Morgunblaðið - 23.07.2012, Page 20

Morgunblaðið - 23.07.2012, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2012 ✝ Kristín Þor-valdsóttir var fædd á Bálkastöð- um í Miðfirði 17. janúar 1919. Hún lést á Dvalar- og hjúkrunarheim- ilinu Grund 12. júlí síðastliðinn þá 93 ára að aldri. Foreldrar Krist- ínar voru Þorvald- ur Kristmundsson, f. 15. febrúar 1892, d. 15. maí 1942, og Elín Björnsdóttir, f. 28. desember 1894, d. 14. sept- ember 1949. Kristín var elst fjögurra systkina. Þau eru Jó- hanna Guðrún, f. 2. janúar 1921, Guðný Ingibjörg, f. 15. febrúar 1922, Björn, f. 21. maí 1927, d. 13. nóvember 2006, Böðvar, f. 2. janúar 1940. Fyrri maður Kristínar var Nói Matthíasson. Þeirra börn eru Elín, f. 30. apríl 1945, Matt- hías, f. 25. nóvember 1947, Margrét, f. 23. október 1949. með honum í för voru ná- grannabóndi og ráðsmaður og um borð voru einnig þrír ungir drengir sem lifðu af slysið. Skömmu eftir slysið flutti Elín móðir Kristínar til Akraness með syni sína og var sá yngri tveggja ára. Frá fimmtán til átján ára aldurs vann Kristín sem kaupa- kona fyrst á Reykjum í Hrúta- firði og síðar Litladal í Austur- Húnavatnssýslu. Nítján ára hóf hún nám við Kvennaskólann á Blönduósi og lauk því. Tvítug fór hún suður til Reykjavíkur og vann á saumastofu við Þórs- götuna í Reykjavík. Hún festi ráð sitt 23 ára og hóf búskap á Hörpugötu 11 í Skerjafirði. Mestan hluta starfsævi sinnar vann hún í Sápugerðinni Mjöll við ýmis störf eða þar til hún lét af störfum um sjötugt. Á þessum tíma var Sápugerðin Mjöll staðsett í Skerjafirðinum og var því ekki langt að sækja vinnu. Kristín bjó í Litla- Skerjafirði í yfir 60 ár eða frá því hún var rúmlega tvítug þar til hún fór á Elliheimilið Grund 91 árs að aldri. Kristín verður jarðsungin frá Neskirkju í dag, 23. júlí 2012, kl. 13. Þau skildu. Seinni maður Kristínar var Böðvar Ámundason, f. 1. janúar 1917, d. 24. janúar 2000. Þeirra sonur er Hilmar Böðvars- son, f. 14. ágúst 1960. Dóttir Elínar er Svava, f. 1961. Börn Matthíasar eru Eðvarð, f. 1970. Birkir Freyr, f. 1974, og Kristín Ósk, f. 1987. Börn Margrétar eru Jessica Amanda, f. 1976, Mart- in Ívar 1978, og Elín Lovísa, f. 1986. Börn Hilmars eru Sunna Kristín, f. 1984, og Haukur Ás- berg, f. 1995. Langömmubörnin eru fjög- ur. Þorkell, Jón, Matthías og Nói. Kristín missti föður sinn sem drukknaði í Miðfirðinum árið 1942. En hann var að koma úr kaupstaðarferð á árabát og Fallegan, sólríkan sumardag þann 12. júlí sl. kvaddi hún amma mín þennan heim. Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi að vera fyrsta barnabarn þitt af níu. Pabbi og mamma voru mjög ung þegar ég fæddist og því dvaldist ég mikið hjá þér og Böðvari afa í Skerjó. Það var alltaf svo nota- legt að koma til ykkar á Hörpu- götuna. Það er af svo mörgu að taka þegar minningarbókinni er flett um þig, elsku amma mín að ég veit hreinlega ekki hvar ég á að byrja. Þú varst góður kokkur, bakaðir góðar kökur og bjóst til bestu grauta í heiminum að ógleymdri kakósúpunni og grjónagrautnum sem þú varst algjör sérfræðingur í að mínu mati. Þú varst alltaf til staðar þegar á þurfti, góður vinur og traust í alla staði. Ef ég bað þig fyrir leyndarmál þá var hægt að treysta því að það færi ekki lengra. Þú varst ekki bara amma mín heldur líka góð vinkona sem hægt var að ræða við um heima og geima. Ég er mjög þakklát fyrir öll árin sem ég átti með þér og það er ekki sjálfgefið að hafa átt ömmu eins og þig. Þú varst eina amman sem ég þekkti. Árið sem ég bjó hjá ykkur afa vaktir þú mig á morgnana með heitu tei og maltbrauði. Þetta fengu nú ung- lingar á mínum aldri ekki á hverjum degi. Það voru forrétt- indi að búa hjá ykkur afa. Nú er afi búinn að sækja þig og þið getið verið saman á ný. Mér finnst erfitt að trúa