Morgunblaðið - 18.09.2012, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 8. S E P T E M B E R 2 0 1 2
Stofnað 1913 218. tölublað 100. árgangur
MARKVÖRÐURINN
VILL TRYGGJA
EM-SÆTIÐ Í ÓSLÓ
NÝTT
BÍLABLAÐ Á
ÞRIÐJUDÖGUM
HEIÐRAR
SÖNGKONUR
STRÍÐSÁRANNA
BÍLAR 8 SÍÐUR KRISTJANA SKÚLADÓTTIR 3090. LANDSLEIKUR ÞÓRU ÍÞRÓTTIR
Vilhjálmur Andri Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Brjóti ríkisstjórnin það samkomulag
sem hún gerði við formenn stjórnar-
andstöðuflokkanna í sumar gæti það
haft töluverð áhrif á samskipti
stjórnar og stjórnarandstöðu í vetur
og jafnvel í viðræðum flokkanna eftir
kosningar næsta vor.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins,
segir ummæli Steingríms J. Sigfús-
sonar, atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðherra, um að niðurstaða trúnað-
armannahóps stjórnmálaflokkanna í
vinnu við frumvarp um stjórn fisk-
veiða sé ekki bindandi sýna það fyrst
og fremst að ríkisstjórnarflokkunum
sé ekki treystandi.
„Ef samkomulagið er svikið hlýtur
það að hafa áhrif á alla framtíðar-
möguleika á samkomulagi við for-
ystumenn ríkisstjórnarinnar, bæði
fyrir og eftir kosningar.“ Þrátt fyrir
afstöðu forystumanna ríkisstjórnar-
innar segir Sigmundur marga
stjórnarliða vilja halda samkomulag-
ið.
Vanvirðing við vinnuna
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, lítur á brot á
samkomulaginu sem vanvirðingu við
þá vinnu sem unnin hefur verið frá
því samkomulagið var gert 18. júní í
sumar. „Þetta er í raun óskiljanleg
afstaða nema hvað það snertir að það
virðist vera ríkur vilji að hafa sem
flest ágreiningsefni hjá stjórnar-
flokkunum. Mér finnst eins og menn
hafi verið hafðir að fífli.“
Samningsbrot gæti haft áhrif
á stjórnarmyndunarviðræður
Stjórnarflokkum ekki treystandi Ríkur vilji að hafa sem flest ágreiningsefni
MEnn eitt samkomulagið » 15
Karlmaðurinn sem slasaðist alvar-
lega þegar sprenging varð í íbúð
hans í Ofanleiti í Reykjavík á
sunnudag er látinn. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu lést maðurinn
á gjörgæsludeild Landspítalans síð-
degis í gær. Maðurinn var á fer-
tugsaldri.
Sprengingin varð um kl. 11 á
sunnudagsmorgun og hefur lög-
regla upplýst að um gassprengingu
hafi verið að ræða í íbúðinni. Þar
fannst ellefu kílóa gaskútur og seg-
ir lögregla ljóst að gas hafi lekið úr
kútnum í nokkurn tíma áður en
sprengingin varð, en illa var lokað
fyrir krana á kútnum.
Lést af völdum
sprengingarinnar
Haustið er nú alltumlykjandi og gætir þess bæði í veðrinu og litbrigðum
náttúrunnar. Á höfuðborgarsvæðinu spáir björtu en svölu veðri í dag og á
morgun en fyrir norðan spáir strekkingi af norðvestri í dag með dálítilli
rigningu á láglendi en slyddu annars.
Hlaupið inn í haustið
Morgunblaðið/Ómar
Guðni Einarsson
Hörður Ægisson
Þrátt fyrir að Ísland hafi færst nær
því að vera heppilegur aðili að evr-
ópska myntsvæðinu þá er Ísland
hins vegar enn í þeim hópi Evr-
ópuríkja sem minnstan ábata hefðu
af slíkri aðild, ásamt ríkjum á borð
við Noreg, Bretland og jaðarríki
evrusvæðisins. Þetta kom fram í
máli Þórarins G. Péturssonar, aðal-
hagfræðings Seðlabankans, þegar
hann kynnti skýrslu Seðlabankans
um valkosti Íslands í gjaldmiðils-
og gengismálum í gær. Ritið er upp
á 622 bls. og þar eru m.a. skoðaðir
kostir þess og gallar að leggja af
krónuna og taka upp evru. Einnig
kostir og gallar aðildar að öðrum
myntsvæðum með einum eða öðrum
hætti.
„Ekki verða á þessu stigi dregn-
ar einhlítar niðurstöður um það
hvaða leið er best fyrir Íslendinga í
gjaldmiðils- og gengismálum,“
skrifar Már Guðmundsson, seðla-
bankastjóri, í skýrslunni. Hann seg-
ir að ein af ástæðum þess að erfitt
sé að komast að einhlítri niðurstöðu
um hvaða kost Íslendingar ættu að
velja í gjaldmiðils- og gengismálum
sé óvissa um hvernig þeim tveim
kostum sem helst virðast koma til
greina reiði af á næstunni. Þeir eru
annars vegar endurbætt umgjörð
um krónuna og losun hafta og hins
vegar aðild að ESB og evrusvæð-
inu. »12
Óvíst hvaða leið er best
Skoðun Seðlabankans á valkostum Íslands í gjald-
miðils- og gengismálum leiðir ekki til einhlítrar niðurstöðu
létt&laggott
Slitastjórn
Landsbanka Ís-
lands hf. hefur
gengið frá sölu á
allri hlutafjár-
eign félagsins í
móðurfélagi
bresku versl-
unarkeðjunnar
Hamleys. Um er
að ræða 65% hlut í félaginu, sem áð-
ur var í eigu Baugs, en hefur nú
verið seldur franska félaginu
Groupe Ludendo. Söluverðið er um
60 milljónir punda, eða um 11,8
milljarðar íslenskra króna.
Í tilkynningu frá slitastjórn LBI
hf. kemur fram að hún hafi sam-
þykkt söluna eftir að hafa meðal
annars fengið óháð sanngirnismat
fjárfestingabankans Bank of Am-
erica Merrill Lynch á söluverði og
skilmálum viðskiptanna.
Hamleys
seld fyrir
11,8 milljarða
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
greip í gærkvöldi til aðgerða í
Hafnarfirði og Mosfellsbæ gegn
liðsmönnum mótorhjólagengja.
Nokkrir voru handteknir í að-
gerðunum og eins mun hafa verið
lagt hald á vopn, samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins.
Lögðu hald á vopn