar en hún fjallar um einskonar draum. „Ég er með hug- myndina að myndinni í höfðinu þó að hún sé ekki tilbúin. Flest atrið- in er ég nú þegar búinn að taka en kannski vantar eitt eða tvö upp á. Það verður bara að koma í ljós,“ segir Danni. Hann segist ekki vita hvar eða hvenær myndin verði sýnd. „Þetta er fyrsta tilraun mín í kvikmyndagerð en ég efast ekki um að tengslanetið mitt hérna í Barcelona komi að góðum notum við að koma myndinni á framfæri.“ Sometime hefur skrifað upp á dreifingarsamning fyrir nýju plöt- una þeirra við bandarískt útgáfu- fyrir tæki. „Þannig að í vetur för- um við að öllum líkindum þangað til þess að kynna plötuna betur og í tónleikahald,“ segir Danni. Afslappað stuð Tónlistina af plötu Danna og Rósu í Sometime sem nefnist „Acid Make-Out“ má heyra á tónlistarstöðinni Ibiza Global Radio sem „spil- ar aðallega rólegt popp, sem passar vel því við erum frekar róleg“. Danni. Sýra, kelerí og draumar Umslagið „Alveg rosalegt, í raun listaverk út af fyrir sig.“  Ný plata frá Sometime og stuttmynd frá Danna  „Var farinn að spá í að hætta við þetta“ Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is Í kvöld verður sýnt safn tilraunakenndra kvikmynda frá Bandaríkjunum í Bíó Para- dís. Sýningin, sem ber nafnið Einkasvæði, samanstendur af stuttum verkum kvik- myndagerðarmanna frá Boston. Mynd- irnar verða sýndar í Reykjavík, Helsinki, Pétursborg og Stokkhólmi frá 18. júlí til 19. ágúst. Vettvangur kvikmyndalistar „Við erum eini vettvangurinn á Íslandi fyrir kvikmyndalist þar sem hægt er að sýna eitthvað öðruvísi. Kvikmyndagerð- armenn sem vilja sína stuttmyndir eða heimildamyndir og jafnvel myndlistarmenn sem hafa verið að vinna með kvikmynda- verk hafa fengið að sýna hjá okkur. Við erum í rauninni bara opin fyrir því að nota salina og svæðið okkar undir kvikmynda- list í sem víðustum skilningi,“ segir Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis kvikmyndanna. Viðkomandi verkefni er hugarfóstur Mariyu Nikiforova sem jafnframt er sýn- ingarstjóri dagskrárinnar. Hugmyndina fékk hún er hún ferðaðist frá bækistöðvum sínum í Boston til heimaslóða sinna í Pét- ursborg. Myndirnar snúast um persónu- legt rými og innri íhugun en listamenn- irnir eru að túlka þá erfiðleika sem fylgja því að flytja á nýjar slóðir þar sem tungu- mál og menning er frábrugðin því sem þeir hafa vanist. Þekkt nöfn og fágætar filmur Nokkur þekkt nöfn eru á meðal þeirra sem eiga kvikmynd á sýningunni og má þar nefna Laidu Lertxundi, Jodie Mack og Saul Levine en verk þessara listamanna hafa verið sýnd víðsvegar um Bandaríkin og Evrópu. Auk þeirra eru nokkrir nýliðar sem eru lítt þekktir fyrir utan Norður- Ameríku. Þess má einnig geta að stór hluti þeirra kvikmynda sem verða sýndar eru teknar upp á 16 mm filmu en slíkt er fáséð í dag. Tilraunakvikmyndagerðarmenn, einna helst í Boston, hafa þó nýtt sér tæknina til hins ýtrasta. „Þeir sem hafa verið að vinna með þess- ar 16 mm filmur tala um að það séu svo rosalega mikil litablæbrigði í henni og að hún sé svo rík af andstæðum. Það er al- gjör lúxus að fá að sjá kvikmyndir sem eru teknar með 16 mm filmu varpað upp á stórt bíótjald, það er bara nokkuð sem maður sér aldrei þessa dagana,“ segir Hrönn að lokum. Tilraunamyndir frá Boston Morgunblaðið/Golli Öðruvísi Í Bíó Paradís, Hverfisgötu 54, má iðulega finna kvikmyndir sem teljast fremur óhefðbundnar. Morgunblaðið/Ernir Skemmtun Sýningin hefst klukkan átta í kvöld.  