því að þú sért alveg farin og hálftóm- legt að geta ekki farið til þín á Grund og drukkið með þér kaffi og spjallað eins og við gerðum svo oft. Þér fannst svo gaman að fá fréttir af langömmustrákun- um þínum, Þorkeli og Jóni. Þú spurðir alltaf um þá, hafðir áhuga á að vita hvað þeir voru að gera og baðst alltaf að heilsa þeim. Þeim þótti mjög mikið vænt um þig og kölluðu þig oft „Löngu“. Ég gleymi aldrei þeirri stundu þegar við komum til þín, ég og strákarnir, daginn sem Þorkell minn varð stúdent núna í maí sl. Þú hreinlega ljómaðir af gleði og stolti og sagðir jafn- framt að það væru þrjú ár í næstu tvo stúdenta en þú yrðir þá líklega ekki lengur hjá okkur. Þú hafðir rétt fyrir þér þar, elsku amma. Það er erfitt að kveðja þig, amma mín en ég veit að þú varst ekki hrædd við að deyja. Þú trúðir á annað líf og það styrkir mig í sorginni að vita það. Það er stórt skarð í hjarta mínu eftir skjótt andlát þitt, elsku fallega amma mín. Þú varst lágvaxin kona en samt svo stór. Tveim dögum fyrir andlát þitt drukkum við kaffi og þú borðaðir marsípantertu sem þér þótti svo góð. Þú varst svo hress og falleg. Ekki hvarflaði að mér að ég sæi þig ekki aftur á lífi, elsku amma mín. Það síðasta sem þú sagðir við mig þann dag var: „Hvenær sjáumst við næst elskan mín“ og ég svaraði, á fimmtudaginn en þá fórstu á vit nýrra ævintýra. Ljúfar og góðar minningar um yndislega ömmu eins og þig verða alltaf geymdar í huga mín- um. Takk fyrir allt, elsku amma mín. Guð geymi þig og varðveiti. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. Þín, Svava. Ég á ömmu minni margt að þakka enda var hún ein af mik- ilvægustu manneskjunum í mínu lífi. Hún og afi minn, Böðvar, mótuðu mig mikið þar sem ég varði miklum tíma með þeim sem barn. Amma Stína kenndi mér svo ótrúlega margt. Hún kenndi mér til dæmis að borða en þolinmæði hennar gagnvart mér, sem var svo matvönd, var ótrúleg. Hún kenndi mér einnig að sauma út. Amma var mikil hannyrðakona og þótti mér mikið til þess koma, þar sem ég sjálf gat aldrei neitt í hannyrðum í skóla. Aftur kom þolinmæði ömmu sér vel þar sem hún kenndi mér krosssaum, og eru það einu hannyrðirnar sem ég komst upp á lagið með – í senn ótrúlega einfalt og alveg frábært. Amma kenndi mér líka að rökræða. Við ræddum alltaf mik- ið um pólitík og samfélagsmál og vorum oftar en ekki sammála. Stundum vorum við þó ósam- mála en það var stórskemmti- legt, enda báðar með sterkar skoðanir á hlutunum og rökin á reiðum höndum. Ein af mínum bestu minning- um um ömmu er þó hvorki tengd mat né pólitík heldur gönguferð. Í flugstöð. Við vorum að koma heim frá Svíþjóð þar sem við heimsóttum Möggu og fjöl- skyldu. Ég var 18 ára, alveg á besta aldri, en amma var aðeins eldri, þá 83 ára. Þegar við kom- um út úr flugvélinni strunsaði ég af stað í átt að fríhöfninni og amma á eftir mér, alveg á fullu. Þegar við komum svo út í bíl var amma alveg búin á því og sagði við mig: „Sunna mín, við ættum að fara oftar saman í gönguferð- ir. Þú labbar svo svakalega hratt, það er alveg frábær æfing fyrir mig að reyna að halda í við þig!“ Ég fór auðvitað á bömmer yfir því að hafa ekki spáð í hversu hratt ég labbaði, enda amma með veik lungu og komin yfir áttrætt, en hún var hæst- ánægð og sá þarna tækifæri til að koma sér í betra form. Nú, 10 árum síðar, er amma Stína dáin, 93 ára að aldri. Mér þykir undarlegt að eiga aldrei eftir að sjá hana aftur, en á sama tíma þykir mér gott að hugsa til þess að hún hafði svo sannarlega lifað lífinu. Ég er henni óend- anlega þakklát fyrir allt sem hún gerði fyrir mig og á þeim nótum vil ég kveðja hana – með þakk- læti í hjarta. Sunna Kristín. Kristín Þorvaldsdóttir ✝ Bjarni Bjarna-son fæddist í Reykjavík 6. febr- úar 1963. