Morgunblaðið - 23.07.2012, Qupperneq 23
Að lesa í landið og þjóðina
En þegar menn draga saman segl-
in í búskap og félagsstörfum – hvað
tekur þá við, Magnús?
„Það er auðvitað mikilvægast að
maður hefur nú meiri tíma fyrir fjöl-
skylduna, börnin og barnabörnin og
nánasta umhverfið hérna.
Við hjónin höfum líka verið dugleg
að ferðast. Við fengum okkur húsbíl
fyrir fimmtán árum og höfum verið
dugleg að nota hann. Við erum núna
nýkomin úr hringferð um landið.
Svo les ég nú töluvert en það
snýst nánast allt um uppruna lands
og þjóðar, jarðfræði, landafræði,
þjóðfræði, þjóðsögur og sagnir og
þess háttar. Það gerir ferðalögin
miklu skemmtilegri að geta lesið
svolítið í land og þjóð.“
Fjölskylda
Fyrri kona Magnúsar var María
Katrín Ragnarsdóttir, f. 31.8. 1943,
d. 25.3. 1966, bóndi og húsfreyja.
Synir Magnúsar og Maríu Katr-
ínar eru Ragnar, f. 9.12. 1964, vél-
virkjameistari og bóndi í Birtinga-
holti; Sigurður, f. 24.1. 1966,
búfræðingur og verkamaður í
Reykjavík.
Seinni kona Magnúsar er Guð-
björg Björgvinsdóttir, f. 7.2. 1945,
bóndi og húsfreyja. Hún er dóttir
Björgvins Guðjónssonar, bónda í
Dufþaksholti í Hvolhreppi, og Ragn-
heiðar Ólafsdóttur húsfreyju.
Börn Magnúsar og Guðbjargar
eru María, f. 10.7. 1970, póststarfs-
maður á Flúðum; Björgvin, f. 10.7.
1973, sölumaður hjá Vífilfelli á Suð-
urlandi, búsettur á Selfossi; Ragn-
heiður Guðný, f. 16.5. 1979, hús-
freyja á Selfossi, í fjarnámi við
Háskólann á Akureyri.
Systkini Magnúsar: Ásgeir (hálf-
bróðir) f. 19.11. 1927, nú látinn, lengi
rafvirki í Bandaríkjunum; Ásthildur,
f. 10.6. 1928. húsfreyja í Birtinga-
holti; Arndís Sigríður, f. 21.7. 1930,
d. 10.1. 2012, var húsfreyja í Miðfelli;
Sigurfinnur, f. 11.12. 1931, fyrrv.
skrifstofustjóri hjá Vegagerðinni á
Selfossi; Ágúst, f. 22.8. 1936, bóndi í
Birtingaholti; Móeiður Áslaug, f.
27.11. 1943, d. 18.1. 2002, var ljós-
móðir í Reykjavík.
Foreldrar Magnúsar voru Sig-
urður Ágústsson, f. 13.3. 1907, d.
12.5. 1991, hreppstjóri, kórstjóri,
skólastjóri og tónskáld í Birtinga-
holti, og Sigríður Sigurfinnsdóttir, f.
11.7. 1906, d. 16.5. 1983, húsfreyja í
Birtingaholti.
Úr frændgarði Magnúsar H. Sigurðssonar
Sigurður Natanealsson
sjómaður undan Eyjafjöllum
Ásta Jónsdóttir
húsfr.
Þórður Gísli Jónsson
af Klénsmiðarætt
Guðrún Bjarnadóttir
húsfr.
Guðrún Guðmundsdóttir
húsfr. í Birtingarholti
Skúli Thorarensen
læknir og alþm. á
Móeiðarhvoli
Ragnheiður Helgadóttir
húsfr. á Móeiðarhvoli
Magnús H.
Sigurðsson
Sigurður Ágústsson
tónskáld, kórstj. skólastj. og
hreppstj. í Birtingarholti
Sigriður Sigurfinnsdóttir
húsfr. í Birtingarholti
Jónína Þórðardóttir
húsfr. í Keflavík
Sigurfinnur Sigurðsson
íshússtj. í Keflavík
Móeiður Skúladóttir
húsfr. í Birtingarholti
Ágúst Helgason
alþm. í Birtingarholti
Helgi Magnússon
b. í Birtingarholti, af Reykjaætt
Þorsteinn
Thorarensen
hreppstj. á
Móeiðarhvoli
Óskar
Thorarensen
framkvæmda-
stj. í Rvík
Grímur
Thorarensen
b. í Kirkjubæ
Þorsteinn Th.
rith. og
útgefandi í
Rvík.
