Morgunblaðið - 23.07.2012, Qupperneq 8
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vestmannaeyjar Slitastjórn Kaup-
þings hefur nú stefnt bænum.
Slitastjórn Kaupþings hefur stefnt
Vestmannaeyjabæ og krefst þess að
bærinn endurgreiði rúmlega einn
milljarð króna sem hann fékk
greiddan frá bankanum þann 8.
september 2008, rétt um mánuði
fyrir hrun.
Aðspurður inn á hvernig reikn-
ingi peningarnir hafi verið í bank-
anum segir Elliði Vignisson, bæj-
arstjóri Vestmannaeyja, að um hafi
verið að ræða peningamarkaðsinn-
lán en ekki peningamarkaðssjóð.
„Það er kannski spurning hvern-
ig maður skilgreinir hugtakið
„þessa peninga“. Við vorum á þess-
um tíma logandi hrædd og tókum
fé út hér og þar og lögðum inn ann-
ars staðar,“ segir Elliði, spurður að
því hvað bærinn hafi gert við féð
Stefna Vestmannaeyjabæ
sem hann fékk greitt frá Kaup-
þingi.
Að sögn Elliða verður málið tek-
ið fyrir af dómstólum í september
en hann segir sveitarfélagið ætla að
taka til varna. „Það er það sem
maður hefur áhyggjur af, svona
mál geta tekið langan tíma í dóms-
kerfinu enda hagsmunir miklir,“
segir Elliði. skulih@mbl.is
Bæjarstjóri segir málið verða tekið fyrir af dómstólum
í september Fengu greiddan milljarð mánuði fyrir hrun
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2012
Þar sem gæðagleraugu kosta minna
ReykjavíkuRveguR 22 • S. 565 5970 • SjonaRholl.iS
SJÓNARHÓLL
4 VERÐ Á
UMGJÖRÐUM
19.900
14.900
9.900
4.900
Nú geta ALLIR keypt sér gleraugu
MIKIÐ ÚRVAL
NÝRRA UMGJARÐA,
SAMA LÁGA VERÐIÐ
Vinstrivaktin gegn ESB er harð-orð í garð Steingríms J. Sig-
fússonar vegna löndunarbanns á
makrílveiðiskipið Erika. Í pistli á
vefnum segir:
Ákvörðun ráðuneytisins varstudd með tilvísun til laga frá
1998 þess efnis að erlend skip megi
ekki landa hér afla úr nytjastofnum
sem ekki hafi verið samið um. Engu
að síður er ljóst að í sömu laga-
grein, þ.e. 3. mgr. 3. gr. laga um
veiðar erlendra skipa í fiskveiði-
lögsögunni, er ráðherra veitt skýr
heimild til að víkja frá þessu banni
„þegar sérstaklega stendur á“. Það
átti augljóslega við í þessu tilviki,
þar eð Síldarvinnslan á Norðfirði á
þriðjung í útgerð Eriku og hefur
átt hlut í útgerðinni í áratug. Sam-
kvæmt skýrslum Fiskistofu hefur
Erika oft landað þar loðnu en einn-
ig síld og kolmunna og nú síðustu
árin makríl. En skipstjórinn á
Eriku neyddist til að sigla skipinu
til Fuglafjarðar í Færeyjum með
aflann.
Augljóst er að Steingrímur Sig-fússon, sjávarútvegsráðherra,
verður að útskýra hvers vegna
Erika var vísað frá að þessu sinni.
Voru það mistök? Eða tengdist það
makríldeilunni með einhverjum
hætti? Eins og kunnugt er hafa leið-
togar ESB haft í hótunum við Ís-
lendinga með svipuðum rökum, þ.e.
að við séum að veiða úr nytja-
stofnum sem við höfum ekki samið
við þá um.“
Getur verið að Steingrímur J. séeina ferðina enn að þóknast
Brusselvaldinu?
Engin önnur sennileg skýringhefur komið fram á þessu
óvenjulega löndunarbanni.
Löndunarbann
að hætti ESB
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 22.7., kl. 18.00
Reykjavík 14 rigning
Bolungarvík 9 alskýjað
Akureyri 15 skýjað
Kirkjubæjarkl. 13 rigning
Vestmannaeyjar 12 rigning
Nuuk 12 léttskýjað
Þórshöfn 13 þoka
Ósló 17 skýjað
Kaupmannahöfn 18 skýjað
Stokkhólmur 20 heiðskírt
Helsinki 17 léttskýjað
Lúxemborg 21 heiðskírt
Brussel 20 heiðskírt
Dublin 20 skýjað
Glasgow 17 skýjað
London 22 heiðskírt
París 22 heiðskírt
Amsterdam 21 léttskýjað
Hamborg 18 léttskýjað
Berlín 21 heiðskírt
Vín 17 skýjað
Moskva 18 heiðskírt
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 35 heiðskírt
Barcelona 26 léttskýjað
Mallorca 26 skýjað
Róm 27 léttskýjað
Aþena 32 heiðskírt
Winnipeg 27 léttskýjað
Montreal 27 léttskýjað
New York 26 heiðskírt
Chicago 28 skýjað
Orlando 31 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
23. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:08 23:01
ÍSAFJÖRÐUR 3:44 23:35
SIGLUFJÖRÐUR 3:26 23:19
DJÚPIVOGUR 3:31 22:38
Kaupþing
höfðaði tugi
riftunarmála á
síðustu vik-
unum fyrir 30.
júní 2012, en
þá rann út
frestur slit-
astjórnar
bankans til að
höfða slík mál.
Í svari, sem Feldís Lilja Ósk-
arsdóttir, héraðsdómslögmaður, í
slitastjórn Kaupþings, sendi við
fyrirspurn Morgunblaðsins, segir
að riftunarmálin taki til ýmissa
ráðstafana Kaupþings banka síð-
ustu mánuði fyrir hrun og séu
byggð á ákvæðum XX. kafla laga
um gjaldþrotaskipti o.fl. Mörg
málanna varði endurkaup á
skuldabréfum sem slitastjórn telji
að líta beri á sem endurgreiðslu
skulda fyrir gjalddaga en önnur
mál varði endurheimtu á öðrum
grundvelli.
„Vegna fyrirspurnar um stefnu
Kaupþings á hendur Vest-
mannaeyjabæ, sem hefur verið til
umfjöllunar í fjölmiðlum að und-
anförnu, þá tjáir slitastjórn
Kaupþings sig ekki um einstök
mál,“ segir í svari Feldísar Lilju.
skulih@mbl.is
Höfðuðu
tugi rift-
unarmála