Morgunblaðið - 23.07.2012, Side 13

Morgunblaðið - 23.07.2012, Side 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2012 Túnið við bæinn Eyrarkot í Kjós er án efa með litríkari túnum landsins um þessar mundir en á laugardag fór þar fram heimsmeistarakeppni Poulsen í heyrúlluskreytingum. Þetta var í sjötta sinn sem efnt var til keppninnar en hún var þáttur í dagskrá hátíðarinnar „Kátt í Kjós.“ Þátttaka var góð, að sögn að- standenda keppninnar, en alls voru um 90 heyrúllur skreyttar. Þetta er eilítið minni þátttaka en undanfarin ár og var það rakið til leiðinlegrar veðurspár en veðrið var með ágæt- um á keppnisdaginn. Það var Sigrún Linda Karlsdóttir sem var krýnd heimsmeistari í flokki 17 ára og eldri en hún hefur áður unnið titilinn, árið 2010. Í flokki 16 ára og yngri var það Íris Ösp Vilhjálmsdóttir sem fór með sigur af hólmi. Heyrúllurnar fagurskreyttu munu standa í túninu við Eyrarkot fram yfir verslunarmannahelgi og um að gera fyrir áhugafólk um hey- rúllulist að gera sér ferð í Kjósina og berja verkin augum. Heimsmeistarakeppni í heyrúlluskreytingum Morgunblaðið/Árni Sæberg Bústin býfluga Sigrún Linda Karlsdóttir sigraði í flokki 17 ára og eldri en hún vann einnig 2010. Lögreglan á höf- uðborgarsvæðinu þurfti að taka tvo karlmenn úr um- ferð aðfaranótt sunnudags vegna ölvunar, óspekta og fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu. Lögreglumenn höfðu beðið þá um að stilla sig og gefið þeim viðvörun. Í tilkynningu frá lögreglu segir, að það hafi dugað lítt og héldu menn- irnir óspektum sínum ótrauðir áfram. Þótti lögreglu þá sýnt að eina meðalið væri gisting í fanga- klefa. Mennirnir mega búast við kæru vegna brota á lögreglu- samþykkt. Um klukkan fimm í gærmorgun varð lögregla vitni að líkamsárás í miðborg Reykjavíkur. Þar réðst karlmaður á konu og veitti henni áverka, en þó ekki alvarlega. Mað- urinn var handtekinn og fluttur í fangageymslu. Fletti sig klæðum Þá barst lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu tilkynning um tíu- leytið í gærmorgun um mann sem hafði flett sig klæðum og berað kyn- færi sín fyrir framan konu sem var að ganga með hundinn sinn í aust- urborginni. Lögregla segir að ekki sé vitað hver var þarna á ferð. Handteknir fyrir ölvun og óspektir Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu hafði afskipti af sex ökumönnum milli kl. 21 og 4 í fyrrinótt sem höfðu ýmist ver- ið sviptir öku- réttindum eða ekki öðlast þau. Fimm þeirra reyndust vera undir áhrifum áfeng- is og/eða fíkniefna og einn var með hníf í fórum sínum. Allir voru þeir látnir lausir eftir skýrslutökur. Á stolnum bíl Þá hafði lögregla afskipti af öku- manni í miðborginni um kvöldmat- arleytið á laugardag en grunur lék á að hann væri undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Við nán- ari athugun lögreglu reyndist hann vera undir áhrifum fíkniefna. Þá hafði hann verið sviptur ökurétt- indum áður fyrir sömu iðju. Að auki reyndist bílnum hafa verið stolið úr austurborginni um helgina. Maðurinn var látinn laus eftir að tekið hafði verið úr honum blóðsýni. Upp úr miðnætti aðfaranótt sunnudags voru höfð afskipti af manni sem var að reykja kannabis en lögregla rann á lyktina. Viðkom- andi var einnig með kannabis í vas- anum og hníf. Lögregla losaði hann við þetta og má hann búast við sekt fyrir vörslu fíkniefna og vopna- burð. Óku í vímu og án ökuréttinda

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.