Morgunblaðið - 23.07.2012, Síða 24

Morgunblaðið - 23.07.2012, Síða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2012 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Ást við fyrstu sýn er möguleiki og þú nýtur þess að daðra við einhvern ókunnugan. Gættu þess bara að halda ut- an um þína nánustu eins og þeir gera um þig. 20. apríl - 20. maí  Naut Heppnin virðist vera með þér núna og þú munt áður en langt um líður upp- skera laun erfiðis þíns. Taktu sneið þína af himnaríki með þér hvert sem þú ferð. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þér er óhætt að tala um þínar innstu tilfinningar, en jafnvel betra að hlusta á annan gera það. Til allrar ham- ingju er pláss fyrir fleiri en eitt símanúmer í hraðvalinu. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þótt freistandi sé skaltu ekki ganga lengra í því máli, sem hæst ber í huga þínum. Farðu varlega og gakktu úr skugga um að málstaður þinn sé þess virði að berjast fyrir. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú getur lært eitthvað mikilvægt af einhverjum í dag. En mundu að hlutirnir eiga ekki að vera einfaldir, heldur stælir það aðeins manninn að fá krefjandi verk- efni. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú finnur til löngunar til þess að koma miklu í verk í vinnunni í dag. Njóttu andartaksins og leyfðu þér að sinna þeim störfum sem veita þér mesta gleði. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú stendur frammi fyrir kröfum um aukna ábyrgð en ert eitthvað tvístígandi. Reyndu ekki að slá ryki í augu annarra. Leitaðu ráða hjá vinum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það bendir ýmislegt til þess að gamall draumur þinn muni nú rætast. Búðu þig undir innkaup á málningu og snurfusaðu dálítið í kringum þig. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Eitt er víst að fólk getur treyst þér og það gerir það. Næstu fjórar vik- urnar henta sérlega vel til ferðalaga. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú veltir fyrir þér hvort þú getir treyst vissri manneskju. Vertu ekki með sektarkennd heldur safnaðu kröftum og vertu heill í því sem þú gerir. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Einhver í fortíð þinni hefur enn mikil áhrif á þig. Gefðu fólkinu í kringum þig það svigrúm sem það þarf. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er þér léttir að komast að því að nú eru peningar og bjargir til staðar og því unnt að gera úrbætur á vinnustað. Ég hitti karlinn á Laugaveg-inum niðri á Austurvelli, þar sem hann sat á bekk, lét fara vel um sig og saup á bjórkollu. Hann var í góðum félagsskap og voru þeir kumpánar að tala um arkí- tektúr. Þótti þeim Dómkirkjan og Alþingishúsið taka nýrri bygg- ingum fram í stíl og hreinleik og minntu á, að fyrri forsetar hefðu staðið vörð um alþingisreitinn; þeir luku lofsorði á þingforseta fyrir skelegga framgöngu. Síðan fór karlinn með limru, sem hann kallaði „Martröð þingforseta“: „Hann er loðinn um lófa og brár, sagði Ljótunn, „og gult er hans hár; hann er eilítið kenndur. og við Austurvöll stendur innan um knæpur og krár.“ Ég fékk smá athugasemd á net- inu á laugardag vegna þessarar hringhendu, sem þá birtist í Vísnahorni: Fer úr böndum flimt og níð, festu höndin tapar, stirð er önd við stökusmíð, stjarna Blöndals hrapar. Þessi er smá athugasemdin: „Kæri Halldór Blöndal, ég held ég hafi aldrei ort um þig níðvísu. En þetta hef ég ort: Firrist öndin flimt og níð, festu hönd ei tapar, þegar Blöndal landsins lýð ljóðin vönduð skapar. Og vona ég, að þú gerir mér þann greiða að koma þessari leið- réttingu á framfæri í næsta vísna- horni þínu. Með fyrirfram þökk og virð- ingu, Guðmundur Arnfinnsson. P.s. Tvær limrur í sarpinn: Ófrýnn var Lágafells-Ljótur, sá langi og horaði þrjótur, með lafandi vör sem lýtti ör, en ljótari var þó hans fótur. Þeir telja að Bjössi bakari sé betri maður og spakari en hárskerinn Geir, en hitt vita þeir að hárskerinn Geir er rakari.