Tækifæri til að berja fágætar filmur augum Eyjamenn í hljómsveitinni Dansi á rósum halda tónleika á skemmtistaðnum Spot á laug- ardagskvöldið kl. 10 undir yf- irskriftinni Upp- hitun fyrir Þjóðhátíð. Ásamt hljóm- sveitinni verða sjö aukahljóðfæra- leikarar á sviðinu og því má segja að um stórsveit sé að ræða. Ef- laust kannast þjóðhátíðargestir í Eyjum við hljómsveitina því hún hefur spilað nær samfleytt á Þjóðhátíð síðan 2000. Árið 2007 átti Dans á rósum lag Þjóðhátíðar, Stund með þér og í byrjun júlí gaf hljómsveitin út plötuna „Sól í dag“. Hitað upp fyrir Þjóðhátíð Stund með Dansi á rósum. Sage Sallone lést á heimili sínu nýlega, 36 ára að aldri, en hann var sonur leikarans Syl- vesters Stallone. Samkvæmt skýrslu lögregl- unnar í Los Angeles hafði Stallone yngri legið látinn í þrjá daga eða lengur á heimili sínu áður en hann fannst. Sylves- ter Stallone hefur nú ráðið einka- spæjarann P.I. Scott Ross til þess að rannsaka orsök andláts sonar síns. Ross sá einnig um að rann- saka meint barnaníð Michaels Jacksons og ofbeldismál Chris Browns og Rihönnu frá árinu 2009. Sage Stallone látinn Sage Stallone lést á heimili sínu, 36 ára gamall. CHANNING Tatum MATTHEW McConaughey            VINNAN Á KVÖLDIN HEFUR ALDREI VERIÐ JAFN SKEMMTILEG! SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI - SÝND Í 2D OG 3D                       VINSÆLASTA SÖGUPERSÓNA VERALDAR SNÝR AFTUR Á HVÍTA TJALDIÐ Í SUMARSTÓRMYND ÁRSINS! MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI“                Manni, Dýri og Lúlli eru mættir aftur í stærstu fjölskyldumynd sumarsins! MAGIC MIKE kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 2D MAGIC MIKE VIP kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 2D ICE AGE 4 ísl.Tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 3D ICE AGE 4 ensku.Tali kl. 8 - 10:10 3D ICE AGE 4 ísl.Tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 2D DREAMHOUSE kl. 8 - 10:10 2D CHERNOBYL DIARIES kl. 10:30 2D ROCK OF AGES kl. 8 2D MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 3D MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 2D SNOW WHITE kl. 10:30 2D UNDRALAND IBBA ísl.Tali kl. 1:30 2D ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL VIP 16 16 16 L L L L L L L 12 12 12 12 12 16 L L L 12 12 TED kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D MAGIC MIKE kl. 8 - 9 - 10:30 2D DREAMHOUSE kl. 8 - 10:10 2D ÍSÖLD 4 ÍSLTAL kl. 6 3D ÍSÖLD 4 ENSKTTAL kl. 7 2D MADAGASCAR 3 ÍSLTAL kl. 6 2D MAGIC MIKE kl. 8 - 10:20 2D MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 6 3D LOL kl. 6 2D DREAM HOUSE kl. 8 - 10:20 2D KRINGLUNNI 16 L L 12 12 12 MAGIC MIKE kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D DREAMHOUSE kl. 8 - 10:10 2D MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 5:50 3D MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 5:50 2D LOL kl. 8 2D ROCK OF AGES kl. 10:10 2D KEFLAVÍK 16 12 10 MAGIC MIKE kl. 8 2D THE AMAZING SPIDERMAN kl. 10:20 3D DREAMHOUSE kl. 8 - 10 2D TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.