Morgunblaðið - 23.07.2012, Side 1

Morgunblaðið - 23.07.2012, Side 1
M Á N U D A G U R 2 3. J Ú L Í 2 0 1 2  Stofnað 1913  170. tölublað  100. árgangur  Græddu á gulli á Grand Hótel í dag og á morgun frá kl. 11:00 til 19:00 Upplýsingar og tímapantanir, Sverrir s. 661 7000 sverrir@kaupumgull.is LONELY PLANET MÆLIR MEÐ GAMLA RIFI ÞÓRARINN SKÁLD OG ÞJÁLFARI Á SIGLUFIRÐI GUÐMUNDUR BÆTTI SIG UM TVO METRA Í SPJÓTKASTI ÓLYMPÍUMÓT FATLAÐRA 26 FIMMTI BESTI ÍÞRÓTTIRFISKISAGAN FLÝGUR 2 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Makrílsýni eru nú í DNA-greiningu hjá Matvæla- stofnun. Tilgangurinn er meðal annars að skera úr um það hvaðan sá markíll, sem er í íslenskri lög- sögu, er upprunninn. Niðurstaða greiningarinnar gæti haft mikil áhrif í makríldeilunni svonefndu. Því hefur verið haldið fram að makríllinn vestur af landinu sé af öðrum stofni en hinum samevrópska sem makríldeilan snýst um. Að mati Guðmundar Kristjánssonar útgerðarmanns þýðir það að Ís- lendingar þurfi ekki að semja um veiðar á makríl við önnur ríki. Að sögn Önnu Kristínar Daníelsdóttur, sviðs- stjóra hjá Matvælastofnun, er vinna þegar komin nokkuð á veg. „Við höfum fengið sýni frá Kanada, Íslandi, Færeyjum og Noregi. Makríllinn hefur ekki verið áður rannsakaður með þessum hætti en við erum nú langt komin í þeirri vinnu að greina erfðamörkin. Með því getum við fundið út hvort makríllinn vestan við landið er eitthvað ólíkur þeim sem er fyrir sunnan og austan,“ segir Anna Kristín. Á meðfylgjandi mynd má sjá tvo makríla, sem eru ólíkir í útliti en Anna Kristín segir það ekki endilega gefa til kynna að þeir séu af ólíkri stofn- einingu. ,,Fiskar geta breyst eftir umhverfinu sem er í kringum þá og þessir fiskar eru ekki endilega af ólíkum uppruna þótt þeir séu ólíkir í útliti.“ Makríll kominn í DNA-greiningu  Sýni komin til greiningar frá Kanada, Noregi og Færeyjum Makríll og makríll Sýni hafa verið send til DNA- greiningar til þess að greina uppruna makríls. Landsmót skáta var sett í blautu en hlýju veðri við Úlf- ljótsvatn í gærkvöldi. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, ávarpaði landsmótsgesti, og poppstjarna Ís- lands, Páll Óskar Hjálmtýsson, hélt viðstöddum heit- um. „Hér eru allir í fantastuði,“ sagði Gunnlaugur Bragi, upplýsingafulltrúi landsmótsins, í gærkvöldi en þá voru á þriðja þúsund manns mættir til leiks. Gunnlaugur sagðist ekki hafa stórar áhyggjur af veðrinu næstu daga. „Forsetinn lofaði okkur hérna í ávarpi áðan að það myndi fara batnandi þannig að það er spurning hvort við tökum ekki bara hans orð fyrir því,“ sagði hann. Ef ekki, þá væri það allt í lagi líka, þar sem vatnasafaríið og þrautabrautirnar væru mun skemmtilegri í bleytu. Morgunblaðið/Eggert Blautir en kátir skátar Loftþrýstingur á Stórhöfða í Vestmanna- eyjum mældist 972,8 hPa á kvikasilfurs- loftvog klukkan 21 í gærkvöldi. Hefur loft- þrýstingur aldrei mælst jafn lágur í júlí- mánuði. Sjálfvirkur mælir sýndi 972,4 hPa klukkan 22. Tölurnar eru óstaðfestar. Fyrra loftþrýstingsmet í júlí var sett í Stykkishólmi 18. júlí 1901, 974,1 hPa. Djúpa lægðin sem gekk yfir landið um helgina olli því að vindamet júlí- mánaðar var einnig slegið á Stór- höfða á laugardagskvöldið var. »12 Veðurmet í júlí á Stórhöfða  Lágur loftþrýst- ingur og vindhviður Veðurmet féllu í Vestmannaeyjum.  Hópur fólks kom saman og lagði niður rósir í minningarlundinum í Vatnsmýrinni í Reykjavík í gær- kvöldi til að minnast þess að ár væri liðið frá voðaverkunum í Ósló og Útey. Alls féllu 77 fyrir hendi Anders Behrings Breiviks 22. júlí 2011 og var fórnarlambanna minnst við minningarathafnir og minningar- guðsþjónustur í Noregi í gær. „Þetta var einlægt, gott og allir lögðu sig fram um að öllum liði vel,“ segir Guðrún Jóna Jónsdóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna, sem var viðstödd minningarathöfn í Útey í gær. Jens Stoltenberg, forsætisráð- herra Noregs, sagði í gærkvöldi að viðbrögð norsku þjóðarinnar hefðu orðið til þess að stuðla að auknu lýðræði og einlægni. »15 Ár liðið frá voðaverkunum í Ósló og Útey Minningarstund var haldin í minningar- lundinum í Vatnsmýrinni í gærkvöldi.  Verð á metani hækkaði sl. föstudag um 18 krónur rúmmetr- inn. Kostar hver rúmmetri 149 kr. nú en kostaði áð- ur 131 krónu. Verðið hækkaði einnig í vor. „Nýr samningur var gerður 20. júlí á milli N1 og Sorpu, sem selur okkur metanið. Verðið til okkar hækkaði talsvert í þessum samningi og þar af leiðandi hækkar út- söluverðið,“ segir Eggert Þór Kristófersson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs N1. »6 Verð á metani hækkar að nýju Tveir menn voru gripnir þegar þeir ætluðu að laumast um borð í Brúar- foss sem var á leið til Bandaríkjanna á fimmtudag. Mennirnir eru hluti af hópi hælis- leitenda sem reyna í sífellu að kom- ast um borð í skip á leið til Ameríku, að sögn upplýsingafulltrúa Eim- skips. Hann segir yfirvöld ekkert gera til þess að takast á við vanda- málið. Mikill kostnaður falli á fyr- irtækið vegna öryggisgæslu. Tveir laumufarþegar komust úr landi á síðasta ári, að sögn forstjóra Útlendingastofnunar. » 4 Reyndu að laumast í skip

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.