Morgunblaðið - 28.07.2012, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 28.07.2012, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2012 gestir.landsvirkjun.is Kraftur úr iðrum jarðar Við Kröflu vinnum við rafmagn úr gufuþrýstingi djúpt í jörðu. Í gestastofu Landsvirkjunar í Kröflustöð er hægt að skoða áhugaverða sýningu um þá krafta sem leynast í iðrum jarðar. Kröflustöð - Gestastofa Opið kl. 10-16, júní-ágúst. Búrfell - Gagnvirk orkusýning Opið kl. 10-18, júní-ágúst. Fljótsdalsstöð - Gestastofa Opið kl. 10-17, júní-ágúst. Landsvirkjun býður gesti velkomna í þrjár aflstöðvar í sumar: Reykjavík Verulega glæsilegt og flott 309,8 fm hús á einstökum stað í miðbæ Reykjavíkur. Húsið er kjallari, hæð og ris. Um er að ræða sögufrægt hús sem hefur verið mikið endurnýjað. Húsið er stílhreint og fallegt. Skrautlisti er á öllum hliðum hússins og miklir skraut- listar eru í loftum á stofunni. Rósettur eru víða í herbergj- unum. Glæsilegt útsýni yfir Tjörnina. V. 98,0 m. 1832 Fríkirkjuvegur 3 - sögufrægt hús Sími 588 9090 • Síðumúla 21 • 108 Reykjavík • www.eignamidlun.is Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,6% og vísitalan án húsnæðis um 4,7%. Vísi- tala neysluverðs miðuð við verðlag í júlí 2012 er 397,2 stig og lækkaði um 0,72% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 376,9 stig og lækkaði um 1,0% frá júní, að því er segir á vef Hagstofunnar. Fram kemur að sumarútsölur séu víða í gangi og að verð á fötum og skóm hafi lækkað um 9,8%. Flugfar- gjöld til útlanda lækkuðu um 15% og verð á bensíni og díselolíu lækkaði um 2,2%. Verð á mat- og drykkjarvörum hækkaði um 1,3% og vó þar þyngst 5,2% hækkun á verði mjólkurafurða og eggja. Sem fyrr segir hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,6% sl. 12 mánuði og vísitalan án húsnæðis um 4,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs lækkað um 0,3% sem jafngildir 1% verðhjöðnun á ári (1,9% verðhjöðnun á ári fyrir vísitöl- una án húsnæðis). Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júlí 2012, sem er 397,2 stig, gildir til verðtryggingar í sept- ember 2012. Vísitala fyrir eldri fjár- skuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.843 stig fyrir september 2012. Tólf mánaða verðbólga 4,6% Hækkun Þyngst vó 5,2% hækkun mjólk- urafurða og eggja. Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Stofnfiskur hefur gert þriggja ára tæknisamning við fiskeldi í Síle. Ís- lenska fyrirtækið hefur í nokkur ár selt fiskeldinu Yadrán öll laxahrogn sem það þarf til framleiðslunnar en nú hefur samstarfið verið eflt á þann veg, að Yadrán mun veita Stofnfiski upplýsingar um hvernig fisknum reiðir af, þ.e. hvernig hann vex, hver afföllin eru og fleira. Stofnfiskur nýt- ir upplýsingar í kynbótastarf á laxa- stofninum, að sögn Jónasar Jónssonar, fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins. Hann segir í samtali við Morg- unblaðið að með samningnum sé verið að treysta samstarf fyrir- tækjanna. Yadrán framleiðir um 20-25 þús- und tonn. „Það þykir mikið,“ segir Jónas. Hann nefnir að það verði framleiddar um 1,6-1,7 milljónir tonna af Atlantshafslaxi í ár. Stofnfiskur selur til Noregs, Fær- eyja, Síle og flestra landa sem ala lax. „Við erum eiginlega eina hrognaframleiðslufyrirtækið í heimi sem getur framleitt hrogn allt árið. Venjulegur lax hrygnir bara á haust- in,“ segir hann og þakkar það góðum aðstæðum á Íslandi. Fyrirtækið er með skrifstofur í Síle, Noregi og Íslandi og er með 42 starfsmenn. Treystir böndin í Síle  Stofnfiskur gerir þriggja ára samning við laxeldi í Síle  Selur um víða veröld Jónas Jónsson Bæjarráð Hafnarfjarðarbæjar telur ekki tilefni til að nýta forkaupsrétt- arákvæði í HS Veitum. Þetta var niðurstaða fundar bæjarráðs í fyrra- dag, en fyrirtækjaráðgjöf Íslands- banka hafði óskað eftir því að bæj- arráðið samþykkti að falla frá forkaupsrétti bæjarins. Í fundargerð bæjarráðs Hafn- arfjarðarbæjar segir: „Miðað við fyrirliggjandi forsendur um að þrátt fyrir fyrirhugaða sölu muni Reykja- nesbær eftir sem áður eiga að lág- marki 50% hlutafjár í fyrirtækinu telur bæjarráð ekki tilefni til að nýta forkaupsréttarákvæði í sam- þykktum hlutafélagsins.“ Nýtir ekki forkaupsrétt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.