“ Og síðan er bara að þakka fyrir sig: Athugasemdir ekki getur betri: Að skilja hvort sé rétt eða rangt í reynd er hversu teygt er langt. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Firrist öndin flimt og níð G æ sa m a m m a o g G rí m u r G re tt ir S m á fó lk H ró lf u r h ræ ð ile g i F er d in a n d HVAÐ ER Í SJÓNVARPINU? VILTU AÐ ÉG TELJI ÞAÐ UPP FYRIR ÞIG? ER ÞETTA NESTIÐ ÞITT? MEÐAL ANNARS... HVAÐ FLEIRA ER Í POKANUM? VIÐ ERUM VÍST EKKI TILBÚNIR AÐ PANNTA... ...ÞANNIG AÐ KOMDU BARA MEÐ MEIRI BJÓR HVERNIG HEFURÐU ÞAÐ NONNI NAUT? EKKI GOTT, STJÖRNUMERKINU MÍNU VAR BREYTT. ÉG ER EKKI LENGUR STERKT OG ÞRJÓSKT NAUT NÚNA ER ÉG LJÚF OG TILLITSÖM STEINGEIT HVAÐA VITLEYSA. ÞÚ ERT ENNÞÁ STERKUR BOLI. EIGUM VIÐ AÐ HORFA Á ÍSHOKKÍ LEIK SAMAN? NEI ÞVÍ MIÐUR, ÉG MÁ EKKI MISSA AF OPRUH, HÚN ÆTLAR AÐ FJALLA UM RAKAKREM Í ÞESSUM ÞÆTTI HJÓLABRETTIÐ MITT Víkverji á góðar minningar frábernsku- og unglingsárum sínum úr skátastarfi. Flestar snúast þær um ævintýraleg ferðalög eða ógleyman- legar stundir með skátavinunum, sem margir halda enn sambandi. Stærstu stundirnar í starfi hvers skáta eru þó án efa landsmótin. x x x Fyrir ungan Víkverja var það heil-mikil upplifun að búa í tjaldi í heila viku ásamt mörghundruð manns sem allir höfðu sömu áhuga- mál. Það var alltaf dálítið spennandi að kynnast erlendu skátunum og skiptast á skátaklútum, þjóðarréttum eða bara sögum. Vatnasafarí og þrautabraut, smiðj- ur, siglingar, klifur, útieldun, varð- eldar og fjölmenningasamfélag þar sem allir eru vinir. Er hægt að hugsa sér skemmtilegra og betra umhverfi fyrir börn og unglinga? x x x Tíu ára frændi Víkverja hafði ekkikynnst skátaævintýrinu. „Í hverju er keppt?“ spurði hann og gerði ráð fyrir að mót væru til þess haldin að keppa. „Það er ekki keppt í neinu. Í skát- unum skiptir ekki máli að vera betri en einhver annar, heldur að maður læri eitthvað nýtt og auki sína eigin færni,“ svaraði Víkverji. Fyrir ungan frænda eru þetta stór hugtök og illskiljanleg, en eldra fólk sem hefur reynt skátaaðferðina á eig- in skinni veit að hún virkar. x x x Þessa vikuna hafa um 2.000 skátarfasta búsetu í tjöldum við Úlf- ljótsvatn á landsmóti. Ef þeir eru taldir með sem stoppa styttra má segja að landsmót skáta sé 5.000 manna byggðarlag. Íbúunum er séð fyrir nauðsynjum eins og matvælum, heilbrigðisþjón- ustu og fjölmiðlum. En eitt er það sem landsmót hefur umfram önnur byggðarlög, og það er ævintýrið. Ævintýrið sem felst í því að prófa, læra, geta eitthvað á eigin spýtur. Ævintýrið sem felst í því að kynn- ast skátum sem hafa ferðast yfir hálf- an hnöttinn, og uppgötva að þeir eru eiginlega alveg eins og við. víkverji@mbl.is Víkverji Orð dagsins: Varir hins réttláta vita, hvað geðfellt er, en munnur óguðlegra er eintóm flærð. (Ok. 10, 32) Hverafold 1-3 | Grettisgötu 3 | Smáralind | 511 1710 | svanhvit@svanhvit.is | svanhvit.is LÁTTU OKKUR SJÁ UMHEIMILISÞVOTTINN! LÍTIL VÉL 7 KG. 1.790 KR. STÓR VÉL 15 KG. 3.290 KR. Efnalaug - Þvottahús SVANHVÍT EFNALAUG - NÚ Á ÞREMUR STÖÐUM Hverafold 1-3, 112 Reykjavík Grettisgötu 3, 101 Reykjavík Smáralind, 201 Kópavogur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.