Morgunblaðið - 23.07.2012, Side 16

Morgunblaðið - 23.07.2012, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Nýjustuvendingarí atburða- rásinni vegna að- komu fjármála- ráðuneytisins að málum Sparisjóðsins í Keflavík hafa orðið til að rýra enn frekar trúverðugleika stjórnvalda. Var hann þó ekki mikill fyrir. Sitjandi fjármálaráðherra, Oddný Harðardóttir, hélt því fram í fréttum fyrir helgi að það hefði verið „samdóma álit manna“ að gera ekki ráð fyrir kostnaði ríkisins vegna spari- sjóðsins í fjáraukalögum í fyrra. Nú vill svo óheppilega til fyr- ir sitjandi fjármálaráðherra að Alþingi heldur utan um umræð- ur og skjöl vegna mála sem þar eru til afgreiðslu. Í nefndaráliti minnihlutans frá því í nóv- ember í fyrra segir: „Að mati minni hlutans er óhjákvæmi- legt að taka varúðarfærslu inn í fjáraukalögin að fjárhæð um 11 ma.kr.“ Þetta var rökstutt með því að þó að ágreiningur væri um hve mikið ríkið þyrfti að greiða með sparisjóðnum til Landsbankans þá væri ljóst að fjárhæðin yrði aldrei lægri en 11 milljarðar króna vegna eig- infjárstöðu sparisjóðsins við yf- irtöku Landsbankans. Áður hefur verið bent á ósannindi eða vanþekkingu Oddnýjar í þessu máli og enn vekur furðu hversu algerlega hún snýr staðreyndum á haus í umfjöllun um þetta klúðurmál ríkisstjórnarinnar. Svo er það annað mál og ekki síður umhugsunarvert hvers vegna þáver- andi fjármálaráð- herra, Steingrímur J. Sigfús- son, kaus að fela þennan fyrirsjáanlega kostnað í fjár- aukalögum. Var það óskhyggja og skortur á veruleikateng- ingu, eða er skýringin sú að hann vissi að hann var á leið úr fjármálaráðuneytinu og þess vegna væri betra að annar ráð- herra sæti uppi með klúðrið í heilu lagi en ekki bara að hluta? Ekki væri sanngjarnt að ætla Steingrími það að hafa ekki skilið að ríkissjóður mundi að lágmarki bera kostnað upp á 11 milljarða vegna þeirra mis- taka sem þarna höfðu verið gerð undir hans forystu. Eina skýringin á að færslan rataði ekki inn í fjáraukalögin hlýtur því að vera að hann vildi fegra sinn hlut á kostnað eftirmanns- ins. Þess vegna kemur á óvart hve viljugur eftirmaðurinn hef- ur verið að taka á sig klúðrið frá Steingrími og taka þátt í því með honum að réttlæta ekki að- eins hvernig hann sólundaði milljörðum í þessu máli heldur einnig að hann hafi falið það í bókhaldi ríkisins þar til hann var sjálfur sloppinn úr ráðu- neytinu. Ekki verður annað sagt en að Steingrímur hafi verið heppinn með eftirmann. Óheilindin í máli SpKef virðast engan endi ætla að taka} Eftirmaðurinn og ósannindin Sífellt fleiri sjáríkisstjórnina í réttu ljósi. Sig- urður Már Jónsson skrifaði: „Enn er verið að skrifa reikninga á hrunið, tæplega fjórum árum seinna. Hvenær ætlar núver- andi ríkisstjórn að hafa mann- dóm að taka ábyrgð á eigin fjárlögum?“ Orri Hauksson fram- kvæmdastjóri SI segir: „Efna- hagsráðherra telur að hagræn fagurfræði stjórnvalda sé mis- skilin list.Það sem skorti séu upplýstir áhorfendur. Sá mál- flutningur minnir óþægilega á boðskap íslensku bankanna ár- in fyrir hrun. Það eina sem hrjáði bankana á þeim tíma var ímyndarvandi, en staðreyndir máls voru allar þeim í vil.“ Og Björgvin Guðmundsson skrifar í Viðskiptablaðið að rík- isstjórnin hafi vanrækt umboð sitt til að takast á við ómælda erfiðleika, tapað tækifærum og sóað dýrmætum tíma þjóð- arinnar í vanhugsuð gæluverk- efni. Áherslumál ríkisstjórnarinnar steyti á skerjum, og hún sé svo illa þokkuð að minnsta tenging við hana geri út af við vonir og forskot vinsælla og flekklausra forsetaframbjóð- enda: „Ágreining í röðum vinstri grænna þekkja menn, en það er frekar ástæða til þess að huga að Samfylkingunni. Formaður flokksins hefur einangrað sig í forsætisráðuneytinu en undan því kvartar enginn. Ráðherr- arnir eru flestir í felum eins og kostur er, meðan almennir þingmenn vilja helst ekki sjást á mynd með Jóhönnu, hvað þá meir. Í þinginu heldur þing- flokksformaðurinn sig til hlés en einu málsvarar stjórn- arinnar þeim megin eru frið- flytjendur á borð við Ólínu Þor- varðardóttur og Mörð Árnason, sem kveðast á við hófsemdarfólkið Björn Val Gíslason og Álfheiði Ingvadótt- ur hinum megin.