Morgunblaðið - 18.09.2012, Blaðsíða 11
Hamingja Eftir fyrsta klifurdaginn í Montenvers. F.v. Sigga Sif, Sveinborg og Heiða. Mer de Glace-jökullinn í bak-
sýn en þær gengu niður hann frá Couvercle-skálanum nokkrum dögum seinna.
mikil snjókoma, alveg niður í átján
hundruð metra en tindurinn er fjög-
ur þúsund og átta hundruð metra
hár. Af þessum ástæðum var snjó-
flóðahætta og allar ferðir þangað
upp lágu niðri. Við klifruðum þess í
stað fjölfarnar leiðir þar sem hægt
er að fara tólf til fimmtán spannir en
við héldum okkur í sex spönnum. En
þegar klifrað er upp með línu þá er
ein línulengd kölluð ein spönn, eða
um sextíu metrar.“
Draumur í klifurparadís
Þær voru samfleytt í tvær vikur
í Ölpunum og klifruðu á hverjum
degi í átta til tíu tíma. „Chamonix er
lítill bær alveg við rætur Mont Blanc
og ein okkar hefur verið þarna oft á
skíðum og ég var þarna eitt sumar.
Þetta er sælureitur, lítill dalur um-
vafinn fjöllum og það er hægt að
taka lyftu upp í tvö þúsund metra
hæð og klifra svo út frá því. Við vor-
um í svokölluðu boltaklifri en þá
festum við línuna í bolta. Við völdum
okkur leiðir við hæfi og þurftum líka
að passa að vera komnar aftur að
lyftunni fyrir síðustu ferð niður í lok
dags, en við misstum einmitt nokkr-
um sinum af henni og þurftum að
ganga niður stíga. Við lítum á klifrið
sem fjallamennsku og það er algjör
draumur að komast þarna út í þessa
klifurparadís, því hér heima eru
örfáar slíkar leiðir og mjög erfiðar.
Bergið úti í Frakklandi er líka miklu
þéttara en hér heima og þetta þorp,
Chamonix, er Mekka fjallamennsku.
Þarna er aðalháfjallaleiðsögu-
mannaskólinn og þarna er mjög mik-
il fjallaferðamennska og ótrúlega
mikið af fólki. Þetta var rosalega
gaman,“ segir Heiða og bætir við að
hún verði að viðurkenna að þetta
mætti kannski túlka sem fíkn enda
eru þær strax farnar að velta fyrir
sér hvenær þær komist í næstu ferð.
Klifur Heiða að klifra á Brevent-svæðinu, stuttu seinna fór að rigna og þær
misstu af síðasta kláfnum og þurftu að labba niður í bæ, 1.500 m lækkun.
Rölt upp á Montenvers Sigga Sif og Heiða, alsælar að koma úr tveggja
daga spássitúr eða Via Ferrata-göngunni í hinn fagra Couvercle.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2012
TRAUS
T
OG GÓ
Ð
ÞJÓNU
STA
Í 16 ÁR
HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200 – OPIÐ: VIRKA DAGA: 9:30-18, LAUGARDAGA: 11-14
VIÐ EIGUM 16 ÁRA AFMÆLI
FULLT AF FLOTTUM TILBOÐUM
FRÍAR SJÓNMÆLINGAR
ÞRIÐJUDAG TIL FÖSTUDAGS
VERIÐ VELKOMIN