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu, Krummahólum 8, þann 8. júlí sl. For- eldrar hans voru Bjarni Guðbrandur Bjarnason f. 12. apríl 1922 og Erla Vídalín Helgadóttir f. 11. sept. 1928. Þau eru bæði látin. Systkini Bjarna eru Ragnheiður f. 14. febrúar 1957. Lára f. 2. janúar 1960, Elín Bjarney f. 28. apríl 1968. Birgir f. 11. júlí 1941 og Sigrún f. 18. maí 1956. Bjarni var ókvænt- ur og barnlaus. Útför Bjarna fer fram frá Garða- kirkju í dag, mánudaginn 23. júlí 2012 kl. 15. Í dag kveð ég í hinsta sinn Bjarna litla bróðir minn og minn- ingarnar koma hver á eftir ann- arri og sumar eins og þung högg á sálina, líka minningar sem ég hef ekki leyft mér að hugsa um lengi. Ég var 6 ára þegar Bjarni fæddist og ég var afskaplega montin af því að eiga lítinn bróðir hann var líka undurfríður drengur, brúneygður og bjartur yfirlitum. Hvar sem ég kom með hann heyrði ég sagt hvað hann væri fallegt barn. Hann var ærslafullur, áhugasamur um alla hluti og uppátækjasamur og sérstaklega forvitinn. Man ég mörg prakkarastrikin hans. Við lékum okkur mikið við Tjörnina sem börn og honum tókst að hrinda okkur systrum allavega einu sinni út í þegar veiðar á horn- sílum stóðu sem hæst hjá okkur systrum. Ég man líka þegar þú byrjaðir að lesa og ég var að kenna þér stafina, síðan varðst þú alæta á bækur og last allar bækur sem þú komst yfir. Þú varst mjög fróður um marga hluti og hafðir einstakan áhuga á sögu.Ég man líka þegar þú varst 5 ára og ég 11 ára og við söfnuðum peningum heilt sumar fyrir stærsta vörubíln- um í Tómstundahúsinu sem var aðal-leikfangaverslunin í þá daga og allar ferðirnar okkar þangað að skoða stóra vörubílinn sem þig langaði svo í, og líka daginn þegar við fórum og sóttum hann. Ég á líka minningar um falleg- an lítinn dreng sem elskaði dýr og naut þess að vera úti í náttúrinni. Ég á líka minningar um lítinn dreng sem kom í gættina og spurði hvort hann mætti kúra hjá mér af því hann væri hræddur þegar Bakkus var í heimsókn hjá fullorðna fólkinu en æska okkar systkina var alla tíð lituð af þeim vágesti. Ég á líka minningar um lítinn dreng sem var sendur á barnaheimilið Dalbraut ásamt systrum sínum þegar heimilið var leyst upp um tíma. Þú varst viðkvæmastur af okk- ur systkinunum og þoldir illa áföll- in, þú byrgðir sorgir þínar og hugsanir innra með þér en lengi vel var húmorinn til staðar, en þú varst alltaf mikill húmoristi, og voru þau mörg gullkornin sem komu frá þér. Það var mikil sorg, missir og reiði að sjá hvernig þú fórst um tvítugt smám saman að hverfa inn í þig meira og meira, missa tengsl við fólk og vini og verða einrænni og veikari með árunum. Eins sárt og það var að horfa á þig fara á sambýli fyrir fatlaða þá veit ég að þú naust góðs atlætis í Krumma- hólum með Bessí sem hugsaði svo vel um þig þar og Sveini og Jónasi vinum þínum og sambýlingum. Þau sjá á eftir góðum og hæglát- um vini sem mátti ekkert aumt sjá. Það var líka aðdáunarvert að fylgjast með því hvernig þú náðir þrátt fyrir allt að halda reisn þinni og sjálfstæði. Einnig var aðdáunarvert að fylgjast með því hvernig þér tókst þrátt fyrir allt að halda þinni per- sónulegu reisn, stolti og sjáfstæði. Hvíl í friði, elsku litli bróðir, og ég veit í mínu hjarta að þú ert á besta stað sem til er. