Morgunblaðið - 18.09.2012, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2012
Íþróttakonan Rakel Nathalie Kristinsdóttir fæddist 18. sept-ember árið 1992 og er því tvítug í dag. Rakel er í landsliðinu ífimleikum og hefur líka verið sigursæl í hestaíþróttum og unn-
ið þar ófáa titlana frá unga aldri. Rakel er sveitastelpa, frá Árbæj-
arhjáleigu í Rangárþingi ytra, en fluttist til Reykjavíkur í haust þeg-
ar hún hóf nám í lífefna- og sameindalíffræði við Háskóla Íslands.
Það eru margir sem halda veglegt partí þegar þeir verða tvítugir
en Rakel ætlar að láta það bíða enda enginn tími til partíhalda. „Það
er nóg að gera í skólanum og svo er ég að æfa fimleika á fullu. Af-
mælisdagurinn fer í að læra eðlisfræði og svo er fimleikaæfing um
kvöldið. Ég fæ samt ábyggilega einhverjar heimsóknir. Pabbi er á
fjalli og systir mín fyrir norðan en mamma kíkir líklega í heimsókn
og vonandi með pakka,“ segir Rakel sposk.
Rakel hefur nú búið í Reykjavík í nokkrar vikur og segir það vera
ágætt, hún búi nálægt skólanum og hjóli út um allt. Einu sinni í viku
fer hún á Selfoss á fimleikaæfingu en æfir annars hjá Stjörnunni í
Garðabæ. Eins og er eru hestarnir í haustfríi. „Þegar ég er komin
með meiri reglu á þetta kíki ég heim um helgar á bak og eftir ára-
mót ætla ég kannski að taka einn til tvo hesta í bæinn,“ segir Rakel.
Hún segist ekki geta gert upp á milli hestamennskunnar og fimleik-
anna, hvort tveggja sé mjög skemmtilegt. ingveldur@mbl.is
Rakel Nathalie Kristinsdóttir er tvítug
Tvítug Rakel Nathalie Kristinsdóttir heldur í hestinn Kost á Lands-
móti hestamanna sem var haldið í Reykjavík nú í sumar.
Hefur engan tíma
til að halda partí
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Hafnarfjörður Jóel Ingi fæddist 30.
desember kl. 7.08. Hann vó 3.765 g og
var 52 cm langur. Foreldrar eru Guð-
rún Ögmundsdóttir og Ragnar Þór
Reynisson.
Nýir borgarar
Njarðvík Sóley Björk fæddist 18.
október kl. 9.17. Hún vó 3.515 g og var
51 cm löng. Foreldrar hennar eru Björk
Snorradóttir og Herbert Guðmunds-
son.
Á
rni fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp, við
Túngötu, Bergstaða-
stræti og í Norðurmýri,
og var í sveit á Móbergi
í Langadal.
Árni útskrifaðist frá VÍ 1946, var í
einkatímum í píanóleik hjá Matthildi
Matthíasson, stundaði nám við Tón-
listarskólann í Reykjavík og síðar
við Tónskóla þjóðkirkjunnar, var í
einkatímum í píanóleik hjá Gísla
Magnússyni og Rögnvaldi Sigur-
jónssyni. Löngu síðar lauk hann
kennaraprófi og síðan tónmennta-
kennaraprófi frá Tónlistarskólanum
í Reykjavík.
Í bransanum í bænum
Árni vann um skeið við logsuðu
hjá Ofnasmiðjunni í Reykjavík.
Hann hóf sinn tónlistarferil 1945
sem píanóleikari í hljómsveit Björns
R. Einarssonar er lék í Listamanna-
skálanum og Breiðfirðingabúð. Í
hljómsveitinni voru, auk Árna,
Björn R. og Guðmundur bróðir hans
á trommur, Gunnar Egilson á klar-
inett, Axel Kristjánsson á gítar og
Haraldur Guðmundsson á trompet.
Árni var síðan með eigin hljómsveit í
Tjarnarlundi og í Bárunni, var í
hljómsveit Svavars Gests um skeið,
var með hljómsveit á gamla Röðli á
sjötta áratugnum og með hljómsveit
í Þjóðleikhúskjallaranum, lék þar
með Jan Morávek, og í Tívolígarð-
inum, lék með hljómsveit Joses Riba
í Silfurtunglinu og í Tjarnarkaffi og
lék gömlu dansana með Guðna
Guðnasyni, Rúti Hannessyni og
Guðmundi Hansen.
Árni lék á Naustinu 1964-74, með
Morávek og Pétri Urbancic. Hann
Árni Ísleifsson djassleikari – 85 ára
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Enn að Árni kemur enn fram opinberlega. Hér er hann á Boston við Laugaveg fyrir tveimur árum.
Austfjarðadjassgoðinn
Í laxveiði Árni með veiðifélaga sínum, Kristjáni Kristjánssyni heitnum í KK.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is