Morgunblaðið - 23.07.2012, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 23.07.2012, Qupperneq 26
26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2012 Eins og margir vita þá er samband þeirra Noels og Liams Gallagher- bræðra ekkert sérstakt. Nú síðast gerði Liam óspart grín að Noel fyrir að ákveða að fara í tónleikaferðalag um Norður- Ameríku með hljómsveitinni Snow Patrol. Liam tók nýlega að sér að spila á Ólympíuleikunum í Lund- únum en Noel hafði þá hafnað sama boði. Bræður berjast Ósætti Bræðurnir eru hér fyrir miðju. Söngvari The Smashing Pumpkins, Billy Corgan, hefur sínar skoðanir á næstu kynslóð rokkheimsins. Hann segir að hinn næsti Kurt Cobain eða Trent Reznor, hverjir sem það verða, muni aldrei ná að verða stjörnur og kennir netsíðunni Pitchfork um. Hann segir síðuna stjórna því hvað sé hlustað á hverju sinni og að það muni eyðileggja rokkið. Reznor Corgan hefur mætur á kauða. Billy Corgan ósáttur Stúlkna- hljómsveitin Spice Girls hyggst koma saman og spila á Ólympíu- leikunum í Lond- on. Samkvæmt heimildum eru 95% líkur á því að sveitin muni spila í lokafagn- aði leikanna en langt er liðið síðan þær spiluðu síðast saman. Kryddpía Victoria mun láta sjá sig. Endurkoma Spice Girls Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Þórarinn Hannesson, ljóðskáld, íþróttaþjálfari, tónlistarmaður og forstöðumaður Ljóðaseturs Íslands á Siglufirði er fjölhæfur maður. Þriðja ljóðabók hans kom út á dögunum, Nýr dagur. Forvitni lék á að vita hver kveikjan að bókinni væri. „Ég fór sem fararstjóri á Ólympíumót fatlaðra í Aþenu í Grikklandi. Það var mjög áhrifaríkt og þroskandi fyrir alla sem tóku þátt, ekki síst fyrir fararstjórana. Þetta var alveg sérstaklega áhrifa- ríkt. Við upplifðum miklar tilfinn- ingar, gleði og erfiðar stundir líka. Fullt af skemmtilegu fólki var þarna sem fékk mann til að hugsa um lífið og tilveruna. Eitt ljóðið, Þroski, varð til sér- staklega út af einu atviki sem átti sér stað þarna. Ég var að velta fyrir mér um hvað þroski snýst, þegar þetta fólk er svo ofsalega gefandi. Það gefur af sér alveg endalaust og vill allt fyrir mann gera. Margt af þessu fólki er talið þroskaskert en þroskaskerðingin er kannski annars staðar en hjá þessu fólki. Þetta eru meðal annars mínar pælingar um til hvers maður er hér á þessari jarðkringlu.“ Drengurinn sem Þórarinn fylgdi á Ólympíumótið er Sigurjón Sig- tryggsson. Hann hefur þjálfað Sigurjón um langt skeið og vinskapur þeirra er mikill. Vertu þú sjálfur „Í bókinni er ekki mikið um skáld- leg tilþrif en ég reyni að draga fram myndir af atburðum og tilfinningum á mannamáli. Þau eru frekar opin. Ég var búinn að senda tveimur öðrum útgáfum bókina og þær töldu ljóðin vera of opin og ekkert væri eftir handa lesandanum sjálfum til að túlka. En smekkurinn er misjafn. Þetta er eins og ég er. Mér finnst að menn eigi að koma til dyranna eins og þeir eru klæddir og þora að vera þeir sjálfir. Mér finnst að það mætti leggja meiri áherslu á það, hvernig sem maður er skap- aður. Láta drauma sína ræt- ast. Fólk er alltof oft að bíða eftir því að eitthvað gerist í stað þess að gera hlutina sjálft.“ Þessi orð Þórarins ríma vel við til- vitnun sem er að finna á titilsíðu ljóðabókarinnar eftir tónlistarmann sem hann hefur miklar mætur á, Sting sem syngur: „Be yourself, no matter what they say.“ Þórarinn talar af reynslu og dvel- ur ekki í heimi dagdrauma heldur hrindir hlutunum í framkvæmd. Hugmynd kviknaði og varð að veru- leika. Hann kom á fót Ljóðasetri Ís- lands á Siglufirði og var það form- lega vígt 8. júlí 2011. Menningarsjóður Siglufjarðar styrkti útgáfu bókarinnar og rennur ágóðinn til ljóðasetursins. Ljóðagerð og tónsmíðar „Ljóðaáhuginn hefur ágerst með árunum. Ég hef verið mikið í tónlist og samið lög og texta. Ljóðlistin hef- ur unnið á síðustu árin. Mér er allt að yrkisefni: börnin, konan og nátt- úran veita mér innblástur,“ segir Þórarinn. Þessi ofangreindu þemu er öll að finna í bókinni. Hún er kaflaskipt eftir þemum, Þankabrot er fyrsti og lengsti kaflinn; ljóðin í honum eiga það sammerkt að draga upp myndir af ólíkum tilfinningum og varpa upp tilvistarlegum spurningum. Hinir þrír kaflarnir bera heitið náttúran, börnin og ástin. Ljóðin eru flest óhefðbundin í formi en nokkur hefðbundin er að finna í seinni hlutanum. Þórarinn grípur helst til ferskeytluformsins, þá einkum þegar hann yrkir tæki- færisvísur. Hvenær gefst honum helst tími fyrir sköpun? „Lögin og textasmíðin verða oft- ast til á kvöldin þegar allir eru sofn- aðir í húsinu. Hugmyndirnar fæðast yfir daginn og svo vinnur maður úr þeim þegar sest er niður.