“ Augu manna eru að opnast}Friðsamir hófsemdarmenn STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Kim Jong-un, hinn ungileiðtogi Norður-Kóreu,hefur undanfarið hreins-að út æðstu yfirmönnum hers landsins og þannig styrkt póli- tíska stöðu sína í alræðisríkinu. Telja sérfræðingar í málefnum al- ræðisríkisins að þetta séu fyrstu skrefin í átt að breytingum í þessu einangraðasta landi heims. Í síðustu viku spurðist út að Kim hefði rekið hinn 69 ára gamla Ri Yong-ho, sem meðal annars hefur gegnt embætti æðsta yfirmanns hersins, og ýmsa bandamenn hans innan hersins. Opinbera ástæðan var sögð vera heilsubrestur Ri en talið er að Kim hafi raunverulega látið hann fara vegna andstöðu hans við hugmyndir leiðtogans um um- bætur. Ri hefur lengi verið einn helsti stuðningsmaður þeirrar stefnu sem Kim Jong-il kom á að hagsmunir hersins gengu framar öllum öðrum í landinu. Kim hefur einnig losað sig við aðra eldri embættismenn eins og U Dong-Chuk, yfirmann leynilögregl- unnar. Samkvæmt mati suður- kóreskra stjórnvalda hefur Kim rek- ið um tuttugu háttsetta embættis- menn eftir að hann tók við völdum. Taki yfir efnahagsmálin Það var ekki gott búið sem Kim yngri tók við af föður sínum. Stór hluti þjóðarinnar er vannærður og reiðir sig á neyðarmatvælaaðstoð frá erlendum ríkjum. Kim yngri er menntaður á Vesturlöndum og er talinn opnari fyrir umbætum sem gætu fært landið í átt til meira frjálsræðis en faðir hans var. Reuters-fréttastofan hefur það eftir heimildarmanni sínum sem hún segir standa nærri ráðamönnum í Pyongyang og Beijing að megin- ástæðan fyrir því að Ri hafi verið rekinn hafi verið sú að hann var andsnúinn því að ríkisstjórnin tæki við stjórn efnahagsmála af hernum sem er geysilega valdamikill í Norð- ur-Kóreu. Í stað hans réð Kim lítt þekktan herforingja sem yfirmann hersins. Sjálfur var Kim útnefndur marskálkur og æðsti herforingi landsins. Kim er sagður hafa þegar sett á laggirnar nefnd innan Verkamanna- flokksins, kommúnistaflokksins sem er alráður í landinu, sem leggjast á yfir umbætur í efnahagsmálum og landbúnaði. Leiðtoginn nýtur aðstoðar frænda síns, Jangs Song-thaek, sem margir telja að sé sá sem raunveru- lega fer með völdin í landinu um þessar mundir. Jang hefur lengi ver- ið talsmaður efnahagslegra umbóta og er það talin ástæða þess að hann fór um tíma í útlegð. Eftir að hann sneri aftur fékk hann þó það hlut- verk að vera syni Kim eldri innan handar á meðan hann var búinn und- ir að taka við völdum af föður sínum. Á brattann að sækja Mannréttindasamtök segja hins vegar að Kim Jong-un eigi erfiða daga í vændum hyggist hann hræra upp í stjórnkerfinu. Í skýrslu sam- takanna Mannréttindanefndar Norður-Kóreu í Washington sem birt var á fimmtudag segir að þrjár stórar öryggisstofnanir séu í landinu og vald þeirra skar- ist á köflum. Starfsmenn þeirra njósni því jafnvel hver um annan. Þessar stofnanir eru staðráðnar í að verja völd Kim-fjölskyldunnar fyrir öllum ógnunum og beita til þess öllum til- tækum meðulum, segir í skýrslunni. Kveikir vonir um breytingar í N-Kóreu AFP Hulda Þessi mynd birtist í ríkisfjölmiðlinum í byrjun júlí en á henni sést huldukonan með Kim á hljómleikum. Ekkert