Morgunblaðið - 23.07.2012, Page 29

Morgunblaðið - 23.07.2012, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2012 Hvað ertu að hlusta á um þessar mundir? Ég hlusta mest á hljóðbækur þessa dagana í góðum göngu- og hjólatúrum, m.a. ævisögu Einsteins, ævintýri Sherlock Holmes og smá Jane Austen. Svo er maður allt- af að fá einhverjar skemmtilegar músíksendingar frá vinum og kunningjum auk þess sem maður rifjar reglu- lega upp gömul kynni við snillinga eins og Jimi Tenor, Chavez, Blonde Redhead og Komeda. Svo er maður svona að laumast til að hlusta á eitthvað nýtt og skemmtilegt, yfirleitt úr óvæntum áttum. Hvaða plata er sú besta sem nokkurn tíma hefur verið gerð að þínu mati? Hvað varðar bestu plötu sem nokkurn tíma hefur verið gerð, held ég að það sé algerlega ómögulegt að tala um slíkt, þar sem forsendurnar eru svo ólíkar. Samt er Pet Sounds með Beach Boys alveg rosalega nálægt því að vera hin fullkomna plata. Smile, sem kom út 40 árum á eftir áætlun, ber öll merki þess að á sínum tíma hefði hún verið stórkostlegasta rokkplata sögunnar. Hver var fyrsta platan sem þú keyptir og hvar keyptir þú hana? Ég man ekkert hver fyrsta platan var sem ég keypti mér. En ég held það hafi verið rosagóð plata. Fyrsta platan sem ég spilaði í gegn var hins vegar Prúðuleik- araplatan og ég bý enn að þeirri dásemd sem hún var. Hvaða íslensku plötu þykir þér vænst um? Mér þykir alveg óskaplega vænt um plöturnar Lonely mountain og Mugimama is this monkey music með Mugison. Svo er platan Hlunkur er þetta með Halla og Ladda alveg í sér- stöku uppáhaldi hjá mér. Það er einhver andi yfir henni sem er óviðjafnanlegur og stórkost- legur. Hvaða tónlistarmaður værir þú mest til í að vera? Ég veit það er klisja, en mér finnst alveg frábært að vera bara Svavar Knútur. Ég er með ótrúlega einfaldar þarfir og lífið mitt svo fallegt bara. Það er mergjað að fá að lifa líf- inu algerlega á eigin forsendum. En ég myndi sosum ekki fúlsa við þeim gríð- arlega hafsjó hæfileika sem Davíð Þór Jónsson býr yfir. Það væri ekkert ómögulegt. Hvað syngur þú í sturtunni? Ég syng yfirleitt God only knows eftir Brian Wilson í sturtunni. Það er lag um þakklæti og að kunna að meta lífið og tilveruna og á vel við þegar maður þvær af sér syndir hversdagsins. Hvað fær að hljóma villt og galið á föstudagskvöldum? Föstudagskvöldin mín eru ótrú- lega chilluð og róleg yfirleitt, en ég neita mér ekki um stöku Basement Jaxx stuð eða Beyonce ef ég vil hrista bossann minn :D En hvað yljar þér svo á sunnudagsmorgnum? Á sunnudagsmorgnum finnst mér æði að setja bara á Rás 1 eða BBC world ser- vice og hlusta á spjall, rólegheit og sígilda músík. Mér finnst dásamlegt líka að setja Beethoven á fóninn og fara í djúpa gírinn. Í mínum eyrum Svavar Knútur tónlistarmaður Finnst alveg frábært að vera bara Svavar Knútur Morgunblaðið/Kristinn Hljómsveitin Muck sendi nýlega frá sér lagið „Here Comes the Man“ en það er eitt laga sem koma út á væntanlegri sjötommu sem er á döfinni hjá sveitinni. Hljómsveitin heldur í tónleika- ferðalag í þeim tilgangi að kynna nýja plötu sína „Slaves“ sem kom út í febrúar á þessu ári. Fyrsti áfangastaður á tónleikaferðalag- inu er Evrópa en meðal við- komustaða má nefna Fredericia, Esbjerg og Árósar í Danmörku ásamt Leipzig og Neubranden- burg í Þýskalandi og Búdapest í Ungverjalandi, svo eitthvað sé nefnt. Hljómsveitin snýr svo aftur til Bandaríkjanna í kjölfarið af Evr- ópu-ferðalaginu, en hún kom til Íslands frá Bandaríkjunum í byrj- un júnímánaðar eftir tónleika- ferðalag um austurströndina. Hljómsveitinni hefur verið boðið svokallað „art residency“ í The Clocktower Gallery í New York, en Muck heldur þangað í mán- aðarlangt ferðalag þann 19. des- ember. Eftir langt og strangt tón- leikahald báðum megin Atlantshafsins eru upptökur á næstu breiðskífu hljómsveitar- innar á dagskrá. Áhugasamir um lagið „Here Comes the Man “ sem hljóm- sveitin sendi nýlega frá sér geta nálgast það á vefmiðlinum www.muckhc.net. larah@mbl.is Hressir Strákarnir í hljómsveitinni Muck verða á ferð og flugi í tónleika- ferðalögum um Evrópu og Bandaríkin á næstunni. Muck endasendist um Evrópu  Boðið „art residency“ í New York CHANNING Tatum MATTHEW McConaughey            VINNAN Á KVÖLDIN HEFUR ALDREI VERIÐ JAFN SKEMMTILEG! SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI - SÝND Í 2D OG 3D                       ÁLFABAKKA EGILSHÖLL VIP 16 16 L L L L L L 12 12 12 16 L L L 12 12TED kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D MAGIC MIKE kl. 8 - 9 - 10:30 2D DREAMHOUSE kl. 8 - 10:10 2D ÍSÖLD 4 ÍSLTAL kl. 6 3D ÍSÖLD 4 ENSKTTAL kl. 7 2D MADAGASCAR 3 ÍSLTAL kl. 6 2D KRINGLUNNI 16 L L 12 12 12 MAGIC MIKE kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D DREAMHOUSE kl. 8 - 10:10 2D MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 5:50 3D MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 5:50 2D LOL kl. 8 2D ROCK OF AGES kl. 10:10 2DAKUREYRI 16 L 12 12 Madagascar 3 M/ísl.Tali kl. 6 3D MAGIC MIKE kl. 8 - 10:20 2D LOL kl. 6 2D Dream House kl. 8 - 10:20 2D KEFLAVÍK 16 12 12 TED kl. 8 2D MAGIC MIKE kl. 10:20 2D DREAMHOUSE kl. 8 - 10 2D MAGIC MIKE kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 2D MAGIC MIKE VIP kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10 2D ICE AGE 4 ÍSLTAL kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 3D ICE AGE 4 ensku.Tali kl. 8 - 10:10 3D ICE AGE 4 ÍSLTAL kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 2D DREAMHOUSE kl. 8 - 10:10 2D CHERNOBYL DIARIES kl. 10:30 2D ROCK OF AGES kl. 8 2D MADAGASCAR 3 ÍSLTAL kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 3D MADAGASCAR 3 ÍSLTAL kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 2D SNOW WHITE kl. 10:20 2D UNDRALAND IBBA ÍSLTAL kl. 1:30 2D FRUMSÝND 25. JÚLÍ TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á SAMBIO.IS STÆRSTA MYND ÁRSINS  EMPIRE  HOLLYWOOD REPORTER  KVIKMYNDIR.IS  SÉÐ OG HEYRT TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.