“ „Eitt ljóðið, Fjöllin mín, varð til þegar ég sigldi aftur á heimaslóðir á Vestfirði. Ég hafði ekki komið þang- að í nokkur ár og sigldi með bátnum Baldri, sá fjöllin mín birtast, þá kom þessi tilfinning yfir mig sem ég lýsi í ljóðinu. Hjartað fór að slá hraðar og bros kom fram á varirnar.“ Jón úr Vör í miklum metum „Jón úr Vör er það ljóðskáld sem hefur verið í mestu uppáhaldi. Hann er Vestfirðingur og hans þekktasta verk, Þorpið, fjallar um ævi hans og uppvaxtarár þar. Þetta verk er kannski svolítið í þeim anda, beinar lýsingar. Ég held líka upp á Bólu- Hjálmar þó hann yrki mjög ólíkt Jóni. Þá kann ég að meta Þorstein Erlingsson. Þó veit ég ekki hvaðan áhrifin koma. Nefnt hefur verið við mig að ljóðin líktust Jóni úr Vör. En ég ætla ekkert að bera mig saman við það góða skáld,“ segir Þórarinn af hæversku. Fyrri ljóðabækur Þórarins, Æskumyndir (2006) og Fleiri æsku- myndir (2009) eru undir sterkum áhrifum Jóns úr Vör. Þær fjalla um uppvaxtarár Þórarins á Bíldudal, bregða upp myndum af lífinu þar, uppvexti og mannlífi fyrir þrjátíu til fjörutíu árum. Siglfirskt sólríki Kápumyndin er tekin í bakkanum fyrir neðan hús ljóðskáldsins, „ómengaður siglfirskur himinn í blíðunni í sumar. Þetta er nýr dagur og fíflarnir að teygja í sig sólskinið,“ segir Þórarinn. Kápumyndin endur- speglar inntak ljóðanna. „Ljóðin eru hugsuð sem full af bjartsýni og eru uppbyggjandi. Það er alltaf nýtt upphaf eins og segir í fyrstu ljóðlínum titilljóðsins Nýr dagur Það er alltaf nýtt líf, það eru alltaf ný tækifæri, það er eins víst og að það kemur nýr dagur. Þó hjartað bresti, þó sorgin nísti, þó tárin renni, þó ástin kveðji. Þó sólin setjist í kvöld þá kemur hún aftur upp að morgni. Þú skalt rísa með henni. Ólympíumót fatlaðra kveikjan  Þórarinn Hannesson gefur út þriðju ljóðabókina  Þjálfar frjálsar íþróttir fyrir hádegi og stendur vaktina á Ljóðasetrinu á Siglufirði seinni partinn Upplestur Þórarinn Hannesson les upp úr ljóðabókinni, Nýr dagur, á Ljóða- setrinu á Siglufirði við góðar undirtektir viðstaddra. Lára Hilmarsdóttir larah@mbl.is „Við förum til Finnlands með þær væntingar að ná okkur í fjármagn en líka í þeim tilgangi að kynna verk- efnið fyrir dreifiaðilum og öllum þeim sem hugsanlega gætu komið að fram- leiðslu og dreifingu á myndinni,“ seg- ir Hlín Jóhannesdóttir. Hún er aðal- framleiðandi heimildarmyndarinnar Um stund, en Ragnheiður Gestsdóttir og Markús Þór Andrésson eru leik- stjórar myndarinnar, og Sami Jahnu- kainen er finnskur meðframleiðandi. Þau sóttu um þátttöku í norræna kvikmyndavettvangnum Nordisk Panorama þar sem kvikmyndagerðarmönnum gefst tækifæri á að afla sér fjármagns og aðstoðar við framleiðslu og gerð kvik- mynda. Þetta árið fer hann fram í Oulu í Finnlandi dagana 23. - 25. sept- ember. Um stund fjallar um íslenska lista- manninn Hrein Friðfinnsson, en Ragnheiður og Markús Þór eiga heiðurinn af hugmyndinni að kvik- myndinni. „Verkefnið er blanda af leikinni mynd og heimildarmynd en við förum mjög frjálslega með form- ið. Að einhverju leyti mætti lýsa myndinni sem tilraunakenndri. Hún er í raun óður til Hreins en hann er frumkvöðull á sínu listasviði,“ segir Hlín. Myndin gerir lífi og verkum listamannsins skil. „Það gerum við í raun gegnum verkin hans og þá sérstaklega vangaveltur listamanns- ins um tímann og afstæðu tímans, en það er viðfangsefni sem Hreinn hef- ur fengist mikið við í verkum sínum,“ bætir Hlín við. Hugmyndin spratt upp í kringum árið 2009 þegar Ragnheiður og Markús Þór hófust handa við upphaf kvikmyndarinnar. Þau báðu svo Hlín að slást í lið með þeim, en hún hefur „Um stund“ óður til Hreins Friðfinnsonar  Sækja sér fjármagn og aðstoð á kvik- myndavettvangnum Nordisk Panorama Spriklandi fiskbúð Veitingastaður / verslun Nethylur 2 • 110 Reykjavík • Sími: 587 2882 • galleryfiskur.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.