var minnst á hana í fréttum. Það vakti heimsathygli á dög- unum þegar ung og myndarleg kona sást við hlið Kim Jung-un við opinber tækifæri. Miklar vangaveltur hafa verið um hvort hann sé í raun giftur eða hvort konan sé ástkona hans eða jafnvel systir. Þykir þetta gott dæmi um hversu lítið er í raun vitað um leiðtogann unga. Sérfræðingar í málefnum landsins telja líklegt að konan sé eiginkona Kim þar sem óhugsandi væri að hann sæist opinberlega í fylgd ást- konu. Menn hafa leitt lík- um að því að verið sé að breyta ímynd leiðtogans en Kim yngri hefur virk- að frjálslegri en afi hans og faðir. Hann hef- ur jafnvel verið sýndur í ríkisfjöl- miðlinum í skemmtigörðum og á rokk- tónleikum. Huldukona í lífi Kim BREYTT ÍMYND Ri Young-ho S umar bækur eru eins og eðalvín – batna með árunum þegar hin al- mennu viðhorf versna og boð- skapur bókanna verður augljósari. Ein slík bók heitir Úr bæ í borg – Nokkrar endurminningar Knud Zimsens – fyrrverandi borgarstjóra – um þróun Reykja- víkur. Hún kom út fyrir 60 árum. Knud Zimen fæddist í Hafnarfirði 1875, lauk prófum í verkfræði í Kaupmannahöfn, varð ráðunautur Reykjavíkur 1902, bæj- arverkfræðingur 1904, bæjarfulltrúi 1908 og var annar borgarstjóri Reykjavíkur 1914-32, mun lengur en hundadagaborgarstjórar nú- tímans og lengur en nokkur annar. Zimsen var svo sannarlega einn þeirra fáu en stórmerku verkfræðinga sem hér lyftu grettistökum fyrir bætt almenn lífskjör á fyrstu áratug- um síðustu aldar. Úr bæ í borg er saga helstu opinberu framkvæmda Reykjavíkur á fyrri helmingi síðustu aldar. Fram- kvæmda sem ráðist var í við þröngan kost en af fádæma ráðdeildar- og útsjónarsemi. Má þar nefna vatnslagn- ingu, gaslagningu, hafnargerð, gatna- og holræsagerð, virkjun Elliðaáa og Sogsins að ógleymdri hitaveitu. Zimsen rekur framgang þessara mála frá hvoru tveggja, sjónarhóli verkfræðingsins og stjórnmálamanns- ins. Bæjarfulltrúar þessara tíma voru flest sjálfmenntað sómafólk úr ýmsum stéttum samfélagsins. Þau höfðu ekki her embættismanna sér til fulltingis, hvað þá sérfræðinga á sviði mannauðsfræði, kynjafræði, stjórnunarfræði eða viðburðafræði. Þau voru heldur ekki alltaf sammála, höfðu aldrei heyrt talað um sam- ræðustjórnmál né samvinnustjórnmál. En flest þeirra tóku þetta trúnaðarstarf sitt al- varlega, staðráðin í að vinna samborgurum sínum sem mest gagn. Mörg þessara verkefna voru pólitísk, fjár- hagsleg og verkfræðileg afrek og stórvirki sem gerðu Reykjavík að raunverulegri höf- uðborg og mörkuðu þjóðinni allri framfara- braut. Málefnin snérust um alvöru stjórnmál og stefnumörkun – um ýtrustu hagsmuni – framtíð, líf og heilsu – barna og unglinga. Eftir að hafa gluggað í þessa góðu bók spyr maður sig hvernig í dauðanum þessi merka og virðulega valdastofnun, bæjarstjórnin í Reykjavík, varð „Gaggó Vest“ að bráð. Nú snúast viðfangsefnin um það að mála græna punkta á Hverfisgötuna, fjölga tómum strætisvögnum, djöflast í prestum, skattleggja vegalengdir í öskutunnur, láta færa til myndastyttur, mála þrykkimyndir af reiðhjólum á hættulegar umferðargötur, leggja niður þjóðhátíðardag- inn, koma á eftirlitssveitum til að gramsa í ruslatunnum fólks, finna upp ljósadaga, safnadaga, góðviðrisdaga og menningardaga, loka sundlaugum fyrr um helgar og finna ný nöfn á blikkandi strætódiskóstöðvar. Ég efast um að nokkur í meirihluta borgarstjórnar kunni að lesa í reikninga borgarinnar og er uppistand- arinn ekki undanskilinn. En ef þau kunna að lesa yfirleitt ættu þau kannski að byrja á bókinni góðu. kjartang@mbl.is Kjartan G. Kjartansson Pistill Gömul bók um alvörustjórnmál

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.