Eggert
framkvæmda-
stj. BSR
Egill
Thorarensen
kaupfélagsstj.
KÁ
Bjarni Thorarensen
amtm. og skáld
Katrín Helgadóttir
húsfr. á Stóra-Núpi
Kjartan Helgason
pr. í Hruna
Guðmundur
pr. í Reykholti
Jóhann Briem
listmálari
Guðmundur Kjartansson
jarðfræðingur
Ásmundur Guðmundss.
biskup
Afmælisbarnið Magnús H. Sigurðs-
son.
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2012
Anna Jónsdóttir fæddist í Hrís-ey 23.7. 1912, fyrir einni öld.Hún var dóttir Jóns Sigurðs-
sonar, vélfræðings í Hrísey, og
f.k.h., Sóleyjar Jóhannesdóttur. Jón
sigldi til Þýskalands 1902, lærði þar
vélfræði og keypti þar síðar „Grund-
arbílinn“ fyrir Magnús Sigurðsson á
Grund, en það var önnur bifreiðin á
Íslandi.
Jón var sonur Sigurður hrepp-
stjóra á Hellulandi Ólafssonar, alþm.
og hreppstjóra í Ási í Hegranesi Sig-
urðssonar. Sóley var dóttir Jóhann-
esar Davíðssonar á Syðstabæ og k.h.
Margrétar Guðmundsdóttur.
Bróðir Önnu var Skapti skipstjóri,
faðir Jóns, enskukennara og skjala-
þýðanda. Hálfsystkini Önnu, sam-
feðra, eru Sigurður, fyrrv. kennari
við VMA, og Ebba snyrtifræðingur.
Anna ólst upp í Hrísey, lauk prófi
frá VÍ árið 1933 og giftist, ári síðar,
Torfa Hjartarsyni lögfræðingi, sem
varð sýslumaður á Ísafirði, tollstjóri
í Rvík., og loks sáttasemjari ríkisins.
Anna og Torfi voru mjög samhent
hjón. Hún þótti glæsileg húsfreyja
sem stjórnaði af röggsemi mynd-
arlegu og gestkvæmu heimili þeirra.
Anna var afar skemmtileg í viðkynn-
ingu, hafði sterka nærveru, var
margfróð, með góð tök á íslensku
máli og gædd mikilli frásagnarlist.
Hún var mjög pólitísk og sjálfstæð í
skoðunum, var eindreginn andstæð-
ingur kommúnismans og Ráðstjórn-
arríkjanna og skrifaði fjölda pistla í
Velvakanda Morgunblaðsins um þá
hættu sem stafaði af þeirri ógn.
Hjá fréttamönnum RÚV var hún
talin í hópi óformlegra fréttaritara
þar á bæ, því hún upplýsti þá oft um
fundi í kjaradeilum, hvenær sem var
sólarhringsins, á sáttasemjaraárum
Torfa.
Börn Önnu og Torfa: Hjörtur sem
lést í frumbernsku; Hjörtur, fyrrv.
hæstaréttardómari; Ragnheiður,
fyrrv. rektor MR; Sigrún, húsfreyja
og tryggingamiðlari í Toronto í Kan-
ada sem lést um aldur fram, og
Helga Sóley, hjúkrunarkona og ljós-
móðir. Hjá Önnu og Torfa ólst einnig
upp Halla Thorlacius, dóttir Sigrún-
ar Torfadóttur.
Anna lést 25.1. 1992.