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. (Ásmundur Eiríksson.) Ragnheiður systir. Elsku hjartans Bjarni bró eins og ég kallaði þig alltaf, þú hafðir allt til að bera sem barn, ærsla- fullur grallari, skemmtilegur og mikill húmoristi, og fallegur varstu með þín brúnu augu og lið- aða hár. En heimilisaðstæður áttu eftir að marka djúp spor í líf þitt. Þú varðst fjarrænn en alltaf sami góði drengurinn, talaðir aldrei illa um neinn né hallmæltir neinum, það var ekki þinn stíll. Ég á mínar góðu minningar með þér. Við fórum stundum rúnt til Þingvalla og gengum meðfram vatninu, settumst og spjölluðum saman og fórum í bústaðinn í sveit- inni. Þegar við keyrðum fram hjá sveitabæjum spunnust oft upp umræður um búskaparhætti í gamla daga, þú varst svo fróður um hin ýmsu málefni. Þú hlustaðir mikið á útvarpið og tónlistarsmekkurinn var fjöl- breyttur, t.d. Garðar T. Cortes, Ís- bjarnarblús Bubba Morteins en þú hélst mikið upp á Bubba, og líka svona eldri lög eins og ég mundi segja og ég sem er eldri en þú. Við höfðum bæði gaman af því að stoppa þar sem hestar, kýr eða ær voru á beit og hvað þá ef þau voru með lítil afkvæmi. Þú hafðir svo gaman af því að fylgjast með dýrunum. Ég þakka þér elsku Bjarni bró fyrir allt sem þú gafst mér af þér og þínum góða félagsskap, það er þyngra en tárum taki að þú dreng- urinn sem aldrei reyktir og varst ekki í neinni óreglu skyldir þurfa að líða fyrir neyslu annarra. Elsku bróðir, þú varðst bráðkvaddur í svefni og ég hitti þig á góða staðn- um eftir óákveðinn tíma elsku bró. Þú varst einu sinni hér og gafst mér hluta af sjálfum þér. En hverju lífi sú fylgir kvöð að berast brátt að endastöð. Ástarkveðja. Þín, Lára systir. Stóri bróðir minn Bjarni er far- inn, ég minnist hans með söknuði. Ég á svo margar góðar minn- ingar um hann. Bjarni passaði alltaf upp á mig þegar ég var lítil, sérstaklega þeg- ar erfiðleikar steðjuðu að, þá vildi hann vernda mig. Hann notaði húmor mjög oft til þess að létta andrúmsloftið. Bjarni var hetja og hörkutól í mínum augum. Eitt sinn kom hann heim, þá 14 ára gamall, með nagla í gegnum ristina. Hann fór beint inn á baðherbergi og dró naglann út. Ég var þá níu ára gömul og stóð þarna og horfði á hann með að- dáun. Bjarni var mikill húmoristi og smá stríðinn, við hlógum mikið saman að uppátækjum hans. Hann var vandaður maður í alla staði. Þegar við vorum tvö eftir í heimahúsum var hann mín stoð og stytta í dagsins önn. Á unglingsárum fór hans and- legu heilsu að hraka. Hann fjar- lægðist okkur systur sem og aðra sökum þessara veikinda sinna. Þó sorgin sé sár, og erfitt er við hana að una við verðum að skilja, og alltaf við verðum að muna, að Guð, hann er góður, og veit hvað er best fyrir sína. Því treysti ég nú, að hann geymi vel sálina þína. (Bryndís Halldóra Jónsdóttir.) Elín litla systir. Bjarni Bjarnason ✝ Ástkær eiginmaður minn, bróðir og frændi, ÖRN EDVALDSSON, sem lést þriðjudaginn 12. júní, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 26. júlí kl. 11.00. Lena Andersson, Sigrún Guðnadóttir, Sesselja Inga Guðnadóttir, Sigurður Guðnason, Sverrir Guðnason, Sigurður Pálmar Gíslason. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGMUNDUR PÁLL LÁRUSSON, múrarameistari, Seljalandi 1, Reykjavík, lést föstudaginn 20. júlí á Landspítalanum í Fossvogi. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 26. júlí kl. 15. Anna Hjörleifsdóttir, Sigdís Sigmundsdóttir, Jón Óskarsson, Hjördís Sigmundsdóttir, Kristinn Waagfjörð, Benedikt Sigmundsson, Erna Þórunn Árnadóttir, Lárus Sigmundsson, Sandra Pohl, Þóra A. Sigmundsdóttir, Jóhannes Oddsson, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar og tengdamóðir, VIGDÍS JÚLÍANA BJÖRNSDÓTTIR, Strandgötu 89, Eskifirði, lést þann 18. júlí s.l. á dvalarheimilinu Hulduhlíð. Útför hennar verður gerð frá Eskifjarðarkirkju föstudaginn 27. júlí kl. 14:00. Edda Björnsdóttir, Hlynur Halldórsson, Helga Björnsdóttir, Hilmar Hilmarsson. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um innsend- ingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja við- eigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birt- ingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virk- um dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.