Morgunblaðið - 09.08.2012, Síða 4
4 finnur.is 9. ágúst 2012
Hver þekkir ekki það ergjandi ans-
ans ólán að brjóta blýið í blýant-
inum, einmitt þá er leikar standa
sem hæst í skriftunum? Það getur
ært óstöðugan og rúmlega það.
Ljóst má því vera að höggmynda-
list sú sem Japaninn Toshiyuki
Yamazaki hefur lagt fyrir sig hent-
ar ekki öllum. Því þeir sem eiga
bágt með að skrifa með blýanti án
þess að brjóta oddinn eiga líklega
engan séns í að takast það sem
hann gerir. Yamazaki heggur
nefnilega út í blýantsodda, jafnt
tréblýanta sem skrúfblýanta.
Óþarft er að hafa fleiri orð um list
hans – myndirnar segja það allt.
Japanskur listamaður heggur út í blý
Skúlptúrgerð
fyrir lengra
komna
Yamazaki fer jafnlétt með lat-
neska bókstafi og japanska.
Meira að segja kínverskir eru
honum leikur einn.
Smáræði til
heiður AFP-
fréttastof-
unni í Tók-
ýó. AFP og
Tókýó, ger-
ið svo vel.
Latneska stafrófið
eins og það leggur sig
- ekki nema það þó.
Lykillinn að listinni?
Þolinmæði og vand-
virkni, án nokkurs vafa.
Flestir fengju fljótlega
fyrir hjartað ef þeir
reyndu við annað eins...
en ekki Yamazaki.
Blýkeðja sem telur
23 hlekki. Ekki þarf
að koma á óvart að
þetta er heimsmet.
AFP
Söngfuglinn Kristjana Stefánsdóttir býður til
tónlistarveislu í Hörpu í tilefni Hinsegin
daga. Tónleikarnir eru á föstudag og mun
Kristjana þar gera góð skil ýmsum hinsegin
jöfrum söngleikja- og djasstónlistar. Á dag-
skránni eru m.a. Bernstein, Porter, Sond-
heim og Wainwright. Árni Heimir Ingólfsson
fræðir tónleikagesti um söguna á bak við
söngverkin.
Þriðjudagur: Sellufundur með Bergi Þór
Ingólfssyni leikara og Halldóru Geirharðs-
dóttur leikkonu á Kaffismiðjunni. Rætt um
komandi trúðasýningar á Jesú litla í Borg-
arleikhúsinu fyrir næstu jól og ýmislegt ann-
að. Sund með dóttur minni um kvöldið.
Miðvikudagur: Klára að skrifa út síðustu út-
setningar fyrir Hinsegin-Hörputónleikana.
Ferð plottuð með dóttur minni á Patreks-
fjörð um verslunarmannahelgina. Kósý
kvöldstund ásamt Kristínu vinkonu og Lóu
minni.
Fimmtudagur: Annar fundur með Bergi og
Dóru um morguninn. Habba vinkona heim-
sótt eftir hádegið. Æfing með Tomma Jóns
píanóleikara fyrir Hinsegin Jazz og söngur
fyrir útför æfður með frábærum stórsöngv-
urum og vinum.
Föstudagur: Söngur í fallegri útför í Foss-
vogskirkju og erfidrykkja í Perlunni og svo
heim að pakka. Brunað af stað á Patreks-
fjörð ásamt Gísla vini mínum og Lóu dóttur
minni. Lentum fyrir vestan um nóttina og tók
húsráðandi á móti okkur með glænýjum ís-
lenskum aðalbláberjum, sykri og rjóma.
Laugardagur: Farið með frábæru fólki á
sjóstöng á Patreksfirði. Veiddum tólf þorska
og eina ýsu. Grillaðar kótelettur um kvöldið
með besta kryddsmjöri sem ég hef smakkað.
Spilað á ukulele, sungið og spáð í Tarotspil.
Sunnudagur: Göngutúr um Patreksfjörð. Sund-
laugin á staðnum heiðruð og svo matarboð þar
sem fengur gærdagsins var á borðum. Grillaður
og ofnbakaður þorskur og aðalbláber með rjóma í
eftirrétt. Trúnó og kósýheit.
Mánudagur: Lóa fór í sjóræningjaskólann á Pat-
reksfirði ásamt vinkonu sinni og útskrifuðust þær
með stæl. Svo heimferð sem tók allan daginn.
Mætt í 101 Reykjavík rétt undir miðnættið. Ansi
góð vika að baki.
ai@mbl.is
VIKA Í LÍFI KRISTJÖNU STEFÁNSDÓTTUR
Glæný bláber,
sykur og rjómi
’Ǵlæný íslensk
aðalbláber,
sykur og rjómi.
Morgunblaðið/
Styrmir Kári
’Śpilað á ukulele,
sungið og spáð í
Tarotspil.
AF HVERJU EKKI AÐ FÁ
MEIRA FYRIR MINNA?
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is
Pípulagnahreinsir
Perfect Jet
Síuhreinsihaus Stuðningssæti
U.V. Áburður
fyrir lok
Glasabakki
Yfirborðshreinsir
fyir skel
FituhreinsirFroðueyðir
Síuhreinsir
3499,-
1249,-
2899,-
2899,-2999,-
3299,-
3499,-
4499,-
1999,-
*Öll verð eru m/vsk og birt án ábyrgðar
Úrval fylgihluta fyrir heita potta