Morgunblaðið - 23.07.2012, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 23.07.2012, Qupperneq 27
MENNING 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2012 Það er lærdómsríkt og fræð-andi að lesa dagbækurElku Björnsdóttur verka-konu í Reykjavík sem var uppi á árunum 1881-1924. Lest- urinn gefur einstæða innsýn inn í líf fátæks alþýðufólks við upphaf ald- arinnar, þegar Ísland var enn vanþróað land. Þetta var fyrir tíma hitaveitu, almannatrygginga og samgöngubyltingar. Sagnfræðing- arnir Hilma Gunnarsdóttir og Sigurður Gylfi Magnússon höfðu veg og vanda af útgáfu dagbók- anna sem skrif- aðar eru á ár- unum 1915-1923. Þetta er fimm- tánda bókin í ritröðinni „Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar“. Í rit- röðinni hafa birst verk sem tengj- ast sögu alþýðunnar í landinu frá 16. öld og fram til okkar daga. Hilma og Sigurður Gylfi rita inn- gang að dagbókunum og segja þar frá Elku. Inngangurinn hefði gjarn- an mátt vera ítarlegri, bæði um líf hennar og eins um aðstæður fátæks fólks í Reykjavík á þessum tíma. Sigurður Gylfi fjallar talsvert um alþýðumenningu á 19. öld og nokkra „einkennilega menn“ eins og Sölva Helgason og Símon Dala- skáld. Manni finnst að hann fari þar talsvert út fyrir efnið og erfitt að tengja umfjöllunina beint við Elku. Í dagbókum Elku er nefndur fjöldi persóna, stundum aðeins að fornafni og fornafnið stundum stytt. Lesandinn á oft í mesta basli með að átta sig á hvaða fólk þetta er, en útgefendur hafa ekki farið í þá vinnu að greina persónurnar og út- skýra neðanmáls hver er hvað. Þetta er auðvitað viss ókostur. Stutt greinargerð í inngangi um nokkrar af þeim persónum sem Elka á mest samskipti við bætir vissulega úr en getur þó ekki talist fullnægjandi. Þessi galli getur fælt suma frá því að lesa dagbækurnar, en ef menn láta þetta ekki angra sig of mikið þá er hægt að hugga sig við að smátt og smátt kynnist lesandinn samferðamönnum Elku og lærir hver þau eru Helga, Guð- rún, Jónína, Sigga og Samúel. Eins og gengur og gerist í lífi fólks eru dagarnir mismerkilegir, en gildi dagbóka Elku er aðallega tvenns konar. Annars vegar má af þeim fræðast um daglegt líf alþýðu- konu sem barðist við fátækt og veikindi. Hins vegar er Elka áhorf- andi og þátttakandi í sögulegum at- burðum á þessum tíma. Hún lýsir brunanum í miðborg Reykjavíkur 1915. Hún tekur þátt í stofnun ASÍ árið 1916, tekur þátt í starfi Al- þýðuflokksins og verkakvenna- félagsins Framsóknar. Hún upplifir fullveldistökuna, Kötlugos, drengs- málið, spænsku veikina og hún kynnist vöruskorti og öðrum afleið- ingum fyrri heimsstyrjaldarinnar. Sagnfræðingar hafa talsvert not- að dagbækur Elku, en segja má að Margrét Guðmundsdóttir sagn- fræðingur hafi orðið fyrst til að vekja athygli á þeim. Því ber að fagna að búið er að gera þær að- gengilegar almenningi. Allt of lítið er um útgáfu á frumheimildum hér á landi og því fagnaðarefni í hvert sinn sem frumheimildir eru prent- aðar. Það er raunar okkur Íslend- ingum til skammar að á tímum raf- rænnar miðlunar skulum við ekki hafa gert meira af því að gera frumheimildir aðgengilegar á net- inu. Þar stöndum við langt að baki nágrannaþjóðum okkar. Fræðandi dagbók alþýðukonu Elka Alþýðukona ættuð úr Þingvallasveit, en fluttist síðar til Reykjavíkur þar sem hún lét mál kvenna, menningar, alþýðu og margt fleira sig varða. Dagbók Elku bmn Alþýðumenning í þéttbýli á árunum 1915–1923 í frásögn Elku Björnsdóttur verkakonu Útgefandi: Háskólaútgáfan 2012 330 blaðsíður EGILL ÓLAFSSON BÆKUR komið að gerð fjölda þekktra ís- lenskra kvikmynda, m.a. Svartur á leik, Eldfjall, Gauragangur og The Good Heart. Teymið á bak við myndina er nú þegar komið töluvert langt á leið með að afla sér aðstoðar og fjármagns. „Við erum búin að forselja birtingar- rétt á myndinni til finnsku sjónvarps- stöðvarinnar YLE og íslenska ríkis- sjónvarpsins. Þar að auki höfum við fengið styrki og aðstoð frá Kvikmyndamiðstöð Íslands, Media- styrk frá Evrópusambandinu og frá kanadísku menningar-, menntunar- og listastofnuninni Banff,“ segir Hlín og telur það vera eina ástæðu fyrir því af hverju verkefnið hafi verið valið til þess að taka þátt í vett- vangnum sem Nordisk Panorama stendur fyrir. „Við erum bærilega sátt hvað við erum komin langt á leið nú þegar með kvikmyndina,“ segir Hlín. Hópurinn vonast til þess að afla sér frekari fjármagns og að- stoðar við verkefnið. „Þetta er tæki- færi fyrir verkefnið og eftir það snýst það um að vinna sem best úr því sem við höfum upp úr þátttök- unni, en okkur veitir ekkert af þessu tækifæri,“ segir Hlín. Þau stefna að því að halda áfram tökum á mynd- inni seinni part hausts og leggja lokahönd á kvikmyndina í framhaldi af því. Sýning á kvikmyndinni í tengslum við listasýningu á verkum Hreins er einnig á döfinni á komandi ári. Hreinn Friðfinnsson „Hugmyndin var að taka listaverk eftir Hrein og út- færa það sem handrit að heimildarmyndinni.“ SÍÐUMÚLI 31 | 108 REYKJAVÍK | SÍMI 414 8400 / 414 8409 | HEXA.IS | HEXA@HEXA.IS SÉRHÆFT FYRIRTÆKI Í STARFSMANNAFATNAÐI ERUM FLUTT AÐ SÍÐUMÚLA 31. Fjallalamb á framandi máta Grillað fillet á spjóti, marinerað í hvítlauk, ólífuolíu, tímian & dijon sinnepi, borið fram á salatbeði með hægelduðum rauðlauk, ristuðum sveppum, bakaðri kartöflu & hvítlauks dressingu 2.690 kr. Hálendis spjótNÝTT Grillhúsið Tryggvagötu og Sprengisandi, sími: 5275000, grillhusid@grillhusid.is, www.grillhusid.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.