Merkir Íslendingar
Anna
Jónsdóttir
90 ára
Lilja Aradóttir
85 ára
Anna Bjarnadóttir
Guðrún Sveinsdóttir
Málfríður Jónsdóttir
Unnur Áskelsdóttir
80 ára
Arndís Sigurðardóttir
Jóhanna Guðrún
Baldursdóttir
Jón Sigmundur Torfason
Kristín Sigurjónsdóttir
Stefán Sigurður
Kristinsson
75 ára
Björgvin Elíasson
Eðvarð Karl Ragnarsson
Elsa Fanney Pétursdóttir
Halldór Ólafsson
Kristín Sveinbjörnsdóttir
70 ára
Elín Káradóttir
Guðmundur Bertelsson
Helga Þórey Jónasdóttir
Róbert Jónsson
60 ára
Ásdís Ámundadóttir
Bernharður Jóhann
Kristinsson
Eiríkur Gylfi Helgason
Heiðar Viggó Viggósson
Jónína Olsen
Margreta Björke
Sigrún Ragna Stefánsdóttir
Þórfríður Magnúsdóttir
Örn Karlsson
50 ára
Algimantas Ziaukas
Birgitta Lúðvíksdóttir
Björn Steinar Hauksson
Guðmundur Ingi Einarsson
Guðmundur Skúli
Þorgeirsson
Guðrún Sæmundsdóttir
Indriði Björgvinsson
Jónas James Norris
Jósef Matthíasson
Kazimiera Pawezka
Krzysztof Grzegorz
Piwowarczyk
Magnús Jón Kristófersson
Nína Karen Grétarsdóttir
Sigríður Björg Albertsdóttir
Sigurður B. Sigurþórsson
40 ára
Agnes Matthíasdóttir
Ásta Sóllilja Þorsteinsdóttir
Davíð Ben Maitsland
Garðar Einarsson
Guðrún Sigríður Ólafsdóttir
Gunnar Sævar Gylfason
Olga Björg Sigþórsdóttir
Ólafur Brynjar Þórsson
Rúnar Ben Maitsland
Sóley Jónsdóttir
30 ára
Anna Lind Sævarsdóttir
Auðunn Ólafsson
Eduard Shchavynsky
Guðmundur Hreinn
Eiríksson
Guðrún Ósk Níelsdóttir
Heiðar Örn Heimisson
Jolanta Elzbieta Wolna
Jón Áki Jensson
Magnús Ingi Rafnsson
Þórdís Guðrún Jakobsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Valgerður fæddist
í Reykjavík og ólst upp í
Grafarvoginum. Hún lauk
BS-prófi í hjúkrunarfræði
frá HÍ 2012 og starfar hjá
Actavis og við Landspít-
alann.
Dóttir: Sólborg Ósk-
arsdóttir, f. 2008.
Foreldrar: Sigurður J.
Kristinsson, f. 1953, kerf-
isfræðingur í Reykjavík,
og Sólborg Bjarnadóttir, f.
1953, hjúkrunarfræðingur
í Reykjavík.
Valgerður
Sigurðardóttir
30 ára Lilja lauk grunn-
skólakennaraprófi 2011 og
kennir við Grunnskóla
Borgarfjarðar.
Maki: Þorsteinn Pálsson, f.
1983, rafiðnfræðingur.
Synir: Benjamín Karl
Styrmisson, f. 2001; Ágúst
Páll Þorsteinsson, f. 2004;
Brynjar Þór Þorsteinsson,
f. 2010.
Foreldrar: Ágúst Magn-
úss., f. 1947, húsasmíðam.,
og Sigríður Eiríksdóttir, f.
1949, sjúkraliði.
Lilja Björg
Ágústsdóttir
30 ára Hildur ólst upp í
Grafarvoginum. Hún lauk
diplomaprófi frá KHÍ og
starfar nú hjá Hag-
kaupum í Smáralind.
Systkini: Ásgeir Kr., f.
1980, rafmagnstækni-
fræðingur, og Valgerður, f.
1982, hjúkrunarfræð-
ingur.
Foreldrar: Sigurður J.
Kristinsson, f. 1953, kerf-
isfræðingur, og Sólborg
Bjarnadóttir, f. 1953,
hjúkrunarfræðingur.
Hildur
Sigurðardóttir
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Sunnuhlíð 12, Akureyri, sími 462 1415
www.tonabudin.is
Síðumúla 20, Reykjavík, sími 591 5340
www.hljodfaerahusid.is
Fullkomin netverslun með
hljóðfæri og hljóðbúnað
Nýr og glæsilegur vefur
www.hljodfaerahusid.is